Morgunblaðið - 04.01.1949, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.01.1949, Qupperneq 1
16 síður 36. árgangur. 1. l!»l. — Þriðjurlagur 4. janúar 1949, • Prentsmiðja Morgunblaðsins á skömtuninii iiiMsi iiiium SjersSakur sokkaskamSur - Smjöriíki skamSaðo. fi, SKÖMMTUNARYFIRVÖLDIN hafa nú ákveði'ð vöruskömmtun ína fyrir fyrsta skömmtunartímabil þessa árs, 1. janúar til 31. mars n.k. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á skömtun- inni. T.d. hefur kaffi og sykurskammtur verið aukinn. Allveru- legar breytingar hafa verið gerðar á búsáhalda- og vefnaðar- vöru skammtinum og loks hefur svo verið tekin upp skömmtun á smjörlíki. Kaffi og sykur ‘ Breytingar þær á vöruskönimt uninni, sem til framkvæmda komu 1. janúar eru þessar: Kaffiskammturinn hefur verið aukinn um einn pakka á mán- uði og er nú fjórir pakkar í stað þríggja. Aukningin á syk- urskammtinum nemur % kg. og verður því fimm kg í stað 4% kg. Skóskammturinn Ákveðið hefur verið, að skó- skammturinn verði óbreyttui' og gilda skómiðarnir til árs- loka 1949. Skömmtunaryfir- yölclin hafa hinsvegar lofað að taka til athugunar á síðari hluta ársins, hvort kringumstæður muni leyfa, að gefnir verði út fleiri skómiðar. Vefnaðarvörur . Skömmtunaryfirvöldin hafa ákveðið að vefnaðarvöru- skammturinn fyrir næstu þrjá mánuði verði 80 kr., auk þess 2 pör af sokkum, karla, kvenna eða barna. í þessari 80 kr. skömmtunarmiðaupphæð, er einnig innifalið allt efni til ytri fatnaðar, sem áður var skammt að með stofnauka nr. 13. Eng- inn nýr stofnauki eða skammt- ur er gefinn út vegna kaupa á ytri fatnaði. En eins og áður hefur verið skýrt frá hjer í blað inu, geta þeir einstaklingar sem enn eiga stofnauka nr. 13 ónot- aðann, fengið honum skipt í út- Framh. á bls. 12 6400 lonn loftieiðis fil Berlínar Berlín í gærkveldi. FLUGVJELAR Vesturveld- anna fluttu 6400 tonn af varningi til Vestur Berlínar þá 24 klukkutíma, sem lauk á hádegi í dag. Er þetta með því almesta, sem flutt hefur verið loftleiðis til borgarinn- ar frá því að byrjað var á ioftbrunni í juní s. 1. —Reuter. fíörn fnrast í eltli. NEW YORK — Sex börn ljetu lifið í eldsvoða skömmu fyrir jól, meðan foreldrar þeirra voru úti að kaupa jólagjafir. Atburður þessi skeði í númunda við borgina Marianna í Arkansas. Vesiurveldin hafa sleppf öllum býskym slríðsfönflum Paris í gærkvöldi. SENDIRÁÐ Bretlands, Bandaríkjanna og Frakk- lands í Moskva tilkynntu rússnesku stjórninni í dag, að allir þýskir stríðsfang- ar hefðu nú verið sendir heim, cn samkvæmt samn- ingum, átti að láta þá lausa fyrir árslok 1948. Sendiráðin spurðust fyr ir um það, hvort Rússar hefðu staðið við skuld- bindingar sínar í þessum efnum, cn samþykktin um heimsendingu stríðsfang- anna var gerð á utanríkis- ráðstcfnu fjórveldanna í apríl 1947. — Rcuter. „Queen Mary" slrandaði London í gær. FÖR „QUEEN MARY“. sem strandaði við Cherbourg fyrir þrem dögum síðan, hefur verið frestað til morguns. Skip- ið er nú komið aftur til Sout- hamton og þar fer fram viðgerð á smávægilegum skemmdum, sem urðu á því, er það tók niðri. Um 1700 farþegar eru með því, og ef allt gengur að óskum, á það að vera komið til New York næstkomandi sunnu- dag. Á morgun leggur einnig af stað frá Southamton til New York stærsta skipið, sem smíð- að hefur verið í heiminum frá ófriðarlokum. Skip þetta heit- ir ,.Coronia“ og er 34,000 tonn. —Reuter. Mannskaðaveður í Evrópu MIKLIR stormar gengu yfir Vestur og Mið Evrópu um s. 1. helgi og ollu þeir bæði tjóni á mannslífum og mannvirkjum. í Frakklandi munu um 30 menn hafa látið lífið og í Ítalíu álíka mai'gir. Flugeldar yfir Reykjavík Margir skutu flugeldum á gamlárskvöld hjer í Reykjavík. Hjer cr mynd, sem tekin var á svölmn liúss á Baldursgötunni á gairil- érskvöld og sýnir flugeldana yfir bænurti. Myndina tók Stcfán ! Nikulásson. Verslunarfrelsið þnr sem kommúnistnr rdðn Meðiimir „viðurkenndra fjelaga greiða mun minni söluskaff en aðrir borgarar Tjekkóslóvakíu Prag í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. IIIÐ nýja skattafrumvarp tjekkneskra kommúnista ber það með sjer, að þeir hafa ákveðið að stórþrengja kjör sumra lands- manna, og þá fyrst og fremst þeirra, sem ekki hafa viljað að- hyllast kommúnista og stefnu þeirra. 1400 prósent — 50 próscnt. Þetta kemur meðal annars ljóslega fram í söluskattsákvæð unum, þar sem meðlimir þeirra fjelagasamtaka, sem kommún- istar stjórna, fá margskonar ívilnanir borið saman við aðra borgara. Kemur þetta sjerstak- lega í ljós þar sem er söluskatt- ur á ýmiskonar vefnaðarvöru, en þar má nefna það sem dæmi, að þar sem venjulegir kaup- endur verða að greiða 1400 prósent söluskatt fyrir eina vefnaðarvörutegundina, þurfa þeir, sem hafa leyfi frá verka- lýðssamtökunum' til kaupa á þessari vöru, aðeins að greiða 50 prósent. Þá munu konur í „viðurkenndum fjelögum“ greiða 125 prósent söluskatt á alskonar silkifatnaði, en aðrar 800 prósent. Norskl skip ferst með allri áhöfn NORSKA skipið „Farnes“, sem var á leið frá Stettin til Larvik í Noregi með kol fórst á gaml- ársdag. Öll áhöfnin, 14 manns, fórst. Ekki er enn vitað, hvort skip- ið hefir farist við að rekast á tundurdufl, eða vegna óveðurs. ■0» rpSjáiffe0lali®um fekið meö þiikkum1' London í gærkvöldi. Einkaskeyti til MbL frá Reuter. ALEXANDER Maramis, fjár- málaráðh. Indonesíu, skýrði frá því í Istanbul í dag, aS skæruhernaður gegn Hollend ingum gæti vel staðið yfir x fimm ár, enda þótt lýðveldis- sinnarnir sjeu illa vopnum' búnir. Indonesíudeilan, sagði Maramis ennfremur, snerti alla Múhameðstrúarmenn, og stjórn sín mundi taka öllum sjálfboðaliðum frá Asíu með þökkum. — Maramis er á leið- inni til Delhi, þar sem Nehru forsætisráðherra hefur boðaö til ráðstefnu vegna atburð-* anna í Indonesiu. Stór ráðstefna Fjölmargar Asíuþjóðit virð- ast nú vera að búa sig undir það að senda fulltrúa á ráð- stefnu þessa. Sagt er, að Egypta land, Sýrland og Kína hafi þeg ar þegið boð Nehru forsætis- ráðherra, og fræðslumálaráð- herra Burma, U Tun Pe, sagði í viðtali við frjettamenn í dag, að Asíuþjóðirnar yrðu að taka höndum saman „til þess að verj ast yfirgangi heimsveldissinna.-5 Vill sjálfstæði Indonesíu Ali Ashghar, utanríkisráð- herra Persíu, lýsti því yfir í dag, að stjórn sín óskaði eftir engu frekar en sjálfstæði og frelsi Indonesíu. Önnur lönd, sem boðið hefur verið á ráð- stefnuna í Delhi, eru: Síam, Pakistan, Afghanistan, Líbanon og írak. 50 manna flokkar Ýmislegt bendir nú til þess, að Indonesar sjeu um það bil að hefja umfangsmiklar skæru- liðaaðgerðir. Herdeildir þeirra hafa skipt sjer í flokka, sem i eru 50 menn eða færri, og rnunu þeir fyrst og fremst eiga að tefja fyrir öllum framkvæmd- um Hollendinga. í hernaðartilkýnningu Hol- lendinga í dag var hinsvegar skýrt frá því, að 169 indones- iskir liðsforingjar hefðu gefist upp í Jogjakarta. Þá segir hol- lenska herstjórnin ennfremur, að öll Java hafi verið undir stjórn Hollendinga frá því á gamlárskvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.