Morgunblaðið - 13.01.1949, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 13. janúar 1949.
Peningagjafir fil Vetrarhjáfparínnar
H. t>._ kr. 25.00, N. 100, Gísli.
Magnússon 10, Einar 100, Hall-1
dór 100, K. B 25, H. Ólafsson
& Bernhöft 500, Gamli 50, Heild-
versl. Edda h.f. 250, Eg. 500* H.D.
100, Ónefndur 500, Þ. S. 100, N.
N. 200, N.N. 200, G. P. 100, E. Þ.
20, Svava Þórhallsd. 100, R. E.
200, Hertha Jensen 50, Þorkell
Ingibergsson 200, Toft 200, Mark-
ús 50, N. 100, Ónefndur 20, A. J. |
& E. J. 200, Anna Jónasd. 30,'
Þ. G. 40, F. H 100, H. 25, S. B.
75, G. A. B. B. 50, Jóhannes 140,
Magnús Kristjánsson 50, Bygg-
ingarfjel. StoS 500, G. K. 10, K.G.
10, Guðm. Pjetursson 50, Gísli
Guðmundsson 100, S. E. 50, í. S.
50, S. B. 50, G. S. S. E. 40, M. S.
10, Lárus 100, Þ. Ó. 20, Starfsfólk
hjá Eimskip 450, Þ. K. 50, M. 20,
h.f. Lýsi 1000, tvær litlar stúlk-
ur 50, N. N. 50, J. N. 20, Erla &
Björn 100, X. Y. Z. 50, N. N. 50,
N. N. 15, Ejera Jón N. Jóhannes-
son 50, E. E. 50, Sigþrúður 200,
Ásta 100, Sigr. Zoega & Co. 100,
H. H. 100, Sigga litla 30, E G. 10,
I. Brynjólfsson & Kvaran 500,
Ó. G. 100, Eyjólfur Gíslason 50.
Karl úr sveit 100, A. E. 200, E. S.
50, Sigurgeir Jónannesson 100,
N. 25, Robert Abraham og frú
100, Páll Sigurðsson 100, Sigga og
Magga 500, S. G. 100, N. 50, Frissi
og Bjössi 50, Sigríður Danielsd.
25, V. E. 30, Ólöf og Hjördís 50,
H. G. S. 100, .Sigríður 50, Á. 10,
Ólafur Kristjánsson 100, S M. 20,
Benedikt Ólafsson 45, K. H. Á.
50, Steinunn Guðmundsdóttir,
Suðurpól 3 kr. 113,50, J. Ó. 50,
Verslun Ragnar H. Blöndal h.f.
500, N. N. 10, Þunður Sigmunds-
dóttir 100, Þorgtvður Jóhannsd.
20, í. Ó. 20, G. E. 100, Árni 40,
V. G. 60, G. S. 25, Guðm. Guðj.
50, Guðm. Gíslason 40, A. 50,
B. 25, C. 100, D. 100, Páll Frið-
riksson 100, Gömul kona 50, Sig-
fús 25, S. S. 100, D. G. 50, Egill
Sigurðsson 50, X. og Y. 30, N. N.
100, Ásgeir Einarsson 50, N. N.
10, Helga Sigurðard. 30, N. N.
100, Stefán 200, Hilmar Foss 100,
Agnar Jónsson 10, Erla Jónsd.
10, Þorgeir Ingvarsson 100, Ólaf-
ur 50, Foggi 50, X. 50, B. S. 20,
Þ. Th. 50, Ónefndur 35, H. K. A.
200, Áheit 30, Ásta Þrg. Hall-
dórsdóttir 30, Nafnlaus 50, Nafn-
laus 50, Ö. B. 50. Jón 100, Val-
gerður Bjarnadóttir 50, O. 50,
Brynjólftjr Halldór 100, Ónefnd-
ur 30, N N. 100, Starfsfólk hjá
Steindórsprent h.í'. 540, S. T. J.
200, G. I. 10, Ragnar Tryggvason
100. — Kærar þakkir.
F. h. Vetrarhjálparinnar í Rvík.
Stefán A. Pálsson.
Rjettarfar Rússa
i ii iiwiiwin^'in
Stokkhólmur í gærkveldi.
(NTB): — Rússar hafa nú kraf
ist þess af Finnum, að lögreglu
þjónar þeir, sem 28. nóv. sl-
handtóku tvo Rússa í Helsinki
fyrir drykkjuskap á almanna-
færi, verði látnir sæta þungri
refsingu fyrir afbrot sitt (!).
— Það er að segja fyrir að aka
hinum drukknu Rússum í kjall
arann og láta þá sofa þar úr
sjer vímuna.
Tveim dönskum
flugvjeium hlekkisf á
Kaupmannahöfn i gærkveldi
TVEIMUR orustuflugvjelum
úr danska flugflotanum hlekkt
ist á í dag. Flugmaðurinn á ann
ari þeirra Ijet lifið, er vjel hans
varð að nauðlenda í stórhríð á
Jótlandi. — Hin vjelin eyðilagð
ist er hún var að lenda á flug-
velli hjer. en enginn særðist.
Mófmælðfundur
New York í gærkveldi.
KOMMÚNISTAFLOKKURINN
hjer í New York boðaði í dag
til fjöldafundar fyrir utan
breska sendiráðið hjer í borg
n. k. föstudag, til þess að mót-
mæla stefnu Breta í Palestínu
málinu, og láta í ljós ,,fyrirlitn
ingu bandarísku þjóðarinnar á
yfirgangi Breta við Ísraelsríki“.
Harriman í London
London í gærkveldi.
HARRIMAN, framkvæmdastj.
Marshallhjálparinnar í Evrópu
kom hingað í dag til þess að
ræða við Bevin og fleiri breska
stjórnmálaleiðtoga. — Áður
hafa farið fram svipaðar við-
ræður milli hans og franska
utanríkisráðherrans og belgíska
forsætisráðherrans.
Æ T VINNR
Nokkrar röskar stúlkur geta fengið atvinnu við Hrað
frystihúsið ísfell á Flateyri. Húsnæði er frítt' og hiti.
Upp! á skriistofu Daníels Ólafssonar & Co. h.f. Tjarn-
argötu 10.
Leikdómur um:
„Gullna hliðið"
HÖFUNDUR þessarar greinar er hinn þekkti leiklistar-
gagnrýnandi við stærsta blað Skotlands, „Tlie Scotsman“.
Skrifaði hann eftirfarandi leikdóm um „Gullna hliðið“ í
Edinborg fyrir Morgunblaðið, daginn eftir að leikritið var
frumsýnt, en brjefið hefir tafist í pósti og barst fyrst nú
um helgina til landsins.
a ----------------------
Eftir Charles Graves.
FRUMSÝNING í breska sam-
veldinu á „Gullna hliðinu“ eftir
Davíð Stefánsson fór fram í
Gateway-leikhúsi í Edinborg
21. f. m. qg reyndist sýningin
ein hin glæsilegasta, sem leik-
húsið hefir komið upp, hvort
heldur litið er til fyrri sýninga
þar eða seinni, eftir að leikhúsið
tók upp starfshætti atvinnuleik
húsa.
Á vissum tíma árs, einkum
um jól og páska, leitast Gate-
way-leikhúsið við að velja til
sýninga leikrit trúarlegs efnis,
þó að misjafnlega takist stund-
um að gera skozkum áhorfend
um til hæfis, en leikhúsið er
eign Þjóðkirkju Skotlands og
rekið af henni. Auk ýmissa al-
varlegri leikrita hefir leikhúsið
þegar sýnt miðalda helgileik
eins og ,,Sjerhver“, „Föstudag-
inn langa“ eftir John Masefield
og páskaleikritið „Þrjár stjett-
ir“ eftir skozka leikritaskáldið
Robert Kemp, en leikrit Da-
víðs Stefánssonar náði fastari
tökum á frumsýningargestum
með glettni sinni og tilfinninga
dýpt, en sum hinna fyrri leik-
rita.
in í pokanum, sem hún beinir
tali sínu að, væri í raun og
veru leikpersóna. Og þegar svo
Jón, í líki James Sutherlands,
losnar úr haldi og birtist ljós-
lifandi aftur, stangaðist það
síður en svo, sem maður hafði
gert sjer í hugarlund um hann,
og svo hitt, sem hann augsýni-
lega var. Leikur Sutherlands
var afbragð og atriðið, þegar
Jón stærir sig af íslensku ætt-
erni sínu og dýrð föðurlandsins,
frammi fyrir hinu gullna hliði,
hlaut að vekja bergmál í hjört-
um allra Skota, sem á hlýddu,
svo var það þrungið þjóðernis-
metnaði.
Leiksýningin ætti að stuðla
mjög að viðkynningu íslenskrar
leikritunar í Skotlandi. — Það
var sviðsett af Moultrie R. Kel-
sall í mjög aðgengilegri þýð-
ingu, og leiktjöld áttu einkar
vel við anda leiksins. — Vafa-
laust verða leiksýningarnar í
Gateway-leikhúsinu til þess að
vekja ákveðna löngun hjer-
lendra manna til að kynnast
landi og þjóð, sem er þeim lítt
þekt, hvort heldur á andlegu
eða efnalegu sviði.
. Kaldur veruleikinn í fyrsta
þættinum, er konan reynir að
vekja Jón á dánarbeðinum með
sálmasöngi, þar eð hún óttast,
að illa muni fara fy.rir sálu
hans, og vonska hreppstjórans,
þegar hann sjer, að Jón er slopp
inn úr greipum hans, — alt
þetta var mjög í skoskum anda:
„Líkamann getið þið hirt“, segir
kona Jóns við hreppstjórann,
þegar Jón er búinn að gefa upp
öndina, þetta stutta tilsvar gæti
hafa hrokkið af vörum skoskrar
bóndakonu alveg eins og kof-
inn gæti verið heiðabýli í Há-
löndunum.
Leikurinn krefst mikils af
þeirri leikkonu, sem leikur
konu Jóns, og það var heppi-
legt, að Helena Gloag var ekki
einasta fær um að vekja samúð
með frekar harð- og þrályndri
persónu sem raunar fær fulla'
uppreisn í okkar augum vegna
ástar sinnar á mannskepnunni,
Jóni, heldur tókst henni og að
sannfæra mann um það, að sál-
- Palesiína
Framh. af bls. 1
sem ræða ætti vopnahlje við
Egypta á eynni Rhodes, væri
þegar komin þangað. — For-
maður sendinefndar Egypta,
sem einnig er kominn til eynn-
ar, er Seif E1 Dine, ofursti, en
auk hans eru í nefndinni aðeins
tveir menn. Vopnahljesviðræð-
ur munu hefjast í fyrramálið.
Tekur Libanon þátt i
viðræðunum?
David Ben Gurion, forsætis-
ráðherra ísrael, tilkynti hjer í
dag, að auk Egypta og Gyð-
inga myndi enn eitt Arabaríki
taka þátt í vopnahljesviðræð-
um þessum. Menn ætla, að
hann hafi átt við Libanon.
SENDIBÍLASTÖDIH j
SÍMI 5113.
L
< <111111: tillfiillilfilMliiiiiiiiiiiiiifm*
MarkÚ3
£
Eftir Ed Dodd
Gamla birnan er of þung.... rnndan
anum.
... . ö'g trjabolurinn lætur | Hún er þarna eftir á bakk- « Kastar sjer út í vatnið til þungur.
I bjargar — en straumurinn er of
—Bækur
Frh. af bls. 6.
ingar eru nú liðnar hjá og
troðnar undir hjólbörðum nýja
tímans, þó að þær geymist enn
meðal nokkurra eldri manna,
sem bráðum eru komnir á leið-
arenda í síðasta áfanganum“.
Og svo spyr hann, hvað nýi tím-
inn gefi í staðinn. Hann svarar
ekki þeirri spurningu. Hver get
ur svarað henni?
Hefur nýi tíminn nokkuð að
bjóða, sem getur hreint og beint
komið íslensku þjóðinni í stað-
inn fyrir sambúðina við góð-
hestana, yndið, sem þeir veittu,
og uppeldisáhrifin?
Ekki geta vjelarnar það, þótt
þær flytji menn hratt milli
staða. Aldrei verður kveðið: —-
„Maður og bíll, þeir eru eitt“,
eða: „í mannsbarminn streymir
sem aðfalls unn af afli bílsins
og göfugu lund.“
Við skulum samt ekki van-
treysta því, að nýi tíminn geti
gefið miklar gjafir og góðar.
Lífið er svo auðugt af farsæld-
arefnum, að þjóðin getur stigið
af baki gæðingnum og sest inn
í bíl og orðið farsæl, þrátt fyrir
það.
En hún má ekki gleyma reiðr
hestinum frekar en öðru því
mikilsverðasta í sögu sinni.
Ásgeir hefur látið orð falla
á þá leið við blaðamenn, að
bækur sínar sjeu í raun og veru
ekki annað en „fátækleg þakk-
argjörð“ sín til vina sinna, góð-
hestanna, sem hann eigi mik-
la gleði að gjalda.
Sannleikurinn er, að bækurn
ar eru fallegar þakkargjörðir
fyrir hönd allra íslendinga, er
góðhesta hafa notið, og merki-
leg þjóðlífsfræði, sem höfund-
urinn á þökk alþjóðar fyrir að
hafa ritað.
Karl Kristjánsson.
(Framh. af bls. 9)
unni um mannfólkið, ekkert
fullkomið fullveldi, í styrjöld.-
inni milli meginþjóðanna. Því
fyrir Norðurlandaþjóðir, sem
fyrir allar þjóðir, er aðhyllast
hugsjónir lýðræðisins, er það
ekki aðalatriðið, að skapa sem
besta vörn gegn árásum, heldur
að skapa' sem öruggasta vörn
gegn sjálfri styrjöldinni. Þetta
fæst aðeins með því, að auka á
samvinnuna, og þar með styrk
þjóðanna.
★
ÚTKOMA ársins 1948 verður
því þessi: Lýðræðisríkin höfðu
betur í Evrópu, en biðu hinar
mestu hrakfarir í Asíu. Lýð-
ræðisríkin hafa styrkst í fyrsta
þætti hinnar vopnlausu styrj-
aldar. Því fengið er öruggt
samkomulag um markmiðið, og
öruggt samstarf um ráðin sem
beita skal. Dregið hefur úr
mætti Sovjetríkjanna. Hvorki
Járntjald eða einræðisstjórn
hefur getað dulið gagngerðan
skoðanamun og eldheitt ósam-
komulagi í Austur-Evrópu. Án
þess að fara út í spádóma um
órið 1949, er hægt að fullyrða,
að á því ári muni sami spenn-
ingur halda áfram í heimsmál-
unum, sömu árekstrarnir og
„vopnlausa styrjöldin“. — En
I
heimurinn kemst á því ári nær
um það, hvort úr þessu öllu
saman verði vopnuð styrjöld,
ellegar varaniegur friður.
(Nationaltidende).