Morgunblaðið - 23.01.1949, Blaðsíða 12
7EÐLHÚTLITIÐ: FAXAFLÓI:
SuS-vestaii og síðan vesían átt
•tneð allhvössum jeljum, ljettir
til. á milii. —
18. tbl. — Sunnuciagur 23. janúar 1949.
Misheppnað áróðurs-
tilrauu kommúnistu
Heiri menn í vinnu hjá
bænum nú en umáramót
Hverju Ijúp kommúnistar næsl?
JjJÓÐVILJINN birti í gær æsingagreinar um atvinnumál hjer
5 bænum, þar sem í voru alls konar rangfærslur og blekkingar
> ga rð andstæðinga kommúnista í bæjarstjórn. Þessar greinar
eru sýnilega skrifaðar af kommúnistum í þeim tilgangi að
t'reiða yfir eigin óhæfuverk og koma sínum ávirðingum yfir
á aðra. En í þetta sinn mun nú kommúnistum ekki heppnast
að fljóta á ósannindunum, vegna þess, að hægt er að leggja fram
r.kjallegar sannanir gegn þeim.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
flutti kommúnistinn. Hannes
„Stephensen tillögu þar sem
segir m* a.:
„Þar sem atvinnuleysi vex
Ji ii- hröðum skrefum í bænum.
felu; bæjarstjórn borgarstjóra
og bæjarráði.
að stöðva með öllu vinnu-
uppsagnir hjá bænum og
stofnunum hans og taka
> vtr.nu tafarlaust eigi færri
memr en sagt hefir verið upp
síðan um áramót,
að hlutast til um að dagleg
skráning atvinnuleysingja hefj
►st'þegar í stað í vinnumiðlunar
skrifstofunni“.
Meirihluti bæjarstjórnar
taldi ekki rjett að samþykkja
þessar tillögur áður en nákvæm
ar upplýsingar lægju fyrir um
málið, og visuðu því tillögun-
tjm til bæjarráðs til frekari at-
tiugunar.
■Upplýsingar Vinnumiðlunar-
skrifstofunnar
Borgarstjóri sneri sjer síðan
tij V'innumiðlunarskrifstofunn-
,ai og óskaði eftir upplýsir.gum
frá henni um atvinnuástandið
» bænum og fara hjer á eftir
upplýsingar hennar:
„Úí af fyrirspurn yðar um,
hvort mikið hafi borið á at-
■vinjnuleysi í lnetuim í þessum
jriáinuði. er mjer Ijúft að gefa
ftær upplýsingar að eftirspurn
liefír síst verið meiri í þessum
l'náinuði, en undanfarin ár.
IÞ>«> hefir nokkuð af einhieyp
«m- mönnum sótt um atvinnu,
í nokkrir utanbæjarmenn
og imglingar, og hefir niörgum
þe;irra verið ráðstafað af skrif-
síofunni eða um 50 mönnum til
•sjósíarfí).
Að öllu athuguðu virðist síst
íii.eára atvinnuleysi vera hjer í
htemim nú en verið hefir und-
anfarin ár um þetta leyti“.
Virðingarfylst
f,lii; Vinnumiðlunarskrifstof-
unnar.
Kr. F. Arndal.
Tii viðbótar við upplýsingar
frá- Vmnumiðlunarskrifstofunni
má geta þess að fimtudaginn
20. þ. ,m. voru vinnuumsókn-
ir .sem hjer segir:
20 menn skráðir. af því einn
»------------------------------
giftur með 4 börn á framfæri
sem fluttist frá Færeyjum fyr-
ir 2 árum eftir 17 ára dvöl þar.
Þangað flutti hann frá Aust-
fjörðum. 19 einhleypingar, þar
af einn með 2 óskilgetin börn
á framfæri sínu. Nokkrir af
þessum mönnum eru utanbæj
armenn, eins og tekið er fram
í brjefi skrifstofunnar. — Af
þessum mönnum voru 5 ráðnir
í vinnu samdægurs.
Vinnumálaskrifstofan.
Sigfús fylgir ekki Hannesi
Um þetta vissi Hannes Step-
hensen þegar hann flutti tillögu
sína i bæjarstjórn og talaði um
„ört vaxandi atVinnuleysi“ í
bænum, en af einhverjum á-
stæðum hefir hann kosið að
leyna því sanna í málinu.
Að fengnum þessum upplýs-
ingum, var málið svo tekið fyr
ir í bæjarráði og rætt um það,
hvort ástæða væri til að hefja
nú þegar daglega skráningu at-
vinnuleysingja, en hún á að
fara fram sem kunnugt er 1.
febr. n. k. Voru allir bæjarráðs
menn sammála um að slíkt virt
ist ekki nauðsynlegt. Hefði
mátt ætla að Sigfús Sigur-
hjartarson, fulltrúi kom-
múnista í ráðinu, hefði haft
sjerstöðu, en svo var ekki.
Hitt voru allir bæjarráðs-
menn sammála um, að tryggja
þyrfti það. eins og kostur væri
á, að ekki dragi til atvinnu-
leysis.
Fleiri í vinnu nú en
um áramót.
Borgarstjóri fjekk einnig upp
lýsingar frá Ráðningarskrif-
stofu bæjarins, um það hvað
margir verkamenn og bílstjór-
ar ynnu hjá bænum og hvort
fækkað hefði verið í bæjarvinn
unni eftir áramót.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um vinna nú 736 verkamenn
og bílstjórar hjá bænum. 8. jan.
var sagt upp 17 verkamönnum
í Vatnsveitunni vegna þess að
verki því, sem þeir áttu að
vinna var lokið og einnig var
sagt upp 5 bifreiðarstjórum.
Alls 22 mönnum. Aftur á móti
hefur bærinn ráðið til sin 25
Frh. á næsta dálki.
Sjóflvarpstæki fyrir börn.
í AMERÍKU var hægt að kaupa í verslunum tæki, eins og
hjer sjest á myndinni fyrir jólin og var þa<5 kallað „sjónvarp
l>arnanna“. Þetta er grammófónn og í sambandi við hann
16 m.m. filma, sem kcmur fram í kassanum. Þegar platan er
sett á og filman koma fram litmyndir úr ævintýrum og af
hljómplötunni heyrist sagan.
Hestur drepinn ó
Miklubraul
LÖGREGLAN varð í gærkveldi
að aflífa hest, sem ekið var á
suður á Miklubraut.
Þrír menn voru þarna með
hesta sína er vörubifreið, sem
var á leið til bæjarins ók á
einn hestinn og meiddist hann
svo, að lögreglan varð að aflífa
hann sem fyrr segir.
Þetta gerðist skammt fyrir
sunnan bæjarhúsin á gatnamót-
um Lönguhlíðar og Miklubraut
ar, um klukkan 6.
Maðurinn sem ók vörubíln-
um stöðvaði bíl sinn og hafði
tal af eiganda hestsins, Stein-
grími Oddssyni málarameistara
Sörlaskjöli 38. Lofaði bílstjór-
inn Steingrími að gera lögregl-
unni aðvart um slys þetta, en
það gerði maður þessi ekki.
Það er vinsamleg tilmæli
rannsóknarlögreglunnar að bíl-
stjóri þessi komi til viðtals sem
fyrst. Auk þess allir þeir sem
einhverjar upplýsingar gætu
gefið í máli þessu.
Frh. af fremra dálki.
verkamenn og bílstjóra síðan
um áramót. Þannig að nú eru
lieiri menn starfandi í bæjar-
vinnunni, heldur en var um ára
mót.
Af þessu sjest að fullyrðing-
ar kommúnista um það að bær-
inn hafi fækkað í vinnu hjá
sjer eru með öllu tilhæfulausar,
enda hefur það aldrei komið til
mála.
Ef kommúnistar halda, að
þeir geti með slíkum lygum
sem þessum blekkt verkamenn
til fylgis við sig lítur út fyrir
að þeir haldi að þeir sjeu komn
ir austur fyrir „Járntjaldið",
þar sem málin eru aðeins rædd
á einn veg og ritfrelsi, funda-
frelsi, og málfrelsi ekki til. En
hjer þýðir ekki að bera slíkt á
borð, fyrir velmenntaða og
þroskaða menn, er hafa aðstöðu
til að kynna sjer málin til hlýt-
ar.
Fyrirleslur sr. Pjeturs
Magnússonar um
hlulleysi, endur-
fekinn
í DAG kl. 1,30 endurtekur sr.
Pjetur Magnússon frá Valla-
nesi fyrirlestur þann um hlut-
leysi, er hann hjelt í Austur-
bæjarbíó s. 1. sunnudag. Fyrir-
lestur þessi vakti óskifta at-
hygli þeirra, er á hlýddu. Enda
var fy-rirlesarinn ómjirkur í
máli, í garð þeirra, er telja
okkur best borgið, með því að
standa berskjaldaðir, og veifa
hlutleysi okkar, á þeim válegu
tímum, sem nú eru.
Einkum deildi hann á ýmsa
menn innan háskólans, sem
ekki virtust skilja, eða vilja
skilja, hið breytta viðhorf í al-
þjóðamálum, frá því 1918.
Vítti hann mjög þá afstöðu al-
mennings, er fylgir borgara-
flokkunum að málum, að vera
sí og æ, í ræðu og riti, að berja
það inn í óvini þjóðfjelagsins,
og þá, sem jafnan velja þann
kost að fylgja óvinum þjóð-
fjelagsins að málum, til að
tryggja sitt eigið skinn — að
aldrei yrði blakað við einu hári
á höfði þeirra, hvernig sem
færi.
A fyrirlestrinum s. 1. sunnu-
dag voru nokkrir kommúnistar
og „frómir“ fylgifiskar»þeirra,
er sveið svo, undan þungum
rökum fyrirlesarans, að þeir
flúðu á dyr.
Vegna fjölda áskorana verð-
ur fyrirlesturinn endurtekinn í
dag. Er þess að vænta, að þar
verði fullt hús, því slíka fyrir-
lesara ættu sem flestir að heyra.
Stjórnmálanámskeið
Heimdallar
hcfst í Sjálfstæðishúsinu n.k.
fimmtudag. — Þátttaka til-
kynnist sem fyrst í skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins.
REYKJAVÍKLTRBRJEF er á
blaðsíðu 7■ —
UTANRÍKISRÁÐHERRA hefir
fyrir nokkrum dögum fengið
boð um að taka þátt í fundi
utanríkisráðherra Norðurlanda,
sem haldinn verður í Oslo hinn
28. janúar. og hefir hann nú í
samráði við ríkisstjórnina, tek-
ið boðinu. (Frjett frá utanríkis
ráðuneytinu).
★
S\T3rtleiðararahöfundur Tím
ans gerði það umtalsefni í gær
að Alþýðublaðið hafi fyrir
tveimur öögum haft það eftir
frjettaritara sínum í Höfn að
utanríkisráðherrann ætlaði að
taka boðinu á fund þennan og
þykist hafa ástæðu til þess að
finna að því, að ráðuneytið
skuli ekki fyrr hafa tilkynt
' þessa frjett hjer heima.
Vart er hægt að vænta þess
að þátttaka ráðherrans í fund-
inum sje tilkynt hjer áður en
hún er ákveðin. Og naumast
hægt að búast við því að ríkis
stjórnin eða utanríkisráðherr-
ann láti sig skifta tilgátur er-
lendra frjettaritara um óá-
kveðna hluti eða telji sjer skylt
að skifta sjer að hvað blöð
kunna eftir þeim að hafa.
Finnur Jónsson for-
sljóri Innkaupa-
stofnunar ríkisins
FINNUR JÓNSSON alþingis-
maður hefir verið skipaður
forstjóri Innkaupastofnunar rík
isins. Stofnun þessi, sem á gð
sjá um innkaup fyrir ríkisstofn
anir og framkvæmdir ríkissjóðs
var stofnuð með lögum frá
1947. —
Finnur Jónsson hefir sagt af
sjer fulltrúastarfi í Fjárhags-
ráði,- en við tekur af honum
Óskar Jónsson framkvæmdar-
stjóri í Hafnarfirði.