Morgunblaðið - 04.03.1949, Blaðsíða 16
VEB URÚTLITIÐ: FAXAFLÓI;
ÞAR SEM NOREGUR og Rúss
Sui'inan stinningskaldi, rigning
cða þokusúld. Gengur í suð-
vesíanátt með allhv. skárum sd
52. tbl. — Föstudagur 4- mars 1949.
land mætast.
blaðsíðu S.
Sjá grein á
’ n
4
Fólk veikis! af gaseifrun
Æðin i lifynni rifnaði
Þrennt veikisl hæliuiega
<?¥RIR TVEIM til þrem vikum tók að bera á einkennilegri
veiki, í tveim húsum vestur á Brekkustíg. í öðru þeirra tók
allt heimilisfólkið veiki þessa, en í hinu tvennt. Læknar,
sem komu til hinna sjúku, munu hafa talið að hjer væri um
að ræða mænuveiki. Nú er það upplýst, að allt þetta fólk
veiktist af gaseitrun. Gásæð, sem grafin er í götuna hefur
nprungið og gasið frá henni komist inn í húsin.
Allt heimilisfólkið veikist !
Mest brögð urðu að gaseitr-
tminni- í húsinu númer 17 við
Ibfekkustíg, ■ en það hús nefnist
Sólheimar.
Að Sólheimum eru sex manns
i fieimili, þar af tvær litlar telp
ur 5 og 11 ára og veiktist allt
hfeimilísfólkið, en 17 ára piltur
-ínest. Var komið að honum
á þriðjudagsmorgun meðvit-
undarlausum og hættulega veik
wm, en hann jafnaði sig eftir
■ rtokkrar - klukkustundir er
gluggar í herbergi hans höfðu
verið opnaðir.
Sjúkdómslýsing
Samkvæmt viðtali Mbl. við
heimilisfólkið lýsti gaseitrunin
sjer þannig, að það fjekk mikla
beinverki og verk í augun. Svo
rnáttlaust varð það, að erfitt
var fyrir það að gahga. Einnig
sótti mikill svefn að því, eink-
um þó telpunum, sem áttu erf-
ití -með að halda/ sjer vakandi
et þær voru að leik inni. Einn-
»g •fylgdi gaseitruninni uppköst
og svimi.
Göionilii hjónin
meðvitundarlaus
Að Brekkustíg 16 voru það
eldri hjón, sem veikin lagðist
Jaungt á. Komið var að þeim á
sunnudagsmorgun nær meðvit-
ujidarlausum. Gluggi á herbergi
þen ra Var opnaður og komust
l'-tu brátt til meðvitundar og
var líðan þeirra góð eftir at-
vikum, er læknir kom. Konan
er þó ekki enn búin að ná sjer
tj J fulis.
Að sögn fólksins í báðum þess
um- húsum, töldu læknar er vitj
uðu heimilanna, að hjer væri
um að ræða mænuveiki, eða
iriflúensu, en fólkið var yfir-
leitt ekki mikið veikt, er lækn
aj nir komu.
Fólkið ljet mjög vel yfir af-
skiptum borgarlæknis af máli
þessu, en til hans var Ieitað
í fyrradag.
Kvartað yfir bensínlykt
I stuttu símtali við dr. Jón
Sigurðsson borgarlæknir í gær
kveldi, skýrði læknirinn Mbl.
frá því, að til sín hefði verið
kvartað yfir sterkri bensínlykt
■í þessum tveim húsum. Þegar
við komum, sagði læknirinn,
fundum við sterka ólykt sem
niintl okkur á gaslykt. Starfs-
ru iður gasstöðvarinnar sem
koni staðfesti þetta.
Uimið í fyrri nótt
-Þar eð möguleikar voru fyrir
hendi á hættulegri gaseitrun,
varð vitaskuld að loka fyrir
gasleiðsluna eins fljótt og hægt
var. Leitaði borgarlæknir þá
til verkfræðinga bæjarins, er
stjórnuðu uppgreftri götunnar,
svo komist yrði að gasrörinu,
og lokað fyrir það. Þessu verki
var lokið í fyrri nótt.
Gasið kom upp um vaskana
Sýnt er, að er Brekkustígur
var grafin upp, hefir gasæðin
orðið fyrir hnjaski og gasíð síð
an streymt út í jörðina. Þetta
er einkum hættulegt undir mal
bikuðum götum og þegar frost
er í jörðu. Þá þjappast gasið
saman og leitar í skolpræsis-
rörin, því í báðum þessum hús
um kom gasið upp um vaka og
gólfristar í baðherbergjum.
Erlendir togarar
spilla veiði Sand-
gerðisbáia
SANDGERÐI, 3. mars. — Hjeð -
an frá Sandgerði hefur verið
róið s.l. 5 daga eftir allar ógæft-
irnar i vetur. Afli var mjög góð-
ur, eða frá 20 upp í 40 skip-
pund í fjórum róðrunum.
En svo brá við í gær og dag
að aflinn hefur verið mestur 12
skippund og allt niður í 5. Eru
það afleiðingar þess, að hjer ut
af Sandgerði eru nú að stað-
aldri milli 30 og 40 erlendir tog-
arar svo ágengir að sjómenn
bjeðan verða oft að hætta við
að leggja línu sína nema þá
Ijarri þeim fiskimiðum, sem
fiskur er aðallega á, og svo
iangt gengur þetta, að togararn
ir hafa fiskibátana sem baujur
fyrir sig og trolla í kringum þá,
enda er nú svo komið, að bátar
hjeðan eru búnir að missa meiri
hluta af línu sinni. Hafa menn
haft það á orði að hætta að róa.
Nú er mjer spurn. Hvers
vegna er ekki hafður bátur hjer
eins og í fyrra til þess að hafa
eftirlit með línu bátanna? Gafst
það mjög vel að allra dómi hje>\
Það eru allir að tala um, að
það þurfi að styrkja þennari
smábátaútveg og er gert. Þvl
ekki að styrkja hann með því að
láta skip vera hjer á miðunum
sem gera mjög mikið gagn. —
Krafa sjómannanna hjer er þVí
sú, að ríkisstjórnin sendi skip
hingað strax til að tryggja það
að útgerð hjer verði ekki áð
hætta. — Frjettaritari.
miij. larþega
srleyfisbílum
SAMKVÆMT upplýsingum frá Umferðarskrifstofu póstmála,
sem hefur á hendí yfirumsjón með sjerleyfisferðum, ferðuðust
alls 1.317.889 manns með aimenningsvögnum, utan Reykjavíkur,
á árinu 1943. Er það rúmlega ,100.000 færri farþegar, en árið
■ður, en þá nam tala þeirra 1.417.985.
Sýn! bsnatiiresSi
Mohamed Reza Pahlevi, shah i
Palestínu er nú á batavegi e.ft-
ir banatilræði, sem honum var
sýnt á dögunum. Særðist hann,
en ekki hættulega.
íbúðarhús brennur
lil grunna á
Djúpðvík
DJÚPAVÍK, 3. mars — íbúð-
arhús brann hjer s. 1. nótt til
kaldra kola. Eigandi hússins,
Guðmundur L Sigurðsson, bjó
í því ásamt fjölskyldu sinni.
Allt fólkið bjargaðist út úr
húsinu.
Nokkuð af liúsmunum og mik
ið af fatnaði brann, og var það
allt óvátryggt. Auk þess var
húsið mjög lágt vátryggt. Er
tjón Guðmundar því mjög mik-
ið.
Okunnugt er um upptök elds-
ins.
HAAG — Frakkinn Jules Basde-
vant hefur verið skipaður forseti
alþjóðadómstólsins í Haag næstu
þrjú árin.
Flestir farþcgar 1945
Farþegaílutningur með al -
menningsvögnum þeim, er und -
ir þetta yfirlit falla, var mest-
ur árið 1945, en þá nam tala
farþeganna 1.495.593. Þess ber
að minnast að á því ári var fjÖl -
mennur her hjer í landinu, sem
notaði almenningsvagnana nokk
uð.
Mestur ti! Hafnarfjarðar
Samkvæmt yfirlitinu er far-
þegaflutningurinn til Hafnar-
íjarðar og verstöðvanna -hje>.'
fyrir sunnan langsamlega mest-
ur. Á þessari leið, þ. e. frá Rvík
til Vífilsstaða, Hafnarfjarðar,
i Grindavíkur, Keflavíkur og
Sandgerðis nam farþegatalan
1.106,152.
Aðrar leiðir
i Næst kemur leiðin Reykjavík,
Árnessýsla með 65.955 farþega,
þá Mosfellssveit, Kjalarnes og
Kjós með 46.499 farþega. Með
hraðferðavögnunum Akranes
— Akureyri, ferðuðust rúmlega
20 þús. Til Rangárvallasýslu og
Skaftafellssýslu 10.418 farþeg-
ar. Þá kemur Akranes og Borg-
arfjarðarsýsla með 5736 far-
1 þega, Dalir, ísafjarðardjúp og
Hólmavík 3099 farþegar. Minst.
var um farþegaflutning vestur
á Snæfellsnes, 2878.
I
Innanhjeraðs-flutningar
I Farþegaflutningar innan hjer
aðs voru langsamlega mestir í
Eyjafjarðarsýslu 20.994 farþeg-
ar.
Frá Akureyri til Austfjarða
voru 8675 farþegar. Innan hjer-
aðs í Skagafjarðarsýslu og þar
með talinn Siglufjörður ferðast
með almenningsvögnum 7.143
og í Borgarfjarðar og Mýra-
sýslum 7167. Aðrar sýslur eru
með miklu minni farþegaflutn-
ing, en minst er umferðin inn-
an hjeraðs 1 Þingeyjarsýslunuru
eða 963. '
NorSurlöndin ræða
llugmál
í EINKASKEYTI frá NTB til
Mbl. í gærkvöldi, er frá því
skýrt, að um þessar mundir sitii
fulltrúar Norðurlandanna fimm
á flugmálaráðstefnu í Lille-
hammer í Noregi.
Ráðsteíjna þessi ræðir end-
urskoðun.á gildandi flugumferð
arlögum þessara landa.
Fulltrúi Islands á ráðstefn-
unni er Þórður Björnsson full-
Irúi sakaþómara og meðlimur’
flugráðs.
♦ ♦ ♦
t
Stjórnmálanámskeið
Heimdallar
Siálfstæðismenn. áAk-
ureyri fylgja stefnu
flokksráðsins
NÆSTI FUNDUR námskeiðsins
verður haldinn í Sjálfstæð-
ishúsinu á morgun kl. 4.30.
Bjarni Benediktsson, utan-
ríkisráðherra, mun flytja
þar fyrlrlestur um komirt-
únisma. Áríðandi að mætat
stundvíslega.
AKUREYRI, 3. mars. — Á fundi
Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfjelag-
anna á Akureyri, sem haldinn
var í gær, var eftirfarandi til -
laga varðandi öryggismál þjóð-
arinnar samþykkt einróma:
„Fundur haldinn í FuIItrúa-
ráði Sjálfstæðisfjelaganna á
Akureyri 2. mars 1949 telur
mjög aðkallandi, að íslenska
þjóðin geri sjer fulla grein
fyrir hvernig hún sjer til
verndar og öryggis geti bcst
. brugðist við þeirri hættu, er
nú ógnar öllum frjálsum lýð-
ræðisþjóðum. Fundurinn lít-
ur svo á, að leiði núverandi
viðsjár með stórveldunuin til
styrjaldar milli einræðis- og
lýðræðisríkjanna, þá varði
það sæmd og sjálfsvirðingu,
öryggi og tilveru íslensku
þjóðarinnar, að hún skipi
sjer í fylkingu þeirra þjóða,
er sömu lífsskoðanir, stjórn-
arhætti og mannrjettindi
hafa að verja. Fundurinn tel-
ur að varnarlaust hlutleysi
myndi gera þjóðina berskjald
aða fyrir árásum og þannig
stórauka hættuna á nauðung
arhernámi landsins í hernað
arátökum milli austurs og
vesturs. — Framkoma Rússa
gagnvart smáþjóðunum og!
hin taumlausa þjónustulund
fylgismanna þeirra um heirn
allan við hagsmuni Rússa
má og vera alvarleg viðvör-
un. Fundurinn er því í einu
og öllu samþykkur þeirri á-
lyktun, sem Flokksráð Sjálf-
stæðisflokksins hefur gert
varðandi þetta mál. Lýsir
fundurinn fullu trausti sín'.t
á miðstjórn og Flokksráð
Sjálfstæðisflokksins til frek-
ari nauðsynlegra ákvarðana
í þessu efni.“
— H. Vald.