Morgunblaðið - 22.07.1949, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 22. júlí 1949.
— Meðal annara orða
r'rh. af bls. 8.
Gerlar, sem eru í hráolíu
breyta henni 1 gas. Af þeim á-
stæðum kemur olían upp úr
jörðinni af eigin ramleik.
Nú hefir verið stungið upp á
því að finna gerla, sem hægt
væri að setja í olíulindir, sem
hættir eru að gefa olíu vegna
skorts á gasþrýstingi.
• •
MERKILEGAR
UPPGÖTVANIR.
DR. Thaysen skýrði frá því, að
þegar hefðu verið gerðar marg-
víslegar og merkilegar uppgötv
anir á sviði gerla-líffræðinnar
í tilraunastöðinni í Trinidad.
Ein uppgötvunin er sú, að tek-
ist hefir að stöðva myglugróð-
ur. Frekari rannsóknir eru þó
nauðsynlegar til þess að hægt
sje að nota þessa aðferð alment
Trinidad var valin, sem stað-
ur fyrir tilraunastöðina vegna
þess, að þar er hitabeltislofts-
lag, sem hvítir menn kunna vel
ýið sig í. Þegar er lokið við
byggingu helmings tilrauna-
stöðvarinnar.
Uppgötvun penecilins varð
til þess að sýna mönnum framá,
að það er meira í hinum ,,ó-
sýnilega heimi“, en margur
hjelt.
Sjálfur býst jeg ekki við, að
gerlalíffræðin eigi eftir að veita
jafnmörgum sjerfræðingum at-
vinnu og efnafræðin og læknis-
fræðin, sagði dr. Thaysen. En
eftirspurnin eftir gerlafræðing-
um fer vaxandi, eftir því, sem
menn gera sjer ljósara hve þýð-
ingamikil vísindagrein hún er.
Landbúnaðurinn er okkur
ekki lengur nógur, þessvegna
verðum við að snúa okkur að
hinu ósýnilega. Eins og er vant-
ar 4 miljónir smálesta upp á að
feitmetisframleiðslan sje heim-
inum nóg. Það er reynt að bæta
úr með hvalolíu og pálmafeiti,
en það er efamál hvort það næg
ir.
Jeg hefi þá trú, að gerla-
fræðin geti hjálpað í þessum
efnum ásamt fleirum.
María AndrjesdóSfir níræð
Bannfæringarboðskapurinn.
BERLÍN — Hinn nýafstaðni
bannfæringarboðskapur páfans
hefir valdið því, að margir úr
kristilega demókrataflokknum á
hernámssvæði Rússa í Þýska-
landi vilja ganga úr flokkasam-
steypu þeirri, sem kommúnistar
(Bifreið tii sölu Í
| 5 manna herbíll, model i
| ’36, er til sölu. Upplýs- 1
i ingar á Hverfisgötu 50, |
i eftir kl. 5 í dag.
•fimitiMiiniiiim*
FRÚ Maria Andrjesdóttir níræð
í dag. Ekki verður það sjeð á út-
liti hennar eða fasi, gæti nokkur
manneskja vilt á sjer heimiidir í
þeim efnum myndi Maríu veit-
ast það ljett, svo kvik er hún í
hreyfingum. Það er gaman að
hafa náð til að bera ellina svona|
vel. Guð hefir gefið henni ljettal
lund í veganesti, og hún hefirl
verið fær um að taka á mótij
þeirri gjöf, varðveita hana og?
ávaxta. I
Það er gaman að ræða við|
„gömlu konuna“, minni hennarS
og frásögn er létt og vekur hvern?
til eftirtektar, en það sem einkum
vekur athygli að henni, eru henn-
ar sístarfandi hendur það er ó-
hætt að fullyrða að henni fell- -
ur sjaldan verk úr hendi og vefn-
aður hennar og vinna sómir sjer
á hvaða listsýningu sem er, og oft
hefi jeg verið að hugsa um hvort
ýmsum sem fyrir íslenskum vefn
aðarsýningum standa, þætti ekki
fengur að geta flaggað með mun
unum hennar Maríu. Enda verður
ekki tölu á þá komið sem hafa
fengið til minja eitthvað af verk-
um hennar. Og þeir minjagripir
eru varðveittir.
Um leið og jeg þakka Maríu
alla hennar hlýju og góða við-
mót, bið jeg henni blessunar á
ófarinni leið.
Árni Helgason.
NÍUTÍU ára er í dag María
Andrjesdóttir, nú til heimilis hjá
Ingibjörgu dóttur sinni og manni
hennar Sigurði Magnússyni
hreppstjóra í Stykkishólmi. Fædd
er hún í Flatey á Breiðafirði, ein
hinna kunnu Andrjesdætra. Móð-
ir hennar Sesselja Jónsdóttir taldi
þannig dætur sínar:
Jóhanna og Gunna —
gulls fögur nunna
Olína og Dísa —
drósum skal iýsa.
María og Steina —
má þeim ei leyna
Sjöunda Andrjesa —
satt skal jeg lesa.
María Katrín mæta —
má henni við bæta
Þennan flokkinn fljóða —
faðirinn annist þjóða.
Hafi þær systur hennar verið
andlegu atgerfi búnar, hefir hún
síst orðið afskift því líkamlega:
Fríðleikskona, glæsileg að vallar-
sýn, glaðlegt viðmót, hagleikur í
ríkum mæli, vinnuafköst með
einsdæmum. Ekkert verk fer
henni illa úr hendi. Sameinar
þann sjaldgæfa eiginleika: mik-
inn vinnuhraða og frábæra vand-
virkni. Atgjörfi sínu heldur hún
fram í háa elli, bæði andlegu og
líkamlegu. Gengur ennþá tein-
rjett um götur þessa bæjar, vin-
um sínum til augnayndis.
María var ung tekin í fóstur
af sjera Guðmundi Einarssyni
frænda sínum og konu hans
Katrínu Sivertsen. Rúmlega tví-
tug giftist hún Daða Danielssyni
frá Litla-Langadal á Skógar-
strönd. Bjuggu þau nær hálfa öld
í Skógarstrandarhreppi, Dröng-
um, Narfeyri og Setbergi. Þeim
hjónum varð 15 barna auðið. Lifa
nú 9 þeirra. Alls mun María eiga
63 niðja á lífi. Flest er það gjörfu
legt fólk.
Mann sinn misti María árið
1939.
Við vinir hennar, og þá á hún
marga, en óvini enga — óskum
að æfikvöld hennar verði blítt
og friðsælt. Fósturjörðinni hef-
ir hún skilað miklu starfi.
Ólafur Jónsson,
frá Eliiðaey.
Sfangaveiðimaður
sýnir allskonar köst
BRESKI stangaveiðisnillingur-
inn Capt. T. L. Edward, sem
hingað er kominn á vegum
Stangaveiðifjelags Reykjavíkur
sýnir í dag allskonar aðferðir
við að kasta flugu og spoon við
Árbæj arstífluna.
Allir þeir, sem ánægju hafa
af stangveiðiíþróttinni og koma
því við að sjá þessa kastsýn-
ingu Capt. Edward, ættu að
nota sjer þetta einstaka tæki-
færi, því Edward er sem kunn-
ugt er, einn af bestu kastmönn-
um í heimi. Á þessa sýningu
geta komið bæði fjelagsbundnir
stangaveiðimenn og ófjelags-
bundnir. Sýningin hefst kl. 5
síðdegis.
í kvöld heldur Capt. T. L.
Edward almennan fyrirlestur,
sem túlkaður verður þannig, að
allir hafa jafnmikið gagn af,
hvort sem þeir eru enskumæl-
andi eða ekki. Fyrirlesturinn
verður haldinn í Tjarnarcafje.
Flokkakeppnin
ískék
SÍÐASTA umferð flokkakeppn
innar í skák var tefld á mið-
vikudagskvöldið.
Urslit urðu þau, að sveit
Guðmundar S. Guðmundssonar
vann sveit Gilfers með 2%
vinning gegn %, en ein skákin
fór í bið. Sveit Guðmundar
Pálmasonar gerði jafntefli við
sveit Baldurs Möller með IV2
vinning gegn IV2.
Einstök úrslit: Árni Snævarr
vann Friðrik Ólafsson, Þórður
Jörundsson gerði jafntefli við
Ingvar Ásmundsson, Björn Jó-
hannesson vann Ingimund Guð
mundsson, Guðm. S. Guðmunds
son gerði jafntefli við Eggert
Gilfer, Þórir Ólafsson vann
Gunnar Gunnarsson og Jón
Pálsson. vanýi Eirík Magnús-
son. Biðskákir urðu hjá: Guð-
jóni M. Sigurðssyni og Guðm.
Pálmasyni og Konráði Árna-
syni og Sveini Kristinssyni.
Allar biðskákir verða tefld
ar á sunnudaginn kemur. —
Ekki er enn hægt að segja fyr-
ir, hvaða sveit muni bera sigur
úr býtum, þótt mestar líkur
sjeu til að sveit Baldurs Möll-
ers verði hlutskörpust. Guðjón
M. Sigurðsson hefur tekið við
forystu sveitar Baldurs, sem er
nú utanlands.
Ekkert hæli fyrir upp-
reisnarmenn í Júgóslavíu
AÞENA, 21. júlí. — Balkan-
nefnd S. Þ. átti í dag viðtal við
fulltrúa Júgóslavíu, sem lýstu
því yfir, að hjeðan í frá yrði
landamærunum við Grikkland
algjörlega lokað og ábyrgst, að
engir grískir uppreisnarmenn
geti leitað sjer hælis þar. í
bardögum sem urðu nýlega
nærri júgóslavnesku landamær
unum fjellu nokkur fallbyssu-
skot frá byssum grísku stjórn-
arinnar á Júgóslavneskt land.
Júgóslavar hafa mótmælt þessu
við Balkannefndina.
Rannsókn hernámskostnaðar.
FRANFURT — Bretar og
Bandaríkjamenn hafa fyrirskip-
að rannsókn á hernámskostnaði
og öðrum álögum í Þýskalandi í
því skyni að draga úr kostnað-
inum, að því er New York Times
greinir nýlega frá.
eru allsráðandi í.
CHERBOURG, 20. júlí. —
Kvikmyndaleikkonan Greta
Garbo kom hingað í dag með
stórskipinu Queen Elizabeth.
F Markúc
i.........
IIIIIIIMIMIMIIIIIIIIIIIIIIMillMMMMiMHiMmMMIMMIMfMnTEmifmilH'inilllMIIIIMIIIMIIIMIIIIIIHtllMMIMIIIIMMMIIMMIMMMMMMIIIIlMIMUIMMItMIMMIMIIIMMII
A A A Á Eftir Ed Dodd
aillllllMMIIIimiUMMiBIMII
Orðrómurinn breiðist út eins
og eldur í sinu.
— Það eru allir farnir að tala
um, að þú sjert búinn að vera
ef öxin finnist. Nú verðum við
að fara að vara okkur, Víg-
björn.
— Þeir skulu aldrei finna |
hana. Jeg verð að koma henni
fyrir kattarnef í nótt, þegar all-
ir eru sofnaðir.
* THEN WEÚL GET OUR
BOV5 AND GET GOING...
HAVE THE DONKEY
ENGINE FIRED UP F3V
— Við verðum að segja strák
unum að vera tilbúnir um mið-
nætti og eimreiðin verður að
vera hituð upp.
Kappreíðar Glaðs
íNesodda
KAPPREIÐAR ,,Glaðs“ fóru
fram við Nesodda 17. júlí s.l.
Veður var eins og best verður
á kosið, bjartviðri og hægur
andvari norðvestan. 19 hestar
mættu til keppni í hlaupunum.
Verðlaun hlutu þessir:
Stökkhestar: 300 m. sprett-
ur: — 1 Tígull, 15 vetra, 23,2
sek., eigandi Magnús Jósefs-
son, Hrafnabjörgum, Dalas. 2.
Elding, 10 vetra, 23,4 sek., eig-
andi Guðm. Guðmundsson,
Kolstöðum Dalas. 3. Þytur, 9
vetra, 23,6 sek., eigandi Jó-
hann Sigurjónsson, Reykjavík,-
4. Logi. 9 vetra, 23,7 sek., eig-
andi Jón Hjálmtýsson Saur-
stöðum, Dalas.
Folar: 250 m. sprettur: — 1.
Nasi, 20,8 sek., eigandi, Jón
Jósefsson, Smirlahóli, Dalas.,
2. Kópur, 21,5 sek., eigandi
Guðm. ívarsson, Hvammi, Dala
sýslu, 3_ Háski, 22,0 sek., eig-
andi Jóhann Guðlaugsson, Kol
stöðum, Dalas.
Skeiðhestar: 3. verðlaun
Nanna, 8 vetra, eigandi Anna
Guðmundsdóttir, Krossi, Hauka
dal, Dalas. — Hinir skeiðhest-
arnir hlupu allir upp.
Auk þess fengu flokksverð-
laun: Hrefna, í stökki, eigandi
Jóna Bergjónsdóttir, Snóksdal,
Dalas., og Roði fyrir skeið, eig-
andi Hilmar Poulsen, Hjarðar-
holti, Dalasýslu.
5—6 hundruð manns sóttu
skemmtunina með 2—300 hesta.
Skemmtunin fór vel fram enda
bar mjög lítið á ölvun.
Samband flskimaís-
manna íslands
STOFNFUNDUR Sambandsins
var haldinn 17. og 18. júli s.l.
í Oddfellowhúsinu. Áður var
starfandi samband aðeins fyrir
freðfiskmatsmenn, en þetta
nýja samband er fyrir alla
sem hafa rjettindi til þess að
vera fiskimatsmenn n hvaða
sviði sem er.
Aðal tilgangur sambandsins
er, að stuðla að bættri vöruvönd
un við islenska fiskframleiðslu,
og kynna fyrir meðlimum sín-
um allar nýungar á því sviði.
Einnig að sjá til þess að altaf
vdijist hæfustu menn sem völ
er á, til þess að vinna fyrir fisk
framleiðsluna, og að þeir sjeu
meðlimir sambandsins. Auka
og efla samvinnu meðat fiski-
matsmanna hjer á landi, að þvi
er snertir vinnuskilyrði þeirra
og hagsmuni, og vinna að a'uk
inni þekkingu þeirra á alian
hátt, svo sem með fyririestrum
sjerfróðra manna á fundum
sambandsins og deilduri þess.
Samþykkt var að gefa út
tímarit um þessi efni.
Atvinnulausir meðlimir eiga
að senda stjórn sambandsins
skriflega beiðni um aðstoð og
vill stjórnin hafa samvinnu við
fiskframleiðendur og yfirmatið
um' þau mál.
Fyrsta stjórn þessa sambands
er skipuð þessum mönnum;
Jakob A. Sigurðsson, Akranesi,
formaður, Lýður Jónsson, Akra
nesi, ritari, Viggó Jóhannesson
Reykjavik, gjaldkeri, meðstjórn
endur: Helgi Jónsson, Keflavík,
Guðm. Jóhannsson, Reykjavík.