Morgunblaðið - 26.03.1949, Qupperneq 1
16 síður
Bretor senda Tjelck-
um harðorð mótmæli
Ný lög fyrir tjekknesha herinn
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
PRAG 25. mars. — Bretar sendu tjekknesku stjórninni harðorð
mótmæli í dag gegn því, að Philip Wildach, breskur höfuðs-
inaður, hefur verið hrakinn brott frá Tjekkóslóvaldu með hót-
nnum um að hann yrði tekinn fastur, ef hann færi ekki úr
Segjast ætla aS hindra siii|fkt
/r
Þátftöku Islands í varnarbanda-
lagi lýðræðisþjóðanna
-—--—------S>
þjóðhollir Islendingar
Eisenhower veikur
landi innan 24 klst.
t
Ný lög
Samkvæmt hinum nýju lög
um fyrir tjekkneska herinn,
sem samþykt voru í þessari
viku, er hægt að handtaka alla
þá útlendinga, sem á einhvern
hátt „stuðla að því“ að tjekk-
neskir menn reyni að svíkjast
u-ndan „herskyldu“, hvort sem
um er að ræða Tjekka í heima-
landi sínu eða erlendis.
Samræður á almannafæri
hættulegar
Stjórnmálafrjettaritarar
benda á, að samkvæmt lögum
þessum má í raun rjettri hand
taka útlending, ef hann g'erir
sig sekan um, að ræða við tjekk
neskan borgara á almanna-
færi! Það má handtaka hann,
þótt hann ekki á neinn hátt
hjálpi tjekkneskum borgara til
þess að fara úr landi án leyfis
Það er næg ástæða til hand-
töku, ef hann aðeins veit að
um einhverjar slíkar ráða-
gerðir.
<$>
KAUPMANNAHÖFN 25. mars.
— Gustav Rasmussen hefur nú
formlega tilkynnt bandarísku
stjórninni, að Danir hafi tekið
boðinu um að undirrita At-
lantshafssáttmálann 4. apríl n.
k. — Mun Rasmussen leggja
af stað áleiðis til Washington
n.k. miðvikudag, til þess að und
irrita sáttmálann. — Báðar
deildir danska þingsins höfðu
áður samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta að Danir gerð-
ust aðilar að sáttmálanum.
— Reuter.
Sendiherraskifti
DELHI — Frú X. Pandit hefur
verið skipuð sendiherra í Banda-
ríkjunum. Hún var áður sendi-
herra í Moskvu.
WASHINGTON 25. mars. —
Dwight D. Eisenhower er veik-
ur og hefur verið leystur frá
öllum störfum í bili. 1 hinni
opinberu tilkynningu um veik-
indi hershöfðingjans sagði, að
hann þjáðist af „alvarlegri
magabólgu.“ — Reuter.
sameinast gegn
ofbeldinu
HIN ÍSLENSKA DEILD hins alþjóðlega skemdaverkaflokks
kommúnista, hefur nú kastað hanskanum. Blað kommún-
ista hjer, Þjóðviljinn, lýsti því yfir í gær að flokkur þess
muni hindra Alþingi Islendinga í að samþykkja þátttöku
Islands í varnarbandalagi lýðræðisþjóðanna. í því skyni
segir Þjóðviljinn að flokksmenn hans muni gera aðför að
Alþingi, þegar það taki Atlantshafssáttmálann til umræðu.
HÓTA UPPREISN
Hjer er ekki hægt um að villast. Kommúnistar hafa
boðað uppreisn í landinu. Þeir hafa lýst því yfir að
þeir ætli sjer að hindra löggjafarsamkomu þjóðarinn-
ar í að afgreiða ákveðið mál á löglegan og þinglegan
hátt.
Vitað er með vissu að yfirgnæfandi meirihluti þings og
þjóðar er þessu máli fylgjandi. Kommúnistar hafa þess vegna
lýst því yfir að það sje ásetningur þeirra að örlítill minnihluti
taki sjer það valda að koma í veg fyrir að vilji meirihlutans
ráði í þessu máli.
Til þess að koma þeim áformum sínum í framkvæmd ætli
þeir sjer að beita hjer hinum austrænu aðferðum.
HIÐ RJETTA ANDLIT
17 ára stúlka handtekin
Haldið er áfram að handtaka
Tjekka, sem starfa við hermála
ráðuneytið hjer í ■ Prag. — í
morgun var 17 ára gömul
stúlka handtekin á heimili
sínu, og flutt brott af lögregl-
unni- Alls hafa fimm starfs-
menn þar verið handteknir.
Innan viku
RHODOS, 25. mars: — Búist
er við því, að friðarviðræður
Transjórdaníu og ísraels muni
nú senn til lykta leiddar, eftir
komu Moshe Dayan, herfor-
ingja hingað í dag. Hann er
formaður sendinefndar ísrael,
og hefir dvalið í vikutíma í Isra
el, þar sem hann hefir rætt
við ýmsa hernaðarsérfræðinga
og leiðtoga Ísraelsríkis. — Hann
kvaðst vona, að hægt yrði að
undirrita friðarsamning milli
Transjórdaníu og ísrael innan
viku. — Reuter.
Frakkar skýra fiHðgur
lúna um kfarnorkuna
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
LAKE SUCCESS 25. mars — Á fundi kjarnorkunefndar Sam-
einuðu þjóðanna í dag flutti fulltrúi Frakka, Francois de Rose,
ræðu, þar sem hann sakaði Rússa um, að þeir vildu komasí
að kjarnorku-leyndarmálum allra annara þjóða, án þess að
láta öðrum í tje nokkrar upplýsingar um kjarnorkurannsóknir
sínar.
Tillögur Rússa
Rose sagði, að tillögur .Rússa
um lausn kjarnorkuvandamáls
ins, væru í raun rjettri eftir-
farandi: „Þið — þ. e. a. s. all-
ur heimurinn — leyfið rúss-
neskum erindrekum að rann-
saka að vild allar iðngreinar
ykkar. Skýrið okkur frá á-
rangri ykkar af rannsóknum á
öllum sviðum iðnaðarins. Við
viljum fá að vita, hver árang
urinn af rannsóknum ykkar er.
En þið fáið ekkert frá okkur í
staðinn“.
Friðarviðræður
NANKING — Kínverska stjórn-
in hefur nú skipað friðarnefnd
og hefur jafnframt farið þess á
leit við kommúnista, að gera slíkt
hið sama, og ákveða um leið,
hvar og hvenær friðarviðræður
geti farið fram.
Með þessu er það eins greinilega sannað og frekast er unt
að íslenskir kommúnistar hugsa sjér að feta dyggilegá í fótspor
skoðanabræðra sinna í öðrum löndum. Þeir eru svarnir fjand-
menn þingræðis og lýðræðis. Er gott að sjá framan í hið rjetta
andlit þeirra og fylgismanna þeirra.
En það mega kommúnistar vita, að þegar þessi glæpsamlegu
áform þeirra eru kunn, munu íslendingar sameinast til sóknar
gegn þeirri hættu sem við þeim blasir, ef fámennri ofbeldis-
klíku ætti að haldast uppi að fótumtroða þingræði hennar og
hindra þjóðina í að treysta sjálfstæði sitt og öryggi í samvinnu
við aðrar lýðræðisþjóðir.
SAMTÖK 330 MÍLLJÓNA MANNA
Fulltrúar 330 milljóna manna hafa nú ákveðið að gerast að-
ilar að varnarsamtökum lýðræðisþjóðanna til eflingar heims-
xriðnum og vernd persónufrelsis og mannrjettinda. Meðal allra
þeirra þjóða, sem að Atlantshafsbandalaginu standa, hafa fá-
mennar og að mestu eijjiangraðar klíkur kommúnista barist
með hnúum og hnefum gegn þessari öflugu viðleitni til trygg-
iagar heimsfriðnum. Þær hafa beitt hótunum, efnt til skríls-
X'ppþota og reynt að trufla löggjafarsamkomur þjóðanna í
störfum þeirra. En útkoman hefur allsstaðar orðið sú sama.
Ofbeldisseggjunum hefur verið kastað á dyr, en löggjafinn hefur
unnið starf sitt af fullri festu í samræmi við þarfir þjóða sinna
fyrir aukið öryggi.
.(Framh. á 2 siðu)