Morgunblaðið - 13.09.1949, Page 1
16 síður
36. árgangur.
208* tl)l. — Þriðjudagur 13* september 194-9-
Prentsmiðja Morgunblaðsins
IVJósnari í rússnesku
naóðurskipi aðstoður
við landhelgisbrot
r
Islenskir sjómenn hindra að rússneskum
skipum verði komið undan
Á SUNNUDAGINN tók varðskipió Faxaborg. fjögur rússnesk
skip austur á Bakkaflóa við Langancs, eftir sögulega viðureign.
Frjettaritari Mbl. á Seyðis-®*-
firði símaði blaðinu þetta í gær.
Rjettarhöld í mál skipstjór-
anna gátu ekki farið fram í gær
þar eð enginn gat skilið þá þar
eystra og þarf að senda túlk
hjeðan.
Túlkurinn komst ekki til
Seyðisfjarðar í gær, vegna þess
að fiugveður var óhagstætt.
Þórarinn Björnsson skipherra
á Faxaborg, sagði frjettaritar-
anum, að skipin hefðu öll verið
innan landhelgislínunnar. Þrjú
hefðu verið að veiðum, en hið
fjórða fór inn fyrir línuna til
þess að reyna að bjarga einu af
skipunum út fyrir, áður en varð
skipið kom, en þetta mistókst og
vöru öli skipin fjögur tekin.
Nánafi fregnir.
í gærkvöldi hafði frjettarit-
ari Morgunblaðsins á Siglufirði
tal af síldveiðimönnum, sem
voru austur við Fagranes við
Bakkaflóa á sunundag og fylgd
ust með því, sem þar gerðist.
Þeir sögðu frjettaritaranum
svo frá:
Islensk síldveiðiskip voru
allmörg stödd á Bakkaflóan-
um á sunnudagsmorgun, er
skipshafnir þeirra urðu þess
varar að þrjú rússnesk síld-
veiðiskip sigldu þar upp undir
land og köstuðu þar nótum
sínum. Rússneskt móðurskip
var þarna álengdar utan línu.
Skeyti sent til Faxaborgar.
Það var kunnugt á íslensku
skipunum, að varðskipið Faxa-
borg var þar skammt frá. Var
þess vegna sent skeyti frá einu
af skipunum, til Faxaborgar,
og skipstjóra hennar tilkynnt
um hin erlendu veiðiskip, sem
voru þarna að veiðum í land-
helgi.
En svo brá við, að skeytið
var ekki fyrr sent, er liraðbát-
ur kom úr sömu ált og móður-
skipið til rússnesku veiði-
skipanna er voru innan línunn-
ar, og tók að draga eitt þeirra
frá landi. En skipin, sem í
landhelgi voru, voru ekki sigl-
ingafær af því nætur Jieirra
voru úti og festar í skipin. —
Þetta viðbragð virtist ekki geta
átt sjer aðra orsök en þá, að
maður, sem skilur íslensku
hafi heyrt skeytið, sem sent
var Faxaborg.
Samtölc íslensku
sjóniannanna.
Er sást til ferða hraðbátsins
frá hinum íslensku veiðiskipum
og sjeð var hvað hann var að
gera, að hann átti að sjá til,
að rússnesku skipin væru
komin út fyrir ,,línu“, áður en
varðskipið bæri þar að, þustu
íslensku skipin, er þarna voru
nálægt, á vettvang hvert þeirra
sem betur gat, og voru á
skömmum tíma komin þar ein
sextán að tölu.
Sigldu þau svo fyrir hrað-
hátinn, að útrás lians úr land-
helginni tafðist, svo þarna hófst
að heita mátti ,,köld sjóor-
usta“, er varð til þess, ap Faxa
borg kom að öllum hinum rúss
nesku veiðiskipum innan land-
helgislínu. En þegar sást til
Faxaborgar forðaði hraðbátur-
inn sjer til hafs.
Fjármálaráðslefnan í Washington
„Dollarabilið“ brúað fyrir 1952
van Zeeland
Sýna mótþróa.
Er Faxaborg kom til rúss-
nesku veiðiskipanna sýndu
skipstjórnarmenn þeirra
þrjósku fyrst í stað, svo varð-
skipið skaut aðvörunarskoti og
setti síðan gæslumann um borð
í eitt þeirra.
Er skipstjórnarmenn rúss-
nesku veiðiskipanna höfðu
'beygt sig fyrir varðskipinu,
skýrðu skipstjórar íslensku síld
Framh. á bls P
PAUL van ZEELAND. utan-
ríkisráðherra Belgíu, sem hefir
verið kjörinn formaður efna-
hagssamvinnustofnunarinnar í
stað Spaak’s. ,
Fjórði hlufi úlyjaldanna
lil hernaðar
RANGOON, 12. sept. — Gert er
ráð fyrir um 140 milljón sterl-
ingspunda halla á fjárlögum
Burrna. Frá þessu var skýrt
hjer í dag, og um leið að um
fjórði hluti ríkisútgjaldanna
mundi fara til hernaðarþarfa, í
sambandi við uppreisnarástand
ið, sem nú ríkir í landinu. —
Komið verði á jafn-
vægi milli sterlings-
og dollarasvæðanna
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reutcr.
WASHINGTON, 12. sept. — Fjármálaráðherrar Bandaríkjanna,
Bretlands og Kanada tilkynntu í dag, að menn gætu gert sjer
vonir um, að „fullnægjandi jafnvægi“ milli sterlings og dollara-
svæðanna yrði komið á fyrir 1952. í tilkynningunni sem ráð-
herrarnir gáfu út, var getið tíu leiða, sem styðjast á við, til þess
að brúa dollarabilið milli þess, sem Bretland kaupir frá dollara-
svæðinu og selur því. í áætluninni er meðal annars vikið að
rotkun erlends fjármagns, hráefnasöfnun Bandaríkjamanna frá
sterlingsvæðinu, innkaupum fyrir fjárframlög Marshalláætlun-
arinnar, tollum, vöruflutningum með skipum og fleiru.
„Dollaraáætlunin“
Til þess að hefja framkvæmd
Hitabylgja á Norður-ir t
8 ■ ir í tilkynnmgu fjarmalarað-
herranna, hefur og verið geng-
ið frá samkomulagi um bráða-
birgðaaðgerðir, sem hafnar
verða þegar í stað.
MIKIL hlýindi eru nú um Norð
urland og Austur, svo mikil að
óvenjulegt er á þessum tíma
árs. Norður á Dalatanga náði
hitastigið 26 stigum í gær, en
jafnmikill hiti mældist suður í
Hollandi. A Norðurlöndunum
mun hafa verið frá 10 til 18
stiga hiti í gærdag.
Hitinn Norðanlands og Aust-
an var í gær yfirleitt 16 til 18
stig, en vindur er hvass sunnan
og suðaustan.
Tékkneskir ka|Dólikarsendastjðrn-
arvöldum komma úrslitakosti
Krefjasi frúfrelsis og mólmæla afskiftum
yfirvaldanna af málefnum kirkjunnar
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
RÓMABORG, 12. sept. — Útvarpið í páfagarði skýrði frá því í
dag, að kaþólska kirkjan í Tjekkóslóvakíu hefði nú sent stjórnar-
völdunum þar úrslitakosti í deilunni, sem verið hefur á milli
hennar og kommúnistarstjórnarinnar. Eru liðnir nokkrir dagar
síðan kaþólsku þiskuparnir í Tjekkóslóvakíu sendu kommún-
itunum tillögur sínar um lausn deilunnar.
<&-
Trúfrelsis krafist. *
í orðsendingurini er afskiftum
kommúnista af tjekknesku
kirkjunni harðlega mótmælt. Þá
er farið fram á það, að trygg-
ing verði gefin fyrir endurreisn
trúfrelsis í landinu, og þess kraf
ist, að hætt verði að leggja
hömlur á athafnafrelsi Berans
erkibiskups í Prag.
Áframhaldandi ofsóknir.
Frá Prag herma fregnir hins-
vegar, að kommar haldi áfram
ofsóknum sínum á kaþólika, —
hafi meðal annars mjög skert
frelsi erkibiskupsins á Mæri, en
hann er annar æðsti maður ka-
þólsku kirkjunnar í Tjekkó-
slóvakíu.
Lögregluvörður er nú iim bú-
stað hans og leynilög'reglumenn
fylgja honum, þegar hann fer
út.
Danir undrandi yfir
árangri Sslendinganna
Frá frjettaritara Mbl.
K.HÖFN, 11. sept. —
íþróttafrjettaritari Politiken
skrifar um íþróttamótið í
Stokkhólmi og hrósar mjög
frammistöðu Islendinga þar.
Hann segir meðal annars, að
laugardagurinn hafi fvrst og
fremst verið dagur Islands.
Talar hann um, að ótrúlegt
sje hve góðir íþróttamenn
komi frá ekki stærra landi
en Islandi. „Og með sínum
138,000 íbúum er líklcgt, að
Island myndi vinna Ðan-
mörku í frjálsíþróttakeppni
og standa Finnlandi og Nor-
egi jafnfætis“, segir íþrótta-
frjettaritarinn að lokum.
—Páll.
„Aðalpunktar“
Hjer fara á eftir „aðal-
punktar“ áætlunarinnar:
1) Notkun erlends fjár-
magns. — Bretar, Banda-
ríkjamenn og Kanadamenn
munu reyna að stuðla að
því, að bandarískir einstakl
ingar leggi fram fje til
framkvæmda erlendis.
2) Hráefnasöfnun. —
Kanadamenn eru reiðubún-
ir til að auka varabirgðir
sínar af tin og gúmmi-
Bandaríkin munu „endur-
skoða birgðasöfnunaráætlun
sína. . .“
3) Tollar. — Bæði Banda-
ríkin og Kanada gefa yrir-
heit um að endurskoða tolla
löggjöf sína, til þess að auð-
velda innflutning erlendrar
vöru.
4) Sterling-skuldir. —
Bandaríkin og Kanada lofa
að „rannsaka nánar“ það
vandamál, sem skuldir
Breta við aðrar þjóðir hafa
í för með sjer.
5) Marshallaðstoðin. —
Bretar fá aukið frjálsræði
til þess að nota þá dollara,
sem þeir fá samkvæmt
ivfarshallaðstoðinni.
i
„Herráð“
í samkomulagi fjármálaráð-
herranna er loks gert ráð fyrir~
því, að Bretar, Badaríkjamenn
og Kanadamenn stofni nokkurs
konar ráð í Washington, sem
starfa mun á fjáTmálasviðinu.
Frjettamenn hjer í Washing-
ton líkja því við herráð banda-
manna á styrjaldarárunum.