Morgunblaðið - 03.09.1949, Side 16
VEÐUBÚTLIT — FAXA.FLÓ1:
ÆLLIWASS NA Ijettir ti!.. —
iærlOOþús.farfiðg-
armeS vjelum F. f.
FRÁ því að Flugfjelag íslands
hóf starfsemi sína árið 1938
Vtafa-' samtals 97,807 farþtgar
fevðast með flugvjelum þess,
trærðf ■ = á innanlands- og utan-
landsfliígleiðum. Nálgast því
óðum, að fjelagið flytji 100.000
farþegann, en það mun að öíl-
um líkindum verða í þessum
►ttár.uði.
Það sem af er þessu ári, hafa
tflugvjelar F. í. flutt 24.557 far-
t»ega,' en á fyrstu átta mánuð-
urn ársins 1948 voru fluttir ails
19,260 manns. Hefur því aukn-
iögiíi' í 'ár numið um 2-7% mið-
að við sama tíma í fyrra,
í ágúst ferðuðust 5851 fac-
)5egi' með' flugvjelum F. í., þar
af 4949 innanlands og 902 á
milli landa. I sama mánuði í
fyrra var farþegafjöldinn 5242,
þar-af"693 á milli landa. Flutt
voru 4706 kg. af pósti á innan-
lándsflugleiðum og 9935 kg. af
öðrum flutningi.
Gullfaxi hefru farið alls 25
ferðir á milli landa í mánuðin-
um og flutt 902 farþega. Þá
befur hann flutt 299 kg. af
pósti og 681 kg. af öðrum flutn-
ingi.
Rösklega 12,000 manns hafa
ferðast með flugvjelum F. í.
á undanförnum tveimur mán-
uðum, og mun nú vart finnast
önnur þjóð, sem notfærir sjer
flugsamgöngur jafn mikið og
Jsiendingar.
Veslmannðeyjar fá
fiiikominn sjúkrabíl
VESTMANNAEYINGAR hafa
i>ú eignast nýjan sjúkrabíl, en
hann er hjer í Reykjavík, en
verður sendur til Eyja einhvern
næstu daga, er skipsferð fellur
þangað.
Sjúkrabíll þessi er talinn
vera einn hinn stærsti og full-
komnasti, sem hjer hefur sjest.
Hann er mjög traustlega bygð-
ur og virðist sem hægt sje að
Jeggja hann í hinar mestu ó-
íærur.
Nokkur sveitafjelög hafa
rnikinn hug á að kaupa sjúkra-
bíi sem þennan og einnig hafa
ráðamenn í Rauðakrossinum og
Lslökkviliði Reykjavíkur skoð-
aö bíiinn.
Sjúkrabíll þessi er frá Morr
isverksmiðjunni í Bretlandi.
Hann getur flutt í sjúkrakörfu
tvo I einu. Með nokkrum hand-
tökum er hægt að setja í stæði
annarar sjúkrakörfunar sæti
fyrir fimm til sex menn. —
En auk þess er sjerstakur stóll
í bílnum, er ætlaður er lækni
eða hjúkrunarkonu. — Stórir
gluggar eru -á sjúkraklefanum,
en þeir eru þannig gerðir, að
ekki sjer í gegnum rúðuna ut-
an frá, heldur aðeins innanfrá.
Sjúkraklefi bílsins er stór og
rúmgóður og lýsing og loft-
ræsting er þar góð.
Þessi sjúkrabíll, sem er ó-
neitanlega alveg sjerlega
traustur og öruggur að sjá,
kostar 37.000 kr„ en þar er
ijid.fáiinn skattur kr. 8000.
KOMMÚNISTAR ætla dóms<
stólunum aS vera verkfæt'1
flokks sxns — Sjá grein á bls. 2.
200. tbl. — Laugardagur-,3. septenfber 1949.
Síðuslu ísfisksölur
logaranna
í SÍÐUSTU viku seldu níu tog-
arar ísvarinn fisk á markað í
Þýskalandi og á, sama tíma
tveir í Englandi-
Togararnir, sem sigldu til
Þýskalands með afla sinn
lönduðu þar alls um 2265 smá-
lestum af fiski. Hallveig Fróða
dóttir, diessel-togari Reykja-
víkurbæjar, landaði mestum
afla þéssara togara, 283 smál.
Hinir togararnir voru þessir:
Egill rauði með 244 Helga-
fell með 248 smál., Óli Garða
165 smál., Surpríse með 251
smál., Karlsefni 255 smál., Geir
267 smál-, Bjami Ölafsson 263
smál. og Gylfi var með 279
smálestir.
Á Bretlandsmarkað seldu
Júpiter 2342 kit fyrir 4702
sterlingspund og Jón Þorláks-
son seldi þar Grænlands-fisk
sinn fyrir 10874 pund alls, en
hann landaði 4524 kittum. —
Báðir seldu í Fleetwood.
Undanfarið hefur verið mjög
tregur afli hjá togurunum
hjer við land, en í gær bárust
frjettir um að afli væri aftur
að glæðast, einkum þó úti fyrir
Austurlandi, — en þar munu
allmargir togarar vera að veið-
um. —
Hlýll sunnanlands,
en kalt veslan og
norðan
MIKILL munur var í gær á
hitastiginu á Vestur og Norð-
urlandi og um suðurhluta
landsins.
í Bolungavík var í gærkveldi
kl. 6, sex stiga hiti, sami hiti
var; á Horni og á Norðurlandi
var hitinn kringum 6 stig, en
minstur mun hann hafa verið
á Gjögri, aðeins 5 stig.
Á Hólum í Hornafirði var
hinsvegar 15 stiga hiti í gær-
kveldi kl. 6, Fagurhólsmýri
mældi 14 stiga hita og hjer í
Reykjavík var 14 stiga hiti.
Ut af Vestfjörðum hefur und
anfarna daga verið mjög hvöss
norðaustlæg átt. í fyrradag var
t. d. 11 vindstig, skammt út af
Vestfjörðum. Skeyti um þetta
barst frá danska Grænlandsfar-
inu Gustav Holm, er þar Var
statt.
Fjögurárfrá
uppgjöf Japana
LONDON, 2. sept. — í dag eru
fjögur ár liðin frá því Japanir
undirrituðu uppgjöf sína um
borð í bandaríska orustuskip-
inu ,,Missoury“. — Var þess
minnst með hátíðlegri athöfn í
skipinu, en það er nú statt á
Atlantshafi á leiðinni frá Frakk
landi til Cuba.
Forsætisráðherra Japana
flutti í morgun útvarpsræðu í
tilefni dagsins. Sagði hann, að
þjóðin yrði að leggja áherslu á
að verða sem fyrst sjálfbjarga
á nýjan leik. Hann talaði og um
nauðsyn þess, að útflutnings-
verslun Japana yrði aukin.
Hýr ðierráðsforingi
JOSEPH LAVVTON COLLINS
hershöfðingi, sem hefir verið
skipaður herráðsforingi Banda-
ríkjahers í stað Bradley’s.
Ágúsf var mikili
rigningamánuður
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Veðurstofunni, var meðalhiti
hjer í Reykjavík 10,1 stig í
ágústmánuði og er það lítið eitt
lægra, en hið venjulega hitá-
stig þess mánaðar, sem er 10,5
stig.
Óvenjulega mikið rigndi hjer
í ágúst og mældist úrkoman 9
cm. og er það fjórum cm. meiri
úrkoma, en venjulegt er í ágúst
mánuði.
Norður á Akureyri varð
meðalhiti ágústmánaðar lítið
eitt hærri, en venjulegt er, eða
9,5 stig, en venjulegur hiti er
9,2. — Urkoman mældist 3 cm.
og er það einum cm. minni úr-
koma en venjulegt er þar um
slóðir í ágústmánuði.
Svifblys eyðilagt
við Næfurholl
í GÆR var svifblys eyðilagt
austur hjá Næfurholti, en blys-
ið var virkt og varð mikil
sprenging í því, er Þorkell
Sveinsson eyðilagði það.
Svifblys voru notuð á stríðs-
árunum, til þess að lýsa upp
staði er sprengjum skyldi varpa
á. — Var þetta blys álíka stórt
um sig og þriggja pela flaska.
Piltarnir í Næfurholti höfðu
fundið það alllangt frá bænum,
um einnar klst. ferð á hestúm.
Gerðu þeir, eins og fólki ber,
þegar það finnur slíkar víg-
vjelar, lögreglunni aðvart um
fundinn.
Þegar Þorkell Steinsson lög-
reglumaður, sem eyðilagt hef-
ur mikinn fjölda af sprengjum,
sprengdi svifblys þetta heyrðist
sprengingin heim að Næfur-
holti.
130 fonna fiugfátur í
reynsluflugi
LONDON, 2. sept. — Hinr. 130
tonna breski flugbátur Braba-
son I var í dag dreginn út úr
flugskýli sínu í Bristol. Loka-
rannsókn fer nú fram á flug-
bátnum, áður en hann verður
reyndur í lofti. — Reuter.
Jppeldisfræðileg
leiðbeiningaslofnun
>R. MATTiIjlAo jONASSON
iefur. opnað uppeldisfræðilega
annsóknar- , qg leiðbeininga-
krifstofu í rann óknárstofu
■inni í Melaskóla. Ætlunin er
að rannsaka börn. sem að ein-
hverju leyti þykja afbrígðileg,
ivort sem er vegna erfiðleika í
iámi,: óvcnjuiegra gáfna eða
annara vandamála i ú.ppeldinu,
>g ao veiia lorefarum hagnýt-
ir lciðbeiningar og aðstoð.
Erlendis eru slikar leiðbein-
*hgastofnanir algengar, og leita
i’oreldrar til þéirrá á svipaðan
liátt og til heil.suverndarstöðva
og lækna. Þett.a er fyrsta til-
raunin með slíka stofnun hjer
á landi og virðist hún fyllilega
tímabær. Þröngbýlið skapar
ávallt margvísleg uppeldisleg
vandamál, sem foreldrar einir
fá ekki ráðið fram úr, nema
með aðstoð sjerfræðinga, en
hinsvegar hefur uppeldisvísind-
unum fleygt fram á síðustu ára-
tugum. Sú þekking má ekki
liggja ónotuð. Með nákvæmni
og skilningi má greiða úr ýms-
um uppeldislegum vanda, ef
það er aðeins reynt í tíma og
rjett á málinu tekið. En oft
leiða erfiðleikar, sem í fyrstu
virtust smávægilegir, til mik-
illa vandræða og jafnvel ógæfu.
af því að þeim var ekki sinnt
strax eða beitt var rangri að-
ferð.
„Slæmur agi" meðal
ungverskra verka-
manna
BUDAPEST, 2. september.
Varaforsætisróðherra Ung-
verjalands, hefur skýrt frá
því, að mjög hafi dregið úr
afköstum verkamanna þar í
landi. Hefur kveðið svo
rammt að þcssu, að ástandið
er orðið alvarlegt.
V araforsætisráðherrann
kenndi því um, að slæmur
agi væri meðal verka-
manna. — í því sambandi
skýrði hann svo frá, að yfir
þúsund verkamenn hefðu
verið gerðir að forstjórum
verksmiðjanna, sem þeir
unnu í, en með þeim árangri
einum, ,að þeim hefði til
þessa gengið illa að fá vinnu
fjelaga sína fyrverandi til
að hlýða fyrirskipunum sín-
um. — Reuter,
Engin sulfa fæsl ]
í veifingahúsum !
VEITINGAMENN, að minsta
kosti þeir, sem eru fjelagar í
Sambandi veitinga- og gisti-
húsaeigenda, munu ekki hafa
súltur á borði fyrir gesti sína I
náinni framtíð. Ástæðan er sú,
að skömmtunaryfirvöldin hafa
neitað veitineamönnum um
aukaskammt af sykri til sultu-*
gei'ðar.
I frjett frá sambandinu segir
á þessa leið:
„Sambandið ritaði skömmt-
unarstjóra 22. ágúst s. 1. Og
óskaði eftir því, að meðlimum
þess yrði veittur aukaskammt-
ur í þessu skyni, 2 kg. fyrir
hvert 1 kg. af kaffi, sem þeim
var úthlutað meðan það var
skammtað. Var kaffiskammtur-
inn mjög naumur, eins og öll-
um er kunnugt, þannig að ekki
hefði verið um mikið magn af
sykri að ræða“.
„Hefir sambandinu nú borist
brjef frá skömmtunarstjóra,
þar sem hann tilkynnir, að Við-
skiptanefndin hafi synjað þessu
erindi. Ekki eru tilgreindar á-
stæður fyrir neituninni, nje
heldur boðið minna magn em
um var beðið“.
„Þar sem veitingamönnum
hafa heldur ekki verið veitt
nein gjaldeyris- og innflutnings
leyfi fyrir sultu, þykir þeim
leitt að þurfá að tilkynna gest-
um sínum, að þeir geti ekkl
vænst þess að fá sultu fram-
reidda“.
Vsður fór batnandi
FRJETTARITARI Mbl. á Rauf-
arhöfn símaði í gærkveldi, að
veður fari batnandi á Austur-
svæðinu, en þar hefur verið ó-
hagstætt veður til síldveiða síð-
ustu tvo sólarhringa.
Frjettaritarinn sagði að þang
að hefðu komið átta skip með
síld, og lönduðu þau alls 1000
málum síldar til bræðslu. —•
Þá voru í höfninni 25 síldve' ri-
skip, er öll biðu þess að sjó
lægði.
Ándspyrnu lokið í
Oberhausen
DUSSELDORF, 2. sept. —
Skýrt var frá því í dag, að nið-
urrif verksmiðja þeirra í Ober-
hausen, sem Þjóðverjar mót-
mæltu harðlega hjer á dögun-
um, verði hafið n. k. mánudag.
Breskt herlið tók verksmiðj-
ur þessar á sitt vald í gær, þeg-
ar starfsmennirnir höfðu sýnt
niðurrifinu mótþróa, en hvarf
á brott, er lofað hafði verið að
til frekari andstöðu skyldi ekki
koma. — Reuter.