Morgunblaðið - 03.02.1949, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 3. febrúar 1949-
| F- U- J. F. U. J.
s
■
\ Almennur dansleikur
í Mjólkurstöðinni í kvöld kl. 9.
Edda Skagfield og Jóhanna Daníelsdóttir svngja með
hljómsveitinni.
Aðgöngumiðar seldir í anddyri hússins eftir kl. 8,30-
60 ára afniælishátíðahöhl Ármanns
^J^uöídóL i
ti
emmiun
í Austurbæjarbíó fimmtudaginn 3. febr. kl. 9.
1. Ávarp: Forsætisráðherra, Stefán Jóh. Stefánsson.
2. Erindi: Mag. Sign'ður Valgeirsdóttir, iþróttakennari.
3. Ba'llet: Sif Þórs og Sigríður Ármann.
4. Erlendir þjóðdansar, stjórnandi mag. Sigríður Val-
geirsdóttir.
5. Árni Óla rithöf.: Með Ármenningum i Þýskalands
ferð.
6. Þjóðdansar.
7. Skilmingar-
8. ITrvalsflokkur k'venna.
9. JJawaii-gitar kvartettinn: Fidda Skagfield svn^ur
með.
10. Hawaii-dans með söng og undirleik Hawaii-gítar-
kvartettsins.
Aðgöngumiðar seldir í bókaverslun ísafoldar og I.árusi
Blöndal.
60 ára afmælisfagnaður
34. dagur ársins.
Blasiusmessa.
Árdegisflæði kl. 8,25.
Síðdegisflæði kl. 20,43.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
onni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki,r simi 1760.
Næturakstur annast Hreyfill, simi
6633.
I O.O.F. 5=1302381/2 =
Söfnin
Landsbókasafnið er opið kl. 10—
12, 1—7 og 8—10 alla virka dage
nema laugardaga, þá kl. 10—12 og
1—7. — Þjóðskjalasafnið kl. 2—7
alL virka daga. — Þjóðminjasafnið
kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga oe
sunnudaga. — Listasafn Einars
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu-
dögum. — Bæjarbókasafnið kl.
10—10 alla virka daga nema Jaugar-
daga kl. 1—4. Nóttúrugripasafnið
opið sunnudaga kl. 1,30—-3 og þriðju
daga og fimtudaga kl. 2—3.
Gengið
Sterlingspund ___________ 26,22
100 bandarískir dollarar _____ 650,50
100 kanadiskir dollarar_______ 650,50
100 sænskar krónur .......... 181,00
100 danskar krónur ......... 135,57
100 norskar krónur .......... 131,10
100 hollensk gyllini ________ 245,51
100 belgiskir frankar ........ 14,86
1000 franskir frankar__________ 24,69
100 svissneskir frankar_______152,20
100 svissneskir frankar__________152,20
Bólusetning.
gegn bamaveiki heldur ófram og
er fólk ámint um, að koma með böm
sin til bólusetningar. Pöntunum er
veitt móttaka í síma 2781 aðeins á
þviðjudögum kl. 10—12.
Ungbarnavernd Líknar,
Templarasundi 3, er opin á þriðju
dögum, fimmtudögum og föstudögum
kl. 3,15—4.
Brúðkaup
í dag verða gefin samari í hjóna-
bar.d af sr. Jóni Auðuns fr. Anna
Guðmundsdóttir, Smiðjustíg 13 og hr.
Verslunarm. Helgi Helgasm, Lang-
holtsv. 75. Heimili þeirra verður að
Langholtsveg 75.
Nýlega voru gefin samau i hjóna-
b.and af sr. Garðari Svavaissyni, ung
frú Eygló Bára Pálmadótti,- og Jón
Stefán Sigurðsson, sjómaður. Heimili
þeirra er i Laugarneskomp 39 B.
Nýlega voru gefin saman i hjóna-
band af sr. Garðari Svavarssyni ung
frú Sigrún Sigtryggsdóttir og Halldór
Randver Þorsteinsson, sjómaður.
Heimili þeirra er á Lindargótu 36.
Hjónaefni
S.l. laugardag opinberuðu trúlofun
sina ungfrú Helga Ösk Margeirsdótt
ir, Fagurhlíð, Sandgerði og Guð-
mundur Rósant Þorkelsson, Tungu,
Sandgerði.
Stúdentar 1946
úr Menntaskólanum í lieykjavík.
Bekkjarbókin er tilbúin. Sækið hana
í X. kennslustofu Háskólans milli kl.
4 og 5 á föstudag.
glímufjelagsins Ármann verður í Sjálfstæðishúsinu laug
ardaginn 12. febr. og hefst með borðhaldi kl. 6 síðd.
Aðgöngumiðar og áskriftalistar liggja frammi á skrif-
stofu fjelagsins íþróttahúsinu, bókaverslun ísafoldar og
Lárusar Blöndal.
Stjórnin.
Barnaskemmtun Armanns
verður í Austurbæjarbíó föstudaginn 4. febr. og nefst
kl. 2,30.
Mjög fjölbreytt skemmtiatriði.
Aðgöngumiðar á 5,00 fyrir böm og 6,00 kr. fullorðna í
bókaversun ísafoldar og Lárusar Blöndal.
Eldur í bílaverkstæði
I gær var slökkviliðið kaHað suður
á Grimstaðaholt, í bilaverkstæði Póst
málastjómarinnar. Þar hafði kviknað
í út frá oliukyndingu. Skemdir urðu
þar ekki neinar.
Fyrirspurn um
verslunarfyrirtæki
Morgunblaðinu hafa bor;st fyrir-
spumir um hvort það sje íslenskt
verslunarfyrirtæki, sem auglýsir, að
það útvegr alskonar vörur frá Gauta
borg gegn. greiðslum í sterlmgspund
um og sænskum krónum, þar sem
fyrirtæki þetta auglýsir, , ð brjefa-
skriftir geti fárið fram á islensku.
Blaðinu er ekki kunnugt uin fyrir-
tæki þetta umfram það, sem í auglýs
ingunum stendur að öðru leyti en því,
að Haukur Björnsson mun \ .:ra einn
meðeigandi þess.
Jón Jónsson frá Hvoli, var til graf
ar borinn í gær.
I.árus Salómonsson lögre.'Iumaður,
hefur beðið Mbl. fyrir eftirfarandi
kveðjuorð:
Honum sína lífsins lönd
ljóssins krýnir friður.
Vonum sínum alfrjáls öud
ekki týnir niður.
Viðbætir
Landssíminn er nú að iáta dreifa
i meðal simanotenda í bænum, við-
bæti við simaskrána. 1 þessum við-
bæti munu vera skráð nær 100 núm
cr og eru þau nær öll fimm stafa.
Blöð og tímarit
Jörð IX. árg. er pýkomið út. Efni
er: Guðmundur Gislason Hagalín
fimmtugur, Á fimmtugsafmæli Haga
líns, eftir Ragnar Jóhannes.on skóla-
stjóra, Seiðurinn, saga eftir Hagalín,
Hestagátur, eftir Valdimer Briem,
Grein um ljóðskáld og ljóðngerð eftir
Steindór Sigurðsson, Tvö kvæði eftir
Heiðrek Guðmundsson, Bókn.enntim-
ar og vandamálin, eftir Hagalín.
Skíðaferð langafa, eftir Joiian Falk
berget, Bókabálkur cftir Hagalin,
Viðtal við fólkið í landinu, eftir Vil
hjálm S. Vilhjálmsson, Undir beru
lofti, saga eftir Ingólf Kmtjánsson,
Andsvar um iðnaðarmál til Helga
Hermanns, eftir Gisla Halldórsson,
Ráðstjómin og raunvísindin, eftir T.
S. Douglas, Evrópa og vestrænt sam
band, eftir Sebastian Haffner, Getur
þjóð verið aðili fyrir guði, eiur Björn
O. Björnsson.
Grímudansleik
beldur stúkan Andvari in. 265 i
Góðtemplarahúsinu annað Kvöld. Sjá
nónar i augl. í blaðinu í dag.
Húsmæðrafjelag
Reykjavíkur
heldur órshátíð sina mónudaginn 7.
felrúar í Tjamarcafé. Hefst húri kl.
6 e.h. Maigt verður til skemmtunar.
Skipafrjettir:
Geysir fór i fyrrakvöld til Prest-
víkur með 23 farþega. í gærmorgun
kom flugvjelin þaðan og fó - þá strax
aftur áleiðis til Kaupmaunahafnar
með 40 farþega.‘Meðal þeirra var
skipshöfnin á Dottifossi. ' dag er
Geysir væntanlegur hingað og mun
á leiðinni koma við í Prestvik. Hekla
er hjer í Reykjavik og G ijfaxi er
enn í Nýfundnalandi.
Skipafrjettir:
Eimskip 2. fehrúar:
Brúarfoss er ó Bíldudr.l, 1 star fros
inn fisk. Dettifoss fer frá K upmanna
höfn 8. febr. til Álasunds, Djúpavogs
og Roykjavíkur. I jabfoss fór fró
Siglufirði síðdegis i . 1 febr. til
Isafjarðar og Reykjavíkúr. Goðafoss
kom til Reykjavíkur i gær, I. febr.
fró Leith. Lagarfoss er í ReykjaVík.
Reykjafoss fór frá Reykjav k í morg
un, 2. febr. til Antwerpe;.. Selfoss
Jeg er að velta
því fyrir mjer —
hvort það sje ekki einskon
ar vangavelta að s íða svið.
kom til Reykjavíkur 29. jan. frá
Newcastle-on-Tyne. Tröllaloss fór
frá Halifax 27. jan. til Reykjavíkur.
Horsa er væntanleg til Hamborg í.
dag, 2. febr. Vatnajökull fór frá Vest
mannaeyjum 29. jan. til Himborgar.
Katla fór frá New York 26. jan. til
Revkjavíkur.
E. & Z. 2. fehr.:
Foldin er í Reykjavík. Lingestroom
er væntanlegur til Reykjuvíkur á
föstudagsmcrgun frá Fæi-eyjum.
Rej-kjanes fór frá Húsavík 28. f.m.
áleiðis til Grikklands með viðkomu i
Englandi.
Ríkisskip 3. fehr.:
Esja er á Austfjörðum á norður-
leið. Hekla er i Álaborg. Flerðubreið
er á Breiðafirði á norðurltið. Skjald
breið fór frá Reykjavik kl. 24 i gær-
kvöld til Vestmannaeyja. Sáðin er i
Revkjavik og fer hjeðan væntanlega
í kvöld ó leið til ítalinu. Hermóður
fer frá Reykjavík í dag ti! Patreks-
fjarðai', Sauðárkróks og Ho Hss. Þyr
ill er í Reykjavik.
Heiðraður af
Finnlandsforseta
Forseti Finnlands. hr. Pasikivi, hef
ur sæmt sr. Sigurbjörn Á Gislason,
Kommanders Tecknet Af Finlands
Lejons Orgen.
Si'. Sigurbirni var afhent þessi o: ða
í gærkvöldi.
Útvarpið:
8,30 Morgunútvarp. — 9,10 Veður
fregnir. 12,10—13,15 Hádegisútvarp.
15,30—16,30 Miðdegisútva p. 18,25
Veðufrregnir. 18,30 DönsT ukennsla
— 19,00 Enskukennsla. 19,25 Þing-
frjettir. 19,40 Lesin dagsKiá næstu
viiu. 19,45 Auglýsingar 20 00 Frjett
ir. 20,20 U tvarpshljómsveiru; (Þórar
inn Guðmundsson stjórnar). a) For-
leikur að óperunni „Töfraflautan“
eftir Mozart. b) „Dina ögon áro eld
ar“ eftir Nils Söderström. c) Slavnesk
ur dans eftir Dvorák. d) Tangó eftir
Albeniz. 20,45 Lestur fomrita: Úr
Fornaldarsögum Norðurlanda: Hrólfs
saga Gautrekssonar (Andrjes Bjöms
son). 21,10 Tónleikar (plölur). 21,15
Dagskrá Kvænrjettindafjelags Islands.
— LTpplestur: „Völuspá á bebresku",
smásaga eftir Halldór Kiljai: Laxness
(Inga Laxness leikkona les). 21,40
Tónleikar (plötur). 21,45 Spurningár
og svör um íslenskt mál (Bjami Vil
bjálmsson). 22,00 Frjettir og veður-
fregnir. 22,05 Webertónleikar (plöt
ur): a) Oberon-forleikurinn. b) Litiil
konsert fyrir klarínett og hijómsveit.
c) Jubel-forleikurinn. d) Koi.sertstúck
i f moll fyrir píanó og hljómsveit. e)
F. m yante-forleikurinn.
Þýsk tundurduil í
75 járntunnum
OSLO í gær: — í Fredriksstad
átti norska ríkið tómar 75
járntunnur, sem Þjóðverjar
höfðu skilið eftir er þeir fóru
frá Noregi. Ríkið hafði ekkert
við þessar tómu tunnur að gera
og voru þær þoðnar upp og
slegnar hæstþjóðanda á upp-
boði. Fyrirtæki eitt í Oslo
keypti tunnurnar og sendi bíla
til að flytja þær til Oslo. Er
þangað kom voru tunnurnar
settar til geymslu á birgðalóð
fjelagsins,
Um sama leyti auglýsti
norSka flotamálastjórnin eftir
tundurduflum, sem Þjóðverjar
höfðu tekið í sínar vörslur. Og
kom nú í ljós, að tundurduflin
voru geymd í járntunnunum
frá Fredriksstad. Sjerfræðingar
frá flotanum komu á vettvang'
og gerðu duflin óvirk, en heilt
bæjarhverfi var einangrað á
meðan.