Morgunblaðið - 08.01.1950, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.01.1950, Qupperneq 4
4 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 8. janúar 1950, STASÍSTEINAR lElidurfæddur flokkur SÚ GAMLA maddama, Fram- sókn, segist vera endur- fædd. Endurfæðing hennar birt- . ist í því að hún hefur allt í einu fengið áhuga fyrir út- rýmingu heilsuspillandi hús næðis í Reykjavík, bygg- ■ingu sjúkrahúsa, aukinni raforku og hverskonar um- ' bótum á kjörum fólks 1 þess ari „Sódómu og Gómorru", . sem hún allan aldur sinn hefur talið óalanid og óferj- andi. í þrjá áratugi hefur Framsóknarflokkurinn og blað hans, Tíminn, barist gegn umbótamálum Reykja- víkur, bættu húsnæði, skól- um, sjúkrahúsum, raforku, hitaveitu, bættu skipulagi o. s. frv. Framsókn hefur gert þetta vegna þess að hún hefur haft hugann allan við hinar „sögulegu þúfur“, sem bæjarfulltrúi hennar í bæj- arstjórn Reykjavíkur, sagði að Gunnar Thoroddsen og Sjálfstæðisflokkinn skorti alla virðingu fyrir. Orsakir endur- fæðingarinnar EN HVERNIG stendur á þess- ari skyndilegu hugarfars- breytingu Framsóknar gagn vart Reykjavík? Hverjar eru orsakir endurfæðingar- innar? Þeirra þarf ekki lengi að leita. Framsóknar- flokkinn vantar „aðeins 300 atkvæði“ til þess að fá 2 bæjarfulltrúa kjörna í bæj- arstjórn, segir Tíminn. — Kæru Reykvíkingar! Gjörið svo vel að láta okkur fá þessi 300 atkvæði handa gæðakonunni góðu, sem í haust skoraði á ykkur að kjósa Katrínu og komma- listann, en nú er í öðru sæti á lista okkar, segja hinir endurfæddu. Gerið þetta fyrir okkur og hinar „sögulegu þúfur“ við Lækjargötu, „glæfra- fyrirtækið“ við Sogsfossa og fleiri syndir, skulu aldrei að eilífu endurtaka sig. Svona iðrandi og auð- mjúk er hin gamla maddama um þessar mundir. En van- þakklæti heimsins er mikið. Allar líkur benda til þess að Reykvíkingar muni hafa hið forna spakmæli í heiðri og gjalda lausung fyrir lygi, AiJsstaðar hræddur ALÞÝÐUFLOKKURINN er ekki aðeins hræddur um vaxandi fylgistap hjer í Reykjavík heldur allsstaðar annarsstaðar, í Hafnarfirði, þar sem forseti Alþýðusam- bandsins stjórnar þrífætin- um, á Akureyri og á ísa- firði, þar sem „vitlausi mað urinn í skutnum“ berst nú fyrir „hugsjónalausan, gaml an og værukæran flokk“. — Þar er Alþýðuflokkurinn hvað hræddastur. Þessvegna iktar Alþýðublaðið fyrir skömmu upp þeirri sögu að fjórði maðurinn á framboðs lista Sjálfstæðismanna á ísafirði, Símon Helgason, hafnarvörður, form „skip- stjóra- og stýrimannafjelags ins Bylgjan, sje kommún- isti. Auðvitað er þetta raka- laus uppspuni. Þessi vin- sæli maður og trftusti sjó- maður hefur jafnan verið Sjálfstæðismaður þótt ætt- fólk hans hafi sumt fylgt Alþýðuflokknum að málum áður fyrr. En vesalings Al- þýðuflokkurinn, sem nú er ekki einu sinni pínulítill flokkur, heldur pínu pínu- litli flokkurinn, er svo hræddur að hann verður að grípa til allskonar skrök- sagna um menn og málefni. 8. dagur árhins. Árdegif>flæði kl. 8,10, Siðdegisflæði kl. 20,30. INæturlæknir er í læknavarðstof- unni, sími 5030. Næturvörður er í Lyfjabúðinni Ið- unni, sími 7911. Næturakstur annast Hreyfill, simi 6633. Helgidagslæknir er Kristján Þor- varðsson, Skúlagötu 45, sími 4341. I.O.O.F. 3, = 131198. = E. I. Messur í dag Dómkirkjan. Ekki messað kl. 5. Fríkirkjan. Messað verður í dag, fyrsta sunnudag eftir þrettánda, kl. 2 siðd. Sr. Ragnar Benediktsson. ■—• Ræðuefni: ..Máttur frækornsins í mar.nlegu hjarta." Hallgríniskirkja. Messa kl. 11 f.h. í dag, sr. Jakob Jónsson. — Bama- guðsþjónusta kl. 1,30, sr. Jakob Jóns- son, Kl. 5 síðd. messa. Magnús Run- ólfsson prjedikar. Brúðkaup Framboð Sjáif- stæðismanna í Shfkkishólmi S.L. þriðjudag hjeldu Sjálf- stæðismenn í Stykkishólmi sam eiginlegan fund. Á fundi þess- um var afráðið, hverjir skyldu verða í kjöri fyrir Sjálfstæðis- flokkinn í hreppsnefndarkosn- ingunum 29. janúar. Varð ein- róma samkomulag um þessa menn: 1. Ólafur Pó Jónsson, hjer- aðslæknir, 2. Árni Ketilbjarn- arson, verkamaður, 3. Geirarð- ur Siggeirsson, framkvæmda- stjóri, 4. Krisján Bjartmars, oddviti, 5. Sigurður Magnús- son, hreppstjóri, 6. Sigurður Ágústsson, alþm., 7. Finnur Sigurðsson. múrarameistari. Til sýslunefndar verða í kjöri Sigurður Ágústsson, al- þingismaður, og varamaður Kristján Bjartmars, oddviti. Sænskur verslunar- maður pyntaður í tjekknesku fangeisi Einkaskeyti frá Reuter. STOKKHÓLMUR, 7. jan. — Sænska utanríkisráðu- neytið tilkynnti í kvöld, að það hefði hvað eftir annað borið fram mótmæli við stjórnarvöldin í Prag, vegna pyndinga, sem ráðu neytið fuliyrðir að Holger Hjelm, sænski verslunar- maðurinn, sem nýlega var dæmdur í þriggja ára fang elsi, hafi verið beittur. Kommúnistastjórnin tjekkneska sakaði Hjehn um njósnir og efnahags- lega skemdarstarfseini. Utanríkismálaráðuneyt ið lýsir yfir, að Hjelm hafi margsinnis verið mis- þyrmt, meðan hann sat í fangelsi og beið dóms. Þess ar misþyrmingar gengu svo úr hófi fram, að böðl- ar hans þurftu að sækja ti! hans lækni. Aður en rjettarliöldin hófust, var Hjelm hótað frekari misþyrmingum, ef hann játaði ekki sekt sína. Gefin voru saman í hjónaband í Hallgrímskirkju i gær af sr. Jakob Jónssyni, ungfni Soffía A. Haralds- dóttir (Lárussonar, rakaram.) og Öli Kjistjánsson, trjesmiður frá Stykkis- hólmi. Heimili ungu hjónanna verð- ur á Leifsgötu 19. Þann 5. þ.m. voru gefin saman í 1 hjónaband í Santiago í Chile, ungfrú María Helgadóttir, Helgasonar. versl- unarstjóra hjá Zimsen, og hr. Robert Knooh forstjóri hjá General Motors. Hjónaefni Á gamlárskvöld opinberuðu trúlof- un sina ungfrú Anna Þorgilsdóttir, frá Þorgilsstöðum, Snæfellsnessýslu og Sveinn Ölafsson rafvjelanemi frá Syðra-Holti. Svarfaðardal. Nýlega hafa opinberað trúlofun sina ungfrú Halla Ottósdóttir, Mel- staf við Hólsveg og Ragnar Sigurðs- son, Rarmahlið 31. Nýlega opinberuðu trúlofun sina Þórleif Þórleifsdóttir, Flókagötu 41 og Isólfur Eggertsson, Þófsgötu 7. Bridgefjelag Reykjavíkur heldur sameiginlegan spilafund í Mjólkurstöðinni annað kvöld kl. 8 e.h, Meðan keppni stendur yfir í Bieiðfirðingabúð, verður vegna | þrengsla þar, sameiginleg spilakvöld á mánudögum í Mjólkurstöðinni. Breiðfirðingafjelagið stofnar bridge-deild innan vjebanda sinni í Breiðfirðingabúð (rishæð) kl. 6 t.h. í dag. ! Erfiljóð 1 eftirmælum um Halldór Jónsson frá Hnausi, var í lok greinarinnar farið með erfiljóð. er Halldóri voru eignuð. Ljóð þessi hefur hinsvegar Þorfinnur heitinn Jónsson gestgjafi að Tryggvaskála gert og voru þau orkt við fráfall konu hans, frú Guð- laugar Einarsdóttur er ljest árið 1912. Skipafrjettir: Ríkisskip; Hekla er í Reykjavik og fer þaðan fimmtudaginn 12. þ.m. austur um land til Siglufjarðar. Esja er i Reykja vik og fer þaðan á morgun vestur um land til Akureyrar. Herðuhreið er væntanleg til Hornafjarðar um há- degi í dag á leið til Fáskrúðsfjarðar. Skjaldbreið er væntanleg til Reykja- víkur seint í kyöld eða nótt að vest- an og norðan, Þyrill er væntanlegur til Reykjavikur á morgun frá Pól- landi. Til bóndans í Goðdal G. G. 30, S. S. 100. Gjafir til B.Æ.R. Ragnheiður Gröndal kr. 10, Ellen Mogensen 10, Bryndís Víglundsdóttir 10. Soffia Ágústsdóttir 10, Valdís Björgvinsdóttir 10, Sæunn Magnús- dóttii 10, Vilborg Harðardóttir 10, Steinunn Marteinsdóttir 10, Matt- hildur Ölafsdóttir 10, Elín Kristins- dóttir 5, Jonný Jakobsdóttir 10, Hrafn hildur Guðbrandsdóttir 10, Kristin Guðmundsdóttir 10, Katrin Guðjóns- dóttir 5, Hulda Guðmundsdóttir 10, Guðrún Eiriksdóttir 10, Helga Isaks- dóttir 5, Brynhildur Guðjónsdóttir 10, Inga Dóra Guðmundsdóttir 10, Hólm fríður B. Friðbjörnsdóttir 10, Erla Eggertsdóttir 10, Ingunn Benedikts- dóttir 10, Ragnhildur Friða Ólafs- dóttir 10. Nanna Ainlín 50, Arndís L. Nielsdóttir 10. Hildur Káradóttir 10, Petra Camilla Lárusdóttir 10, Guðrún M. Bjarnadóttir 10, Arnleif K. G. Ivarsdóttir 10, Þórunn Haralds dóttir 10. Til bágstöddu fjölskyldunnar Leiðrjetting á misritun i Mbl. 24. des. s.l. Átti að vera þannig; Á. G. 50, Kiddi 50. fjögur systkin 500. N. N. 25, N. N. 100. M. J. 50, K, G. 25, ónefndur 100, I5. G. 50. S. H. 50, J. B. 50, L. 50, ónefnd 20, Til bóg- stöddu fjölskyldunnar afh. sr. Garðari Svavarssyni: ónefndur 100, Hulda litla Karlsdóttir 30, ónefndur 60, Guðmundur 50, Atli 300. — Það sem þar kom á eftir var til Mæðrastyrks nefndar og afh. henni, en hnýttist þarna við af misritun. • Erlendar útvarpsstöðvai Síþjóð. Bylgjulengdir: 1588 og 28,5 m. Frjettir kl. 18 og 21,15. Auk þess m. a.: Kl. 17,30 Tuttugu spurningar. Kl. 18,00 Lög eftir Ragn ar Dahl og Walter Lindbom. Kl. 19,45 Jolanda di Maria Petris syng- ur með útvarpshljómsveitinjii. Danniörk. Bylgjuleugdir: 1250 og 31,51 m. — Frjettir kl. 17,45 os kl. 21,00, Auk þess m. a.: Kl, 17,15 Sunnu- dagshljómleikar. Kl. 19,00 Talfilm- uinar í 20 ár. KJ. 20,15 Lög eftir Schumann, Panni Nagy leikur á pímó. Útvarpið Sunnudagur. 8.30 Morgunútvarp. — 9,10 Veður- fregnir. 11,00 Messa í Hallgrims- kirkju (sjera Jakob Jónsson). 12.15 —13,15 Hódegisútvarp. 15,15 tJtvarp til Jslendinga erlendis: Frjettir. -— Erindi, (Margrjet Indriðadóttii- frjettamaður). 15,45 Útvarp frá sið- degistónleikum í Sjálfstæðishúsinu (Carl Billich, Þorvaldur Steingrims- son og Jóhannes Eggertsson leika). 16.30 Veðurfregnir. —- 18,25 Veður- frepnir. 18,30 Barnatími (Þorsteinn ö. Stephensen). 19.30 Tónleikar: ..Daphnis et Chloé“, synjfónisk svíta eftir Ravel (plötur). 19.45 Auglýs- ingar. 20,00 Frjettir. 20.20 Einleikur á fiðlu (Björn Ólafsson): a) „Ave Maria“ eftir Schubert-Wiihehni. b) „Serenade Melancholic“ eftir Tschai- kowsky. 20,40 Erindi: Gyðingaland ó Krists dögum, I.: Æðstu valdsmenn og öldungaráð (Ásmundur Guðmunds sor. prófessor). 21.05 Tónleikar: Þ.ett ir úr kantötum eftir Bach (plötur). 21,15 Erindi: Um fyrirhuguð ferða- lög milli Reykjavíkur og Winnipeg (sjera Halldór Johnson). 21,30 Tón- leikar: Symfónía nr. 4 i A-dúr (Italska symfónían) eftir Mendels- sohn (plötur). 22,00 Frjettir og veð- uifregnir. 22,05 Danslög (plötur). 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur. 8.30 Morgunútvarp. — 9,10 Veður- fregnir. 12,10—13.15 Hádegisútvarp. 15,30—16,30 Miðdegisútvarp. — (15,55 Veðurfregnir). 18.25 Veður- fregnir. 18.30 Islenskukennsla; I. fl. — 19,00 Þýskukennsla; II. fl. 19,25 Þingfrjettir. — Tónleikar. 19.45 Aug lýsingar. 20,00 Frjettir. 20,30 Útvarps hljómsveitin: Norsk alþýðulög. 20,45 Um daginn og veginn (Magnús Jóns son lögfræðingur). 21,05 Einsöngur (Hermaim Stefánsson frá Akureyri): a) „Sölvet" eftir Lanners. b) „Vor- gyðjan kemur“ eftir Ánra Thorsteins son c) „Still wie die Naclit" eftir Bohm. d) „Canina" eftir Johannes Svendsen. e) „Sig mig god Nat“ eftir Rai 21,20 Erindi: Þegar Seyðisfjörð- ur var síldarbær; síðara erindi (Tlieo aór Ámason). 21,45 Tónleikar (plöt- ur). 21,50 Sjórinn og sjávarlifið (Ás valdur Eydal licensiut). 22,00 Frjett ir og veðurfregnir. 22,10 Ljett lög (plötur). 22,30 Dagskrórlok. Eldsvoðinn í Iðunni RANNSÓKNARLÖGREGLAN vinnur nú að því að rannsaka, hver muni hafa orðið eldsupp- tökin í húsi lyfjabúðarinnar Iðunn, sem eldur kom upp í, í fyrrakvöld. Stúlka, sem bjó í herbergi í rishæðinni, var eldsins fyrst vör, er hún kom þangað upp á loftið. Fann hún reykjarlykt, er lagði út frá geymsluher- bergi og er hún opnaði það, var reykur mikill þar inni og tals- verður eldur. Án þess að enn sje fengin fyxir því vissa, hver eldsupp- tökin hafi orðið, þá er hallast að þvi, að þau hafi orðið £ skáp, sem notaður var til að þurka allskonar lyf í töflur og duft. Skápurinn var úr trja og hann hitaður upp með raf- magni frá rafofni, en fyrir of- an ofninn eru 8 hillur í röð, sem lagður er pappír á, en lyfjadufti, sem þurka á dreift yfir pappírinn. Hillan, sem næst er ofninum, var í 80 til 100 cm. fyrir ofan hann. Þegar eldurinn kom upp var straum- ur á rafofninum. Hafði verið gengið frá lyfdufti í skápnum til þurkunar um það bil hálft tíma áður, en eldsins varð vart. í herbergi þessu var mikið geymt af allskonar hjúkrunar- vörum og pappaumbúðum fyr- ir,lyf. Af lyfjum var okki ann- að en það sem var í skápnum, en það mun hafa verið um 2000 kr. virði. Alhygiisverð barna- mynd sýnd í Aushir- bæjarbíói AUSTURBÆJARBÍÓ, sem oft lega hefur sjerstakar barna- myndir til sýninga, er nú byrj- að að sýna slíka mynd og nefn- ist hún: Litla stúlkan í Alaska. Er myndin gerð þar í landi og stjórnaði upptökunni land- könnuður og kvikmyndatöku- maður, er ferðaðist um landið Á þessu ferðalagi sínu kynnt- ist hann ýmsum þjóðsögum er ganga þar manna á milli og sagan af litlu stúlkunni er ein þessara sagna. Faðir litlu stúlkunnar hafði farið upp í óbyggðir til að leita gulls, en sú litla bíður hans lengi og án þess að frjetta nokkuð af honum. Vinur hans, gamall. hrakfarabálkur hinn mesti, tekur sig upp og fer að leita hans og lendir í miklum og margvíslegum ævintýrum á ferð sinni, um óbyggðir Alaska. Litla telpan fer einnig af stað til að leita föður síns og með henni fer stór hundur, sem verður skjólstæðingur hennar, er hungraðir úlfar verða á leið þeirra og aðrar hættur. En litla telpan á ekki eftir að sjá föður sinn á lífi og hún og „gamli hrakfarabálkurinn“ eiga eftir að lenda í hinum mestu raunum, eftir að þau hittust í gullnámu föður henn- ar. Verður það ekki rakið frekar, því sjón er sögu ríkari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.