Morgunblaðið - 05.03.1949, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.03.1949, Blaðsíða 14
MORGZJNBLAÐIÐ Laugardagur 5. mars 1949. )V4 i.tiitiiiiiii.'t fj’aJllhlSÍ {Í 55 ðCj S fl L l ifn!iiiMiiiiiiiHimiiimimiiiiiiMiimiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiniiimmniiiiiiiiti!i>imiJmiiiiiiniuiniii£ HESPER Eftir Anya Seton Fólkið í Rósaíundi Eftir LAURA FITTINGHOFF hlæjið að mjer. Jeg held að jeg feafi ekki gert mjer það ljóst sjálfur, fyrr en Fyrr en hvenær? Fyrr en um kvöldið, þegar- hún hafði komið inn íjómandi af ánægju með þess- um Redlake, og um kvöldið, sem hann mætti þeim áf bryggj unni. En núna fannst honum, að hann hefði alltaf elskað hana. „Jeg hló eiginlega ekki, herra Porterman", sagði hún vingjarnlega. „Jeg var bara svo hissa. Mjer hefði aldrei dottið í hug, að „O, jeg skil“, sagði hann. „Þjer hefur alltaf verið illa við mig. Vertu ekki með þenn- an áhyggjusvip- Jeg veit, að ó- cndurgoldin ást er aðeins til óþæginda fyrir hinn aðilann. Gleymdu því, sem jeg sagði, Hesper. Jeg ætlaði ekki að segja það‘. Hún brosti. því hún vissi ckki hvað hún átti að segja. Henni fannst þetta svo óraun- verulegt. Það var ómögulegt að hugsa sjer herra Porterman sem elskhuga. Eiginlega ómögu tegt- að hugsa sjer neinn sem clskhuga nema Evan. Hún fjekk hjartslátt aðeins við til- hugsunina um hann. Hún opn- aði hliðið og gekk upp stiginn að eldhúsdyrunum. Amos gekk á eftir henni eins og í leiðslu- Hann gat ekki yfirgefið hana strax. Á morgun mundi hún vera farin. Susan var ein í eldhúsinu. „Hjer er herra Porterman“, sagði Hesper. Rödd hennar hljómaði annarlega. Hún beið á meðan móðir hennar heilsaði Amosi. Svo flutti hún sig nær Susan og sagði í hálfum hljóð- um: „Hvar er Evan?“. Susan beit saman vörunum og leit á Amos. En hún kenndi j brjósti um dóttur sína og meðaumkunin varð gremjunni yfirsterkari. „Hann lokaði sig inni í herberginu sínu með eina flösku af besta romminu mínu“. Roðinn hvarf úr kinnum Hesper. Hún leit af móður sinni og á Amos. Hann stóð við gluggann og horfði út og ljet eins og hann hefði ekki heyrt það sem Susan sagði. Hún gekk hikandi að stigaganginum. „Jeg held að jeg fari líka að hátta“, sagði hún. ,,Það er skynsamlegast. Við eigum langa ferð fyrir höndum á morgun“. Hurðin lokaðist á eftir henni. Amos og Susan heyrðu hægt fótatak hennar upp stigann. Þau horfðust í augu augnablik, og Susan gat lesið úr svip hans, hvaö skeð hafði á milli þeirra Hesper. Nú, það er svona, hugsaði hún. Það varð augnabliks þögn. Tifið í klukkunni á veggnum heyrðist óeðlilega hátt. Svo flýtti Amos sjer að segja eitt- hvað. „Jeg kom hjerna við, til að leggja inn gjöf handa brúð- urinni. Það er ekkert merki- legt, en gæti þó komið að gagni“. Hann tók böggul upp úr vasa sínum og vafði brjef- inu utan af honum. í honum voru morgunskór úr ljósu silki og hnepptir, svartir greitar- skinnskór. „Þetta er dæmalaust fallega gert af yður, herra Porterman. Hún hefur sannarlega not fyrir þá“. „Jeg held að þeir sjeu mgtu- legir“. sagði hann hljómlausri röddu. ,Jeg er nokkuð glöggur að finna rjetta stærð“. „Þjer eruð glöggur á hvað sem er‘. sagði Susan.1 „Jæja. verið þjer sælar“, sagði Amos og snjeri sjer að dyrunum. „Jeg vona að hún verði .... að hún verði ham- ingjusöm“. „Hamingjusöm“, endurtók Susan með fyrirlitningarhreim. „Kvenfólk getur nú lifað án hamingju. En það er tvennt annað, sem konur geta ekki verið án. Ekki að minnsta kosti kona eins og Hes. Hún verður að geta borið virðingu fyrir sjálfri sjer og hún verðúr að eiga fastan samastað“. Amos stundi við óafvitandi. Hann hafði enga hugmynd um, hve vel Susan skildi hann, þangað til að hún leit á hann, svo að meðaumkunin skein úr augum hennar. Hún hristi höf- uðið og yppti öxlum. „Mjer þykir þetta svo sannarlega mjög leitt herra Porterman“, sagði hún blíðlega. ,.Það er ekkert í veröldinni eins blint og ástfangin kona“. Amos roðnaði og tautaði eitthvað fyrir munni sjer. Svo för hann út um eldhúsdyrnar og gekk hægt áleiðis heim. Á brúðkaupsnóttina voru Hesper og Evan á Wyckley House í Boston. Hesper var orðin hálf utan við sig. því að hver viðburðurinn hafði rekið annan allan daginn. Fyrst var sjálf giftingin. svo skilnaðar- stundin við foreldrana. síðan nýstárlegt ferðalagið með lest- inni til Bostan. mannfjöldinn og hávaðinn í borginni, til- komumikið fordyrið í gistihús- inu og loks þetta fátækléga þak herbergi, þar sem þau áttu að búa. Hún var svo önnum kafin við að virða fyrir sjer öll þessi nvju umhverfi. að hún tók ekki eins mikið eftir framkomu Evans. Hann var ástúðlegur og vin- rjarnleeur við hana allan gift- ineardaeinn. Hann minntist ekkert á kvöldið áður, og ekki var að sjá. að hann hefði drukk ið heila rommflösku, eins og Susan sagði. Við giftingarat- höfnina svaraði hann skýrt og skorinort. og eins og hann væri að hafa yfir rímur fyrir börn. Á leiðinni í lestinni benti hann Hesper á markverða staði með sama látbragði, eins og hann væri að segja barni til. Þegar ólundarlegi þjónninn hafði lokað hurðinni á eftir sjer, leit Hesper g veggina, ó- hreina og illa málaða, suðandi sasofninn og klunnalegt járn- rúmið. Eftirvæntingin hvarf úr huga hennar, og eftir sat ótti. Hvað er jeg eiginlega að vilja hingað með þessum manni, sem jeg þekki sama og ekki neitt?, hugsaði hún. Evan minnkaði logana í gas- ofninum. „Þetta herbergi er leiðinlegt og loftið hjer er fúlt“í sagði hann. „Mier þykir leitt, að jeg skuli ekki hafa efni á að borga fyrir betra herbergi“. En hann sagði þetta án nokk- urrar áherslu. „Það gerir ekkert til“, sagði hún, en leit ekki á hann. Hann settist á rúmið og hall- aði sjer upp við höfðagaflinn. „Taktu af þjer þennan hatt, Hesper, svo að jeg siái hárið á þjer. Og þú ættir líka að fara úr þessum ljóta kjól. Við erum gift núna, svo að það ætti ekki að gera neitt til“- Hún leit á hann, magurt and- litið, hálflokuð, hæðnisleg augun og kaldhæðnislegt bros um varirnar. Hann var ekki svona við Castle Rock. Hún snjeri sjer snögglega undan og tók af sjer hattinn. Það var gulur stráhattur, skreyttur brúnum silkibönd- um í sama lit og kjóllinn. — Kjóllinn hafði verið saumaður handa henni í skyndi úr efni, sem Susan hafði geymt lengi. Hesper hengdi hattinn á snaga við dyrnar og settist í eina stól inn í herberginu við gluggann. Hún kreisti hendurnar í keltu sinni og starði út yfir borgina. Evan virti fyrir sjer vanga- svip hennar við gluggann. — Nefið var beint og vangi henn- ar fagurlega lagaður, rautt hár ið gægðist fram undan við háls hennar. Hann horfði á kjólinn. Hann var hnepptur alveg upp í háls, með fellingum á olnbogunum og mjöðmum. Hann klæddi hana sjerstaklega illa, hugsaði hann. Og liturinn. Eins og á mýrlendi, eða eins og ljeleg eftirlíking á valhnot. Liturinn á kjólnum varpaði óhreinum bjarma á hvítt hörund hennar. Hann naut þess að geta fund ið eitthvað að henni. Hún, sem var að þrengja sjer upp á hann. Hann varð að byggja eitthvað upp á möti henni. En þá sá hann tár blika á kinn hennar. Hann rauk á fætur. „Drott- inn minn, farðu ekki að gráta“, sagði hann. Rödd hans var blandin gremju og iðrun. — Hann kraup á knje við stól hennar og byrjaði að kyssa hana. í fyrstu vildi hún ekki þýðast kossa hans, en hann var þolinmóður og blíður. Hann leysti hár hennar og hneppti upp kjólnum, Smám saman varð hann gagntekinn af yndisþokka hennar og feg- urð. Ástaratlot hans urðu heit- ari og ástríðufengnari, og hún fylgdi honum blindandj inn í algleyming, þar sem engar efasemdir eiga heima. Næsta dag fóru þau til New York. Evan leigði herbergi með stórum þakglugga á efstu hæð í húsi við Fourth Street, skammt frá Broadway, borg- aði tvo. mánuði fyrirfram og eyddi því sem eftir var af pen- ingunum í að kaupa notuð hús- gögn. í þrjár vikur var Evan ástúð legur og umhyggjusamur eig- inmaður. Þau skeyttu ekki um ljelegar kringumstæður, því að bæði voru gagntekin af hrifningu yfir þessu nýja sam- eiginlega ævintýri. 23. verið flutt. Nýi staðurinn fannst honum bærilegur, því að rúðurnar voru svo stórar, að það var líkast því, að hann væri í útsýnisturni. Jóhannes var sofnaður og lá hreyfingarlaus í rúminu. Þeir voru í sama herbergi hann og Gústaf. Þegar Gústaf liafði lagst fyrir og velt sjer nokkrum sinnum fram og aftur í rúminu, hafði hann stokkið fram úr og hrópað upp að ekkert vald á jörðinni gæti neytt hann til að liggja á þessu bölvaða laki, svo stingandi hörðu, að það væri engu líkara, en að það væri úr hrosshári. Svo bætti hann við, að vegna aldurs væri hann alls ekki refsihæfur og refsi- skyldur, svo að hann sæi ekki, að neinn gæti neytt hann til að liggja í fleti, sem væri engu betra en verstu fangels- isbæli. — Þú skalt bara ímynda þjer, að þú sjert í hernum, hafði Jóhannes sagt góðlátlega. — Mamma hefur sjálf ofið sæng- urverin, og við eigum engin betri, svo ætli það sje ekki best íyrir þig að vera bara hægur og taka því sem er fyrir. Jóhannes var svo rólegur og þó ákveðinn, að Gústaf gat engu teflt á móti honum og tók því það ráð að leggjast aftur fyrir. Enda var hann þreyttur eftir ferðina og það leið því ekki á löngu þar til hann var sofnaður, þrátt fyrir „hrosshárið“. Maja litla svaf með hálfopinn munn og brosti í svefn- inum. Hún lá í rúminu hjá mömmu sinni og þar hafði hún líka sofið hverja einustu nótt frá því að hún fædd- ist. — Þyri var langt frá því að sofna. Hún hafði fengið rúm Möttu til umráða og nú var hún í óða önn að snúa koddanum til á allar hliðar, til þess að leita að einhverjum stað á honum, sem kannski væri mýkri en allir hinir. — Oh, sagði hún. — Þessi koddi er eins og harðasta grjót. Og hvað það var heitt í herberginu. — Oh, þessi svækja. Eða lakið og sængurverið, — engu líkara en það væri allt fullt af þyrnum. — Fyrsta verkið mitt á morgun verður að skrifa heim XAXLX — Þetta er nýjasta tískan. ★ Úr ritfrcgn „ • •.. og loks eru þar átta smásögur: sjö eru ágætar og ein er eftir Ernest Heming- way“. ★ Löng biðröð, Maður einn í Bukarest hafði beðið í marga klukkutíma eft- ir konu sinni, en hún hafði far ið út að versla. Hún hafði farið út snemma um morguninn, og loks þegar hún kom aftur, kom hún með tóma körfu. „Nú er nóg komið“, hrópaði maður- inn um leið og hann dró skamm byssu upp úr leynihólfi, „jeg fer og skýt hana“. „Skýtur hverja?“, spurði konan. „Önnu Pauker auðvitað“, hrópaði maðurinn, „á meðan hún stjórnar hjer ríkir 1 ekkert nema ofbeldi og skort- ur og hálfum deginum eytt í gagnslausar biðraðir“. Tveimur tímum seinna kom maðurinn aftur. „Jæja“, sagði konan, „skautstu hana?“. „Nei“, var svarið, „fyrir ut- an skrifstofu hennar var sú lengsta biðröð, sem jeg hefi nokkru sinn sjeð“. ★ 16 ára unglingur í Banda- ríkjunum fór í ökuferð sjer til skemmtunar ásamt vinkonu sinni, sem var jafngömul. Þeg- ar bíllinn var á 100 km. ferð festist bensíngjöfin, þannig að ökumanninum tókst ekki að draga úr ferðinni. Hann tók það því til bragðs að láta Stellu, en vinkonan hjet því nafni, taka við stjérn bílsins á meðan hann sjálfur reyndi að komast út og fram á bílinn. — Ætlunin var að reyna að koma bensíngjöfinni í lag. Áður en það tækist misti stúlkan stjórn á bílnum og hann þeyttist út í móa. Hvorugt þeirra sakaði, en drengurinn var dæmdur fyrir óeætilegan akstur. Þegar dóm- arinn spurði hann að því, hvers vegna hann hefði ekki „drepið á“ bílnum, svaraði hann því, að sjer hefði alls ekki dottið sá möguleiki í hug til þess að stöðva hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.