Morgunblaðið - 15.07.1949, Side 8

Morgunblaðið - 15.07.1949, Side 8
8 MORGVNfíLAÐIÐ Föstudagur 15- júlí 1°49. , Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsspn. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með LesbðE. Skynsamleg tillaga í fjárfestingarmálum í GREIN þeirri, sem Birgir Kjaran hagfræðingur reit iijer í blaðið s. 1. sunnudag í tilefni hinnar flónslegu sjálfhælni blaðs litla flokksins (allir vita eins og fyrri daginn við hvaða flokk er átt) af stuðningi fulltrúa síns í fjárhagsráði við byggingaráform Gunnars Thoroddsen borgarstjóra og Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjavíkur, var varpað fram þeirri hugmynd, sem full ástæða er til að vekja at- bygli á. Hagfræðingurinn skýrir frá því að hann hafi i íjárhagsráði flutt tillögu um að athugaðir yrðu möguleikar á að gefa í haust frjálsar íbúðarhúsabyggingar af ákveðinni stærð til eigin afnota. Birgir Kjaran bendir í þessu sambandi á að peningamark- tðurinn hafi dregist það mikið saman undanfarið að íull ástæða sje til þess að ætla að hann einn, án viðamikilla skrifstofubákna, sje fær um að halda fjárfestingu íbúðarbúsa iiman eðlilegra takmarka. Ennfremur sjeu líkur fyrir því að mikill hluti útgefinna fjárfestingaleyfa í ár verði ekki notaður. ★ Þessi tillaga Birgis Kjaran er mjög skynsamleg og rök- stuðningur hans fyrir henni á einnig fyllstu stoð í raun- veruleikanum. Það er vitað að viðhorfin í fjárfestingarmál- um okkar eru mjög breytt frá því að lögin um fjárhags- íáð voru sett. Lánsfje til byggingarframkvæmda er nú af svo skornum skammti, að litlar líkur eru til að fjárfesting í íbúðarhúsum færi mikið fram úr því, sem mögulegur inn- ilutningur byggingarefnis leyfði, enda þótt bygging íbuð- arhúsa af hóflegri stærð til eigin afnota yrði gefin frjáls. Það er líka rjett, að margir, sem fengið hafa fjárfestingar- leyfi á þessu ári munu ekki nota þau, ýmist vegna þess að þeim hefur brugðist fje til framkvæmda eða að skrif- stofuseinagangurinn í afgreiðslu leyfanna hefur svipt þa möguleikum til þess að afla sjer byggingarefnis í tæka tíð. ★ XJíLuerji áhripar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Furðufugl á íþróttavellinum REYKVÍKINGAR fá tækifæri til að sjá furðufugl á íþrótta- ^velllhum í kvöld — helicopter- vjelina, sem Slysavarnafjelagið er að hugsa um að kaupa til björgunarstarfa hjer á landi. Eins og kunnugt er getur þessi flugvjel hafið sig til flugs svo að segja beint upp í loftið og sest á örlitlum bletti. í ýyrradag fjekk jeg tæki- færi til að fljúga í þessu verk- færi yfir borginni og sanm- færðist jeg um, að helicopter- flugvjel er nauðsynlegt björg- unartæki, einmitt hjer á landi. • Til björgunar- starfa ÞAÐ hefur verið dregið í efa, að helicopterflugvjel kæmi að gagni við björgun manna úr sjávarháska. Skal ekkert um það fullyrt. Það fæii að sjáif- sögðu eftir aðstæðum, veðri, fjarlægð strandaðs skips frá flugstöð o.s.frv. En hitt er auðsjeð, að fleiri björgunarstörf koma til greina. T.d leit að mönnum, sem vilst hafa í óbyggðum, flutningur á slösuðu fólki, t.d. skíðafólki, fjarri mannabyggðum. Flutn- ingur sjúklinga frá afskektum sveitabæjum eða birgðaflutn- ingar þegar landleið er ófær • Viðgerð háspennulína ÞÁ væri það ekki ónýtt að hafa helicoptervjel til eftirlits með háspennulínum að vetrarlagi. Við Reykvíkingar þekkjum vel hver óþægindi eru að því þegar Sogslínan bilar að vetr- inum til og hve erfiðar að- stæður eru að flytja viðgerð- armenn þegar snjóþyngsli eru. Þar kæmi helicoptervjel að góðu haldi. Landhelgisgæsla LANDHELGISGÆSLAN gæti án efa haft mikið gagn af heli- copterflugvjel. Það hefur sýnt sig, að auðvelt er að gera ör- uggar staðarákvarðanir úr heli- koptervjel. Landhelgisþjófar myndu hugsa sig um tvisvar áður en þeir færu inn fyrir landhelg- ina, ef þeir ættu von á þessu verkfæri þá og þegar. Þá mætti hafa gagn af þess- um vjelum til aðstoðar við fiskiflotann, bæði á síld- og þorskveiðum og til síldarleitar Fleira og fleira kémur til greina. • Ef einu mannslífi væri bjargað REYKVÍKINGAR fá tækifæri til þess í kvöld, að sjá hvað þessar flugvjelar geta. Það er ábyggilegt að margir verða undrandi. Og það er eins og maður sagði við mig í fyrradag, er við vorum að skoða helicopterflug- vjelina: „Þótt ekkj bjargaðist nema eitt mannslíf vegna þess, að við hefðum svona flugvjel í landinu, þá myndi það eitt borga vjelina“. Það er satt. Fjefletting MÖNNUM blöskrar fjegræðg- in í mannfólkinu á öllum svið- um. Það er ekki lengur hægt að snúa sjer við, jafnvel ekki í eigin húsum, án þess að vera með pyngjuna á lofti til að greiða þessum, eða hinum þóknun. Hin svonefnda gjaldskrá Stefs, fjelags tónskálda, hefur farið mjög í taugarnar í mönn- um undanfarið. Ekki vegna þess, að listamönnum beri ekki greiðsla fyrir það sem þeir gera, heldur vegna hins hve langt er seilst í pyngju almennings. Utvarp í bílum og veitingahúsum LÁTUM það vera, þótt þeir menn, sem taka fje fyrir, að flytja tónverk, eða önnur lista- verk, greiði höfundi einhverja þóknun fyrir hugvit hans og hæfileika. En að heima skatt af dag- skré. útyarpsins ;í leligu- og •langferðabílum og sömu dag- skrá í veitingahúsum, er að ganga einu feti of langt. Ríkisútvarpið íekur leigu af hverju útvarpstæki, 100 krón- ur á áii Það er hæsta útvarps- giald í heimi (í Danmörku er gialdið 15 krónur árlega). — Látum það vera, við eigum hvort eð er heimsmet í svo mörgum gjöldum. En, að það komi eftirreikn- ingar á þetta gjald, ef opnað er fyrir útvarpstæki er fráleit firra, sem ekki á að ansa. • Hætt að vera grín HINGAÐ til hafa beir, sem rit- að hafa um „gjaldskrá" Stefs gert grín að henni. En ef hún er leiðin til þess, að veitinga- stofur hætta að opna fyrir út- varpstæki og að ekki má opna fyrir útvarp í langferðabíl, án aukagjalds, er málið hætt að vera grín og alvaran segir til sín. Það kann að vera, að það sje lítill fengur í dagskrá útvarps- ins, oft á tíðum. En þegar menn hafa greitt sitt afnotagjald af útvarpi vilja þeir fá að hlusta án aukagjalds, hvar sem þeir eru. MEÐAfANNARA ORÐATT Hiller kallaðl atómvlsindfn „leikfana" visiitdamannanita. Fjárhagsráð hefur að mörgu leyti unnið nytsamlegt starf, sem að vísu hlaut að verða óvinsælt. Þjóðin varð að miða fjárfestingu sína við efni sín til kaupa á byggingar- efni. Slíkt var óhjákvæmilegt. Það haggar hinsvegar ekki þeirri staðreynd, að í framkvæmd fjárfestingarmálanna hafa orðið fjölmörg mistök. Skrifstofumennskan hefur orðið allt- of víðtæk og almenningi hefur verið gert óþarflega erfitt íyrir um þær framkvæmdir, sem leyfðar hafa verið. Ein- staklingar og opinberir aðilar hafa verið dregnir á fjár- festingarleyfum, sem aldrei kom til mála annað en að veitt yrðu. Umsóknum hefur verið neitað, sem fráleitt hefur ver- ið að synja um, o. s. frv. E. t. v. eru þetta óhjákvæmilegar afleiðingar slíks skipulags. En það væri samt rangt að þegja yfir mistökunum og láta sem allt væri með felldu. ★ Birgir Kjaran leggur til að athugaðir verði möguleikar þess að gefa frjálsa fjárfestingu fyri íbúðarhúsabyggmgum af ákveðinni stærð til eigin afnota. Sú athugun verður að íara fram hið allra fyrsta. Athugun á því, hvaða áhrif það myndi hafa á fjárfestinguna í heild. Auðvitað er ekki f:ægt að segja fyrir um þau fyllilega. En af fyrrgreindum ástæð- um er full ástæða til þess að ætla að slík rýmkun á veit- íngu fjárfestingaleyfa ætti að vera möguleg. ★ Kjarni málsins er sá að þúsundir einstaklinga bíða færis til þess að byggja yfir sig. Ekki lúxusíbúðir, heldur húsa- kynni, sem fullnægja hóflegum þörfum fjölskyldna þeirra. Við eigum ekki að halda í hömlur á slíkum byggingarfram- kvæmdum einum degi lengur en þeirra er þörf. Við eigum þvert á móti að Ijetta fargi skrifstofumennskunnar, um- sókna- og leyfafaraldursins af almenningi eins fljótt og kostur er á. Þessvegna er ástæða til þess að fagna tillögu Birgir Kjarans og vænta þess að hún verði framkvæmd. Eftir ALAN DREYFUSS, frjettaritara Reuters. HAIGERLOCK — Þýskir vís- jndamenn skýra svo frá, að Hitler hafi staðið á því fastar en fótunum, að atomvísindin væru ekkert annað en „leik- fang“ vísindamannanna. Þetta kann að hafa kostað Þjóðverja sigurinn í styrjöldinni, eða svo telur að minnsta kosti sá mað- ur, sem hafði umsjón með stærsta uraníumbingi Þýska- lands. Þessi maður, dr. Her- mann Schiile, sem nú stjórnar Kaiser Wilhelm eðlisfræðistofn uninni í Hechingen, fullyrðir: „Hitler var svo sannfærður um að skyndistyrjöld hans mundi bera tilætlaðan árangur, að hann hafði engan áhuga á atomrannsóknum, enda leit hann aðeins á þær sem „leik- fang“. • • „SVANURINN“. ÞESSI afstaða þýska einræðis- herrans, bætti dr. Schiile við, kom eiginlega algerlega í veg fyrir, að hægt yrði að hefja svo umfangsmiklar rannsóknir, að nokkrar líkur væru fyrir því, að Þjóðverjar gætu eignast at- omsprengjur í tæka tíð. Þó er það vitað, að þýskir vísinda- menn unnu að atomrannsókn- um í stríðinu, en mikið vant- aði á, að þeir fengju alla þá að- stoð, sem hægt hefði verið að láta þeim í tje, ef viljinn hefði aðeins verið fyrir hendi. Dr. Schule skýrir svo frá, að rannsóknirnar á hinum óþektu heimi atomorkunnar hafi eink- um farið fram í neðanjarðar- byrgi, sem er um sextíu fetum fyrir neðan 300 ára gamla bjór- krá, sem kölluð er „Svanur- inn“. Þessi krá er í Haigerloch, sem nú tilheyrir franska her- námssvæðinu. • • GÖMUL VÍNGEYMSLA. ÞAÐ var árið 1943, sem dr. Schúle fjekk skipun um að flytja eina uraniumbing Þýska- lands frá Berlín til Haigerloch. íbúar bæjarins muna enn eftir því, hversu undrandi þeir urðu, er vörubílalest, sem um var öfl- ugur hervörður, kom til bjór- kVáaýinnar1. Á bílunum voru dularfullir kassar, sem þegar var komið fyrir í neðanjarðar- byrginu. Á eftir bílunum komu valdir þýskir vísindamenn. Þeir tóku strax til starfa. En íbúar Haigerloch vissu ekki, hvað þessir vísindamenn voru að gera. Þeir vissu aðeins, að þeir unnu að einhverju mikilsverðu þarna neðanjarðar, þar sem vínámurnar höfðu ver- ið geymdar í gamla daga. • • Á NÍUNDA DEGI. ENN er' raunar ekki vitað, hvaða árangur varð af starfi vísindamannanna. Hernaðaryfir völdin halda því enn stranglega leyndu. En þýsku vísindamönnunum hafði tekist vel að halda rann- sóknum sínum leyndum fyrir umheiminum. Svo vel hafði þeim tekist, að franskir her- menn, sem höfðu átta daga við- dvöl í Haigerloch í apríl 1945, höfðu enga hugmynd um, hvað geymt var í hinum gömlu vín- geymslum „Svanarins“. Heim- urinn fjekk ekkert að vita um leyndarmál kjallarans fyrr en á níunda degi eftir hernám bæj arins, þegar tíu bandarískir skriðdrekar og nokkrar bifreið- ar, sem í voru háttsettir liðs- foringjar, námu staðar fyrir framan bjórkrána. ' • • TÓKU ALLT. BANDARÍSKUR höfuðsmaður ljet þegar í stað kalla fyrir sig eigandann, — mann að nafni Otto Mers, — og spurði hann spjörunum úr um vínkjallarann hans. Mars, sem í dag segist ekkert hafa skilið i þeim al- menna áhuga, sem vaknaður var fyrir víngeymslunni, gerði sjer ekki ljóst fyrr en eftirá, að allar spurningarnar áttu eitt hvað skylt við starfsemi hinna dularfullu vísindamanna frá Berlín. En hvað úm það, þennan sama dag óku bandarískir vöru- Frh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.