Morgunblaðið - 13.01.1949, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 13. janúar 1949;
BÆKUR:
Horfnir góðhestar
Horfnir góðhestar.
Annað bindi. Höfundur
Ásgeir Jónsson frá Gott-
orp. Útgefandi bókaút-
gáfan Norðri.
ÁRIÐ 1946 kom út nýstárleg
bók hjá bókaútgáfunni Norðra,
rituð af Ásgeiri Jónssyni frá
Gottorp. Hjet hún „Horfnir góð
hestar“ og var aðallega um
horfna gæðinga í Húnavatns-
og Skagafjarðarsýslum. Bókin
seldist framúrskarandi vel.
Strax og bók þessi kom út
sagði jeg hug minn um hana
í smágrein í Morgunblaðinu. —
Þetta var bók, sem ekki gat
brugðist, að tekið yrði tveim
höndum og feginshugar af öll-
um, er hestum unna. Skrifuð af
innilegum kærleika til góð-
hestanna og listamannlegum
skilningi.
Seinna várð jeg þess var, að
Ásgeir frá Gottorp var — fyrir
áeggjan áhrifamanna — að und
irbúa annað bindi af „Horfnum
góðhestum“ og skyldi þar segja
frá gæðingum í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum.
Satt að segja, leist mjer þetta
vafasamt fyrirtæki. Jeg hugsaði
eitthvað á þessa leið:
Nú færist hinn háaldraði, rit-
snjalli hestamaður ógætilega
mikið í fang. Varla getur hann
hafa þekkt af eigin sjón og raun
hesta í þessum sýslum, svo telj-
andi sje. Hætt er við, að það,
sem hann ritar eftir öðrum
um alókunnuga hesta, verði eins
og hann láti teyma undir sjer.
Það hlutskifti hæfir illa rit-
vallarriddaranum frá 1946.
En Ásgeir ljet ekki deigan
síga, og bókin er komin út. Hún
er falleg að útliti sem hin fyrri
og getur hátt á þriðja hundrað
góðhesta. í henni eru fleiri
myndir en fyrri bókinni eða um
50. Sumar þessar myndir eru
ágætar og auka gildi bókar-
innár stórlega. Nokkrar ná aft-
ur á móti tæplega þeim til-
gangi, af því að hestarnir eru
orðnir of gamlir til þess að
njóta sín eða í haustdúðum,
þegar myndirnar hafa verið
teknar.
Vissulega sjást þess merki í
bókinni, að Ásgeir hefur verið
— meira en æskilegt má telja
— háður frásögnum annara. En
rnikil bót er það í máli, hvað
hann hefur fyrirhitt marga á-
reiðanlega menn og greina-
góða.
Þá hefur hann einnig haft
þann hátt að láta koma fram
í svonefndum ,,Bókarauka“
sjálfstæðar ritgerðir, sem hón-
um bárust. Er þessi ,,Bókar-
auki“ 110 blaðsíður. Eiga þeir
þar stærstan hlut og skemmti-
legastan, mágarnir Sigurður S.
Bjarklind og Jón Haraldsson.
Skri/ar Sigurður m. a. um tvo
hesta, sem jeg þekkti mjðg vel
af eigin raun, Blesa sinn og
Sindra Guðmundar Vilhjálms-
sonar bónda og ferst honum
það ágætlega. Óskar Stefáns-
son ,bóndi á Hrjngveri, skrif-
ar fimlega og smekklega grein
um hinn mikla fjörhest sinn
Molda, sem var lengi ævinnar
á nsésta bæ við mig. Vel stend-
ur minning Molda undir því
lofi,. sem þar kemur fram.
Annað
Þá mun og Skóga-Gráni,
seinasti hesturinn, sem sagt er
frá í bókinni, varla verða af
kunnugum talinn oflofaður
þar.
Nefni jeg þessa hesta „Bók-
araukans“ af því að jeg tel mig,
vegna aðstöðu minnar, vitnis-
bæran um þá.
Enginn efi er á því, að í bók
þessari getur að engu margra
gæðinga, sem undir söðlum
hafa verið í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum um líkt leyti
og þeir hestar, sem bókin segir
frá, — og sjálísagt finnast þess
dæmi, að kostaminni hesta er
getið þar, en hinir voru, sem
ekkert eftirmælið fá.
Jeg sakna í bókinni t. d. all-
margra góðhesta frá umhverfi
mínu: nyrstu sveitum Suður-
Þingeyjarsýslu og vestustu sveit
um Norður-Þingeyjarsýslu.
En um þetta má alls ekki
saka Ásgeir Jónsson. Hann gat
ekki, aldurs síns vegna, lengi
leitað og beðið liðveislu manna
um allar sveitir norður hjer.
Þetta skiptir heldur ekki svo
ýkja-miklu máli. Ekki verða
bækur gefnar út um alla góð-
hesta, sem hægt væri að hafa
upp sagnir um á íslandi. Það
væri ofrausn í bókagerð.
Hitt er aðalatriðið, að tryggt
sje, að bókmenntir þjóðarinn-
ar geymi velgerðar lýsingar af
svo mörgum þeirra, að minn-
ingunni um hinn þýðingarmikla
og dásamlega förunaut, ís-
lenska góðhestinn, sje borgið frá
glötun, þótt vjelarnar ryðji sjer
til rúms og hafi hátt.
Nú er þetta tryggt með bók-
um Norðra: „Horfnir góðhestar
I.—II.“ eftir Ásgeir Jónsson og
„Faxa“ eftir dr. Brodda Jó-
hannesson.
★
Það er mikill vandi að skrifa
svo öllum líki vel um einstaka
góðhesta, þótt horfnir sjeu. —
Eigendur hestanna — og jafn-
vel ættmenn eigendanna — eru
vandfýsnir. Metnaður hefur
jafnan verið í sambandi við
gæðinga og metingur um þá
milli manna. Hverjum þykir
sinn fugl og fákur fagur. Stutt
er löngum í oflofið hjá „vinum
og vandamönnum“ góðhestanna
og ekki lengra í ólofið hjá
keppinautum og öfundarmönn-
um.
Ásgeir Jónsson hefur þurft
að hafa vökula hliðsjón af þessu
þegar hann skrifaði hestalýs-
ingar þær, sem hann hefur eft-
ir öðrum.
Það er gaman að sjá hve birt-
ir yfir frásögn hans, ef hann
hefur sjálfur þekkt hestinn eða
styðst við glöggar atburðasög-
ur. Þá hleypir hann stílfáki sín
um, lætur götur glymja og fjöll
enduróma.
Þvílík sprettfæri notar hany
svikalaust í „Horfnir góðhest-
ar II“, þegar þau gefast.
Góð dæmi um það eru þætt-
irnir af: Grundar-Sokka, Dóna
Árna Stefánssonar, Múla-Blesa,
Ingólfs-Blesa, Gautlanda-Ljót
og Fjósatungu-Dreyra.
bindi
Einar Benediktsson segir í
hinu fræga kvæði sínu: „Fák-
ar“:
„Maður og hestur þeir eru eitt
fyrir utan hinn skammsýna,
markaða baug.
Þar finnst hvernig æðum alls
f jörs er veitt
úr farvegi einum, frá sömu
taug.“
Og ennfremur segir hann:
„í mannsbarminn streymir
sem aðfalls unn
frá afli hestsins og göfugu
lund.“
Frásagnir Ásgeirs og lýsing-
ar bera með sjer, þar sem hann
nýtur sín best, yfirburðaskiln-
ing á efninu: „Maður og hest-
ur“.
*„Leyniþráðurinn“, sem Matt
hías Jochumsson sagði að væri
milli manns og hests, er rauði
þráðurinh, sem rakinn er, í bók
um Ásgeirs um góðhestana.
Þótt Ásgeir þekki ganglag
hesta hverjum manni betur, sje
framúrskarandi minnugur á
svip þeirra, vöxt og afrek, þá
er það ekki mergur málsins,
þegar meta skal bækur hans um
þá. Hitt er mest um vert, að
hann skilur samþand manns og
hests bæði sem greindur maður
og skáld — og kann að segja
frá.
Þaðan eru bætiefni bóka
hans. Þessvegna eru þær svo
mikið lesnar sem raun ber
vitni.
í greininni, sem jeg skrifaði
og birt var í Morgunblaðínu
1946 um fyrra bindi „Horfinna
góðhesta“, benti jeg á hina
miklu hestamálsorðgnótt Ás-
geirs. Hjer vil jeg bæta því við
það, sem jeg sagði þar um orð-
gnóttina, að þótt sumum kunni
að finnast að höfundurinn láti
stundum hlaupa lausbeislað, þá
kemur það ekki að sök, af því
að andi hans er svo fleygur á
þessum sviðum.
Frægustu kvæði Matthíasar
Jochumssonar eru að vísu mögn
uð málsnilli, en samt er þar alls
ekki hvert orð hnitmiðað. —
Andi hins mikla þjóðskálds
lyftir einstökum orðum yfir alla
ásteytingargagnrýni og fyllir
þau lífi og sál.
Jeg tek þetta hávirðulega
dæmi um Matthías til skýring-
aar, af því að jeg tel, að hún-
vetnski bóndmn, Ásgeir frá
Gottorp, — nú 72 ára að aldri
— sem tekur sjer penna í hönd,
þegar líkamsþrekið til bú-
mannlegra gegninga er þrotið,
og skrifar jafn vel og hann ger-
ir um eitt mesta hugðarefni
sinnar kynslóðar, — hann verð
skuldi mikla virðingu.
★
Á 29. bls. í öðru bindi af
„Horfnum góðhestum“ segir
Ásgeir Jónsson, þegar hann lýk
ur frásögnum af gæðingum Sig
urjóns Sumarliðasonar, pósts:
„Þessar gömlu og góðu minn-
Framh. á bls. 12
SJálfum forusfumönnunum
kom á óvarf sannleikurinn
m skatffríðíndi samvinnu-
fjelaganna
Tíminn hrópar: SamvinnuslH!
í FORYSTUGREIN Tímans s.l.
fimmtudag er því hótað, að
Framsóknarmenn muni slíta
stjórnarsamvinnunni, ef hrófl-
að verði við skattfríðindum sam
vinnufjelaga.
í þessu sambandi er ráðist á
Mbl. fyrir að hafa stofnað til
„herferðar gegn kaupfjelögun-
um o. s. frv.
Raunar þarf enginn að undr-
ast slík digurbarkalæti. Hótan-
ir um samvinnuslit út af einu
eða öðru málefni, eru ekki óal-
gengt fyrirbrigði í dálkumJTím-
ans. Það skiptir engu máli, þótt
hjer sje um að ræða að endur-
skoða og breyta löngu úreltum
lagaákvæðum, sem ekki eiga
sjer stoð í hinu raunverulega.
Blaðamenn Tímans grípa til
þess ráðs að hrópa sem oftar'
Samvinnuslit! en það er hálm-
strá, sem gripið er til, þegar
rökin þrýtur. Mbl. hefur gert
sjer far um að upplýsa í hverju
skattfríðindi samvinnufjelaga
væru fólgin og hvernig þau
væru framkvæmd. Sannleikur-
inn um þessi mál kom öllum
þorra manna á óvart, jafnvel
ýmsum, sem telja sig meðal
forystumanna samvinnuhreyf-
ingarinnar. — Almennt höfðu
menn ekki gert sjer ljóst, hvaða
afleiðingar það hefur í fram-
kvæmdinni, að jafn umsvifa-
mikill aðili og samvinnufjelög-
in eru orðin, skuli í meginatrið-
um búa við 30 ára gamalt fyr-
irkomulag hvað sköttum við-
víkur. Það misrjetti, sem skap-
ast hefur smátt og smátt fyrir
gerbreyttar aðstæður, hefur
gengið svo hljóðlega yfir, að al-
menningur hefur ekki gert sjer
ljóst hve áberandi það er orð-
ið.
Það kom ljóslega fram á Al-
þingi skömmu fyrir jólin, að
jafnvel menn úr þeim hópi, sem
lialda mjög eindregið fram
rekstri með samvinnusniði,
höfðu ekki gert sjer þetta ljóst.
— Einn slíkur þingmaður bar
fram fyrirspurn til fjármálaráð
herra um hve miklu næmu rík-
isskattar stærstu samvinnufje-
laganna í landinu. Þessi fjelög
ná að kalla má yfir mestan
hluta landsins og hafa veruleg-
an hluta verslunarinnar nú í
sínum höndum. Fyrirspyrjand-
inn bjóst bjóst sýnilega við, að
koma mundi í Ijós, að þessi fje-
lög hefðu greitt gífurlega upp-
hæð til ríkisins, sem hentugt
væri að flagga með á sama hátt
og flaggað er raeð fjelagatölu
samvinnufjelaganna. En útkom
an varð sú, þegar fyrirspurn-
inni var svarað, að þessi stóru
fjelög greiða aðeins örlítið brot
af öllum sköttunum eða aðeins
um 8 milljónir króna af 274
milljónum, sem ríkisskattarnir
námu samtals. Fyrirspyrjand-
inn varð ókvæða við. Þetta kom
honum algerlega á óvart og hon
um vafðist tunga um tönn. —
Hann hcfði aldrei borið fram
þessa fyrirspurn sína, ef hon-
um hefði til hugar komið, að
slík yrði niðurstaðan. Hann
hafði enga grein gert sjer fyrir
því hve skattfríðindi samvinnu-
fjelaga eru orðin yfirgengileg
og þegar svo er um einn af
þeim mönnum, sem fylgst hefur
einna lengst með samvinnufje-
lagsskapnum af öllum þing-
mönnum, hvernig má þá ætla,
að verið hefði um hina, sem
styttri reynslu hafa, og þetta
sýnir einnig ljóslega, að skilj-
anlegt er, að allur almenningur
hafi ekki gert sjer þessi mál
ljós.
Viðbragðið, sem blaðamenn
Tímans taka, þegar þeir standa
frammi fyrir staðreyndinni uin
skattfríðindi samvinnufjelag'-
anna, er að hrópa upp um rof
samstarfsins í ríkisstjórninni.
Svo gersamlega ráðþrota standa
þessir menn, að þeir grípa til
þess, að gera Mbl. upp orð, sem
aldrei hafa í blaðinu staðið og
skáletra þau og hrópa síðan:
Samvinnuslit!
Það hefur margoft komið
fram, að lítið er að marka slík-
an þyt í dálkum Tímans. Það
er fyrir löngu Ijóst, að þeir sem
hæst láta á þeim vettvangi,
bera enga ábyrgð. Ummæji
þeirra er ekki að marka. Ekki
einn einasti af Framsóknar,-
mönnum, sem talist getur í hópi
forystumanna rekstrar með
samvinnusniði, hefur tekið til
máls um skattfríðindin í dálk-
um Tímans, heldur hefur venð
teflt fram mönnum til andsvara,
sem lítil skilyrði hafa til að rök-
ræða þessi mál. Það er því ekki
óeðlilegt, þótt eina svar blaða-
manna Tímans sje að gera Mbl.
upp orð og hrópa svo: Sam-
vinnuslit!
En á slíkri aðferð tekur eng-
inn mark. Mbl. mun halda á-
fram að upplýsa þessi mál, eft-
ir því sem tilefni verður til. Og
almenningur mun mynda sjer
skoðun eftir því. Máttlaus hróp
marklausra manna breyta hjér
engu um.
4--5 herbergja íbúð
óskast til leigu strax. Fyrirframgreiðsla. Tilboð merkt:
„Skemtileg íbúð—439“, sendist afgr. Mbl.