Morgunblaðið - 09.05.1950, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 9. maí 1950.
styöja nasista-
flokka í Austurríki
Loia SS mönnum völdum og viröingu.
Eftir HUBERT HARRISOX, '
frjettaritara Reuters
í Vínarborg.
i RÚSSAR gera nú allt hugsan-
i legt til þess að vinna á sitt band
í'gamla austurriska nasista og þó
: einkum þá, sem voru SS for-
' ;ingjar í síðustu styrjöld.
i í fyrstu studdu rúsnesku her-
inámsyfirvöldin nasistaflokk,
isem kallaði sig „Frelsisbanda-
ílagið“, en sá flokkur hefur ekki1
íorðið vinsæll og ekki getað
tgegnt því hlutverki, sem Rúss-
tar ætluðu honum.
! Rússar eru því að hætta
jstuðningi við þessi flokkssam-
ftök, en hvöttu nýlega mjög til
fstofnunar flokkssamtaka, sem
.jheita „Alþýðubandalag vinn-
|andi Austurríkismanna.“
r
i-Foringinn
Igamall stormsveitarforingi.
. í Markmið þessa nýja „alþýðu-
Vfcandalags“ kemur skýrast i ljós
jjaf ræðu, sem dr. Slavik, fyrrum
Jstormsveitarforingi og leiðtogi
j-Kitlers-æskunnar flutti á stofn-
. tfundi „alþýðubandalagsins“.
! Á stofnfundi þesum voru við-
■ istaddir nokkrir háttsettir for-
!
(ingjar úr rússneska hernáms-
liðinu og veittu þeir öilum að-
gerðum fundarins blessun sína.
Hi etur nasista
i-1 að ganga í lið með
Rússum.
Dr. Slavik, sem virðist ætla
' að verða einn helsti leiðtogi ,,al-
þýðubandalagsins“, sagði m. a.
í ræðu sinni:
. „.... Það er enginn vafi á
þ ví, að Rússar munu í náinni
íramtíð drottna yfir allri Ev-
. rópu. — Það er þess vegna
heimskulegt af okkur Austur-
ríkismönnum að ætla sjer að
lægja storminn. Þegar að hon-
iim kemur verður hann ekki
jmeira en 5 klst,- — þann tíma
■ jsem Rússar þurfa til þess að aka
jbrynvörðum skriðdrekum yfir
landið — að æða yfir Austur-
.ríki.“
. j Þegar dr. Slavik hafði þannig
jrætt nokkra stund um það, hve
voldugt og ósigranlegt rúss-
neska hervaldið væri og hversu
-heimskulegt það væri að veita
þeim nokkra mótspyrnu, þegar
þeir hæfu árásarstríðið, þá tók
'hann til að ræða afstöðu fyr-
verandi SS-manna til Rússa.
í Austur-Þýskalandi
njóta nasistar valda.
Hann sagði m. a.: „Rússar eru
nú andvígir náðun SS-manna
áðeins vegna þess, að þeir ótt-
ást. að þeir sjeu hlynntir Vest-
tnvældunum. í Austur-Þýska-
jlandi njóta fyrrverandi SS-
tnenn og Gestapo-menn forrjett
inda undir verndarvæng Rússa
iog hljóta mikil völd. Ef austur-
rísku nasistarnir gætu sannfært
itússa um hollustu sína, myndi
áfstaða Rússa þegar breytast“.
Dr. Slavik tók nú að lýsa því,
aú þegar Rússar hefðu tekið
-A.usturríki, myndu þeir koma á
fót þar „alþýðulýðveldi“ eins og
Vinnudeilagetur
valdið þingrofi
Frelsisdaffur Dana,
í öðrum ríkjum Austur-Ev-
rópu.
Kommúnistar
vonast eftir viildum.
Hann sagði, að kommúnist-
arnir væru þegar búniv að
tryggja sjer góðar stöður í þessu
tilvonandi „alþýðulýðveldi". —
Jafnaðarmennirnir myndu gera
hið sama, þeir myndu kollvarpa
núverandi flokksstjórn og sam-
einast kommúnistum.
„Eigum við (nasistar) þá enn
-þá að bíta í það súra epli að
verða undir í lífsbaráttunni? —
Nei, við höfum ennþá tíma til
að venda seglum. Við höfum
enn tíma til að snúast í lið með
Rússum og „draga okkar hey á
land“. Við, sem fylgdum lífs-
skoðunum nasisfnans í síðustu
styrjöld, eigum mjög hægt með
að snúa yfir til kommúnism-
ans.“
„Frelsisbandalagið“ var komm
únistiskur flokkur, sem Rússar
stuðluðu að og átti einkum að
hafa það hlutverk að vinna
gamla nasista á band Rússa. —
Þetta hlutverk hefur honum
mistekist og þegar dr. Slavik
kom fram á sjónarsviðið og
kvaðst geta unnið nasistana á
band Rússa, ef þeim væri lofað
nógum bitlingum og völdum,
yfirgáfu Rússar „frelsisbanda-
lagið“, en tóku að styðja í þess
stað flokk Slaviks — „alþýðu-
bandalagið".
Nasistum lofað
völdum og virðingu.
Þeir hafa gefið Slavik heim-
ild til að lofa gömlum nasistum
öllu fögru, bæði auð og völdum,
ef þeir vilji snúast í lið með
kommúnistum.
Nú hefur „frelsisbandalagið“
frekar snúist í lið með Vestur-
veldunum og þegar Rússar
kvarta yfir því á hernáms-
fundum, að nasisminn sjo að
vaxa í Austurríki, benda þeir
alltaf á „frelsisbandalagið“,
þennan flokk, sem þeir studdu
leynt og ljóst fyrir tveimur ár-
um. Þeir vilja láta banna hann,
fjasa um að hann sje samsettur
af tómum nasistum og SS-
mönnum og allt þetta gera þeir
á sama tíma og þeir stuðla að
stofnun og viðgangi „alþýðu-
bandalagsins“, sem er augljós-
lega tæki til að vinna samstarf
við gamla nasista með loforð-
um um virðingu og völd.
Nota nasistana
til skuggaverka.
Þó „alþýðubandalagið“ sje
ekki enn mjög mannmargt eru
Rússar þegar farnir að hafa
töluvert gagn af gömlu nasist-
isku lögreglumönnunum, rem í
því eru. Þeir láta þá hleypa upp
fundum annarra stjórnmála-
flokka og á rússneska hernáms-
svæðinu nota þeir þá til að
njósna og jafnvel til mannrána.
Ef aðrir flokkar vilja verjast
árásum þessara gömlu nasista
með því að stofna varnarsveitir,
þá rjúka Rússar upp til handa
Framh. á bls. 5.
Frá frjettaritara Mbl.
KAUPMANNAHÖFN, 6. maí:
— Vinnudeila í danska land-
búnaðinum hefir í för með sjer
miklar stjórnmálaæsingar og
getur verið, að það verði að
rjúfa þing og efna til nýrra
kosninga.
Fyrir nokkru lagði sáttasemj
ari fram sáttatillögur í málinu.
Var í þeim stungið upp á því,
að vinnutími landbúnaðar-
verkamanna skyldi vera 531
klst. á viku í stað 54 klst. áð-
ur. Fjelag vinnuþeganna sam-
þykti þetta en fjelag vinnu-
rekenda neitaði að fallast á
það.
Bændur bera því fyrir sig, að
ef vinnutíminn styttist enn, þá
verði þeir að skera niður nokk-
uð af búfjenaði sínum og búin
geti þá ekki borið sig.
Nú er helst búist við því að
Hedtoft Hansen forsætisráð-
herra leggi mál þetta fyrir rík-
isdaginn og vilji láta lögfesta
sáttatilboð sáttasemjarans um
styttan vinnutíma. En meiri-
hluti ríkisdagsins er á öndverð
um meið við stjórnina í þessu
máli og er það afleitt, því að
stjórnmálaværingar voru næg-
ar fyrir varðandi vörubirgða-
lögin o. fl.
Liequal Ali Khan
í New York
NEW YORK, 8. maí — Liequat
Ali Khan forsætisráðherra
Pakistan, sem er í heimsókn í
Bandaríkjunum var í New
York í dag. Heimsótti hann
bækistöðvar S. Þ. í Lake Succ-
ess og hjelt þar ræðu sem f jall-
aði um utanríkisstefnu Pakist-
an. Lagði hann einkum áherslu
á það, að Pakistan vildi umfram
allt stuðla að friði í Suður-
Asíu. Eftir það sat Liequat
veislu í ráðhúsi New York borg
ar. Þegar bifreið hans ók um
götur borgarinnar, safnaðist
mikill mannfjöldi saman og
hyllti forsætisráðherrann.
—Reuter.
AÐ venju hjelt danska fjelagið ,,Dannebrog“ hátíðlcgan 5. maís
en þann dag, fyrir fimm árum síðan, var Danmörk aftur frjálg
af hersetu Þjóðverja, eins og kunnugt er. — Skemmtun þes'i
fór fram í Sjálfstæðishúsinu og með mestu prýði. Salurinn og
sviðið var fagurlega skreytt með dönskum fánum og blómum,
en ,,Maístöng“ blómum skreytt var á miðju salargólfinu, — og
nokkrar stúlkur úr fjelaginu sýndu þar þjóðdansa, sem vöktii
mikinn fögnuð áhorfenda. — Formaður fjelagsins, Börge Jöns-«
son, setti skemmtunina og stjórnaði henni. Sendiherra Dan?.,
frú Bodil Begtrup, hjelt fagra hátíðarræðu og minntist hinn«*
crfiðu hersetuára. Þá var sungið „Kong Christian“, en síðan va?
skrautsýning: Minning um þá látnu. Formálsorð flutti Ova
Larscn, síðan var frelsis-söngurinn sunginn og þjóðdansar sýnd «
ir, eins og áður er sagt. Loks var dansað. — Auk þeirra, sem
að framan getur var meðal gestanna Martin Larsen, blaðafull-<
trúi og frú; B. Jörgensen, frv. sendiherra og fleiri.
Tveir memi dæmdir tii |
danða í Alhaníu |
Rannsókn málsins ték átla dap.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
TIRANA, 6. inaí — í dag voru upp kveðnir rlómar í enn ein:.?
„njósnamáli“ í Albaníu. Hinir ákærðu voru sakaðir um b3
\era „títóistískir og nasistískir agentar“, Tveir sakborningarnin
voru dæmdir til dauða vegna þessarar sakargiftar, en fjórir $
langvarandi fangelsi.
Samqöngubann á
S-Molukkaeyjar
BATAVÍA, 6. maí: — Stjórn
Bandaríkja Indónesíu ákvað í
dag að setja algjört samgöngu-
bann á suðurhluta Molukka-
eyja. Er þetta ákveðið vegna
þess að íbúar eyjanna hafa
stofnað sjálfStætt ríki og skor-
ið sig úr Indónesiuríkinu. —
Samgöngubann þetta er bæði á
sjó og í lofti, engar póstsam-
göngur verða við eyjar þessar
og ekkert símasamband. — Þá
j hefir stjórnin lýst því yfir, að
ef ekkert samkomulag náist við
uppreisnarmenn á næstunni
verði herlið sent á vettvang
til að skakka leikinn.
Áskorun um ðð víkja
Strachey og Shinwell
LONDON, 8 maí — Áskorun
undirrituð af 18 þilsund mönn-
um um að víkja frá embætti
hermálaráðh John Strachey og
landvarnaráðherranum Eman-
uel Shinwell, var í dag lögð
fram í breska þinginu. Segir í
áskoruninni, að báðir þessir
menn hafi áður verið komm-
únistar og þar sem óvíst sje
nema þeir sjeu enn hliðhollir
kommúnismanum, þá hafi það
verið ótrúlegt ábyrgðarleysi að
fela þessum mönnum svo þýð-
ingarmikil störf varðandi ör-
yggi þióðarinnar. —• Reuter.
Franco kominn úr fríi
Madrid, 8. maí. — Franco, ein-
ræðisherra Spánar, kom í dag til
Madrid eftir að hafa tekið sjer
hálfsmánaðarfrí frá störfum. —
Hann hafði verið á túnfiskaveið-
um vði Norður-Spán og aflað vel.
Furtwángler segir skilið við
Nehrus í Indlandi
NÝJA DELHI, 6. maí: — Pra-
sad forseti Indlands samþykkti
í dag hinn nýja ráðherralista
í ráðuneyti Nehrus. Sjálfur verð
ur Nehru bæði forsætis- og ut-
anríkisráðherra og viðskipta-
ráðherra til bráðabirgða, þar til
annar maður verður skipaður
í það embætti. Sjerstakt ráð-
herraembætti hefi-r verið mynd
að til að fara með mál þjóða-
brota í Indlandi, er það í sam-
ræmi við samkomulag Nehrus
og Liequats Ali Khan.
Fljót afgreiðsla
„Njósnarrjettarhöld“ þessj
hófust 28. apríl, svo að ekkj
hefir tekið meira en átta daga
áð ,,rannsaka“ og kveða uppi
dauðadóma. Verður það að telj-
ast ákaflega fljót afgreiðsla. —t-
Hinn opinberi ákærandi lýstf
því og yfir, að rannsókn þes: a
máls hefði varpað ljósi yfjí
starfsemi bresk-bandarískvol
og títóista-njósnara.
„Játuðu“ sekt sína
Sakborningarnir ,,játuðu£'
sekt sína í skriflegu skjali, seirí
lagt var fram í rjettinum. Að-
alsakborningarnir tveir vorU
dæmdir til að skjótast þegar I
stað en fjórir aðrir sem sagðiíl
voru meðsekir fengu frá þriggjal
til 15 ára fangelsisrefsingu.
Poncet vi!! betri sam-
vinnu Frakka og Þjóðv.
HAMBORG, 6. maí. — Francoi^
Poncet landstjóri Frakka í
Þýskalandi lýsti því yfir í ræðu
sem hann flutti í Hamborg í
dag, að til þess að leysa öll
helstu stjórnmálaleg vandamáí
Evrópu væri frumskilyrðið, að
Þjóðverjar og Frakkar ynnu
saman með fullum skilningi og
góðvild í garð hvorra annarra.
Hann sagði að eitt þýðingar-
mesta skrefið til betri sam-
vinnu milli þjóðanna væri að
koma á tollabandalagi þeirrá
sem allra fyrst. — Reuter.