Morgunblaðið - 26.03.1950, Side 2
MORGVNBL 4ÐI9
Sunnudagur’ 26. mars 1950.
"t
Frh. af bls. I
xippHlaupi í*því skyni að beita
menn eða muni ofbeldi eða
ógna með, að því verði beitt,
l^á var$ar það fangelsi allt að
ÍJrerri átum eða varðhaldi“. —
Þetta ver fyrsta málsgrein, sem
t'.öfð vav hliðsjón af, en Stefán
var dadmdur fyrir brot gegn 2.
mgr: og er hún svohljóðandi:
..Sömu ’ refsingu skulu þeir
Hienn sæta, sem gerst hafa leið-
togar slíks upphlaups, eftir að
þiað vaf byrjað“. Þá var Stefán
dæmdUr fyrir brot gegn 1. gr.
iögreglusamþykktar Reykjavík
ur, éins og allir fjelagar hans,
en hún bannar uppþot eða ó-
spektir' á almannafæri..
Loks var hann með dómnum
.sviptur kosningarjetti og kjör-
gengi tll opinberra starfa ævi-
langt. 1
!Næst þyngstu dómarnir
Stefán Sigurgeirsson. Hann
hlaut 15 mánaða fangelsi. Hann
var dæmdur fyrir brot gegn
100. gr. hegningarlaganna, sem
fjallar um árás á Alþingi og 1.
gr. lögiysglusamþ. Reykjavíkur.
Þá er hann einn þeirra er svipt-
ur var Jkosningarjetti og kjör-
gengi ævilangt.
Stefnir Ólafsson. — Hann
hlaut 12 mánaða fangelsisdóm.
Hann gerðist einnig brotlegur
við 100'. gr. hegningarlaganna,
þ. e. vegna árásar á Alþingi.
— Einiig gerðist hann brot-
legur við 106. gr. hegningar-
laganna, en þeirrar greinar
verður 'getið hjer á eftir. Stefn-
ir var sviptur ævilangt kosn-
ingarjetti og kjörgengi. Hann
gerðist sem aðrir brotlegur við
1. gr. , lögreglusamþ. Reykja-
víkur.
Magnús Jóel Jóhannsson. —
Hann var einnig dæmdur í 12
mánaða fangelsi, fyrir brot
gegn 100. gr. hegningarlaganna,
vegna árásar á Alþingi. Hann
var sviftur kosningarjetti og
kjörgengi ævilangt.
Hlutu 8 mánaða fautgelsi
Þeir Jón Kristinn Steinsson,
Alfons Guðmundsson og Jón
Múli Árnason, voru hver um
-ig dæmdir í sex mánaða fang-
elsi. Þeir höfðu. allir gerst brot-
'legir við 106. gr. hegningarlag-
anna, en hún er svohljóðandi:
„Hver, sem ræðst með
ofbeldi eða hótunum um
jfbeldi á opinberan starfsmann,
þegar hann er að gegna skyldu-
starfi sínu, eða út af því> og
eins hver sá, sem á sama hátt
leitast við að hindra framgang
slíks starfa eða neyða starfs-
inanninn til þess að framkvæma
einhverja athöfn í embætti sínu
eða sýslan, skal sæta varðhaldi
eða fangelsi allt að sex árum.
Geri maður á annan hátt op-
mberum starfsmanni tálmanir
í því að gegna skyldustörfum
.únum, þá varðar það sektum,
•varðhaldi eða fangelsi allt að
tveim árum.
Jafnfætis ofangreindum
starfsmönnum standa þeir
menn, sem dómari eða yfirvald
kveður sjer til aðstoðar við
rekstur opinbers starfs“.
Fjögra mánaða fangelsi
Þá voru dæmdir í fjögurra
mánaða fangelsi Magnús Hákon
Pjetursson,
arsori, Jóhann
Kristján Guðmundsson, Garð-
ar Óli Halldórsson og Guð-
mundur Jónsson.
Jóhann og Garðar Óli, höfðu
báðir gerst brotlegir við 106.
greinina, er f jallar um árásir og
hótanir við opinbera starfs-
menn. Þeir Kristján Guðmunds
son og Guðm. Jónsson voru sek
ir fundnir um brot gegn 108.
grein hegningarlaganna, en sú
grein hljóðar svo:
Ærumeiðandi aðdróttanir
„Hver, sem hefir í frammi
skammaryrði, aðrar móðganir
í orðum eða athöfnum eða æru
meiðandi aðdróttanir við opin-
beran starfsmann, þegar hann
er að gegna skyldustarfi sínu,
eða við hann eða um hann, út af
því skal sæta sektum, varð-
haldi eða fangelsi allt að þrem
árum. Aðdróttun, þótt sönnuð
sje, varðar sektum, ef hún er
borin fram á ótilhlýðilegan
hátt“.
Hlutu þrjá mánuði
Þessir menn voru dæmdir í
þriggja mánaða fangelsi hven
Friðrik Anton Högnason, Gísli
Rafn ísleifsson, Árni Pálsson,
Guðmundur Helgason, Páll
Theódórsson, Ólafur Jensson,
Hálfdán Bjarnason og Hregg-
viður Stefánsson.
Friðrik Anton gerðist brot-
legur við 106. grein hegningar-
laganna, svo og Gísli Rafn og
Ólafur. Þeir Árni, Guðmundur,
Páll, Hálfdán og Hreggviður
voru sekir fundnir um brot
gegn 108. grein hegningarlag-
anna, þeirri er fjallar um móðg
anir í orðum eða athöfnum við
opinberan starfsmann.
Voru sýknaðir
Loks er svo að geta þeirra
fjögurra manna er sýknaðir
voru, en þeir eru Stefán Odd-
ur Magnússon, Guðmundur
Björgvin Vigfússon, Sigurður
Jónsson og Kristófer Sturluson.
Þá var svo kveðið á, að gæslu
varðhald þeirra Stefáns Sigur-
geirssonar, Stefnis Ólafssonar
og Magnúsar Hákonarsonar,
skuli koma refsingum þeirra til
frádráttar.
Búist við áfrýjun
Svo sem fyrr segir, þá var öllr
!um hinum sakfelldu gert að
greiða málsvarnarlaun fyrir
rjettinum.
Búist er við, að flestum eða
jafnvel öllum dómunum verði
áfrýjað til Hæstarjettar, en
ekkert lá fyrir um það í gær.
Hnefaleikamói
Ármanns í dag
Fjelag íslenskra prjónles-
I M
:‘ý
},
, M- fá
'***& 1
Björn Eyþórsson.
ARM.ANN heldur hnefaleika-
mót í dag kl. 4 í íþróttahúsinu
við Hálogaland. Keppt verðuf
í.öllum þyngdarflokkum, og eru
keppendur alls 19.
Keppendur eru sem hjer seg-
ir:
Fluguvigt: — Sigurjón Þór-
arinsson, Birgir Sigurðsson,
Hörður Hjörleifsson og Friðrik
Ólafsson.
Bantamvigt: — Kristján
Sveinsson og Leifur Ingólfsson.
Fjaðurvigt: — Theodór Theó-
dórsson og Ravn Viggósson.
Ljettvigt: — —Guðmundur
Karlsson og Sig. Jóhannsson.
Veltivigt: — Gissur Ævar og
Kristján Jóhannesson.
Millivigt: — Björn Eyþórsson
og Kjartan Guðmundsson.
Ljettþungavigt: — Sigfús
Pjetursson, Alfons Guðmunds-
son og Björn Pálsson.
Þungavigt: — Jens Þórðar-
son og Jón Ólafsson.
Ræddu viðskífíl Sýrlands
og Libanon
BEIRUT, 23. mars. Forsætis-
ráðherrar Sýrlands og Libanon
sátu fund saman í dag og ræddu
viðskipti milli landa þessarra.
Tollabandalag hefur verið milli
landanna að undanförnu en var
rofið vegna ósamþykkis
snemma í þessum mánuði. Sagt
er að ekkert samkomulag hafi
náðst á fundi þessum. Þeir
munu báðir sitja fund Araba-
ráðsins, sem haldinn verður í
Cairo n. k. laugardag.
Handknalilelksmói
r
íslands
Á FÖSTUDAGINN urðu úrslit
þau í meistaraflokki kvenna,
að ÍR og Ármann gerðu jafn-
tefli, 3:3, en KR vann Hauka
2:1. Staðan er nú þannig:
L Mrk St.
Fram ........... 3 14:5 5
í. R............ 3 8:5 4
Ármann ......... 3 8:6 4
K. R. .......... 3 5:9 2
Haukar ........ 4 4:14 1
í Il.-flokki karla (a-riðii)
vann Valur Hauka með 10:) og
KR. FH með 8:4. í b-riðli vann
Víkingur Ármann með 6:4 og
ÍR Fram með 12:10.
í a-riðli er nú staðan þannig,
að KR hefir 6 stig, Valur 3, FH
3 og Haukar ekkert. í b-riðli
hefir Víkingur 6 stig, Ármann
4, ÍR 2 og Fram ekkert. — KR
og Víkingur munu keppa til úr-
slita í þessum flokki.
Molotov heiðraður.
MOSKVU — Hinn 9. þ. m. átti
Molotov, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra og núverandi varafor-
sætisráðherra Rússlands, sextugs
afmæli. Var hann þann dag
sæmdur Leninorðunni vegna
„framúrskarandi þjónustu í þágu
kommúnistaflokksins og rúss-
nesku þjóðarinnar".
sjer fyrír fullkoníihni
vinslu íslenskrar ullar
FJELAG íslenskra prjónles-
framleiðenda er ungt fjelag,
sem hefir nú starfað í laust ár.
í fjelaginu eru 15 framleiðend-
ur, allir í Reykjavík. Prjónles-
framleiðsla er nú orðin mikil
iðngrein í landinu, og eru aðal
lega framleiddar vörur úr
lopa, því að mjög hefir verið
erfitt að fá erlent garn, og hjer
á landi er ekki til nægur vjela-
kostur til að vinna ullina að
fullu. Raddir hafa heyrst um
það, að fólk hjer á landi sje óá-
nægt með ýmislegt, er unnið
hefir verið úr íslenska lopan-
um, en segja má, að sumt af
þeirn vörum sjeu ótrúlega góð-
ar, þar eð bæði er mjög erfitt
og dýrt að vinna úr lopa, enda
hefir komið sjer vel að fá þær
í þeim fatnaðarvandræðum, er
undanfarið hafa ríkt hjer á
landi. Mikið áhugamál hjá fje-
laginu er að fá til landsins vjel-
ar, er geti unnið fullkorið garn
úr lopanum, og einnig að fá
varahluta í þær vjelar, sem til
eru, en það hefir ekki tekist, og
er þess vegna ekki hægt að nota
ýmsar þeirra, sem fyrir hendi
eru. Langar fjelagið til að gera
prjónlesvöru að fagvinnu og
vanda hana sem best„ svo að
hún verði verðmæt útflutnings
vara og fylkja sjer um, að ullin
komi að sem fyllstum notum,
en íslenska ullin hefir kosti til
að bera, sem gera vör,u úr
henni einkum eftirsóknarverða,
til dæmis það, hve góð hún er
í vætu. Mikið hefir verið flutt
út af ull, aðallega frá Sam-
bandi íslenskra Samvinnufje-
laga, en stendur nú til að unnið
verði garn úr íslenskri ull í
Þýskalandi, og kostnaðurinn
greiddur með óunninni ull.
Fjelagið vill beita sjer fyrir
því, að hætt verði að flytja út
eins mikið af óunninni ull og
gert hefir verið og lögð verði
áhersla á að vinna hana í land-
inu sjálfu. Hefir það athugað
sölumöguleika á slíkri vöru til
útlanda, og telur þá góða, eink-
um í Danmörku og Kanada. —
Von er á vjelum til að vinna
ullina, en svo mikið hefir dreg-
ist að fá þær til landsins, að nú
þarf að fá viðbótargjaldeyris-
leyfi fyrir þeim vegna verð-
hækkunar, sem orðið hefir á
þeim vegna gengislækkunarinn
ar. Þótt garnið verði dýrara
heldur en lopinn, munu vörur
úr því samt verða ódýrari, svo
,er miklu fljótvirkara að vinna
úr því heldur en lopa.
Fjelagið hefir í hyggju að
halda á næstunni sýningu á ís-
lenskri prjónlesvöru. — Stjórn
Fjelags ísl. prjónlesframleið-
enda skipa nú þetta fólk: For-
maður, Viktoría Bjarnadóttir,
ritari Harald Björnsson, gjald-
keri Salóme Jónsdóttir. — í
varastjórn eru Sveinbjörg Kle-
mensdóttir og Vilhjálmur Vil-
hjálmsson.
NEW YORK, 23. mars: — Eitt af
hinum nýju risaflugvirkjúm
Bandaríkjanna hrapaði í dag til
jarðar í Arizona. Flugvjelin var
á tilraunaflugi í 5000 metra
hæð, þegar kviknaði í einum
hreyfli þess. Með henni fórust 14
manns.
iéngijelagið Harpa
leldar konserf
feÖNGýJEL'AtírÐ Harpa heíá-
ur konsert undir stjórn Jan
Moraveks, á fimmtudaginn kem
ur, kl. 7 í Gamla Bíó. Undan-
farið hefir verið hljótt um.
Hörpu. Síðast er hún kom
fram, var ásamt symphoníu-
hljómsveit á konsert í Tripolí-
bíó. Var það undir stjórn dr-
Victors Urbandschitsch. Árið
1948 sigldi Harpa til Kaup-
mannahafnar og tók þar þátt í
Norðurlandasöngmóti.
Á konsertinum á fimmtudag-
inn kemur frarn 47 manna kór,
sem þó er ekki eingöngu skip-
aður meðlimum Hörpu. 16 eru
úr Samkór Reykjavíkur, sem er
söngstjóralaus nú sem stendur,
en það, sem mest hefir háð þess
um kórum, er það, hve erfitt
hefir reynst að ná í söngstjóra.
Aðalverkið, sem flutt verður, er
Söngur Miriams, eftir Schubert.
í því verki mun frú Svanhvít
Egilsdóttir syngja einsöng og
einnig í Ave María, eftir Scþu-
bert. Auk þessa verða flutt lög
eftir Björgvin Guðmundsson.
Emil Thoroddsen, Jan Moravek,
Lindblad og Kjerulf. Undirleik
annast Fritz Weishappel. Ráð-
gert hefir verið að flytja þessa
söngskrá á næstunni í ná-
grenni Reykjavíkur.
Jan Moravek er orðinn kunr*
ur tónlistarmaður hjer. Hanrt
er fæddur í Vínarborg, en er a£
tjekkneskum ættum. Þetta ei*
í fyrsta sinn, er hann kemui
fram sem söngstjóri hjer á.
landi, en hann hefir starfað
sem slíkur við tjekkneskan kór
í Vínarborg. — Stjórn Söngfje-
lagsins Horpu s„ipa. Agust H.
Pjetursson, formaður, Ásta
Jónsdóttir, ritari, og Steingrím
ur Gíslason, gjaldkeri.
Kynningarbl
myndir sýndar
EINN ÞÁTTUR í starfi Al-
þjóðasambands opinberra ferða
skrifstofa er að stuðla að því,
að skrifstofur innan sambands-*
ins sfhi og láni kynningar-
kvikmyndir.
Ferðaskrifstofa ríkisins hefuC
að sjálfsögðu áhuga á þvl,
að koma íslenskum kvikmynd-
um á framfæri sem víðast og
umleið ber henni að sjálfsögðn
að sýna þær myndir, er henni
berst frá opinberum aðilum inri
an sambandsins. Hjer er því urrt
gagnkvæma auglýsinga- og
fræðslustarfsemi að ræða.
Fyrstu myndirnar, sem Ferðtí
skrifstofunni hafa borist, eru
frá Belgíu og belgisku nýlend-
unum í Afríku. Verða þessar*
myndir sýndar í dag — sunnu-
daginn 21. mars — á Flugvallar
hótelinu á tímabilinu kl. 3—5.
Aðgangur er ókeypis. Ferðirj
verða frá Ferðaskrifstofunni.
Veitingar á staðnum.
KAIRO, 25. mars: — Arababanda'
iagið kom saman á ráðstefnu.hjen
í borg í dag. Ráðstefnan mun
standa yfir í rúmlega hálfan
mánuð. Óvíst er hvort Trans-
jordan sendir fulltrúa á ráð-
stefnuna þar eð grunt er á þvi
góða milli Transjordar.manna og
Egypta.