Morgunblaðið - 06.07.1949, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.07.1949, Blaðsíða 16
frTOUKtJTLn — FAXAFI.OI; NOREGSBRJEF frá Skúla S KALDI. þykktloft og dálítil rigning eða þokusúld tueð köflum. Skúlasyni á bls. 9. '4 „Ajax“ vann E. H. i gærkveldi með 2:0 Óhagsfæfl veður thafði mikil áhrif á leikinn FYRSTI leikur hollenska knattspyrnufjelagsins Ajax fór fram í gærkvöldi og ljeku þeir við íslandsmeistarana KR. Leikurinn endaði, 2:0 fyrir Ajax og mega KR-ingar una úrslitunum vel Er leikurinn hófst var vind- ij) á sunnan með úrhellisrign- >ngu:- Reykvíkingar ljetu þó ekki veðrið aftra sjer og var vollurinn þjettskipaður. KR átti val um mark og kaus að leika gegn vindi. Fyrstu 10 wín var Ajax í stöðugri sókn, og virtist nokkur taugaóstyrk- ui hvíla yfir KR-liðinu. Þegar 10 mín. voru af leik gera KR- ingar þó snöggt upphlaup. Rík- iharður fær sendingu inn fyrir, <s i nær ekki knettinum fyrr en við endamörk og miðar snöggt til Karðar. sem var í góðri að- stöðu til að skora, en ..brenndi af“, Þegar 18 mín. voru af leik skoraði v.úth. Ajax, Fischer, fyrsta markið og má segja. að kenna megi það staðsetningar- veilu í öftustu vörn KR. 10 mín. síðar nær Fischer aftur til að skora vegna mis- taka hjá Daniel og Steini. Það sem eftir var hálfleiks- »ns--var- ekkert mark skorað, enda þótt nokkur æsandi augablik ættu sjer stað. Mestan hluta hálfleiksins var leikið á vallarhelming KR, en þó gerðu KR-ingar nokkur u)»phlaup, sem enduðu flest á rangstöðu einhvers sóknarleik- joanna þeirra. Vöruðu þeir sig sýnilega ekki á því, að Ajax leikur vörnina rjett (takiskt), þeir hýma ekki upp við mark sitt og glepja markvörðinn, eins og varnarleikmenn gera tijar, heldur auka þeir yfirsýn hans', með því að leika lengra frá markinu_ Fyrrj hálfleikur endaði, 2:0 fyrir Ajax, og var heldur þóf- kenndur, og má um kenna hinu óbagstæða veðri og ásigkomu- lagi vallarins. Seinni hálfleikur Til allrar hamingju hafði að mestu stytt upp þegar seinni hálfieikurinn hófst, enda virt- ust nú bæði liðin fjörugri og ákveðnari. Brá oft fyrir góð- um Ieik, sjerstaklega þó hjá Ajax, sem notaði útherjana ó- siiart. Drógu þeir til sín bak- verði KR og hefði markið oft komist í hættu ef Óli B. hefði rkki oftast verið á rjettum stað til að bjarga. Er 25 mín. voru af leik fær Hörður langa sendingu, þar scm hann er einn rjett fyrir jnnan vítateig. — Tók hann knöttinn með sjer, en skaut þeint í fang markmanns. Nokkru síðar gerðu KR-ing- ar snögga sókn, sem endaði með því, að Gunnar Guðmanns son og Potharst kepptu að knettinum og virtist sem þeir klemmdu hann á milli sín. — Dómarinn (Haukur Óskarsson) „flautaði'1 spurði síðan línu- vörðinn ráða, og dæmdi síðan vítaspyrnu. Ríkharður varð fyrir valinu, en spyrnti meter fyrir utan stöng. Leikurinn endaði 2;0 fyrir Ajax og má KR vel við una. eftir gangi leiksins, enda þótt segja megi, að eftir tækifærum þeim, sem aðilar fengu til að skora, hefðu úrslitin getað orð- ið önnur. Áberandi besti leikmaður Ajax var S. v. Stoffelen; er hann foringi þeirra á leikvelli ■ og auk þess í landsliði Hol- lendinga. Ennfremur sýndi markvörður þeirra, Seentvaar, og miðframvörður, Hart, sterk- an varnarleik. Áberandi besti leikmaður KR inga var Óli B. ásamt Daniel og Ríkharði. ■ Dómari var Haukur Óskars- son. V. ffúsehy kastar 15,83 metra SKÝRT var frá því í norska útvarpinu í gærkvöldi, að Gunnar Huseby hefði sett nýtt íslandsmet í kúluvarpi, kastað 15.83 m. Þetta afrek Husebys er besta afrek íslendings í frjáls um íþróttum, gefur 1015 stig. Torfi sefur nýtt ís- landsmef í stangar- sfökki - 4,08 m. OSLO, 5. júlí. — Torfi Bryn- geirsson setti nýtt Íslands-i met í stangar- stökki á fyrra degi Osíóleikj anna. Stökk hann 4,08 m. Torfi Torfi reyndi við hæðina 4,21 m., og munaði litlu í tveim ur stökkum, að hann kæmist yfir, en hann felldi. Torfi varð annar í keppninni. Erling Kaas, sem varð fyrstur, stökk 4,21 m Ásmundur Bjarnason varð þriðji í 100 m. hlaupi á 11,0 sek. — Akselson. LONDON — Úrslitaleikur í tví- menningskeppni í tennis í Wim- bledon mótinu var milli tveggja bandarískra liða. Sigurvegar^r voru Pancho Gonsales og Frank Parker. en næstir voru Schröder og Gardner Mulloy. Hjalfi Jómson, konsúli láiinn HJALTI JÓNSSON. konsúll, andaðist í svefni að heimili sínu • Bræðraborgarstíg 8 í fyjrinótt, rúmlega áttræður. Hjalti Jónsson var fyrir löngu þjóðkunnur athafna og atorku- maður, fyrst sem sjósóknari, skipstjóri á fiskiskipum jg síð- ar athafnamaður í landi, sem var stofnandi og meðstjórnandi að mörgum þjóðþrifafyrirtækj um. Hann var fæddur að Fossi i Mýrdal 15. apríl 1869 og var búsettur hjer i Reykiavík frá þv| um aldamól. Drengur druknar á Akranesi í FYRRADAG vildi það hörmu lega slys til á Akranesi, að litill drengur f jell í sjóinn og drukn- aði. Drengur þessi hjet Þórður Ásmundur Ármannsson.^ Vest- urgötu 25, Akranesi- Ha.m var á sjötta ári. Slefán íslandi syngur á ákureyri AKUREYRI, 5. júlí — Stefán íslandi óperusöngvari hjelt söngskemmtun hjer í gærkveldi í Nýja Bíó með undirleik Fritz Weisshappel. Á söngskrá voru alls 12 lög þar af 5 eftir ís- lensk tónskáld og munu að minnsta kosti 2 þeirra ekki áð- ur hafa verið á söngskrá hjá Stefáni áður; „Horfinn dagur“ eftir Árna Björnsson og „Vöggu ljóð“ eftir Jór. Þórarinsson. Á söngskránni voru 2 óperu- aríur, en annars mun söngskrá- in hafa verið hin sama og Stefán flutti í Reykjavík, ný- lega. Minnast verður á, að æski- legt hefði verið, að söngvarinn hefði gefið hinum þakklátu að- dáendum sínum kost á að heyra meira af verkefnum, sem hann hefur ekki farið með áður, en hvað um það. Tilheyrendur sem voru svo margir, sem húsið rúm aði tóku hinum óvenjulega glæsilega söngvara með hinum mesta fögnuði. Endurtók hann nokkur lög og að síðustu söng hann sem auka- lag „Stjornuaríuna“ úr Tosca eftir Puccini og hefðu tllheyr- endur vafalaust viljað heyra meira. Söngvaranum bárust þrír blómvendir. — H. Vald. Launamálaneind hefur skilað áliti sínu Einn ncíndarmanna sagði sig úr henni NEFND sú sem fjármálaráðherra skipaði, þann 9. júní síðastl, til að rannsaka launakjör ríkisstarfsmanna, í samræmi við ályktun síðasta Alþingis, hefur nú lokið störfum. Huseby kasiar kúlu 15.56 í Hönefoss OSLÓ, 3. júlí — Frjálsíþrótta- menn KR tóku þátt í móti í Hönefoss, sem er 70 km. frá Oslo, í dag. Gunnar Huseby vann kúlu- varpið með yfirburðum, kastaði 15.56 m. Friðrik Guðmundsson varð annar með 14,10 m. Ásmundur Bjarnason varð þriðji í 100 m. hlaupi á 11,3 sek. Völlurinn, sem keppt var á er nýr, og brautirnar allt of lausar ennþá, bæði hlaupa- brautin og atrennubrautin fyr- ir stökkin. Sigurður Björnsson vann 400 m. hlaup á 53,8 sek., en Sveinn Björnsson varð þriðji á 54,1 sek. Ingi Þorsteinsson hljóp á 55,1 sek. Þórðut Þorgeirsson varð ann- ar í 1500 m. hlaupi á 4.14,4 mín., en sigurvegarinn hljóp á 4.11,6 mín. Torfi Bryngeirsson vann lang stökk á 6,70. en Björn Lang- bakke varð annar með 6,67 m. Huseby varð þriðji í kvinglu- kasti, kastaði 43,30 m. Stein Johnsen vann með 46,59 m. KR (Torfi, Ásmundur, Sig- urður, Trausti) vann 4x100 m. boðhlaup á 45,1 sek. Það var 24 stiga hiti í HÖne- foss í skugganum, þegar mótið fór fram, og völlurinn baðaður í sólskini. — Gunnar Akselson. Úriökumótið fyrir Norðurlandakeppn- inaí sundi í kvcid ÚRTÖKUMÓTIÐ vegna vænt- anlegrar þáttöku íslendinga í Norðurla-ndasundmótinu verð- ur haldið í Sundhöllinni í kvöld. Mótið hefst kl. 8,30 e h. Keppt verður í 100 m. bak- sund'i karla, 200 m. bringu- sundi karla, 200 m. bringusundi kvenna og 100 m. skriðsundi karla. Meðal keppenda í baksundi eru Guðmundur Ingólfsson og Höxður Jóhanneson, í 200 m. bringusundi Sigurður Þingey- ingur, Sigurður KR-ingur og Atli Steinarsson, í skriðsund- inu er Ari Guðmundsson meðal keppenda og í kvennasundinu Þórdís Árnadóttir og Anna Ól- afsdóttir. RÓMABORG — Antonio Pallante sem gerði banatilræði við Togli- atti kommúnistaforingja á Ítalíu í fyrra var dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir verknaðinn. Pall- ante er stúdent frá Sikiley, 25 ára gamall. * Magnús Jónsson lögfræðing- ur, formaður nefndarinnar, skýrði Mbl. frá þessu í gær. eir það spurðist fyrir um stórf neíndarinnar. ( Afhcnt í gær. Magnús Jónsson kvaðst hafa afhent fjármálaráðherra álit launamálanefndarinnar í gær. Stóðu fjórir nefndarmenn að þessu áliti, þeir Magnús Jóns- son, Ólafur Björnsson prófessor, Kristinn Gunnarsson hagfræð- ingur og Gunnar Þorsteinsson, hæstarjettarlögmaður. F ramsóknarmaðurinn hætti. Einn nefndarmanna, Skúii Guðmundsson alþingismaður, sagði sig úr nefndinni, er húrj var að ganga frá áliti sínu, vegna ágreinings um starfs- grundvöll nefndarinnar. Að öðru leyti vildi Magnús Jónsson ekki á þessu stigi máls- ins gefa neinar upplýsin ar ura niðurstöður nefndarinm . Ffofaæfðngar í Biskaya-fló^ LONDDON, 5. júlí — Sameigin- legur hernaðarfloti V »stur- Evrópuríkjanna heldur áfram hinum miklu flotaæfingum. sem fram fara á Atlantshs '' fyrir sunnan Bretlandseyjai'. f dag var meginflotinn staddur rkamt undan ströndum Spánar og var ætlunin að flotinn sigldi i stórri fylkingu í norðurátt, en kafbát- ar skyldu gera árás á hana. —Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.