Morgunblaðið - 06.07.1949, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 6. júlk 1949.
MORGUXBLAÐIÐ
11
^^\\\\\\\\\\\\V'
\ 1.1 ' * VNNSSS "V'V'
ffH /SsHHy/////////,,.
Sívaxandi fylgi æskunnar við
hugsjónir Sjólfstæðisstefnunnar
» TÍUNDA ÞING Sambands
ungra Sjálfstæðismanna er
gleggsta sönnun hins mikla
þróttar, sem nú er í samtökum
ungra Sjálfstæðismanna. Nærri
200 fulltrúar æskunnar, víðsveg
ar af landinu sóttu þing þetta,
og er það hið langfjölmennasta
Sambandsþing, er haldið hefir
verið.
Andstæðingar Sjálfstæðis-
manna hafa haldið þeirri stað-
hæfingu mjög á lofti, að ungir
Sjálfstæðismenn væru flestir
„mömmudrengir“ eða auð-
mannabörn, sem annaðhvort
ekki skyldu eðli stjórnmálabar
áttunnar eða mynuðu þéssi sam
tök til varnar forrjettindum for
eldra sinna. Þótt einhver kynni
að hafa lagt trúnað á þenna áróð
ur, hefði honum áreiðanlega
þótt slíkar fullyrðingar hlægi-
legar, ef hann hefði fylgst með
störfum unga fólksins á nýaf-
stöðnu Sambandsþingi. Þar sátu
á löngum þingfundum hlið við
hlið piltar og stúlkur úr öllum
stjettum þjóðfjelagsins og
reyndu af fullkominni alvöru og
skilningi á hinum margvíslegu
vandamálum að setja fram þær
lífsskoðanir og marka þá stefnu,
er þetta unga fólk taldi líkleg-
asta til þess að tryggja því far-
sæla framtíð í landi sínu Það
reyndi enginn að segja þessu
unga fólki fyrir verkum, held-
úr mótaði það ályktanir þings
sins eftir eigin geðþótta og af
fullkominni einurð. Þetta unga
fólk skyldi til hlýtar þá ábyrgð,
er á því hvíldi sem fulltrúum
fjölmennustu stjórnmálasam-
taka æskunnar í landinu. Hjá
því ríkti fullkominn og einhuga
skilningur á þeirri staðreynd, að
ungir Sjálfstæðismenn verða að
standa í fylkingarbrjósti allra
þjóðhollra íslendinga í barátt-
unni gegn þeim upplausnaröfl-
um, sem ógna persónufrelsi
þjóðarinnar og' efnahagslegu ör-
yggi hennar og sjálfstæði.
Baráttan fyrir frelsi
og rjettlæti. ,
Ályktanir Sambandsþingsins
hafa allar verið birtar hjer í
blaðinu. í hinni almennu stjórn-
málaályktun þingsins eru mark
aðar þær grundvallarreglur,
sem ungir Sjálfstæðismenn telja
að verði að móta stjórnarfarið
í landinu. Þeir telja lýðræði og
frelsi einstaklinga og þjóðar-
heildarinnar þau rjettindi sem
æskulýður þjóðarinnar verði að
sameinast um að vernda. Þeir
telja kommúnista hafa ótvírætt
sannað, að þeir láti stjórnast af
sjónarmiðum, sem hættuleg sjeu
íslensku þjóðinni og öryggi
hennar, lífsskoðanir kommún-
Sfórhugur ©g víðsýni og holfusfð vrð [ýðræði
og rjefffæfi, einkennir samþykkfir
Sambandsþingsins
ista sjeu fjandsamlegar lýð-
ræði og einstaklingsfrelsi og
baráttuaðferðir þeifra ekki sæm
andi þroskuðum þjóðum. Allt
eru þetta staðreyndir, sem eng-
inn þjóðhollur íslendingur get-
ur lokað augum fyrir. Reynsl-
an hefir einnig sýnt, að samtök
ungra Sjálfstæðismanna eru
það afl sem kommúnistar óttast
mest, og auðveldasta og raunar
eina ráðið til þess að uppræta
þjóðskemmdarstefnu kommún-
ista er það, að allir þjóðhollir
æskumenn sameinist undir
merkjum ungra Sjálfstæðis-
manna til samtaka baráttu gegn
þessum ófögnuði.
Ungir Sjálfstæðismenn hafa
í öllum ályktunum sínum lagt
á það ríka áherslu að trvggja
sem mest jafnrjetti þjóðfjelags-
borgaranna og koma í veg fyr-
ir öll óeðlileg sjerrjettindi. Þeir
krefjast þess, að róttækar ráð-
stafanir sjeu gerðar til þess að
uppræta brask og marghgttaða
spillingu, sem þróast hefir í
skjóli hins óeðlilega ástands.
Þeir krefjast athafnafrelsis fyr-
ir einstaklingana, ekki til þess
að braska og arðræna, eins og
andstæðingar þeirra staðhæfa,
heldur til þess að hæfileikar
hvers og eins fái sem best að
njóta sín til aukinnar hagsæld-
ar fyrir þjóðarheildina. Ungir
Sjálfstæðismenn telja, að frelsis
ástin, jafnhliða andúð á öllu
ranglæti, hljóti að vera aðals-
merki hvers þroskaðs æsku-
i manns.
Auknar umbætur og
atvinnuöryggi.
Ungir Sjálfstæðismenn hafa
jafnan sýnt það, að þeir eru
engir afturhaldsmenn, heldur
berjast jafnhliða fyrir frelsi og
framförum_ Þeir vita gerla, að
æskan á mest í húfi, ef ekki
tekst að efla atvinnuvegi þjóð-
arinnar og bæta lífsskilyrði
hennar. Þeir hafa því enn á ný
hvatt unga fólkið tli einhuga
stuðnings við framhald þeirrar
! nýsköpunar á öllum sviðum at-
vinnulífsins, sem hafin var und
ir forustu Sjálfstæðismanna í
fyrverandi stjórn. Þeir lýsa sök
á hendur kommúnistum fyrir
að hafa svikið íslenska alþýðu
með því að reyna að eyðileggja
þessa nýsköpun, sem er undir-
staða vglmegunar þjóðarinnar í
framtíðinni. Þeir lýsa jafnframt
Frá þiitgi S.U.S.:
Álykianir u
iiidiimái'
sök á hendur ungum Framsókn
armönnum og nokkrum hluta
þess flokks fyrir að gerast liðs-
menn kommúnista í skemmdar-
starfi þeirra og reyna að eyði-
leggja samstarf lýðræðisflokk-
anna til lausnar þeim alvarlegu
vandamálum, sem nú verður að
leysa. Ungir Sjálfstæðismenn
telja dýrtið og fjármálaöng-
þveiti komið á það stig, að alls
ekki megi lengur dragast að
gera raunhæfar ráðstafanir til
þess að tryggja eðlilega starf-
semi atvinnuvega þjóðarinnar
og hinna glæsilegu framleiðslu-
tækja, sem aflað hefir verið.
Þeir eru reiðubúnir til að styðja
allar þær ráðstafanir, sem að
gagni mega verða, en krefjast j
þess, að framtíð islenskrar æsku ;
verði ekki teflt í hættu með
frekari seinagangi á lausn þessa
vanda, sem þjóðin hefir sjálf
algerlega í sinni hendi að leysa.
Einingin eina bjargráðið.
Ungir Sjálfstæðismenn telja
reynslu síðustu ára ótvírætt
hafa sannað það, að eina ráðið
til þess að forðast sífelldar
stjórnarkreppur og margvíslegt
öngþveiti, sem leiðir af sam-
stjórn ólíkra flokka, sje það að
veita einum flokki meiri hluta
vald á Alþingi. Þeir telja jafn-
framt augljóst, að ógerlegt sjé
að veita stjettarflokki þetta
vald. Eigi þjóðin að vera örugg
um það, að þessu valdi verði
jafnan beitt í þágu þjóðarheild-
arinnar, verður hún að feia það
þeim eina flokki, sem berst fyr-
ir samstarfi allra stjetta og hef-
ir um leið reynst öruggastur
málsvari lýðræðjs og almennra
mannrjettinda og styrkasta
vörnin gegn þeim öflum, sem
stefnt hafa að upplausn og öng-
þveiti í þjóðfjelaginu.
Ungir Sjálfstæðismenn skora
á alla þjóðholla æskumenn að
sameinast undir merki sjálf-
stæðis, frelsis og framtaks —
merki Sjálfstæðisstefnunnar.
Þá er stórt skref stigið að því
takmarki að skapa þjóðarein-
ingu um lækningu þeirra mein-
semda, er ógna andlegu og efna
hagslegu frelsi og sjálfstæði ís-
lensku þjóðarinnar.
I Endurskoðunarskrifstofa |
EYJÓLFS ÍSFELDS
EYJÓLFSSONAR |
í lögg. endursk. Túngöti’ 8. 3
; Sími 81388. |
UiiemiisittttiitimimiitiitiiiiiiiiiiiMtiiiiiiiiiiiiitummt
Bindindismál.
Þing SUS lýsir áhyggjum sín
um yfir auknum drykkjuskap
Nýr formaður S.U.S.
Á NÝAFSTOÐNU þingi S.U.S.
var Magnús Jónsson, lögfræð-
ingur, kosinn formaður Sam-
bandsins í stað Jóhanns Haf-
stein, sem verið hefur formað-
ur í sex ár, en gaf nú ekki leng-
ur kost á sjer. Hefur Jóhann
allra manna mest unnið að efl-
ingu samtaka ungra Sjálfstæðis
manna.
Magnús Jónsson hefur áður
átt sæti í Sambandsstjórn í tvö
kjörtímabil. Hann var síðan urr.
tveggja ára skeið ritstjóri ,,ís-
Iendings“ á Akureyri og for-
maður „Varðar“, fjelags ungra
Sjálfstæðismanna þar. Magnús
tekur nú sæti í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins sem fulltrúi
ungra Sjálfstæðismanna.
í landinu og hvetur sambands-
stjórn til að gera allt það, sem
að gagni mætti verða í barátt-
unni við þetta mikla þjóð-
fjelagsvandamál, meðal annafs
með því að finna leiðir til a'ð
hafa áhrif á almenningsálitið og
hvetja til samtaka um að efla
bindindisstarfsemina í landinu
Þingið álítur að leggja beri
áherslu á aukna bindindisboðun
meðal æskunnar og í því sam-
bandi skorar það á kennara og
skóla landsins að standa vö.rS
um hagsæld og heilbrigði :ís-
lenskrar æsku.
r >
Kirkjumál.
Þing S.U.S. lýsir einlægum
stuðningi sínum við kirkju og
kristindóm í landinu og té'Jur.
þjóðarnauðsyn, að kristindóms-
fræðsla sje aukin að mun i
barna- og framhaldsskólum
landsins.
Ennfremur beinir þingið
þeirri eindregnu áskorun til
fræðslumálastjórnarinnEr, að
framfylgt sje til fullnustu gild-
andi ákvæðum um kristindóms
fræðslu í skólum landsins. Berul
ir þingið sjerstaklega á það, í
þessu sambandi, að æskiiegt sje,
að sjermenntaðir menn haii
þessa fræðslu með höndum.
Eldvamir í sveitum.
Þingið álítur, samkvæmt u.nA
angenginni reynslu, að elds-
vörnum í sveitum landsins sja
mjög ábótavant, og skorar þvi
á yfirvöld landsins að hlutast
til um, að þær verði efldar, svo
sem með auknum innflutníngi
nauðsynlegra slökkvitækja og
I fræðslu um eldsvarnir.
Heimdallur efnir
! ferbar inn á Þórsmörk
• NÆSTA ferð, sem Heimdallur efnir til, er helgarferð inn á
Þórsmörk. Er þetta önnur ferð fjelagsins í sumar, og ekki hefur
| þótt tiltækilegt að fara þessa ferð fyrr, eins og stóð til, vegna
■, óhagstæðrar xeðráttu.
Kl. 3 á laugardag verður lagt^
af stað frá Sjálfstæðishúsinu í
Revkjavík og ekið inn að Múla-
koti í Fljótshlið. Verður snædd-
ur kvöldverður þar, en siðan
ekið áfram inn Fljótshlið eins
langt og fært þykir. Verður þar
tjaldað en morguninn ef'ir verð
'ur haldið áfram á hestum þann
spöl, sem eftir er inn eitir. Fr
það tæp tveggja tíma reið. c i\
yfir vatnsföll að fara.
Dagurinn verður svo notaður
til að skoða Mörkina. Verðccr
kimnugur fvlgdarmaður með í
förinni, sem mun, ef timi vinnst
Framhald á fcls. JJL