Morgunblaðið - 03.09.1949, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.09.1949, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagör 3. sept. 1949. Þórmundur Vsgfússon ÞORMUNDUR Vigfússon bóndi í Bas í Andakílshreppi andaðist hinn 19. júlí s. L, 74 ára að aldri, og var jarðsettur að Bæ þ. 25. júlí að viðstöddu miklu fjöl- menni. Þórmundur var Árnesingur að ætt og uppruna, fæddur að Efri- Reykium í Biskupstungum 26. febr. 1875, sonur hjónanna Val- gerðar Ingimundardóttur frá Efri-Reykjum og Vigfúsar Vig- fússonar frá Lambhúsum. — Bjuggu þau hjónin á Efri-Reykj- um við þröng kjör, og því var Þórm. látinn fara úr foreldra- húsum 11 ára gamall til þess að að ljetta á heimilinu. Fór hann til móðurbróður síns, Guðmund- ar, er bjó á Bjarnastöðum í Grímsnesi og var þar meðan Guð mundar naut við, en hann Ijest 1892 og var heimili hans þá leyst upp. Þá rjeðist Þórmundur að Reykjanesi í Grímsnesi til Guð- jóns Finnssonar bónda þar, og var hjá honum í 5 ár. Síðasta áiið sem hann var á Bjarna- stöðum fór hann til sjóróðra, þá 16 ára gamall, og allar vertíðir rneoan hann var í Reykjanesi reri hann í verstöðvum á Suður- nesj um. Vorið 1897 fór Þórmundur á Búnaðarskólann á Hvanneyri, og útskrifaðist þaðan eftir tvö ár með góðum vitnisburði. Næstu tvö árin var hann verkstjóri við skólabúið á Hvanneyri, nema vertíðartímann. En vertíðarnar var hann til sjós, aðra á Suður- nesjum en hina á skútunni „Berg- þóru“ undir skipstjóm Jóhannes- ar Hjartarsonar, er var á þeim árum þjóðkunnur skipstjóri og aflamaður. Árið 1901 tekur Þórmundur við ráðsmannsstarfi á búi barónsins á Hvítárvöllum, en þá um vet- urinn andaðist baróninn. Næsta fardagaár tekur Þórmundur búið á Hvítárvöllum á leigu af dánar- búinu. Vorið eftir, 1903, fær hánn byggingu fyrir Langholti og býr þar í 26 ár eða til vorsins 1929, að hann kaupir jörðina Bæ 1 Bæjarsveit og flytur þangað bú- ferlum. Þar bjó hann síðan stór- búi í 17 ár og átti heima til dauða aags. Þannig dvaldi Þórmundur í Andakílshreppi í samfleytt 52 ár, og var bóndi þar í 44 ár af þeim tíma. Þegar Þórmundur fór úr for eldrahúsum barn að aldri mun honum hafa verið ljóst, hvaða ástæður lágu til þess að svo várð að vera. Það er því hægt að geta sjer til með hvaða hug og ásetn- ingi hann kemur á heimili móð- urbróður síns. Það er trúlegt að hann hafi haft fullan hug á að vinna honum allt það gagn er haxm mátti, og því tekið fúslega á sig alla þá þjónustu, er snún- ingadrengnum var ætlað að inna af höndum á þeim tíma, en hún var mikil, og erfitt að veita fyr- ir lítt þroskaðan dreng. Jeg býst því við, að uppvaxtarár hans á Bjarnastöðum hafi yfirleitt verio erfið. En þau urðu honum æfing í þvi að leggja fram krafta sína bæði andlega og líkamlega, svo að sem best not yrðu að starfi hans. Þetta varð honum dagleg þjálfun í sjálfsaga, í því að yfir- vinna þreytu og aðra örðugleika í daglegum störfum og meta ann- arra hag jafnframt því að skapa m^ð honum sjálfum heilbrigðan metnað. Þetta, sem nú hefur verið að víkið, var mjög áberandi þáttur í lífi Þórmundar, bæði sem heim- ilisíöður og þjóöfjelagsþegns. Þórmundur stundaði nám sitt á Hvanneyri vel, og þar sem hann var prýðilega greindur sótti hann þangað þekkingu og þroska svo sem best verður á kosið á ekki lengri skólagöngu. Með því að hann var einnig óvenju- lega mikill afkastamaður og vel- virkur við öll landbúnaðarstörf, varð hann mjög eftirsóttur til starfa, er best má marka af því að hann verður verkstjóri við skólabúið og síðan ráðsmaður fyrir stórbúi strax að loknu námi. Var hann því óvenjulega vel bú- inn undir lífsstarf sitt, bænda stöðuna, enda skipaði hann sjer strax í röð hinna bestu bænda Öll árin, sem hann bjó í Lang- holti var hann leiguliði, en hann bætti jörðina mikið, sljettaði og stækkaði túnið og girti, byggði bæjarhús, hlöður og peningshús. Fyrstu árin var hann efnalítill, en fljótlega tókst honum að koma upp góðu búi. Átti hann jafnan arðsama gripi og fór vel með þá. Til þess að auka tekjur sínar fyrstu búskaparárin hafði hann með höndum flutninga á vörum fyrir bændur úr upphjeraðinu frá Borgarnesi í Grímsármót, sjó leiðina. Lagði hann þá oft saman nótt og dag svo búverkin yrðu tkki útundan, enda var hann þrekmaður og heilsuhraustur svo af bar, og varð ekki misdægurt unz hann síðastliðið vor kenndi til sjúkdóms, er leiddi hann til bana á fáum vikum. Fjelagsmaður var Þórmundur ágætur, fjelagslyndur, fórnfús og ósjerhlífinn. Hann vann mörg störf fyrir samsveitunga sína og ætíð af trúmennsku og ósjer- plægni, var í hreppsnefnd og skattanefnd, forðagæslumaður og gjaldkeri Búnaðarfjelagsins o. s. frv. Þórmundur kvæntist 5. janúar 1905 Ólöfu Guðbrandsdóttur frá Miðdal í Laugardal, mikilli mynd ar- og gæðakonu. Eignuðust þau 14 börn og komust 11 þeirra á fullorðinsaldur, en 10 þeirra eru nú á lífi. Konu sina missti Þór mundur árið 1946 og syrgði hana mjög. Voru þau hjónin frábær- lega samhent í lífsstarfinu, og átti hún jafnt honum heiðúr skil- inn fyrir glæsileik í afkomu þeirra, fyrir það góða heímiii, sem þau sköpuðu, ekki síður hjú- um en skylduliði, og íyrir upp- eldi hinna mörgu og mannvæn- iegu barna þeirra. Þegar tveir elstu synir Þór- mundar, Guðbrandur og Július, þurftu á jarðnæði að halda, seldi hann hvorum þeirra þriðja hluta jarðarinnar, en þegar hann missti konu sína árið 1946 íjekk hann tveim yngstu sonum sínum í hena ur jarðarpart sinn, og búa því nú í Bæ fjórir synir Þórmundar. Þau 17 ár sem Þórmundur bjó í Bæ gerði hann ásamt með sonum sinum miklar umbætur á jörð- inni, m. a. hafa þeir stækkað tún- iö urn heiming, byggt mikil gróð- urhús og aukið mjög húsakost allan. Er nú óvenjuiega staðar- iegt að horfa heim að Bæ og bú- skapur þar ailur með hinum mesta myndarbrag. Menn eins og Þórmundur Vig- fússon eru brautryðjentíur og máttarstólpar í íyllstu merkingu þeiria orða. Þen ryðja ekki að- eins ieiðma sjálíum sjer og skylduliði sinu, heidur einnig fynr samferöarnennina og óborn- ar kynsióöir, láta hvarvetna vaxa ívö strá þar sem áður greri eitt. Jeg vil enda þessi íátækiegú orð með því að þakka Þórmundi fyrir samfylgdina með þeirri ósk, að hann megi halda áfram á þroskabraut sinni, „meira að starfa Guðs um geirn“. Guðmundur á Hvítárbakka. 111 ii 111■■11iiii11 ■■ 11 ii iiii niii11111111111111111111 HúsnæSí — lán Hef 2—4 herbergja ibuð með sanngjarnri leigu. — Gæti verið tilbúin 1. nóvember eða fyr, gegn c.a. 40 þúsund kr. láni á 1. veðrjetti í húseign. — Tilboð, merkt: „Húsnæði — Lán — 223“, leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir mánudagskvöld. Reglusöm stúlka óskar = eftir | Merbergl = og helst eldunarplássi. — | Húshjálp, ef með þarf, = eftir samkomulagi. Tilb., = merkt: „Nauðsyn — 225“ i sendist afgr. Mbl. fyrir = mánudagskvöld. lllllllllllllllll•lllllllllllllllllllllll•l■■lllll••lll•ll•l••lllllll íólksbifreii i { 6 manna, til sölu og ; sýnis við Sölunefndar- | braggana við Tivoli. — ! Sími 5948. Stúlka óskast við iðnað. Tilboð er greini fyrri atvinnu og aldur, sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskv., merkt: „Ljettur iðnaður — 224“. ll•ll••lllllll•llllllll • ••iiiiiiiMMiiiiimii ii 11111111111111111111111111111 Kominn beim Karl Jónsson, læknir. lllllllllll■llllllllllllllllMll■ll•lllllll•llltll••••ll■llfllflm•l iV\i‘\U Ui\ og dökk föt á dreng, 14 til 15 ára, til sölu. Upp- lýsingar Miðtún 42, kjal.l ara. llllllll•lllllll•lllll••(l iiiifiiiiiiriiriiiiii«iii*iii ,,« II SOIll Ný kápa til sölu. Einnig skór no. 37, í Bólstaðar- hlið 10, kjallara, eftir kl. 1 í dag. EINARSSON & 20ÉCA M.s. „FOLOir fermir í Hull 12. þessa mán- aðar, Antwerpen, 13. þ. mán., Amsterdam 14. þessa mánaðar. Kæru landar. JEG VAR beðinn að t'lytja íslandi kærar kveðjur frá fjölda mörgum Vestur-íslendingum, og þá sjerstaklega dr. Richard Beck, sem stöðugt kynnir ís- land í ræðum ög riturn og svo frá Gunnari Björnssyni og Valdi mar syni hans. íslendi.ngar vestra hugsa oft heim. Því hjá ! öllum sönnum sonum og dætr- um íslands er þráin rik að fara heim til Fjallkonunnar. Það hefur verið mjer óbland- in ánægja að koma heim og dvelja hjer um mánaðartíma, heimsækja Einar Ólafsson bróð- ur minn, kaupmann á Akra- nesi, fjölda af skyldfólki mínu, sjá landið og þjóðina og æsku- stöðvarnar. Jeg hefi verið 38 ár í Banda- ríkjunum, en þó mjög lítið meðal íslendinga. Hefi um 20 ára skeið gengt prestsskap í Metodistakirkjunni og er nú bú séttur í Minneapolis í Minne- sotafylki. Það hefir mjer leiðst, hve sjaldan jeg hefi fengið tæki færi til að tala móðurmál mitt, því þótt jeg hafi ekki verið rema 13 ára er jeg fór af landi burt, er hún römm sú taug sem bindur mann, hvað löng sem útivistin verður. Mjer þykir ísland ákaflega fallegt, fjöllin og firðirnir, dal- ir og blómskrýddar brekkur. Fossar og lækir, sem töfra mann og veita ró og yndislegan unað. Geysir og Gullfoss og allt og allt sem vekur undrun og aðdáun. Jeg hefi hjer verið heppinn með allt, veðrið og við- tökurnar, enda er mjer og hugðarefnum mínum það mik- ill fengur. Því svo stendur á, að jeg ætlaði að taka hjer nokk uð. af kvikmyndum, myndum til þess að geta því betur sagt frá íslandi og sýnt það í sinni íegurstu mynd. I Bandaríkjunum fýsir rnarga að heyra um ísland. Hefi jeg fim mörg ár reynt að seðja þessa löngun, með því að fl.vtja þar erindi og sýna rnyndir frá Islandi. Óskum um það hefi jeg aldrei hafnað. Eftir þessa ferð, hefi jeg því betri skil- yrði en áður til að fræða fólk um ættjörð mína, sem jeg elska enn heitar eftir þessa heim- sókn. Það er mjer mikið gleðiefni, að sjá allar verklegu fram- kvæmdirnar víða um landið, síðustu 38 árin. Reykjavík og aðra bæi og byggðir, en mest finnst mjer breytingin vera í Reykjavík, t. d. við höfnina. Mjer virðist hjer byggingar flestar betur úr garði gerðar en jeg hefi sjeð annarsstaðar. En með engu þessu er allt fengið, ef ekki fer á undan eða fylgja eftir framfarir á hinum and- legu sviðum. Því maðurinn ei það sem hann hugsar í hjarta sínu. Jeg vil þakka prestastjett ís- lands fyrir vingjarnlegar mót- tökúr, fyrir að mega mæta á Hólum í Hjaltadal og vera boð- ið til prestafundar á Þingvöll- um á sunnudaginn kemur, sem jeg get þó því ffiiöur ekki þeg- íg, þar sém jeg fer heimleiðis fljúgandi þann sama morgun. Mjer þykir leitt, að hafa ekki getað þegið boð ýmsra presta um að prjedika, þar sem dvöl mín varð svo stutt. Jeg prje- dikaði þó í Akraneskirkju 21, égúst, verður það mjer ógleym- I anleg stund, því þar var jeg skirður og þar man jeg best eft- ir söng og helgum tíðum, þótt jeg væri 3 ára í Reykjavík, áð- ur en jeg fór vestur. Svo þakka jeg vinum og vandamönnum og öllum sem jeg hefi hitt og kynnst í þess- ari ferð og hafa fært mjer yndi Qg unað. Þessi heimsókn getur aldrei fallið mjer úr minni. Hefi jeg nú sterkari löngun en áður, að verða ættjörð minni að liði. Jeg kveð því ísland og bið Guð að varðveita land og þjóð. Það er min heitasta ósk að þjóð mín austan hafs og vestan megi ganga á guðsvegum svo þeim geti liðið vel á hjervistardög- unum og megi verða sáluhólpn- ir. —• Guð blessi ykkur vinir. Sveinbjörn S. Ólafsson. iiií«>«iii ii iii nriiii Harnakerra óskast til kaups. Uppl. í síma 80055. N®®®®®®®®®iiiiiiiiiiiiiiiiMMiiiiinrtiiiimiiiiiiniimiiniiim( iimiiiimiiiiiiiiimmimimiiiiimiiii fúnþökux til sölu á kr. 3,50 ferm. i keyrðar á staðinn. Stand- = setjum og girðum lóðir. j Upplýsingar í síma 7583. I lllml•lllllllllll•lllllllll, mmiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiim, BERGUB JÓNSSON Málflutningsskrii'stofa, Laugaveg 65, sími 5833. Heimasími S234. „HEKir fer frá Reykjavík laugardag- inn 10. september n.k. til Ála- borgar. Pantaðir farseðlar ósk- ast innleystir í skrifstofu vorri þriðjudaginn 6. september. .— Nauðsynlegt er, að farþegar leggi fram vegabrjef sín. Frá Alaborg fer skipið væntanlega um mánaðamóíin september— október til Reykjavíkur. Esja austur um land til Siglufjarðar hinn 8. þ. m. Tekið á móti flutningi til Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjaiðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar Seyðisfjarðar, Þórs hafnar, Raufarhafnar, Kópa- skers og Húsavíkur árdegis í dag og á mánudag. Pantaðir farseðlar óskast sóttir á þriðju- daginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.