Morgunblaðið - 30.06.1949, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 30. júní
Það gp hagsmunáriiál almenttlngs, að skatf
fríðindi samvinnufjelaganna verði takmörkn
Á SÍÐASTA þingi bar Jónas
Jónsson fram fyrirspurn um
hve mikið fje 9 stærstu sam-
vinnuæjelög landsins hefðu
greitt í skatta á tilteknu tima-
bili.
Áður en J. J. bar þessa fyrir
spurn fram, höfðu orðið um það
allharðar umræður x blöðum
og á mannfundum, að sam-
vinnufjelögin kæmust ljettar
en efni standa til undan því að
bera sinn hluta af skattþung-
anum, sem á landsmönnum
hvílir. Fyrirspurn Jónasar Jóns
sonar átti að vera „innlegg í
baráttunni". J. J. spurði í þeirri
einföldu trú, að 9 stærstu sam-
vinnufjelög landsins 'hlytu að
hafa greitt svo álitlega fúlgu í
sameiginlegan sjóð lands-
manna, að unnt yrði að flagga
með þeirri tölu í áframhaldandi
umræðum út af skattgreiðsl-
um samvinnufjelaga.
Fjármálaráðherra svaraði
fyrirspurn J. J. með glöggum
tölum. Hin 9 samvinnufyrirtæki
höfðu á árunum 1939—1947
aðeins greitt 8,8 miljónir í
skatta, en allir ríkisskattarnir
námu á þessu tímabili 275 niilj.
króna.
J. J_ var ekki viðbúinn þessu
Svari og varð ókvæða og orð-
fár. Einn þingmaður Framsókn
ai'flokksins spratt þá upp úr
sæti sínu og talaði eins og fjár-
málaráðherrann hefði stórlega
móðgað samvinnufjelög lands-
ins með því að auglýsa hið
sanna um skattfríðindi fjelag-
anna. Fyrirspyrjandinn hafði
óvart gert þeim málstað, sem
hann vildi berjast fyrir, hinn
mesta ógreiða.
Eftir þetta ljet Jónas ijons-
son ekki mikið til sín heyra um
skattamál samvinnufjelaga. —
Honum mun hafa orðið ljóst,
að ef veija skyldi hin óverjandi
fríðindi, var annað vænlegra
en fljótfærnislegar fyrirspurn-
jr.
J. J. tók sjer langan um-
hugsunarfrest og það er fyrst
nú fyrir skömmu, að birtst hef-
ir árangurinn af heilabrotum
hans eftir áfallið, sem hann
fjekk við fyrirspurnina sælu.
í nýlega útkomnu hefti af
5,Ofeigi“ ritar J. J. langa grein
sem nefnist „Vandamál ís-
lensku samvinnufjelaganna" og
fjallar hún urn skattfríðindin.
Kemur J. J. að vanda víða við
og verður hjer að sinni ekki
tekið til meðferðar nema eitt
atriði úr grein hans, þó að
fleiru kunni að verða vikið síð-
ar.
J. J. segir m. a.:
„Nú versla samvinnufjelög
oft við utanfjelagsmenn og
græða á þeirri verslun eins og
kaupmenn. Sú verslun er að
engu leyti frábrugðin viðskipt-
Um kaupmanna, enda gera sam
vinnulögin ráð fyrir, að um alla
utanfjelagsmanna-verslun kaup
fjelaga eigi að fylgja sömu á-
lagningarreglur um skatta eins
og kaupmannaverslanir (sic).
í Reykjavík er oft talað um að
Kron beri lága skatta. Fulltrú
ar kaupmanna í hinum ýmsu
skaítanefndum ciga að veia.
Játningar Jónasar Jónssonar í „Ofeigi
»44
menn tii að sjá um, að utanfje-
lagsviðskiptin sjeu rjett fram
talin og skattlögð. Ef hjer er
um misrjetti að ræða mega
kaupmenn í Reykjavík kenna
um það aðhaldsleysi sínu“. —
(Leturbr. Mbl.).
Með þessari setningu „af-
greiðir“ J. J. raunverulega all
ar spurningar viðvíkjandi rang
látum skattfríðindum samvinnu
fjelaganna. Ef um misrjetti er
að ræða, er um að kenna kaup
mönnum, sem eigi fulltrúa í
hinum ýmsu skattnefndum, seg
ir J. J.
Þetta er mjög flott „af-
greiðsla“ á stórmáli og ef rjett
væri, að kaupmenn eigi sök á
að samvinnufjelögum haldist
uppi að velta skattabyrðum sín
um yfir á almenning, væri mál
ið ósköp auðleyst. En svona
einfalt er málið ekki.
Játning J. J.
Þegar lesin er setning úr
,,Ófeigi“, sem tilfæi'ð er hjer
að ofan, hlýtur mönnum fyrst
að verða það á að brosa. En
þegar setningin er athuguð bet-
ur, er hún athyglisverð um
margt.
Fyrst er það, að J. J. viður-
kennir berum orðum, að versl
un kaupfjelags við utanfjelags
menn sje í engu frábrugðin
viðskiptum kaupmanna. Þetta
er vitaskuld alveg rjett, en það
er athyglisvert, að J. J. skuli
játa þetta berum orðum. Það er
yfirleitt föst regla þeirra, sem
ræða skattamál samvinnufje-
laga af hálfu Framsóknarflokks
ins, að játa aldrei nokkrum
sannleika, heldur annaðhvgrt
fela hann í reykskýjum marg-
endurtekinna blekkinga eða
blátt áfram neita staðreyndun-
um afdráttarlaust.
Það mun líka vera harla
algengt að samvinnufjelög leyfi
sjer að miða framtöl sín við
að sú staðreynd, sem J. J. ját-
ar, sje ekki fyrir hendi.
Ef litið er til Kron í Reykja-
vík, þá sjest, þegar útreikning
urinn á sköttum Kron af tekj-
um ársins 1947 er athugaður,
að enginn viðskipti eru talin
við utanfjelagsmenn, þótt þau
sjeu vitaskuld veruleg, heldur
eru allar tekjur fjelagsins tald
ar stafa eingöngu af viðskipt-
um við innanfjelagsmenn og
tekjuskattur reiknaður út í
samræmi við það og greiðir fje
lagið því aðeins 8% í tekju-
skatt af heildarhagnaðinum
eins og eingöngu væri um fje-
lagsmannaviðskipti að ræða.
Svona er þessu varið um
Kron, en skyldi ekki það sama
verða uppi á teningnum víða
annarsstaðar á landinu, ef skatt
greiðslur samvinnufjelaga yrðu
athugaðar? Það er mjög hætt
við, að þá mundi koma í ljós, að
samvinnufjelög njóti stórkost-
legra fríðinda um skattgreiðsl-
ur fram yfir það, sem lögin
leyfa, og eru þó hin lögleyfðu
fríðindi nógu stórfelld, þótt
ekki sje aukið við.
„Aðhaldsleysi kaupmanna“
Samkvæmt kenningu J. J. í
,,Ófeigi“ er það „aðhaldsleysi
kaupmanna“ að kenna, ef Kron
greiðir ekki skatta eins og því
ber að lögum. J. J. segir, að
„fulltrúar kaupmanna í.hinum
ýmsu skattanefndum“ eigi að
vera menn til að sjá um, að
kaupfjelögin telji rjett fram og
sjeu rjettilega skattlögð.
Hvað skattaálagningu Kron
viðvíkur er skemmst að segja,
að kaupmenn hafa engin af-
skipti af henni. Skattstjórinn
í Reykjavík er ekki kaupmað-
ur nje fulltrúi kaupmanna og
í yfirskattanefnd og ríkisskatta
nefnd á enginn kaupmaður sæti
nje nokkur fulltrúi þeirra. Það
þarf ekki að eyða mörgum orð
um um hvílík endemis firra,
það er að kaupmenn eigi og geti
haft eftirlit með framkvæmd
samvinnulaganna. Það er vita-
skuld ekki hlutverk neinnar
einstakrar atvinnustjettar að
hafa eftirlit með því, að lög
landsins sjeu haldin.
Það er við almenning
að eiga
En þótt J. J. fari með blekk-
ingu, þegar hann telur, að kaup
menn geti haft eftirlit með fram
tölum kaupfjelaga og skattaá-,
lagningu þeirra, er þó sú vill
an enn verri, sem felst í þeirri
hugsun, sem liggur að baki
þeirri baráttuaðferð, sem J. J-
velur sjer, þegar hann talar
um vald kaupmanna í skatta-
málum. Hugsun J. J. er greini-
lega sú, að það hljóti að vera
sjerstakt hagsmunamál kaup-
manna einna að ranglát fríð-
indi samvinnufjelaga verði
færð til rjettara horfs. Ef J. J-
trúir þessu raunverulega,
blekkir hann sjálfan sig frek-
lega.
Það er staðreynd, að þótt hin
stórfeldu skattfríðindi verslana
sem rekin eru með samvinnu-
sniði, geri verslunarstjettinni
samkeppnina við þau erfiða, þá
er langt frá því að það sjé
sjerhagsmunamál kaupmanna,
að samvinnufjelög alment njóti
ekki öllu lengur fríðinda, sem
byggjast á úreltum lagaákvæð
um.
Það er hagsmunamál alls al-
mennings í landinu, að þær
reglur, sem nú eru um skatt-
fríðindi samvinnufjelaga, verði
endurskoðaðar og lagfærðar.
Það getur ekki lengur viðgeng
ist, að fyrirtæki með samvinnu
sniði, geti varpað skattþungan
um vfir á almenning.
I
Svar Akui'eyringa
Vissulega munu Akureyring-
ar svara þvi, að það sje ekki
sjerhagsmunamál kaupmanna i
bænum, hversu fer um greiðsl
ur Kaupfjelags Eyfirðinga til
opinberra þarfa.
J. J. segir í sama „Ófeigs“-
heftinu og hann ritar um vanda
mál íslenskra samvinnufjelaga,
að Akureýringar t'elji sig nú
hafa þyngstu útsvör á landinu.
Astæðan til þess, að Akur-
eyringar bera svo þung útsvör,
er fyrst og fremst sú, að Kaup-
fjelag Eyfirðinga liefir í skjóli
skattfríðinda og ýmsra annara
fríðinda getað lagt undir sig
hverja atvinnugreinina á fætur
annari, sem einstaklingar hafa
áður rekið og greitt skatta og
skyidur af, en kaupfjelagið býr
við fríðindi og sleppur við að
greiða til almennra þarfa eins
og rjettlátt væri og eins og
bærinn þarf á að halda. Útsvör
in verður því að taka frá ein-
staklingunum. Það er Kaupfje-
lag Eyfirðinga sem fyrst og
fremst hefir skapað þá skatta-
ánauð, sem almennir borgarar
á Akureyri hafa búið við um
mörg ár.
Akureyri er ekki eini stað-
urinn á landinu, þar sem of
þanin samvinnufyrirtæki valda
einstaklingunum því, sem rjetti
lega má kalla skattaánauð. Það
er víðar en þar, sem almenn-
ingur greiðir þau opinber gjöld,
sem auðfjelög með sanivinnu-
sniði ættu rjettilega að greiða.
J. J. og þeir aðrir, sem reyna
að verja það, að skattfríðindi
samvinnufyrirtækja skuli ó-
breytt haldast, gá ekki að því,
að þeir eiga ekki um það mái
við kaupsýslumenn í iandinu
eina saman, heldur fyrst og
fremst við allan almenning,
sem finnur það á sjálfs sín efn-
um, að slíkt sjerrjettindafyrir
komulag getur ekki lengur stað
ist og vill ekki lengur borga
fyrir samvinnufyrirtækin.
Tún sjerhagsmunanna
J. J. segir að nú sjeu engir
menn til að halda opinberlega
á sjerhagsmunamálum sam-
vinnufjelaga, sem jafnist á við
sig og Jónas Þorbergsson og
Tryggva Þórhallsson. J„ J.
segir:
„Fer nú um þessi mál fjelag-
anna eins og ógirt tún, sem
óboðnir gestii' heimsækja“.
Það er rjett, að það tún, sem
J. J og fjelagar hans í blaða-
mennsku sátu yfir fyrir 20 ár-
um og þar á undan, verður
aldrei framar varið á sama hátt
og þá. Allur almenningur hefir
látið sjer skiljast, að þetta tún
sjerhagsmunanna, sem J. J.
og fjelagar hans vörðlx, er ekki
sá helgidómur hugsjónanna,
sem látið var. Bardagaaðfer'ðir
þeirra fjelaga mundu ekki
duga nú.
í Tímariti samvinnufjelag-
anna 1921, bls. 10, ritar Jónas
Þorbergsson til dæmis:
„Töframagn samvinnufjela'
anna er samábyrgðin. — Hún
er sterkasta aflið sem alþýða
manna á yfir að ráða. Styrkur
hennar er svo mikill vegna
þess, að orkan er sótt í dýpstu
rætur kristilegs þjóðfjelags“.
Samábyrgðin hefir fyrir
löngu verið afnumin fyrir for-
göngu Framsóknarmanna og
hefir ekki síðan verið ’talaií
sjerstaklega um, að nokkur
tengsl væru milli samvinnu-
fjelaga og kristindóms.
Úr slíkum og þvílíkum feJe-fek
ingum bjuggu J. J. og fieiri ui
girðingu um túnið, e nalmena
ingsálitið hefir fyrir löngu rif*
ið hana niður. Eftir standJ*
hinsvegar hin lögmæltu skatt-
fríðindi, en almenningi hefiw
einnig skilist, að gera þurfl’
nokkra takmörkun á þeim hluíai
girðingarinnar um túnið.
Þegar það upplýstist á Al-*
þingi, að 9 samvinnufjelög, sem
öll eru auðug á okkar rnælx-
kvarða og sum stórauðug,
greiða aðeins 8,8 miljónir króna
af 274 miljónum, sem samtals
guldust í ríkissjóðinn, þá skilur
almenningur ljóslega, það sem
raunar var áður vitað, að ekk-i
er langt að leita einnar ástæff-
unnar af mörgum fyrír því hvo
grænt er í kringum Mna
þrengstu klíku Framsóknar-
manna á sama tíma og aðrir
ganga með bogin bök á slóðum,
þar sem ekki er jafn bíómlegt
um að litast.
Vil kaupa
.gegn góðum grejðslusk'fl- •
málum. — Til viðtals á
Hrefnugötu 5 frá kl. 4—
6 í dag. Vil einnig tatea 'á .
leigu skúr eða þragga, :j
sem nota mætti sem i.ji- .f
reiðageymslu. i '- .'*■ i-y''J-
Nýtt
Píané
(stofupíanó), til sölu. -
Uppl. í síma 6530 kl.
10—12 og 1—6 í dag.
EERGUR JONSSON «
RÍ á lflutningsskrif stof&v
Laugaveg 65, sími 58S*-..
Heimasíml 9234, ý;
PÉJSNINGASANDUp
frá Hvaleyri ■
Sími: 9199 og 9091. Í
Gu&mundur Magnússon j
iiiiiiiiiiiurmimmiiuiiuiiiimmnuii
Jepp
í Óska eftir að kaupa jeppa !
I í góðu lagi. Tilboö er I
= greini verð og hve bif- 3
1 reiðin er keyrð, sendist
[ Mbl., fyrir laugardag 1—7
: merkt „Jeppi í lagi—298“
C i»*»»ii****u»*.*«*..«.*.