Morgunblaðið - 03.02.1949, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.02.1949, Qupperneq 1
ftjelfarM STALIN VILL RÆBA VIB TRUMAN FYRIR AUSTAN JÁRNTJALD SITT „Hatramlsgasfa árásin á kþóSsku kirkjunarr Rómaborg í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. ÚTVARPIÐ í Páfagarði kallaði í dag rjettarhöldin, sem á morgun (fimmtudag) eiga að hefjast í Ungvcrjalandi í „land- iáðamáli“ Mindszenty kardínála, „hatramlegustu árásina á kaþólsku kirkjuna frá því Napoleon Bonaparte Ijet f’ytja Píus páfa sjöunda úr Vatikaninu með valdi.“ ®----------------------------- Alheimsathygli. Undirbúningi undir rjettar- höldin hefur verið fjdgt með mikilii athygli um heim allan. Hefur þó stjórn kommúnista- gert frjettamönnum dagblaða lýðræðisríkjanna mjög erfitt fyrir, og sumum þeirra hefur enn verið neitað um leyfi til að koma til Ungverjalands. I þess- um hópi eru menn, sem til þessa hafa mætt litlum erfiðleikum, er þeir hafa ferðast til Ung- verjalands í frjettaerindum. 26 hlaðamenn. Kommúnistastjórnin í Buda- pest hefur þegar tilkynnt, að aðeins 26 erlendir frjettamenn fái að vera viðstaddir rjettar- höldin yfir Mindazenty. Bretland stærsti bílaútflytjandinn London í gærkveldi. BRETAR seldu fleiri bíla úr landi síðastliðið ár en nokkur þjóð önnur í heim inum. Frá þessu var skýrt í London í dag, og því bætt við, að bifreiðaút- flutningurinn hefði fært Bretlandi 146 miljón punda virði af erlendum gjaldeyri í aðra hönd. Bifreiðaframleiðsla Breta er nú orðin meiri en fyrir styrjöldina. — Reuter. Acheson vísar Itillögum Stalins á bug Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. DEAN ACHESON, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, vísaði í kvöld á hug þeirri tillögu Stalins marskálks, að Truman forseti ætti viðræður við rúss- neska einræðishcrrann um frið- arsamninga við Þjóðverja og fleiri. Svaraði ráðherrann einni af annarri tiUögum þeim, sem frarn komu í svörum Stalins um síðastliðna helgi við spurn- ingalista Intcrnational News Service, en tillögurnar fjölluðu um 1) friðarsanminga, 2) sam- komulagsviðræður um Berlín og 3) ráðstcfnu með Truman forseta. Acheson lagði áhcrslu á það, að „stjórn Bandaríkjanna vill ekki ræða við nokkra aðra þjóð þau vandamál, scm snerta beint hagsmuni annarra þjóða, án þess að þcssar sömu þjóðir taki þátt í þcim viðræðum.“ Hann taldi og, að ekki yrði hægt að ræða Bcrlínardciluna fyrr cn aðflutningsbanninu hefði verið afljetí. Talið sð hugmyndin um her- varnabandalag Skandinavíu sjenúúrsögunnð • Oslo í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. EINER Gerhardsen, forsætisráðherra Noregs, skýrði frá því i dag, að engin ákvörðun hefði verið tekin um frekari ráðstefnur skandinavisku forsætisráðherranna nje annarra meðlima ríkis- stjórna Noregs, Danmerkur og' Svíþjóðar. Líta sumir svo a, tð þessi lönd hafi gefist upp við að reyna að myxida skandinav- iskt hervarnabandalag. Norðmenn ákveðnir? I anna telja margir hverjir, að Stjórnmálamenn Vesturveld| Framhald á bls. 7 ViII ríðstefnu í Rússlandi Pól- Skeyti einræðisherrans til EvrópuJeildar i.N.S. Stalin einræðisherra bauð Truman forseta í gær í heimsókn austur fyrir rússneska járntjaldið. París í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. STALIN marskálkur ljet það í dag verða heyrum kunnugt, að hann væri fús til viðræðna við Truman Bandaríkjaforseta í Rússlandi, Póllandi eða Tjekkóslóvakíu. Kemur þetta fram i skeyti, sem einræðisherrann sendi yfirmanni Evrópudeildar International News Service, en það var þessi frjettastofa, sem um s.l. helgi sendi Stalin fjórar spurningar um afstöðu hans til Vesturveldanna. Skeyti Stalins í dag fer hjer á eftir: Til Kingsbury Smith, Evrópu-forstjóra International News Service Ageney, París. Með tilvísun til símskeytis yðar dagsettu 1. febrúar. færið Truman forseta þakkir mínar fyrir boðið um að korna til Washington. Það hefur lengi verið ósk mín að heimsækja Was- hington, *eins og jeg skýrði Roosevelt forseta frá í Yalta og Truman í Potsdam. Mjer þykir það leitt, að jeg get ekki eins og stendur látið verða af þessari ósk minni, þar sem læknar eru því mjög andvígir, að' jeg fari í langt ferðalag, sjerstaklega i lofti eða á sjó. Ríkisstjórn Sovjetríkjanna mundi verða það kærkomið, að forsetinn kæmi til Rússlands. Hægt yrði að ganga frá ráðstefnu í Moskva, Leningrad eða Kaliningrad, Odessa eða Yalta, eftir vali forsetans, ef þetta kæmi honum ekki illa. Ef forsetinn hinsvegar yrði andvígur þessu staðavali, yrði hægt að efna til fundar í Póllandi eða Tjekkóslóvakíu eftir því sem forsetinn óskaði. Virðingaríyllst, Stalin. Skeyti forstjóra INS Útvarpið í Moskva birti skeyti Stalins orðrjett í kvöld. Það sagði einnig frá því, að Smith hefði í gær sent einræðisherr.anum eftirfarandi skeyti frá París: Til Joseph Stalin marskálks, Kreml, Moskva. Yðar hágöfgi! Hinn opinberi talsmaður Hvíta hússins sagði í dag, að Tru- man forseta mundi verða það kærkomið að fá tækifæri til að íæða við yður í Washington. Munduð þjer, yðaf hágöfgi vilja fallast á að ferðast til Washington í þessu augnaniiði? Ef ekki, hvar munduð þjer þá vilja hitta forsetann? Með mikilli virðingu, Kingsbury Smith, Evrópu-forstjóri International News Service. Washington: „Vesijulegur áróður44 Síungið upp á París sem íundarsfað Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. CHARLES ROSS, blaðafull- trúi Trumans forseta, skýrði frjettamönnum frá bví í dag, að ekkert opinbert boð um að koma til fundar við Stalin marskálk hefði enn borist til Hvíta hússins. Það eina, sem opinberlega væri vitað um til- lögu Stalins um ráðstefnu, fælist í skeyti einræðisherr- ans til International News Service. Ross vakti athygli á því, að Truman hefði margoft lýst yfir vilja sínum til aö tala við Stalin í Washington, en neitaði að svara spurning- um frjettamanna um það, hvort Bandaríkjaforsetinn mundi taka boði rússneska kommúnistaleiðtogans. Truman forseti mun halda hinn vikulega blaðamanna- fund sinn á morgun (fimtu- dag). „Venjulegur áróður“ I Washington álíta margir stjórnmálamenn, að fundarboð Stalins sje „aðeins venjulegur áróður“. Þeir benda á það. að venjan sje að ganga frá mikjls verðum ráðstefnum í kyrrþey, í stað þess að birta um þær ægi- fregnir, áður en formlega hefir verið gengið frá undirbúningi þeirra. Aðrir stjórnmálamenn telja hinsvegar, að Stalin sje nú loks búinn að átta sig á því að samgöngubann Rússa við Berlín ætlar að verða árangurs laust, af þeim ástæðum vilji hann nú þreifa fyrir sjer um samkomulag. París boðin sem fundarstaður Þegar er Hinri Queuille, franska forsætisráðherranum, hafði verið skýrt frá boði Stalins, bauðst hann opinber- lega til þess að ljá París sem fundarstað rússneska einræðis- herrans og bandaríska forset- ans. Queuilli sagði í ræðu, sem hann flutti í hádegisveislu breskra og ameiískra blaða- manna í París: Framhald á bls. 7

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.