Morgunblaðið - 04.01.1950, Síða 8

Morgunblaðið - 04.01.1950, Síða 8
8 MORCUNBLAÐIÐ • Miðvikudagur 4. jan. 1950. I Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með LesbóS. kr. 15.00 utanlands. Framsökn og íjárfesting ÞAÐ ER STEFNA núverandi ríkisstjórnar að dregið verði úr fjárfestingu hins opinbera og fjárfestingunni almennt stillt í hóf. Á það hefur verið bent, að hin gífurlega fjár- festing, sem verið hefur, á ekki rjett á sjer, meðan atvinnu- vegir landsmanna eru reknir með tapi og fjárfestingin bygg- ist hvorki á góðri afkomu þeirra nje sparifjáreign lands- manna. Þegar hvorugt þetta er til staðar verður hin mikla fjárfesting fyrst og fremst til þess að auka á dýrtíðina, vöru- skort og erfiðleika atvinnuveganna almennt. ★ Framsóknarflokkurinn hefur ásakað Sjálfstæðismenn fyrir þessa stefnu og telja takmörkun fjárfestingar nú í ósam- ræmi við nýsköpun þá, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði forgöngu um og Framsókn barðist á móti. Markmið nýsköp- unarinnar var beinlínis að afla íslendingum stórvirkra at- vinnutækja og verja til þess innistæðum þeim, sem íslend- ingar áttu þá erlendis. Þá var um að ræða fjárfestingu sem fcyggðist á sjóðum, sem voru til, og atvinnuvegum, sem þá voru reknir ’iallalausir. Það er auðvelt að gera sjer í hugar- lund, hvað hefði orðið um innistæður íslendinga erlendis, ef ekki hefði verið hafist handa um nýsköpunina. Allar inni- stæður og sjóðir hefðu farið til að borga taprekstur seinni ára og ekki einu sinni orðið til þess, að hægt hefði verið að þola tapreksturinn eitthvað lengur. En vegna þess að ný- sköpunin varð að ráði, þá standa íslendingar betur að vígi, þegar draga þarf úr fjárfestingunni vegna vaxandi dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna. ★ Blöskri Framsóknarmönnum hins vegar fjárfesting ný- sköpunarinnar, þegar skilyrði til fjárfestingar voru þó fyrir hendi í megmatriðum, þá hefði mátt vænta sterkrar lið- veislu Framsóknarflokksins, þegar fyrrverandi stjórn, sem flokkurinn átti fulltrúa í, reyndi að draga nokkuð úr fjár- festingunni, eftir að skilyrði jafn stórstígrar fjárfestingar voru ekki lengur til staðar. En raunin úarð önnur. Framsóknarflokkurinn hefur ekki notað aðstöðu sína í fjárhagsráði til þess að draga úr fjárfestingunni, nema þá belst ef um er að ræða bráðnauðsynlegar íbúðabyggingar í Reykjavík. Hins vegar hefur Framsóknarflokkurinn sótt það með ofurkappi að fjárfestingarleyfi væru veitt, þegar þau fyrirtæki eiga í hlut, sem Framsóknarmenn telja sjer íjárhagslegan hag í að styðja. Þannig hefur Samband ísl. samvinnufjelaga haft stórkostlegar fjárfestingar með hönd- um, meðan óðrum hefur verið slíkt bannað. Nýlega hefur Sambandið lokið við stóra skrifstofubyggingu í Reykjavík. Ullarþvottastöð, sem kostar milljónir króna, byggja þeir á Akureyri. Hafin er bygging vörugeymsluhúss Sambandsins í Reykjavík, en Eimskipafjelagi íslands hefur um nokkur ár verið neitað um leyfi til að byggja slíkt hús. Frystihús hafa þeir nú fengið leyfi til að byggja í Reykjavík. Annað skip Sambandsins, Arnarfell, kom til landsins seint á fyrra ári, og nýlega hafa þeir fengið leyfi til að láta byggja þriðja skipið, frystiskip, sem kosta mun að minnsta kosti 5 mill- jónir króna. Þetta leyfi er veitt, þótt íslendingar eigi frysti- skip, sem geta flutt út á ári hverju tvöfalt magn íslenskrar frystiframleiðslu, þótt 50 millj. kr. samkvæmt útgefnum gjaldeyrisleyfum fáist ekki yfirfærðar í bönkunum vegna gjaldeyrisskorts, og þótt Eimskipafjelag íslands fái hvorki yfirfærslu á greiðslu ólokinna skulda vegna eldri skipakaupa sinna nje leyfi til að kaupa ný skip í stað Fjallfoss og Sel- foss, sem selja átti þó úr landi. ★ Framsóknarmönnum ferst illa að tala með, þegar rætt eif um fjárfestingu. Þeir eru á móti fjárfestingu, þegar skil- yrði hennar eru þó einna frekast fyrir hendi, en með fjár- féstingu, þótt skilyrðin sjeu alls ekki til staðar, ef það er aðeins fjárhagslegur ávinningur fyrir flokkinn. rar: XJíLuerji ólrija ÚR DAGLEGA LÍFINU Ekkert nýtt í soðið „ÞVÍ miður, ekkert nema fros- ið eða saltað“, er svarið, sem húsmæðurnar hafa fengið und anfarna daga hjá fisksölum bæjarins. Nýr fiskur sjest ekki og er ekki til skiftana, ef eitt- hvað lítilræði berst á iand. Og ekki stafar fiskleysið af gæftáleysi. Nóg er af fleytun- um. Hvorki skortir beitu nje veiðarfæri til að afla í soðið og fiskurinn er í sjónum. Það er bara af sem áður var ,,að fast þeir sæki sjóinn“ eins og kveðið var forðum um þá Suðurnesjamenn. • .< Langt frí OG ÞAÐ eru fleiri en fiski- mennirnir, sem taka sjer langt jólafrí um þessar mundir. í gærmorgun kom jeg í verk stæði hjer í bænum og spurð- ist fyrir um, hvort hægt væri að fá unnið lítið verk. Verkstæð iseigandinn var allur af vilja gerður. „Rn því miður verður það að bíða í nokkra daga enn- þá, því mennirnir eru ekki komnir úr jólafríinu“, sagði hann. „Jólafrí, eins og hjá börnun- um í skólunum?“ varð mjer að orði. „Ja. Það er nú ekki strangt tekið ætlast til þess. En þú veist hvernig það er?“ • Arar lagðar í bát ÞANNIG mun það vera nokkuð víða, að menn hafa lagt árar í bát. Kannski vegna þess. að þeir hafa ofreynt sig í jólaönn- unum. Eða þeir þurfa ekki að vinna. Hafa nóg í sig og á án þess að strita fyrir lííinu. Islenska þjóðin virðist ætla að taka sjer að einkunarorðum spakmælið: Hvíldu þig, því að hvíld er góð. Og ef einhver er með smá- smugulegar aðfinnslur vegna aðgerðarleysis, má minna á aðra setningu: Lítið til fuglana í loftinu, hvorki vinna þeir nje spinna. . Ef til vill getum við farið að þeirra dæmi. Miðsvetrarhrein- gerning EN ÁÐUR en við verðum öll að einni stórri Bakabræðrafjöl- skyldu dettur mjer í hug lítið verk og löðurmannlegt, sem envan ætti að þreyta um of, en það er að bæjarbúar geri hjá sjer miðsvetrarhreingerningu utan húss. Undan snjónum heíir komið kynstur af rusli í görðum manna. Brjefarusl í hrúgum, og spítnabrak, eins og menn geta sannfærst um er þeir ganga um bæinn. Ljettir vorverkin ÞAÐ ER ekki að vita hvernig bað legst í menn í vor, að hreinsa til hjá sjer og með því að taka þessu lítilræði tak nú. verður að minsta kosti auðveld ara að vinna vorhreingerning- arnar. Meira að segja væri hægt að fá börn og unglinga til að vinna þetta verk víðasthvar. —- En þetta þyrfti að gera nú, á með- an jörð er auð. Heppileg ráðstöfun BIFREIÐAEFTIRLIT ríkisins hefir undanfarið látið fara fram aukaskoðun á bifreiðum, fyrir varalaust. Kallað til sín bifreiða eigendur með brjefi og skoðað bifreiðar þeirra í krók og kring til þess, að fullvissa sig um, að öryggisútbúnaður sje í lagi. — Þetta er heppileg ráðstöfun og nauðsynleg. Bifreiðaeigendur, sem einhvern skilning vilja hafa. þakka ráðstöfunina sjálf ir, því síst er það í beirra þökk, að bifreiðar sjeu í ólagi. • En ekki bólar á merkjunum HINSVEGAR hefir staðið á bif- reiðaeftirlitinu, eða þeim mönn um, sem eiga að hugsa um skrá setningu bifreiða, að láta gera nýju númerin, sem lofað var. Þó munu hafa verið leitað tilboða í númerin, reglugerð gef in út og annað, sem þurfti. A hverju stendur, vita menn ekki gjörla, enda virðist sem lítill áhugi sje hiá ákveðnum mönnum fyrir þessu þarfamáli. Nýju bílanúmerin var eitt af þeim þarfamálum, sem áttu að komast í gegn á árinu sem leið, en þrjóskast var við að fram- kvæma. Skyldi þeim duga árið, sem nú er að hefjast til að framkvæma það? | MEÐAL ANNARA ORÐA .... | ■ I ........................................IIIIIIIIIIMIMIMIIb " „Margl er sjer til gamans gerf. Eftir frjettamann Reuters. MONS, Belgíu: — í birtingu dag hvern er morgunkyrrðin rofin á óvæntan hátt í ýmsum borgum og þorpum Suður- Belgíu. Og það sem rumskar við mönnum, er hanagal — hundruð hana gala hver í kapp við annan. Við erum uppi á þeim tímum, þegar hanagal er lenska og er jafnvel orðin eftirlætisdægra- dvöl verkamanna í þeim hjer- uðum Belgíu, þar sem franska er töluð. Hefir svo verið, síðan lögreglan herti róðurinn gegn óleyfilegu hanaati. • • FYRIR DÖGUN Á HVERJUM sunnudegi, löngu fyrir dögun hverfa þúsundir eigenda hinna „galandi hana“ frá heimilunum sínum. Þeir eru rúsknir og ánægðir, þar sem þeir bera með sjer eftirlætis fuglinn sinn vendi- lega geymdan í tjölduðu búri. Þar sena keppnin fer fram, leggur eigandinn fugl sinn frá sjer í kyrplátt og rokkið skot og gengur síðan frá þeim atrið- um, er þarf áður en keppni hefst. Keppnin er í því fólgín, að eigandinn giskar á, hve oft haninn gali á þeim hálftíma, sef keppnin stendur yfir. Sá haninn, sem gelur í bestu sam- ræmi við ágiskan eiganda síns, telst hafa unnið keppnina. • • STAÐFÖSTU HAN- ARNIR BESTIR SJERFRÓÐIR menn um þessi mál segja, að sumir hanar geti galað 60 sinnum á hálftíma. Menn vita jafnvel til, að hanar hafi galað 150 sinnum á þeim tíma. Staðföstu hanarnir eru bestir að viti sjerfróðra manna. „Til að mynda“, sagði einn þeirra við mig, ,,á sá hani vísa leið á höggstokkinn, sem gól 100 sinnum á hálftíma í vikunni, er leið, gelur 60 sinnum í þess- ari viku og 150 sinnUm í næstu viku“. • • MARGIR í DÓMNEFND KFPPNIN fer fram með við- höfn og eftir settum reglum. Þegar gengið hefir verið frá þátttökuatriðunum, er hönun- um stillt upp í búrum sínum í röð með fram vegg. Fjölmarg- ir dómarar, eða einn á hverja 2 hana, sitja umhverfis og gefa hönunum gaum. Hverju sinni, sem hani gel- ur, er merkt á hans spjald. Á- horfendur segja, að nóg sje að horfa á andlit eigendanna til að fá vitneskju um, hvernig han- anum hans farnast. • • VERÐLAUN VEITT Þegar keppnin er um garð gengin, stíga eigendur sigurveg aranna fram og hirða vinning- ana. Þeir láta þá ekki undir höfuð leggjast að kjassa hana sína eins og veðhlaupagæðing- ar ættu í hlut. Keppninni er lokið, sigurveg- arar og þeir, sem lutu í lægra haldi, fara þá venjulega til næsta veitingahús til að sóa vinningunum sínum. Hanarnir eru með í förinni væntanlega til að taka þátt í fagnaðinum. Sumir dúfnadýrkendur á þessum slóðum selja nú dúf- urnar umvörpum til að kaupa sigursælan gólhana. Þessi nýja íþrótt er miklu meir æsandi en kappflug dúfnanna að þeirra sögn. Byggingafjel. verða að hafa fengið leyfi fjármálaráðu- neytisins FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur tilkynnt, að ríkisábyrgð samkvæmt heimild í lögum, verði framvegis ekki veitt nýj- um byggingasamvinnufjelög- um eða nýjum byggingaflokk- um eldri byggingasamvinnufje laga, nema að fyrir liggi fjár- festingaleyfi til framkvæmda og að fjelögin geti gert grein fyrir möguleikum um stofn- framlög og lánsútvegun, sem svo fjármálaráðuneytið vill samþykkja. Þau byggingasamvinnufjelög sem njóta vilja slíkrar ríkis- ábyrgðar, verða að hafa fengið samþykkt fjármálaráðuneytis- ins áður en þau ráðast í nokkr ar byggingaframkvæmdir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.