Morgunblaðið - 09.05.1950, Síða 1

Morgunblaðið - 09.05.1950, Síða 1
16 síður 37. árgangui 102. tbl. — Þriðjudagur 9. maí 1950. PrentsmlOja Morgunblaðsina | Kvikmyndaleikari aðsloðar S. Þ. r EITT af verkefnum Sameinuðu þjóðanna er að berjast gegn óleyfilegri sölu eiturlyfja. Gary Coopt)ir kvikmyndaleikari, sem sjest lijer ræða við Benjamin Cohen, aðstoðarframkvæmdastjóra S. Þ., flutti nýlega útvarpsfyrirlestur um þetta efni á vegum alþjóðasamtakanna. Sex Pólverjar neita að þjóna kommúnistum Ofbýður þjónkun sljórnarinnar við Moskvavaldið Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. FRANKFURT, 8. maí. — Sex starfsmenn pólsku ræðismanns- skrifstofunnar í Frankfurt gáfu sig í dag fram við bandarísk yfirvöld og beiddust hælis í Þýskalandi sem pólitískir flótta- menn. Einn starfsmannanna hafði með sjer konu sína og son. Starfsmenn við ræðismannsskrifstofu. Menn þessir eru allir af pólsku þjóðerni og hafa þeii 'verið starfandi við ræðismanns- skrifstofu Póllands í Frank- furt, einn þeirra sem dómari, annar sem gjaldkeri og hinir sem óbreyttir starfsmenn. Vilja ekki þjóna kommúnistum. * Þeir kveðast stöðugt hafa fengið æ verri fregnir heiman frá sjer af ógnarstjórn komm- únista í Póllandi. Segjast þeir ekki geta sætt sig við það leng- ur að vera í þjónustu kommún- istastjórnar, sem hefði hrifsað völdin í föðurlandi þeirra með ógnunum og ofbeldi. Segist vera Pólverji en ekki Rússi. Felix Krakowski, einn þess- ara flóttamanna, sem var dóm- ari og lögfræðilegur ráðunaut- ur, sagði m. a.: Jeg tók þessa ákvörðun vegna þess að jeg er Pólverji og vil ekki verða rúss- neskur leppur. Hann h’afði. fyrir skömmu fengið fyrirskipun um að snúa heim til Póllands. Kosningar í Berlín, e( alK herlið er ilutf á brot! BERLÍN, 8. maí. — Rússneska hernámsstjórnin í Berlín lýsti því yfir í dag, að hún vildi fall- ast á allsherjarkosningar í borg inni ef hernámslið f jórveldanna allra væri flutt á brott kosninga daginn. Hætt er við að Vestur- veldin samþykki þetta seint, þar sem borgin yrði þá óvarin g'egn gífurlegu liði rússneska hersins og þýsku ógnarlögregl- unnar, sem hefur bækistöðvar allt umhverfis hana. — Reuter. Afllee æflar í bílíerðalag um Frakkland LONDON, 8. maí — Attlee for- sætisráðherra Bretlands hefur ákveðið að taka sjer vikulangt hvítasunnufrí. Ætlar hann að eyða fríinu í bílferðalag um Frakkland ásamt konu sinni. —Reuter. r Bólusótt í Loridon — Bannaðar ilugsam- göngur þangað BÓLUSÓTT hefur stungið sjer niður á þrem stöðum í Bret- landi. Meðal staðanna er ein- hver hinna fjögurra flugvalla í London. Hinir eru Yorkshire og Southend. — Hafa af þessum sökum verið bannaðar flugsam- göngur við heimsborgina. Geysir, millilandaflugvjel Loftleiða, kom hjer við í gær á leið til London frá Chicago með 26 konul og 30 börn. Heilbrigð- iseftirlitið hjer bannaði flug- vjelinni að fljúga þangað, og var því farið til Prestvíkur. — Munu engar beinar flugsam- göngur við London verða leyfð- ar meðan bólusóttin gengur þar, og munu flugvjelarnar því fara til Prestvíkur. Strangt eftirlit verður haft með öllum flugvjelum, er koma hingað frá Bretlandi, svo og skipum, og fólki ráðlagt að láta sprauta í sig varnarefnum gegn bólusóttinni, sem fara ætlar til Bretlands á meðan bólusóttin er þar. Truman falar um kalda sfríðið: Oetur verið uð Rússur ætli uð beitu hervoldi? Eina leiðin til að hindra það er að ' \ sýna enga undanlátssemi Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. CHICAGO, 8. maí. — Truman forseti hjelt í dag ræðu í Gales- burg, Illinois, þar sem hann minntist á kalda stríðið. Hann sagði, að verið gæti að á næstu mánuðum yrði gert út um það, hvort heimurinn fengi að búa við frið eða yfir hann skylli styrj- cld hræðilegfi en nokkurntíma hefði fyrr þekkst. Sækjast líiið eftir vinnu á Svalbarða HARSTAD, 8. maí. — Á næst- unni leggur skip frá Harstad með verkafólk til Svalbarða. — Þar reka Norðmenn ýmsar at- vinnugreinar, bæði kolanám og fiskveiðar. Á undanförnum ár- um hefur ekki verið neinn hörgull á fólki, sem hefur vilj- að fara þangað til vinnu, en nú bregður svo við, að það fæst hvergi nærri nógur vinnukraft- ur. Fjelagið, sem rekur kola- nám á Svalbarða telur að það verði að draga úr vinnu þar vegna skorts á verkafólki. — NTB. Þýskur .gasmeistari' dæmdur til dauða BERLÍN, 8. maí. — í dag var dæmdur til dauða Erich Bauer, en hann var „gasmeistari" í Sobibor-fangabúðum Þjóðverja í Póllandi. Hann var fundinn sekur um að hafa tekið af lífi í gasklefum minnsta kosti 250 þús. Gyðinga. — Meðal annars hafði hann sjerstaka viðhafnar- sýningu, þegar Himmler heim- sótti fangabúðirnar, — kæfði með gasi 300 ungar Gyðinga- stúlkur. — NTB. Brefar gera sfórkaup á fei í Indlandi LONDON, 8. maí — Bretland hefur fallist á að gera stórkaup á tei í Indlandi á þessu ári. Hefur orðið samkomulag um að Bretar kaupi þar te fyrir 265 milljón sterlingspund og ef til vill 10% meira ef sölu- skilmálar verða hagstæðir. Að undanförnu hefur verið teskort ur í Englandi, en með þessarri ákvörðun ætti að rætast úr hon- um. — Reuter. Acheson heitir Frökkum ^Ræðan flutt frá járnbrautarvagni Truman hjelt ræðu sína frá járnbrautarvagni á brautarstöð inni í Galesburg, en þar hafði mikill mannfjöldi safnast sam- an. Hann rjeðist harðlega á bandaríska einangrunarsinna, sem vildu að Bandaríkin skiptu sjer ekkert af öðrum löndum, og ljetu sjer alveg á sama, þó kommúnisminn gleypti önnug lýðræðisríki heimsins. Einangrunarsinnar hafa ekkert lært Einangrunarsinnar, sagði TrU man, eru menn, sem ekki sjá lengra en fram á nefbroddinn á sjer. Þeir hafa ekkart lært af stjórnmálasögu undanfarinna ára. Þeir eru búnir að gleyma því, að ef Bandaríkin hefðu tek ið af skarið fyrr, þá hefðu nas- istar að líkindum aldrei þorað að leggja út í síðari heimsstyrj- öldina og heimurinn hefði losn- að undan hörmungum þeirrar styrjaldar. Rússar myndu kúga smáríkin Sama sagði Truman að væri upp á tenirtgnum nú, að ef Bandaríkin ’jetu nokk- urn bilbug á sjer finna, e£ þau stöðugt ljetu undan. þá væru Rússar ekV.j lengi að kúga hvert smáríkið á fætur öðru undir ofríki sitt. stuðningi í Einkaskeyti til Mbl. PARÍS, 8. maí — Acheson ut- anríkisráðlierra Bandaríkjanna átti í dag viðræður við Schu- man utanríkisráðherra Frakka. Ræddu þeir einkum Indó-Kína málin en einnig snerist tal þeirra um Þýskaland og til- vonandi þríveldaráðstefnu í London. Efnahags- og liergagnahjálp. Þegar umræðufundi þessum var lokið átti Acheson viðtal við frjettamenn. Sagði hann að komist hefði verið að samkomu- lagi í Indó-Kína málinu. Var þar ákveðið að Bandaríkin myndu veita Frökkum bæði efnahagslegan og hergagna- stuðning til að stemma stigu fvrir kommúnismanum i Indó- Kína. Upphæðin sem Banda- Indo-Kína ríkin veita í þessum tilgangi var ekki ákveðin, en talið er að meiri hluti af fjárveitingu þeirri sem Bándaríkjaþing ætlaði SA Asíu eða 75 milljón dollarar verði úthlutað Indó-Kína. Koma i veg fyrir hernaðarástand. Acheson sagði. að Bandarík- in væru þeirrar skoðunar, að ábyrgðin á Ind-Kína, bæði fjárhagsleg og hervarnarleg hvíldi á Frökkum, en þar sem vitað væri að erlent stórveldi veitti stuðning sinn kommún- istiskum skæruliðum og skemmdarverkamönnum í land inu, þá hefðu Bandaríkin sam- þykkt að reyna að vega þar upp á móti og hindra að ó- friðarástand það breiddist víðar út um Asíu. Ætla þeir að beita hervaldi? Það getur verið, hjelt forset- in áfram, að Rússar ætli sjer á næstu mánuðum að auka enn ógnanir og ársáir. Það getur og verið að þeir stefni að því að beita hervaldi til að kúga aðrar þióðir. Eina leiðin til að hindra slíka styrjöld, er að -ýna þeim, að í hvert skipti, sem þeir reyna slíkar ofbeldisaðferðir, þá verð- ur Bandaríkjunum og öllum þeirra styrk að mæta. Walcolt keppir m Þjóö- verjann Hoff NEW YORK, 8. ma; — Jersey Joe Walcott hinn heimsfrægi hnefaleikamaður i þungavigt lagði í dag af staj flugleiðis frá New York til Þýskalands, en þar mun hann berjast við þýska hnefaleikameistarann Hein Ten Hoff 28. maí —Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.