Morgunblaðið - 04.03.1949, Síða 2

Morgunblaðið - 04.03.1949, Síða 2
MORGUiSnLAÐlÐ Föstudagur 4. mars 1949. ÍÞess vænst aS tcgaradsilan leysísf stni fy rs! Hvar er ábyrgðarlilfinningifi mesH JÞAU TÍÐINDI gerðust á bæjar- stjórnarfundi í gær, að borgar- r.tjóri og Sigfús Sigurhjartarson fl ufctu tillögur, sem að nokkru teyti yoru að efni til svo sam- hljóðay að þær voru samþykkt- ar serja ein tillaga. Sigfús bar fram sína tillögu ■4 upphafi fundarins, og bað af- söku nar á því, að hann væri þar með naál, sem raunar kæmi ekki við þeim dagskrárlið, sem þá var til umræðu. Tillaga hans var svohljóðandi. „Þar sem ljóst er, að stöðvun togaraflotans veidur þjóðinni, Seykipvíkurbæ og bæjarútgerð Reykjjivíkur lítt bætanlegu tjóni, fskorar bæjarstjórnin á alla þá, sem hlut eiga að máli að gera allt sem auðið er til að Ijúka togaradeilunni tafarlaust. Fari svo, móti von bæjar- stjórnar, að deilan dragist á I 'p.guia, heimilar hún bæjar- rá'ði, í samráði við sjávarútvegs n e fnd., að leita samkomulags vlð stjómir annara bæjarút- gerða um að gera nauðsynleg- ar ráðstafanir til að koma bæj- artogurunum á veiðar“. Hari'n tók það fram, að við- hunnanlegast myndi vera, að t,r*ra tillögu þessa undir at- kvæði í tvennu lagi. Þar eð t>.!rna;væri um að ræða tvens- h n' efni. í fyrsta lagi bein- ar óskir til hlutaðeigandi, að Ijúka deilunni sem fyrst. í öðru lagi, ef það yrði ekki, þá að tokið yrði til athugunar, hvort Reykjavíkurbær gæti ekki haft eamflot um það, við útgerðar- fyrirtæki annara bæjarfjelaga, að þau tækju sig út úr sam- tökunum og kæmu sínum skip- tmi af stað. T'Ifaga borgarstjóra Borgarstjóri skýrði þá frá t’ví, að hann hefði tillögu um sama mál er hann ætlaði að lþggja fram undir síðari dag- skrárlið. Og las hann síðan upp tiJlögu sína, sem var svohljóð- andi: „Vegna þess mikla tjóns, sem stöðvun togaraflotans hefir í för með sjer fyrir bæjarfjelagið og þjóðina í heild, skorar bæj- arstjórn Reykjavíkur eindreg- ið á alla aðilja deilunnar, að gera sitt ítrasta til þess að deil- an leysist sem allra fyrst“. Að efni til er mín tillaga hin snma og fyrrihluti tillögu Sig- fusar Sigurhjartarsonar, sagði borgarstjóri. En á hinn bóginn er mjer ekki algerlega ljóst, við hvað hann á, með síðari hluta tillogu sinnar. Að ef deilan dregst á lang- inn, þá sje leitað samkomulags um það að bæjarútgerðatog- ararnir taki sig út úr samtök- unum. Hvaða framkvæmd htrgsar tillögumaður sjer á fnes su? í einu blaði hjer í bænum sagði G- Th. ennfremur, er mikið talað þessa daga um „t'ogaraauðvaíd“. Jcg sje ckki hverníg er hægt að sortjera sjerstakt ,,auðvald“ út úr sam tui-• m togaraeigenda. — Eftir ummælum þess blaðs, sem ger ir sjer tíðræddast um þetta ,.auðvald“ fæ jeg t. d. ekki bet ur sjeð, en meirihluti bæjar- stjórnar í Neskaupstað, það eru kommúnistar, sem ráða þar bæjarútgerðinni. sje einn hluti af því „togaraauðvaldi“, sem blaðið talar urn. Sigfús Sigurhjartarson sagði að hann áliti, að bæjarfjelög hefðu ríkari ástæðu til þess að láta atvinnufyrirtæki ganga, en einstakir menn, sem ættu tog- ara. Aðalatriðið að skapa tryggan grundvöll Hallgrímur Benediktsson sagði, að hann gæti ekki sjeð, að neitt skorti á ábyrgðartil- finningu hjá einstökum mönn- um, sem gerðu út togara. Ein- stakir menn sem reka útgerð, sagði hann, leggja alt í hættu. Og þyrftu að hafa sig alla við, til þess að sjá fyrirtækjunum borgið. En þegar um bæjarút- gerð væri að ræða, þá er sú leið til. að sætta sig við taprekstur og skella svo tapinu á borgar- ana. Togarastöðvunin er okkar langalvarlegasta mál, sagði ræðumaður, og allir aðilar hljóta að vera á einu máli um, að nauðsynlegt sje, að skipin stöðvist sem styst. En jeg veit ekki betur, en allir sjeu sam- mála um, jafnt þeir, sem standa að bæjarútgerðum úti á landi, eins og einstakir út- gerðarmenn, að það var nauð- synlegt, að endurskoða kjör sjómannanna, til þess að útgerð skipanna gæti komist á heil- brigðan grundvöll. Allir, sem vilja þessari út- gerð vel, og æskja þess, að hún verði rekin til blessunar fyrir land og lýð, þeir hljótá að óska þess. að hún hvíli á öruggum grundvelli. Tillaga borgarstjóra, og fyrri hluti tillögu Sigfúsar Sigur- hjartarsonar, voru samþyktar með samhljóða atk\ræðum. En síðari hluta tillögu Sigfúsar var, einnig með samhljóða at- kvæðum, vísað til bæjarráðs. Brennsluolía sjóveg og í leBslnm HELGI SÆMUNDSSON gerði fyrirspurn um það til borgar- stjóra á bæjarstjórnarfundi í gær, hvernig hagað er aðflutn ingum til eimtúrbínustöðvar- innar á brensluolíu. Skýrði borgarstjóri svo frá að olían væri flutt til stöðvarinnar á bíl- um. En komið hefir til orða, sagði hann, að flytja hana á prömm- um inn í Elliðaárvoginn. En leggja leiðslu fyrir olíuna frá lendingarstað prammanna og upp í stöðina. Er þetta mál í athugun. Rússneska heim- sefldinganefndin LONDON, 3. mars: — Rússnesk útvarpsstöð í Berlín skýrði frá því í kvöld, að rússneska heim sendinganefndin í Frankfurt hefði fengið fyrirmæli um að snúa til rússneska hernámshlut ans í Þýskalandi. Hús nefndarinnar hefir ver- ið í ,,umsátursástandi“ frá því s. 1. þriðjudag, en Clay hers höfðingi hafði beðið hana að vera farna frá bandaríska her- námssvæðinu fyrir þann tíma, þar sem starfsemi hennar þar væri orðin óþörf. Er nefndarmenn gegndu ekki boðinu, ljetu Bandaríkja menn loka fyrir gas, rafmagn og síma til húss þeirra og setti um það hervörð. — Reuter GuðL Rósinkranz þjóðSeikiiússfjóri — Vilhjáimur Þ. Gíslason form. Þjóðleikhásráðs MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ skipaði í gær Guðlaug Rosin- kranz þjóðleikhússtjóra og Vilhjálm Þ. Gíslason formann þjóð- leikhúsráðs og bókmenntaráðunaut leikhússins frá 1. mars að telja. Guðlaugur Rosinkranz var áður formaður þjóðleikhúss- ráðs, eftir tillögu Framsóknarflokksins, en fer nú úr þeirri stöðu, en Vilhjálmur Þ. Gislason tékur við henni. eftir sömu tilnefningu. Ullarframleiðsla Bandaríkjanna WASHINGTON — Landbúnaðar- ráðuneyti Bandaríkjanna hefur tilkynnt, að ullarframleiðsla landsins hafi verið minni 1948 en nokkurt eitt ár s.l. 25 ár. 1947 nam framleiðslan 139,229,000 kílóum. Forreslal hervarna- ráðherra sagðl af sjer í gær YVASHINGTON, 3. mars — James Forrestal, her- varnaráðherra Bandaríkj- anna, sagði af sjer í dag. Louis R. Johnson, sem á stríðsárunum var fulltrúi Roosevelts forseta í Ind- landi, tekur við síarfi hans. Truman forseti tilkynnti þetta í kvöld. Forrestal, sem er 56 ára hefur verið hervarnarráð- herra frá því í september 1947. — Reuter. Skólapilfur skráfaði í nafni menfamálaráðherrans PARÍS — Nítján ára gamall franskur skólapiltur hefur ný- lega verið sektaður um 10,000 franka fyrir að skrifa rektdr Dijon háskólans brjef í nafni mentamálaráðherrans franska, og krefjast þess, að hann (þ. e. skólapilturinn) yrði ekki feld- ur við inntökupróf. Piltur þessi hringdi auk þess til rektorsins og sagðist vera einkaritari ráðherrans, en þá komst upp um hann, sökum þess, að nýbúið var að gera breytingar á stjórninni og nýr mentamálaráðherra tekinn við. — Reuter. Vilja ekki hýsa flóffafólkið WETZLAR — Aðgerðir eru nú hafnar gegn húseigendum í Hessen, sem breytt hafa ónot- uðum herbergjum í húsum sín- um í baðherbergi, til þess á þann hátt að komast hjá því að hýsa flóttafólk frá Austur- Þýskalandi. — Reuter. Sogsvirkjunin verði sameign feæjar og ríkis Uppkas) að samningi fyrir bæjarsfjórn FYRIR bæjarstjórnarfundi í gær lá uppkast að samningi á*milli bæjarstjórnar Reykjavíkur og ríkisstjórnarinnar, um þaS, að Sogsvirkjunin yrði í framtíðinni sameign þessara aðila. Borgarstjóri skýrði frá, að hann teldi rjett, að fresta því til næstu umræðu, að ræða þetta mál nákvæmlega. Þetta hefði oft verið rætt í bæjarráði, og lítillega í bæjarstjórn. En yrði tekið til 2. umræðu á næsta bæj arstjórnarfundi. Var frumvarpið samþykkt með samhljóða atkvæðum til 2 umræðu. Borgarstjóri minntist á að samkv. samningnum, þyrfti að gera nokkrar breytingar á Sogs virkjunarlögunum er þar að kæmi. Á meðan Reykjavíkur- bær á meira en helming Sogs- viíkjunarinnaar, þá skipar bær inn 3 menn í stjórnina. En þeg- ar eigninni verður skift til helm inga milli þessara aðila, þá skip Þjóðleikhússtjóri á skv. lög- unum að stjórna framkvæmd- úm leikhússins, daglegum störf- um, ráðningum, fjármálum o, sl. í Þjóðleikhúsinu mun vera gert ráð fyrir rekstri veitinga- húss fyrir leikhússgesti og aðra og mun sú starfsemi einnig lúta stjórn þjóðleikhússtjóra og sömuleiðis er gert ráð fyrir; rekstri leikskóla í Þjóðleikhús- inu. Þjóðleikhúsráðið hefur eft- irlit með starfsemi og rekstn Þjóðleikhússins og fjallar um allar meiriháttar ráðstafanir er= stofnunina varða. Starfssvið formanns þjóðleikhússráðs mun vera ákveðið þannig, að hann' hafi umsjón þeirra mála er þjócj leikhúsráðinu eru falin, og jafn- framt ber honum að komi fram út á við sem fulltrúa leik- hússins. í starfi Vilhjálms I', Gíslasonar er það þannig faliö, að hann er ráðunautur leikhúss - ins um bókmenntir og útvarps- starfsemi þá, sem gert er ráð fyrir að rekin verði úr Þjóðleik- húsinu. I þjóðleikhúsráði eiga nú sæti: Vilhjálmur Þ. Gíslason, formaður, Hörður Bjarnason skipulagsstjóri, varaformaðuv, Halldór Kiljan Laxness, rithöf- undur, Haraldur Björnsson leils ari og Ingimar Jónsson, skóla- stjóri. Fjórir þeirra eru tilnefnú ir af stjórnmálaflokkum, en einn af fjelagi leikara. Áþekk skipun og sú, sem nú hefur verið komið á þessi mál hjer, um stjórn Þjóðleikhússins, tíðkast einnig víðar á Norður- iöndum í samskonar leikhúsum. ar hver aðilinn tvo menn ’ ! stjórn ,en Hæstirjettur tilnefnir ; þann fimmta. í 5. grein samningsins segir svo: Við undirskrift samnings þessa verður Reykjavíkurbær eigandi að 85 hundraðshlutum, ' en ríkissjóður að 15 og skal svo haldaSt þar til lokið er næstu j framhaldsvirkjun. Þegar henni er lokið, verður Reykjavíkur- ( bper eigandi að 65 hundraðshlut ( um en ríkissjóóur að 35, og skal svo haldast þar til lokið er j næstu aukningu virkjunarinnar þar á eftir. Þegar henni er lok- ið, verður Reykjavíkurbær eig- endi að 50 hundraðshlutum, en j ríkissjóður að 50 og skal svo haldast áfram. 40 marnis á leíð norður ÁÆTLUNARFERÐIR póst- stjórnarinnar milli Akraness og Sauðárkróks, eru nú hafnar á ný, eftir hlje það sem á ferð- unum varð vegna snjóa. I gærdag fór Laxfoss hjeðan úr Reykjavík um kl. 2 með um 40 farþega norður, auk þess tala vert af pósti. St'rax eftir komu' skipsins til Akraness fóru áætl- unarbílarnir af stað, og var ferði inni heitið áð Fornahvammi, Þar átti að gista. í dag átti sva að aka alla leið til Sauðárkróks, Einn áætlunarbílanna fór ij gærmorgun af stað frá Sauðár- króki áleiðis til Akraness. Bíll- inn var um kl. 1,30 í gærdag að Blönduósi og ætlaði bílstjór- inn þá að halda ferðinni áfram' og reyna að komast allt niðufl að Fornahvammi. Mikill snjór er á Holtavörðu-' heiði, en bílar þessir eru mjög háir og komast greiðlega áfram; í mittisdjúpum snjó,-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.