Morgunblaðið - 24.09.1949, Qupperneq 16
VEÐURÚTLIT — FAXAFLÓI:
S-sa-gola eða kaldi, en úrkomu-
lítið. Snýst i vaxandi Sa- og A-
átt í kvöld.
NORRÆN paradís í Helsinj
fors.
Sjá grein eftir Þorbj.
Guðmundsson á 5. síðu.
218- tbl. — Laugardagur 24. september 1949.
Hótel Borgarnes
fsrennur til ösku
Hófelið varð alelda á svipsíundu
EITT STÆRSTA hús Borgarness,. Hótel Borgarnes, brann til
ösku á skammri stundu um hádegisbilið í gær. — Margt fólk
var í hótelinu er eldurinn kom upp, en það komst allt út ó-
meitt. — Litlu tókst að bjarga af innanstokksmunum, eða
öðru sem þar var inni.
Sigursæll knatlspyrn uf lokkur
Um upptök eldsins er ókunn-*^
ugt. Því var veitt eftirtekt um
kl. 12,30, að eldur stóð út um
glugga í rishæð hótelsins. Það
var tvílyft, portbygt hús, með
háu risi og voru þar nokkur
gestaherbergi, en hótelið gat
hýst milli 20—30 næturgesti.
Húsið alelda á
svipstundu.
Eldurinn hefur farið með
leifturhraða um húsið. Á fá-
einum augnablikum var það
orðið alelda. Margt gesta var
þá í veitingasal hótelsins, enda
matmálstími. Gestirnir komust
allir út ómeiddir og um leið
og þeir fóru úr salnum, tóku
þeir með sjer húsgögn og ann-
að úr veitingasalnum. Einnig
tókst að bjarga einhverju smá-
vegis af miðhæðinni. — Oðru
tókst ekki að bjarga og missti
forstjórinn, nokkuð af eignum
sínum, starfsfólk hótelsins, 10—
12 manns, missti alt sitt, en það
bjó í hótelinu.
Næstu hús í hættu.
Slökkviliðið kom á brunastað
inn innan stundar. Var þá ljóst,
að tilgangslaust var að ætla sjer
að bjarga hótelinu. Nærliggj-
andi hús voru í hættu. þó logn
væri, og var því lögð áhersla
á, að verja þessi hús. Á þær
Rliðar húsanna, er sneru að eld-
hafinu, voru breidd segl, en
.síðan dælt vatni á þau. — Á
þennan hátt tókst að forða hús-
unum frá nokkrum verulegum
skemdum. I einu þeirra munu
þó rúður hafa sprungið vegna
hitans frá eldinum.
Brann á 1 klst.
Sem fyrr segir, varð Hótel
Borgarness alelda á skammri
stundu, en húsið var úr timbri,
járnvarið. Grunnflötur þess var
um 160 ferm., með tilheyrandi
útbyggingum. — Er klukku-
stund var liðin frá því eldsins
varð vart, var húsið hrunið að
grunni, en fram eftir degi. log-
aði í rústum þess. Hótelið var
byggt 1906, en síðan hefur það
bæði verið stækkað og endur-
byggt.
Tilfinnanlegt tjón.
Bruni þessi hefur ekki aðeins
í för með sjer tjón fyrir eiganda
þess, Ingólf Pjetursson,heldur
og fyrir kauptúnið í heild. —
Hótelið var tryggt hjá Bruna-
bótafjelagi Islands og innan-
stokksmunir og annað, er við-
kemur rekstri hótelsins, var
tryggt fyrir aðeins um 40 þús.
kr.
2000 vilja fá ísskáp
í heimilið
í FYRRADAG byrjaði Raf-
tækjaverksmiðjan Rafha í Hafn
arfirði, að taka á móti pönt-
unum á ísskápum þeirri, sem
verksmiðjan er nú að hefja
framleiðslu ár.
Samkvæmt upplýsingum frá
verksmiðjunni, höfðu í gær
borist um 2000 umsóknir frá
Reykjavík, Hafnarfirði, og úr
næsta nágrenni bæjarins.
Verksmiðjan hefur nú fyrir-
ligjandi efni í um 500 ís-
skápa.Oráðið er, eftir hvaða
reglum verður farið, um út-
hlutun ísskápanna.
Tónleikar á Akureyri
BJÖRN ÓLAFSSON heldur
fiðluhljómleika á Akureyri í
byrjun næstu viku, með aðstoð
Árna Kristjánssonar.
Hvorirtveggja hljómleikarn-
ir eru haldnir á vegum Tón-
listarfjelags Akureyrar fyrir
styrktarfjelaga þess og gesti.
Munu Akureyringar fagna
því, að þeim gefist nú kostur
að njóta listar svo ágætra lista-
manna.
Verslun Turkestan.
SHRINAGAR — Nýlega kom
stór hópur kaupmanna frá Tur-
kestan með yak-uxalestir sínar
til Shrinagar í Kashmír. Vilja
þeir hefja á ný verslun við Ind-
land, sem fallið hefur niður í
nokkur ár. Þeir selja ull, en
kaupa aftur m. a. steinolíu.
Lítil veiði
4,»
LÍTIL sem engin síldveiði var
í gær á Grímseyjarsundi.
Flugvjel var send til að leita
síldar. — Sáust úr henm nokk-
ur ,,síldaraugu“ á sundinu. —-
Skip, sem var á þessum sióðum
kastaði. — t fyrrn kasti fiekk
það 10 tunnur síldar, en í síð-
ara 20 tunnur. Gott veður var á
miðunum.
Frjettaritari Mbl. segir, áð
enn bætist við síldveiðiskipa-
flotann.
KNATTSPYRNUFJELAG strætisvagnabílstjóra hefur alls kenpt j
i 10 leikjum í sumar við knattsp.yrnumenn annara fyrirtækja íj
bænum. Af þessum leikjum hafa þcir unnið fimm, gert þrjú 1
jafntefli og tapað tveimur leikjum. — Strætisvagnabílstjórar
hafa í þessum leikjum skorað 27 mörk, en fcngið 12. — Hefur I
mikill áhugi ríkt meðal strætisvagnabílstjóra fyrir íþróttinni.
Þeir ljetu gera sjer íþróttabúninga í litum strætisvagnanna, rautt
og hvítt, með merkinu SVR á peysubrjóstinu, eins og sjest hjcr
á myndinni, sem er af knattspyrnuliðinu.
r
Armann vann Oslo-liðið, en
fapaði fyrir Sfokkhólmi
HANDKNATTLEIKSFLOKKUR Ármanná, sem tekur þátt í
b andknattleikskeppni milli hinna norrænu höfuðborga, sem
fram fer í Stokkhólmi, vann Osló-liðið, en tapaði fyrir Stokk-
hólmsliðinu í fyrrakvöld.
"®Á leið til Finnlands
Handknattleiksflokkurinn
Súðin væntanleg
hingað í kvöld
UM KLUKKAN 10 í kvöld er
Súðin væntanleg hingað til
Reykjavíkur, úr Grænlandsleið
angri sínum. Er nú aðeins eitt
skip úr leiðangrinum við Græn
land, vjelskipið Elsa frá Rvík,
sem ætlar að vera þar uns skip
ið hefir fullfermi.
í samfloti með Súðinni er
Hafdís frá ísafirði, en auk þess
koma með Súðinni, áhafnir
trillubátanna.
Súðin fór hjeðan frá Reykja-
vík 11. júlí síðastl til Græn-
lands.
Utankjörstaðakosn-
ing hefst á rnorgun
Á MORGUN, sunnudag, 25.
okt., hefst utankjörstaðakosn-
ing hjá borgarfógeta, Tjarnar-
götu 4, og verður þann dag að-
eins frá kl. 2—4 e. h.
Sjálfstæðisfólk! Allar upp-
lýsingar um utankjörstaðakosn
ingu fáið þið á kosningaskrif-
' stofu flokksins í Sjálfstæðishús
linu (uppi), sími 7100.
fór fyrir nokkrum dögum síð-
an, en ferðinni er heitið til
Finnlands, en þangað var hon-
um boðið. — Sænska Hand- j
knattleikssamb. á 15 ára afmæli
um þessar mundir. og í því sam
bandi, efndi það til handknatt-1
leikskeppni milli höfuðborg-1
anna á Norðurlöndunum. Þó
skal það tekið fram, að Ármenn
ingarnir keppa ekki sem lið
Reykjavíkur á mótinu, heldur j
sem gestir hins sænska Hand-
knattleikssambands.
Iljeraðsmót Sjálfstæðismanna
í Stykkishólmi á morgun
Síðara hjeraðsmótið í Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslu.
SJÁLFSTÆÐISMENN í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu efna
til hjeraðsmóts í Stykkishólmi á morgun og hefst þar kl. 4 síðd.
— Fyr í sumar var haldið hjeraðsmót Sjálfstæðismanna í sýsl-
unni að Hofgörðum og var það afar fjölsótP'og myndarlegt mót.
Á hjeraðsmótinu í Stykkis-®*-
hólmi flytja þeir ræður. Sigurð-
ur Ágústsson, frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins í kjördæm-
inu, Gunnar Thoroddscn, borg-
arstjóri og Ólafur Thors, for-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Þá verður söngur og önnur
skemmtiatriði og dansað um
kvöldið.
Má vænta þess, að þetta mót
verði ekki síður vel sótt en í
sumar, enda ríkir enn mikill og
einbeittur áhugi Sjálfstæðis-
manna fyrir því að styðja kröft-
uglega kosningu Sigurður Á-
gústssonar, sem nýtur óvana-
legra vinsælda og hins mesta
trausts hjeraðsbúa.
Jazz-hljómleikar
í Breiðfiringahúð
í DAG (laugardag) kl. 3,15
og framvegis annan hvern laug
ardag, verður „Jam session“ í
Breiðfirðingabúð, sem Jazz-
blaðið gengst fyrir. Á „Jam
sessionum" þessum munu jazz-
leikarar koma fram og sýna
getu sína og eru þetta með
rjettu óundirbúnir hljómleikar.
Yfir tuttugu jazzleikarar munu
leika þarna í dag, og verður
þar skipa niður í fimm litlar
hljómsveitir. Meðal þeirra sem
leika, má nefna: Björn R. Ein-
arsson, Baldur Kristjánsson,
Gunnar Ormslev, Ólaf Pjeturs-
son og Vilhjálm Guðjónsson, en
þetta eru allt mjög góðir jazz-
leikarar.
Sigur Ármenninga og tap
Mótið hófst í fyrrakvöld. — ’
Fyrsti leikur þess var á milli
Stokkhólmsborgar-Iiðsins og
Islands- og Reykjavíkurmeist-
aranna í handknattleik, Ár-
manns. — Leikar fóru svo í
þessari keppni, að Svíarnir
unnu með 12 mörkum gegn
fjórum. — í seinni hálfleik
skildu liðin jöfn að marka-
tölu, 3:3.
Síðan kepptu Ármenningarn-
ir við lið Oslo-borgar. — Þann
leik unnu Ármenningar. Senni-
lega hefir þetta verið mjög
harður leikur, því leikar fóru
svo að Islendingarnir unnu
með 6 mörkum gegn 5.
Önnur úrslit
Önnur úrslit á mótinu urðu
sem hjer segir: Kaupmanna-
höfn vann Helsingfors með 19
mörkum gegn 9, Höfn vann
Oslo með 12 gegn 5; þá vann
Stokkholm Helsingfors með 10
gegn 3 mörkum.