Morgunblaðið - 19.01.1950, Síða 12

Morgunblaðið - 19.01.1950, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 19. jan. 1950 Geðvarnarfjelag Islands stofnað s.l. þriðjndag Stofnendur voru á milli 70 og 80 FRAMHALDSSTOFNFUNDUR Geðvarnarfjelags íslands var haldinn í I. kennslustofu Háskólans s.l. þriðjudagskvöld, og var þá endanlega gengið frá stofnun fjelagsins. Stofnendur voru milli 70 og 80. — Fundarstjóri var Arnfinnur Jónsson, skóla- stjóri, en dr. Helgi Tómasson nafði framsögu fyrir hönd undir- búningsnefndarinnar. Flutti hann stutt erindi um geðvarnir al- Tilboð í nýju Laxár- virkjunina AKUREYRI, 18' jan. — Á bæj- arstjórnarfundi s.l. föstudag var samþykkt að fela raforkumála- stjóra og rafveitustjóra ríkisins að taka fyrir bæjarins hönd því tilboði í vjelar til Laxárvirkjun arinnar, er þeir teija aðgengileg ast um afgreiðslutíma og verð. Tilboð þessi eru frá Banda- rikjunum, afgreiðslufrestur 11 —19 mánuðir og verð kr. 6.055.000 til 6.127.000. Heimildin er bundin því skil- yrði, að ríkisstjórnin samþykki að tilboðunum sje tekið og Mars hallfje fáist til þess að greiða vjelarnar. — H. Vald. — Heðal annara orða Frhh. af hls. 8. og moskusskinnum. Minnst er eftirspurnir eftir refdýraskinn- um, þrátt fyrir tilraunir loð- skinnasala til að fá tískudrottn ingarnar til að „taka þau í sátt“ á nýjan leik. mennt. Lagafrumvarpið samþykkt Þá var lagafrumvarp undir- búningsnefndar lagt fram og það samþykkt, en svo var sam kvæmt því kosið 25 manna fulltrúaráð. Kemur það síðar saman og kýs fimm manna framkvæmdastjórn. — Árgjald fjelagsins var ákveðið kr. 25,00. Fulltrúaráðið í fulltrúaráðið hlutu kosn- ingu: Læknarnir Kristbjörn Tryggvason, Karl S. Jónasson, Jón Sigurðsson, Páll Sigurðs- son, Grímur Magnússon, Krist- ján Þorvarðsson, Alfreð Gísla- son og Helgi Tómasson, próf. Símon J. Ágústsson, dr. Matt- hías Jónasson, Jónas B. Jóns- son, fræðslufulltrúi, frú Ingi- björg Þorláksson, form. Hrings ins, Þorsteinn Einarsson, í- þróttafulltrúi, Arnfinnur Jóns- son, skólastjóri, Sveinbjörn Jónsson, hrl., Valdimar Stef- ánsson, sakadómari, dr. Þórð- ur Eyjólfsson, forseti hæsta- rjettar, sr. Bjarni Jónsson, sr. Jakob Jónsson, Guðríður Jóns- dóttir, yfirhjúkrunarkona, Ólöf Sigurðardóttir, hjúkrunarkona, Valborg Sigurðardóttir, skóla- stjóri, Hrefna Tynes, vara- skátahöfðingi kvenskáta, Vil- hjálmur Þ. Gíslason, skólastj., og Þórhildur Ólafsdóttir, for- stöðukona. — Stóríbúðaskaffurinn Frh. af bls. 6. nauðsynlegt fyrir þjóðina. Það er aumt, að við skulum þurfa að flytja inn kartöflur og smjör fyrir stórfje á hverju ári. Ef til þess kæmi, að þetta ó- heilla-frumvarp næði fram að ganga, má búast við að kostn- aður á framkvæmdunum yrði miljónir króna á ári hverju. — Væri ekki rjettara að byggja í- búðir fyrir húsnæðislaust fólk fyrir þá upphæð? Það var töluverður ljómi yfir kosningasigri Rannveigar Þor- steinsdóttur, og það er stað- reynd að konur af öllum flckk um studdu hana. En sá ljómi er horfinn. Nú ríkir mikil gremja í garð hennar og fylgifiska hennar, sem að þessu frumvarpi standa. Við húsmæðurnar eig- um bágt með að sætta okkur við, að kona skyldi verða til þess að „kasta steini“ á reyk- vísk heimili — og gleymum því seint. En við lærum af reynsl- unni. V. B. Skógrækfarfjelag stoinað í Hvera- gerði F Y R I R forgöngu nokkurra karla og kvenna í Hveragerði var stofnað þar skógræktarfje- lag á sunnudaginn var, þ. 12. jan. Fjelagið nær yfir Hvera- gerði og næsta nágrenni þess. Stofnfundurinn hófst kl. 9 um kvöldið. Voru fundarmenn þá um 50 að tölu. En fleiri komu síðar. Kristmann Guðmundsson var kosinn fundarstjóri. Fundurinn hófst með því að Hákon Bjarnason skógræktar- stjóri flutti þar erindi og hjelt my^idasýningu. Því næst lagði undirbúnings- nefnd fram lagafrumvarp fyrir fjelagið, er samþykt var með litlum breytingum. Síðan var kosin stjórn. Hlutu þessir kosn- ingu: Kristmann Guðmundsson, Ól. Steinsson, Snorri Tryggva- son, Ragnar Ásgeirsson og Hróð mar Sigurðsson. Á fundinum urðu nokkrar umræður um það, hvort ástæða myndi vera til, að hafa það á- kvæði í lögunum að friða skyldi þær skógarleifar, sem fyrir væru á fjelagssvæðinu, en slík ákvæði eru í lögum flestra skóg ræktarfjelaga. Flestir fundar- menn töldu á því leika engan vafa, að á þessu svæði fyndist ekki birkikló á ófriðuðu landi. En þá skýrði Kristmann Guð- mundsson frá, að hann hefði í Hamrinum upp af Hveragerði fundið 5 gamlar birkikræklur. Auk þess hefði hann rekist á ívær ungplöntur af birki, sem vaxið höfðu nýlega upp af fræi. En sauðfje hefði nagað þær nið ur í rót á næsta ári. Fundarmenn voru sammála ,um, að Hamarinn væri óðum að blása upp, moldarbörðin í honum að eyðast. Því væri þess brýn þörf, að friða hann. Þá stóð upp Þorvaldur bóndi Ólafsson að Yxnalæk, en hann á hálfan Hamarinn, og gaf hinu nýstofnaða fjelagi þessa spildu Síðan samþykti fundurinn að fjelagið skyldi leitast við að fá allan Hamarinn til umráða, friða hann, hlynna að jarðvegi þar, og koma þar upp skógar- gróðri. Þegar fjelagið hefur komið þar upp þroskavænleg- um trjágróðri breytir Hvera- gerði um svip. Vonandi er þess ekki langt að bíða, að þessi „heiti“ staður, geti einnig orð- ið hlýlegur yfirlitum með þroskamiklum trjágróðri í Hamrinum. TILKYNNIIMG Viðskiptanefndin hefur ákveðið eftirfarandi hámarks- verð á fiski: Nýr þorskur, slægður með haus .. kr. 1.20 pr. kg. hausaður 1.55 — — og þverskorinn í stykki .. kr. 1.65 — — Ný ýsa, slægð með haus 1.25 pr. kg. hausuð .. kr. 1.65 — — og þverskorin í stykki • .. kr. 1.75 — — Nýr fiskur, (þorskur, ýsa) flakaður með roði cg þunnildum .. kr. 2.40 pr. kg. án þunnilda .. kr. 3.20 — — roðflettur án þunnilda , .. kr. 3.85 — — Nýr koli (rauðspretta) .. kr. 3.00 pr. kg. Ofangreint verð er miðað við það, að kaupandinn sæki fiskinn til fisksalans. Fyrír heimsendingu má fisksalinn reikna kr. 0.50 og kr. 0.10 pr. kg. aukalega fyrir þann fisk, sem er fram yfir 5 kg. Fisk, sem er frystur sem varaforði, má reikna kr. 0.40 pr. kg. dýrara en að ofan greinir. Ekki má selja fisk hærra verði þótt hann sje uggaskorinn, þunnildaskorinn eða því um líkt. Reykjavík, 17. jan. 1950, Verðlagsstjórinn gnimnMiiiiiiiiiMiiMMiiiiimttmiiHiMiifiaimmmi immmiimrivrffmii Markúa £ Eftir Ed Dodd — Á bakka einum skammt vinur bjórsins. Hann horfir frá bústað bjóranna situr otur. lymskulega á þar sem litlu Oturinn er alltaf í eðli sínu ó-| Stubbarnir eru að leika sjer eyri einni meðfram ánni. á{ — Einn litli bjórhnokki’in syndir langt niður eftir ánni. — Og oturinn sjer sjer tæki- færi til árásar. — Birgir Kjaran Framh. af bls. 9. kemur fram í formi rökstuddr-- ar gagnrýni, er hreinskilin og djarfmælt, er jákvæði óánægja. Hennar hlutverk er ‘að segja forustumönnunum frá því, hvað aflaga fer, og hún á að finna sjer eðlilegan farveg innan samtaka flokksins, og jeg vil óska Sjálfstæðisflokknum þess, að hann verði aldrei svo gam- all, að allir meðlimir hans væru ánægðir með allt. Baráttan stendur um bæinn okkar. Góðir Sjálfstæðismehn, tím- inn styttist nú óðum til kosn- inganna. Það er því mikið verk fyrir hvern og einn okkar að vinna. Við síðustu kosningar sátu 3000 kjósendur heima og önnur 3000 kusu Framsóknar- flokkinn, svo að tölur sjeu nefndar. Hvorugt af þessu má henda aftur. Við þurfum per- sónulega að tala við þetta fólk og aðra kunningja okkar. Við þurfum að benda því á, að bar- áttan snýst ekki um hártoganir á pólitískum kennisetningum. Baráttan stendur um bæinn okk ar og um hag og velferð hvers einasta borgara, um lífsafkomu okkar sjálfra. Það er því aðeins eitt kosningaloforð, sem þið eig ið að gefa — og það eigið þið að gefa sjálfum ykkur, það er, að enginn ykkar liggi á liði sínu í þessari baráttu. Gerum samborgurum okkar ljóst, að ef þeir vilja heiðar- lega, rjettsýna og athafnasama bæjarstjórn, þá eiga þeir að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. SKlí>AlírutKÐ RIKISINS M.s. Herðubreið austur um land til Bakkafjarðar um helgina. Tekið á móti flutningi til % estmannaeyja, Homafjarðar, Djupa vogs, Breiðdalsvíkuur, Stöðvarfjarð- ar, Mjóafjarðar, Borgarfjarðar, Vopna fjarðar og Bakkafjarðar á morgun og laugardag. Pantaðir farseðlar óskast sóttir árdegis á laugardag. M.s. Skjaldbreið til Skagafjarðar og Eyjafjarðar hinn 24. þ. m. Tekið á móti flutningi til Sauðárkróks, Hofsóss, Haganesvíkur, Ólafsfjarðar, Dalvíkuur og Hriseyjar á morgun og laugardag. Pantaðir far- seðlar óskast sóttir á mánudaginn. „HEKLr vestur um land til Akureyrar hinn 25. þ. m. Tekið á móti flutningi til Patreksfjarðar, Bildudals, Þingeyrar, Flateyrar, Súgandafjarðar, ísafjarðar, Siglufjarðar og Akureyrar ó laugar- dag og mánudag. Pantaðir farseðlar óskast sóttir á mánudag. „Skaftiellingur" til Vestmannaeyja ó morgun. Tekið ó móti flutmngi í dag og á morgun. BEST AÐ AUGLÝSA I MORGUmLAÐlNU ;

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.