Morgunblaðið - 13.01.1949, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.01.1949, Blaðsíða 5
MORGVTSBLAÐIÐ D fimmtudagur 13. janúar 1949. Panamasðjóm F Eftir Motague Taylor, frjettaritara Reuters. XjONDON — í höfnum um heim allan vekur nú skrautleg'ur fáni stöðugt meiri athygli sjómannanna. Þennan fána er að sjá á fjölmörgum skipum, og hann er með bláum og rauðum stjörn- um, því þetta er þjóðfáni lýðveldisins Panama. — En á höfum úti er hann orðinn merki furðulegrar ,,útlendingahersveitar“ meðal sjómannanna. Aðeins fáir þeirra manna, sem sigla undir þessum fána, eiga heimili í Panama. Sama er að segja um skipaeigendurna. Skrifstofur þeirra eru ósjald- an þúsundir mílna frá Mið- Ameríku og ríkinu Panama. Nú er svo komið, að sjómenn, skipaeigendur og forystumenn stærstu sjómannafjelaganna í fjölmörgum höfuðborgum ver- aldarinnar hafa skorið upp her- ör gegn Panamafánanum, það er að segja þeirri misnotkun hans, sem þeir segja að eigi sjer stað. Þessir menn kvarta yfir því, að þau skip, sem skrásett eru í Panama, sjeu undanskil- 'ín öllum alþjóðlegum samþykkt um um öryggi sjómanna, vinnu tima þeirra, laun og aðbúnað. Sumir skipaeigendur geta því, með því að láta skrásetja skip 'tsín í Panama, lækkað rekstrar- kostnað sinn áð verulegu levti, en það leiðir aftur af sjer lægri flutningsgjöld með þessum skip um en þeim, sem gerð eru út í samræmi við alþjóðasam- þykktir. Káðstefna í Genf. Leiðtogar sjómanna og skipa eigenda hafa að undanförnu rætt þetta vandamál á ráðstefnu i Genf. Þessi ráðstefna hefur Xátið stjórnendum Marshall- áætlunarinnar í París í tje margskonar upplýsingar í mál- inu, en í ráði mun vera að láta í'ara fram rannsókn á því, hvort ílutningar á Marshallvörum með skipum Panama geti ekki orðið til þess að draga úr ár- angri viðreisnarframkvæmd- anna. Breska stjórnin áætlar,, að 446 skíp hafi verið skrásett í Panama síðastliðið ár. Skipa- tstóll þessi er samtals um 2,450,- €00 tonn, svo í fljótu bragði mætti ætla að þetta litla lýð- veldi væri töluverð siglinga- þjóð. En þrátt fyrir ýtarlegar rann ISóknir, játa sjómenn og skipa- eigendur það, að þeim hafi orð- 5ð lítið ágengt við að reyna að fcomast að því, hvernig á bví gtendur, að svona mörg skip eigla undir Panamafánanum. Samkvæmt opinberum tölum, voru aðeins 43 erlend skip, sam tals um 230.000 tonn, skrásett í Panama 1946 og 1947. Meðal þeirra skipa, sem þessi tvö ár voru sett undir Panamaflagg- 5ð, voru 22 frá Bandaríkjun- um, 15 frá Bretlandi, tvö frá Svíþjóð og tvö frá Noregi. Breski flutningamájaráðherr lann skýrði nýlega þinginu frá því, að 45 bresk skip hefðu als yerið skrásett í Panama síðan 12945. Undanþegin sigiingalögum. Einn af leiðtogum alþjóða- samtaka sjómanna hefur skýrt frá því, að enda þótt því hafi verið haldið fram, að skip sjeu skrásett í Panama til þess að komast hjá því að greiða betri laun og sjá áhöfnum þeirra fyr- ir bættum aðbúnaði, sje erfitt að fullyrða, að kjör sjómanna á Panamaskipum sjeu yfirleitt áberandi verri en á skipum ann^rra þjóða. ,,Það, sem við sjerstaklega kvörtum yfir“, sagði hann, „er að þe.ssi skip eru algerlega und anþegin öllum siglingalögum, auk þess sem samtök sjómanna ná ekki til þeirra“. Hann lýsti því, hversu litlar kröfur eru gerðar til sjóhæfni skipa og kunnáttu skipstjórnar- manna í Panama. ,,Þar í landi“, sagði hann, „getur stýrimaður fengið skip- stjórnarskilríki gegn sáralítillri þóknun og „sönnunargögnum“ fyrir bví, að hann hafi haft sömu rjettindi erlendis“. Alþjóðasamband flutninga- verkamanna hefur nu í undir- . búningi aðgerðir, sem miða að I því að stöðva straum ósjóhæfra skipa til Panama. Samb. hef- ur hótað að banna afgreiðslu margra skipa frá lýðveldinu og í ráði er að senda sambands- fjelögum um allan heim „svart an liSta“ yfir nöfn þeirra skipa, sem bann þetta nær til. 5kauiakeppni í Noregi Oslo í gærkvöldi. AMERÍSKI skautahlauparinn Henry náði í dag í keppni í Lillehammer besta tíma, í 500 m skautahlaupi, sem náðst hef- ur eftir stríð. Vegalengdina hljóp hann á 42,1 sek. Heims- metið er 41,8 sek. Norðmaðurinn Sverre Far- stad vann 1500 m hlaupið á 2.22.0 mín. — Reuter. Horska þingi§ kýs forseia í FYRRADAG fór fram í norska þinginu kosning deild- arforseta. — Monsen, sem ver- ið hefur forseti Stórþingsins, baðst eindregið undan endur- kosningu. í hans stað var kos- inn Natvig Pedersen, þingmað- ut Verkamannaflokksins. Hambro, sem er hægri maður, var kosinn forseti Óðalsþings- ins. — G. A. Schuman í London PARlS —t Schuman, utánrikisráð- herra Frakklantls, lagði af stað hjeð- an áleiðis til London í dag, þar sem hann mun ræða við Bevin utanrík- isráðherra Brcta. siensk spákona vekur ftirtekt í I DANSKA blaðinu „National- tidende" birtist grein fyrir nokkru, þar sem sagt er frá ís- lenskri spákonu, sem .svo skygn er, að hún getur sagt fyr ir um óorðna hluti, og s.jeð at- burði, sem gerast eða gerst hafa í fjarlægð. Nú hefur annað eins og það heyrst hjer áður. Enda líta margil- svo á, að óvjefengjan- legt sje, að þvílíkt og annað eins hafi gerst bæði hjer á landi sem annarsstaðar. En það mun þykja í frásögur færandi, sem sagt er í grein þessari, að rannsóknarlögregl- an í Kaupmannahöfn hafi haft samband við þessa skygnu íslensku konu, og furðað sig á þeim upplýsingum, sem hún hafi gefið lögreglunni, viðvíkj andi morði, sem framið var þar í borginni ekki alls fyrir löngu. Upplýsingar uni mor$, Greinarhöfundur getur ekki um nafn hinnar ísl. skygnu konu. Segist hafa áður farið á fund ýmsra spákvenna í borg- inni og komist að raun um, að ekkert hafi verið að marka það, sem þær segðu fó'íki. Síð- an segist kona sú, sem skrifar greinina, oft hafa verið að velta því fyrir sjer, hvort eng ar væru þær spákonur í borg- inni, sem hægt væri að taka mark á. En síðan frjett um ís- lenska konu, sem orð færi af, hve væri skygn. Um þessa ís- lensku konu segir í greininni meðal annars: Að hún sje tilraunamiðill hjá dulfræðingnum Sven Túrck, ljósmyndara, og leiti margjr frjetta hjá henni, en menn úr rannsóknalögreglu Hafnar, sem hatt hafi með höndum rannsókn . á morði hjóna nokkurra er myrt voru á Peter-Bangsvej, Jacobsen hjetu þau, hafi furðað sig á ýmsu, sem miðill þessi hafi getað sagt, frá afdrifum þess- ara hjóna. Fjarskygni. A miðilsfundi einum hjá Sven Túrck, þar sem lögreglu- menn voru viðstaddir, sá hin ís'lenska kona lík hinna myrtu hjóna í fjarsýn og lýsti þeim nákvæmlega, og umhverfi þeirra. En þá voru líkin á rann sóknastofu lögreglunnar. Enn- fremur sagði miðillinn, í á- heyrn lögreglunnar, nákvæm- lega, hvernig Jacobsens hjón- in hefðu fengið áverka þá, sem urðu þeim að bana. En allt kom þetta heim við það, sem lögreglurannsóknin hafði leitt í ljós. Og það sem meira var. Miðillinn kvaðst hafa 'það eft- ir hinum framliðna Jacobsen, að þrem klst. eftir að hann hafði verið myrtur, hafi morð- ingjarnir skorið í sundur slag- æð hans. En einmitt þetta hafi læknarannsókn lögregl- unar leitt í ljós, en engum ut- an hóps lögreglumannanna hafði verið frá þessu sagt. Lögreglumennirnir sýndu miðlinum allmargar manna- Gefur lögregtunni bend- ingar, sem mark ertekiðá myndir. En miðillinn benti á eina þeirra, og sagði, að þessi maður hefði verið viðriðinn morðið. Hefði miðillinn þekkt frú Jacobsen í lifanda lífi og aðvarað hana um það að kunn ingsskapur þeirra hjóna við þenna mann, sem miðillinn að vísu þekkti engin deili á, myndi enda með skelfingu. í heimsókn. Er jeg hafði fengið aá vita allt þetta um hina íslensku skygnu konu, segir gr/einar- höfundur, kvaddi jeg dyra hjá henni, einn góðan veðurdag, með mikilli eftirvænting um það hvers jeg yrði vísari. um skygni gáfu hennar. Til dyr- anna kom öldruð gráhærð kona, og vísaði mjer með sjer inn í stofu, sem var útlits eins og venjuleg dagstofa borgar- búa. Þar var ekkert, sem bar dulrænan svip. En margar helgimyndir hafði hún þar á veggjunum. Hún tók ekki fram spik eins og spákonur eru vanar að gera, og bað ekki um að fá að sjá í lófa mjer. Helaur settist hún á stól, grúfði andlitið í höndum sjer, og sat þannig stundarkorn. Uns hún segir: „Jeg sje —“ „Jeg sje aldraðan mann standa við hlið yðar. Hann er mjög hár, með hátt enni, frítt nef, og lítið yfirvararskegg“. Þessi lýsing kom mjög vel ■heim við föður minn, sem dá- inn er fyrir nálega mannsaldri síðan. Hann styður hendi í síðu sjer, heldur konan áfram, og segir við mig: Þetta hjerna dugði ekki lengur. Faðir minn dó úr lungna- berklum, sem voru orðnir svo magnaðir, að þegar lík hans var krufið, kom í ljós, að ann- að lungað var að heita mátti úr sögunni. Skýrir frá leyndarmáli. Síðan fór konan að rekja æskuár mín, segir að jeg sje alin upp utanbæjar, sem og rjett er. Og brátt gerir hiln mig alveg agndofa, með þvi að skýra frá fjölskyldu leyndar- máli, er gerðist fyrir tveim ar- um síðan, og aðeins einn nJf ættingjum mínum hefur fengið að vita um, auk mín. Konan segir mjer, að samskonar at- burður eigi eftir að koma íyrir einu sinni enn. Þá sneri jeg talinu að heims pólitíkinni, og spurði, hvnð hún gæti sagt mjer um horf- urnar þar. — Greinarhöfundur rekur nokkuð hvað spákonan hafi sagt um þær. En ekki er ástæða til að fara út í þá sálrna hjer. Því samkvæmt frásög'n- inni, er þar ekki annað sagt, en hver og einn getur getið sjer til. Henni fipast. En síðar er talinu aftur v.ik- ið að einkamálum gestsins, cr greinina skrifar. Og þá íer verr. Þá fer miðillinn beinJinis skakkt með á einum stað, og verður miður sín og fer nð þreifa fyrir sjer, þykir illa komið, en hefur sýnilega rnist þráðinn. Svo ekki verður meira úr samtalinu. En gamla konan fer að hella upp á könnuna, til að gefa gesti sínum kaffi. . Greinarhöfundur lýkur . .áli sínu rneð því, að þarna hafi hún fundið konu með allt( aöra og meiri duiræna hæfiíeika, en spákonur þær hafi 1iJ að bera, er auglýsa viðtalstirna í sýniskápum söluturnanna á Vesturbrú. En kona þessi 'hafi þó ekki staðfastari vfirnjatt- úrlega hæfileika en það, að þegar henni fipist, þá sje hún til í, að nota sjer af staðfastnri upplýsingum. Hin. dulspaka kona hafði sagt greinarhöf. frá uppvaxtarárum sínum i is- lenskum fjalladölum. Þar hafi hún sjeð bæði fólk og umKverfi, sem engir aðrir sáu. Móðfc vín hafi orðið smeyk við þetta, og farið með hina ungu clóttux* sína til læknis. En það stfcðaði ekki. Sýnirnar hjeldu áfram. eigirr sap Afflee London. i gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá R- í RÆÐU, sem Attlee forsætisráðherra flutti í Austur L on í dag, kómst hann meðal annars þannig að orði, ao ari vertíð, hafa* leitt til samkomulags. Er þess því að v: margir hverjir komnir að þeirri niðurstöðu,. væru örgustu afturhaldsseggir. xter. md- ?e.ir, ;\ta, xð kommú:r<i‘'htr Kommúnistar. sagði .utlce, ljetu sig engu skipta, hvað yrði | um verkamenn. Það eina, sem - þeir hugsuðu um, væri að dreifa sinum eigin kenningum va. vo væri komið, að þeir kærð'u ig kollótta um stefnur og áhuga- mál vinstrimanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.