Morgunblaðið - 05.03.1949, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLaÐIÐ
Laugardagur 5. mars 1949.
Afmæliskvæði
AFMÆLISKVÆÐI til Jóhann-
esar bónda Jóhannssonar á Þor-
grímsstöðum í Þorgrímsstaða-
dal á Vatnsnesi, flutt í veislu á
heimili hans, er hann varð átt-
ræður þann 20. nóv. s.l.
Jóhannes er s'jerstakur dreng
skapar- og gleðimaður og hesta
maður með afbrigðum.
Drápulag:
Fríð gnæfa fjöll
við frjóan völl
hjer inni í dal,
er engjaval,
en bóndabær
þars brekkan grær
og grundin frið
und grænni hlíð.
í högum hjer
svo hátt er sjer
sjer leikur stóð
um löndin góð.
Gleður hestamenn
að horfa á þann
hópinn væna
um hjalla græna.
Af þeim .(örðum les,
þú, Jóhannes,
hinn besta arð
í bú og garð.
Þín andans glóð
þitt yli blóð
enn langa leið
um lífsins skeið.
Þú ert ungur enn,
því unga menn
þú örfar, ör
með æskufjör,
þótt hljótir hregg,
ei hærist skegg,
þótt f jölgi ár,
ei fölnar hár.
Áttatíu ár
er aldur hár
fólki flestu,
hjer munar mestu,
hve þín ljetta lund
hefur langa stund
aukið yl og fjör
í okkar för.
Vjer sitjum hjer.
Oss sæmd það er
í þessum . al
í þínum dal
þitt drekka full,
það er dýrra en gull
þinn hljóta fund
þessa heiliastund.
(p.t. Reykjavík 21. febr. 1949).
Sigurður Norland
Hintíisvík.
FRANKFURT — Bandarískur
herrjettur hefur dæmt þrjá Þjóð-
verja og tvo Pólverja í fangelsi,
fyrir að njósna um Bandaríkjaher
í Þýskalandi. Njósnararnir störf-
uðu fyrir pólsku leyniþjónustuna.
Óleyíileg svínasláfrun
HEIDELBERG — Samkvæmt
fregnum, sem nýlega voru birt-
ar hjer í blöðunum, slátruðu
þýskir bændur óleyfilega að
minsta kosti 500,000 svínum
síðustu fjóra mánuðina s.l. ár.
Svínakjötið seldu þeir á svört-
um markaði. — Reuter.
rr
- Þeir „hluilausu
(Framh. af bls. 2)
Ilitt er miklu verra, að þeir,
sem þykjast hafa helgað vís-
indunum og jafnvel sjálfri
Guðs kristni líf sitt og krafta,
iialda því fram, að Islendingar
eigi að vera hlutlausir gegn
slíkum ósóma.
Jafnvel þó að engin hætta
væri á, að svívirðingin gæti
teygt arma sína til Islands
mundu allir óspilltir íslending-
ar fordæma hana. Því fremur
hafnar íslenskur almenningur
slíku hlutleysi, sem öllum er
augljóst orðið, að hlutleysið á
að vera skálkaskjólið til að
opna hinum austrænu stjórn-
arháttum inngöngu í landið.
Gegn því sameinast allir góð-
ir íslendingar.
— Meðal annara orða
Frh. af bls. 8.
FVLGIR árstíðum
ÞAÐ einkennilega við hvarf
unglinga er það, að árstíðirnar
virðast ráða þar nokkru um. —
Stúlkur á aldrinum 12 til 16
ára hverfa venjulega á vorin
og piltar 16 til 18 ára á haust-
in.
Oftast kemur í ljós, að stúlk-
urnar hafa hlaupið að heiman
með einhverjum ,,kærasta“, en
piltarnir til þess að komast hjá
því að hefja skólagöngu á ný
að loknu sumarleyfinu.
Oftast er þetta strokufólk þó
komið heim aftur eftir einn til
tvo daga.
- Heimilin og
skömmtunin
Framh. af bls. 7.
af litlu er að taka til að jafna
niður, en þó því aðeins að hún
svari kostnaði.
Því verða allir þeirri stund
fegnastir, er við megum aftur
um frjálst höfuð strjúka í þess-
um efnum.
S. M. Ó.
Einar Ásmundsson
hœstarjettarlögmaður
Skrifstofa:
TJarnareötn 10 — Sími 5407.
Brjef frá frímerkja-
safnara
Herra ritstjóri:
EINS og kunnugt er, hefur póst
stjórnin undanfarin ár haldið
uppi þeim hætti að halda eftir
frímerkjaafklippum af peninga
ávísunum. Ráðstöfun þessi hefir
mælst mjög illa fyrir, og hefur
áður verið mótmælt.
Ástæða sú sem gerræði þetta
er rjettlætt með er sú, að and-
virði af seldum frímerkjaaf-
klippum sje betur varið í sjóð-
um póstmanna en hjá eigend-
um ávísananna. Staðhæfing
þessi veldur mönnum nokkur*
um heilabrotum, en það er önn-
ur hlið á þessu máli sem einnig
kemur illa við menn.
Svo mun vera til ætlast að
frímerkjaafklippur þær sem
pósthúsinu berast „komist sem
minst undir manna hendur“, og
að kaupendur geti því nokkurn-
veginn vitað hvað þeir eru að
kaupa. — Þessu er þó annan
veg farið. Jeg er einn þeirra
manna sem undanfarið hefi
skift við frímerkjasöiuna og
greitt kr. 125.00 fyrir !4 kg af
þessu lostgæti. Þegar jeg í dag
sótti pakkann minn var það
með nokkurri eftirvæntingu,
jeg hafði áður orðið fyrir von-
brigðum, hinum eftirsóttu 10 og
5 kr. merkjum og öðrum góðum
merkjum sem gáfu pökkunum
gildi hafði farið sí fækkandi
með hverju árinu, og innihaldið
raunar orðið svo rýrt að stór
tap var á kaupunum. Afgreiðslu
maðurinn tók mjer vel og af-
henti mjer (mjer til mikillar
furðu) tvo pakka. Jeg flýtti
mjer heim, og með öndina í
hálsinum steypti jeg úr þeim
hvorum við hliðina á öðrum.
Það hrukku nokkur blótsyrði af
vörum mjer. Þorskur —síld —■
síld — þorskur. Jeg leitaði
dauðaleit, reif pokana í tætlur,
dró lUpuna fram en nei, ekki
eitt einasta nýtilegt merki —
ekki eitt!! Mjer er annað ljúf-
ara en að kvarta á opinberum
vettvangi, en það er fleirum en
mjer sem er misboðið. Þegar
vara er seld fullu verði, á kaup
andi heimtingu á að fá hana
ósvikna. Enginn sem nú skiftir
við frímerkjasöluna fer í graf-
götur um það að góðu merkin
hverfa á dularfullan hátt, marg
ir kaupa þó enn poka og poka
(eins og jeg) í von um að vinna
í happdrættinu en rjettlætis-
krafa okkar er: Skilið eigend-
um ávísananna afklippunum —
ellegar fullkomið eftirlit með
afklippingu og afgreiðslu
þeirra til kaupenda. Safnari.
íslenskir framleiðendur
takið eftir
Tek í umboðssölu og í eigin reikning allskonar íslenska
framleiðslu. He'imilis- og verksmiðjuiðnað. Hefi dugleg
an og ábyggilegan sölumann með margra ára reynslu
að baki sjer. Áhersla lögð á fljóta afsetningu á vöru
yðar. Allar nánari uppl. gefur
a^nuó
^Jdaraid
óóon
umboðs- og heiltlverslun
Þórsgötu 1. Simi 6401. Simnefni: Árvakur.
Anti-Kristur
Opinberunarbókarin n a r
leggur beiminn untlir sig.
Pastor Johs. Jenstín talar
um þetta efni sunnudag
inn 6. þ.m. kl. 5 i Aðvent
kirkjunni (Ingólfsstr. 19).
Allir velkomnir,
Látið gipslistann
prýða stofur jaðar. Get afgreitt með stuttum fyrirvara.
ÞORBERGUR ÓLAFSSON
Sudurgötu 14.
Maður eða kona
sem geta tekið að sjer stjórn litillar leðurvöruverk-
smiðju, óskast nú þegar. Tilboð sendist afgr Mbl. fyrir
10. mars, merkt: „Framtíð —'285“. Þagmælsku heitið.
Til sölu sem ný amerísk
FÓLKSBIFREIÐ
♦
..Nash“ smíðaár 1948. Nánari nppl. í síma 7324.
iiinninimmnfmmnmrfTnvniiiiii(iiiiniii:MiiitMiiiiiiiiiin|l±
Markús
£
£
Eftir Ed Dodd
J ■MMMMIMIIMIIIIIIIIMMMMIMMMMIMMMMMIIIMMIIIMMMMMMMIMMII
^•WE'RE ALL PACKED,
í-MARK.l.ARE YOU GOING
TQ TAKE YOUR BOW?
YOU BET„ AFT.EK I SHOOT
THE p/CTURES I MAV TRV
FOR A WILD HOð WIW
MY BOW
1 Vjelbátur
I ca. 5 tonna óskast til
i kaups eða til leigu í sex
1 mánuði. Báturinn þarf að
É vera með þilfari. — Til-
i boð með upplýsingum um
| bát, vjel og verð sendist
| afgr. blaðsins fyrir 15.
I mars, merkt „Öryggi—
I 300“.
iMJMUMItoMi
i Fullur kassi
| ú kviiidi
lOiTmxl
— Jæja, við erum alveg til- i — Ja, þú getur ímyndað þjer,
búin. Ætlarðu að taka bogann hvort jeg fer að skilja hann
með þjer. | eftir.
— Þetta er dásamlegt. Mig
hefur alltaf langað til að fara
suður í Reykjafjöll.
i hjá þeim, se«i auglýsa í
I______Morgunblaðinu.
MHUUHtlSMIIIttllHMinnMI