Morgunblaðið - 07.09.1950, Síða 9
Fimmtudagur 7. sept. 1950
MORGVNBLaÐIÐ
9
lundúnabrjef frá Karli Strand læknL
Almenningur þráir frið en er reiðubúinn
London, september.
DONALD PRELL er ungur
Ameríkani frá Norðurríkjunum,
ljóshærður, norrænn yfirlitum,
ljettur í málum og hreyfingum.
Hann er sálfræðingur að mennt.
áhugasamur um starf sitt, hef-
xr gaman af hljómlist, bókum,
kappræðum um stjórnmál og
þykir gott að borða góðan mat.
Hið síðastnefnda á ef til vill
rætur sínar að rekja til þess að
Donald var tvö síðustu ár stríðs
ins fangi Þjóðverja og ljettist
um 25 kg. á þeim tíma. Síð-
ustu mánuði þessarar dvalar
var kartöflusúpa aðal fæðið og
hver sem fann tætlur af hrossa-
kjöti í súpunni einu sinni í
viku eða svo var heppnismað-
ur.
Donald var leystur úr haldi
ásamt öðrum stríðsföngum er
Bandamenn unnu fulínaðarsig-
ur 1945. var sendur í skyndi til
Ameríku og hresstur við á ný.
Eftir sex mánuði var hann aft-
ur búinn að ná venjulegri
þyngd, giftist. byrjaði að starfa
að gáfnamælingum við ame-
ríska stofnun, staðráðinn í því
að hata styrjaldir og fangabúð-
ir og forðast hvorttveggja til
æfiloka Stuttu seinna fluttist
hann til Englands til þess að
vinna að ákveðnum sálfræði-
rannsóknum. Atvikin höguðu
því svo til að við unnum saman
á hverjum fimmí.jdegi og borð-
uðum saman í matstofu stofn-
unarinnar. Við starf sitt og við
miðdegisverðarbcrðið var Don-
ald lífið og sálin í kappræðum
ungra manna um lífið og til-
yeruna í hverri mynd. Öllum
geðjaðist vel að þessum glað-
væra fulltrúa nýja heimsins.
Donald k'allaður í stríðið
Síðastliðinn fimmtudag kom
Donald ekki til vinnu. í stað
þess barst okkur sú fregn að
hann hefði verið kallaður heim
til amerískrar herþjónustu og
hefði lagt af stað vestur inn-
an 48 stunda, — til styrjaldar
og hver veit hvers. Þennan
fimmtudag var óvenjulega
þögult við miðdegisverðarborð-
íð, sem að. mestu var skipað
ungum mönnum, þátttakendum
i síðasta stríði, innan lands og
utan. Allt til þessa hafði styrj-
tjldin í Kóreu verið tíðindi úr
fjarlægri álfu, en snögglega
hafði hún gripið inn í líf okk-
ar allra eins og óboðinn gestur.
Margir viðstaddra hófu í raun
og veru æfistarf sitt fyrir fimm
órum þegar ófriðnum lauk. Nú
bíða þeir átekta Lve langur tími
þeim verður leyfður.
Almenningur þráir frið
Þetta dæmi nægir til þess að
bregða ljósi yfir viðhorf þús-
Unda og aftur þixsunda annara
starfshópa víðsvegar um land-
íð. Almenningur í Bretlandi
þráir frið. Fimm ár eru stutt-
ur tími til þess að reisa úr rúst-
um þjóðfjelag, rem fórnað hef-
ír öllu nema brýnustu nauð-
synjum til þess að bjarga frelsi
sínu. Stríð austur í Asíu er ann-
að í hugum manna en innrás
i Bretland, eins og sú er yfir
vofði er fyrstu kynni undirrit-
aðs af þjóðinni áttu sjer stað
árið 1941. Þá var enginn í vafa
um hver hugur fylgdi máli. Svo
3engi sem ófriðurinn er víðs
f jarri bíður almenningur átekta
og sjer hverju fram vindur. í
folöðunum er rætt og ritað um
málið frá öllum hliðum, en það
l*egar Donald var kallaður í herinn —
Verðhækkanir og Ermarsunds-keppni —
nýtti gas til ljósa og margir
fleiri, síðar frægir menn. Til
þessara manna átti breska iðn-
aðarbyltingin rætur sínar að
rekja. j
n * • I ■ ' Forseti Breska fjelagsins er
J5UU vismdamenn bera saman rað sm Sir Harold Hartley — sem eink
um hefir unmð sier frægð fyr-
ir járnbrauta- og flugvísindi. f
setningarræðu sinni um ,,notk-
un orkunnar í þágu mannsins'*
lýsti hann því hvernig vísinda-
menn og verkfræðingar gætu
margfaldað lífsþægindi alls
mannkynsins, ef hugur þess
beindist að því að sækjast eftir
allsnægtum í stað valds. Hann
minntist á þá möguleika að
tengja saman orkuver Bret-
lands og Evrópu og hagnýta á
þann hátt sem best orku þá,
sem framleidd er í hverjum
stað með tilliti til breytinga á
orkuþörf þjóðanna, á ýmsum
tímum. Sir Harold benti og á
hvernig kjarnorkan hefði sýnt
að auðveldara væri að nota orku
til eyðileggingar en endurbóta,
þrátt fyrir þá framtíðarmögu-
leika er hún bæri með sjer til
hagnýtra hluta Þá talaði hann
um þörf og hagnýtingu orku
nú á tímum: Einn þriðji hluti
þeirrar orku, sem nú er fram-
leidd í Englandi er notuð til
þess að fæða þjóðina og halda
henni heitri. Hver einstakling-
ur notar fjórða hluta þeirrar
orku er hann barfnast til þess
að viðhalda heilafrumum sín-
um — um 10,000 milljónir
talsins — svo þær sjeu færar
til starfa. Ymsar vjelar hafa
verið upp fundnar sem tekið
geta að sjer ákveðin störf heil-
ans og leyst þau af hendi fljót-
ar og betur og notað þó marg-
fallt minni orku. En önnur
störf heila og skilningarvita eru
öllum vjelum ofviða.
er eftirtektarvert hversu fólk-
ið sneiðir hjá því að tala um
stríð meira en nauðsyn krefur.
Þó liggur það í loftinu að allir
eru reiðubúnir ef kallið skyldi
koma Hjer er ekki um að ræða
andvaraleysi um þýðingu við-
komandi atburða, nje því að al-
menningur viti ekki hvað er að
gerast í raun og veru lítur al-
menningur á þessa styrjöld sem
viðfangsefni Sameinuðu þjóð-
anna sem best sje að leiða hjá
sjer að svo miklu leyti, sem
auðið er. Þótt nokkur her og
floti sje kominn á vettvang þá
er það engin nýjung að eiga
þá aðila á ófriðarsvæði.
Hervæðing og hækkuð laun
hermanna
'Talsvert verður þess vart að
þingsins, sem kemur saman 12.
þ. m, er beðið með óþreyju.
Churchill og Attlee hafa þegar
leitt saman hesta sína út af
dagsetningu þingsins, en ekki
virðist það vera stórmál í hug-
um annara. Nokkrir dagar til
eða frá skipta jafnaðarlega litlu
máli í Bretaveldi.
í kjölfar þeirra fregna að
stjórnin hefði ákveðið að auka
til muna framlag til hervarna,
kom önnur tilkynning, um
hækkun á kaupi hermanna.
Eins og kunnugt er hefir kaup
breska hersins ætíð verið mjög
lágt og á síðustu árum hefir
borið á því að efnilegir menn
hafa verið tregir að ganga í
herinn. Kauphækkun þessi nem
ur frá 33Vs% til 75% o^kem-
ur til með að kosta þjóðina um
6814 milj. sterlingspunda. Þrátt
fyrir þær auknu álögur er þessu
fylgja hefir almenningur tekið
þessari kauphækkun vel. Flest-
ir einstaklingar ríkisins hafa á
einhverju skeiði æfinnar ann-
aðhvort verið í hernum eða átt
þar vandamenn og vita því
hvar skórinn kreppir.
Konungshollusta
Miður velkomnar voru aftur
á móti þær fregnir í síðasta
mánuði, að verð á ýmsum nauð-
synjavörum ætti að hækka, svo
sem kjöti, fleski, kaffi o. fl.
Yfirleitt hafa allar nauðsynjar
nú hækkað í verði síðan gengi
sterlingspundsins lækkaði. Þótt
hækkanir þessar hafi ekki ver-
ið stórvægilegar, þá safnast
þegar saman kemur, og finnst
ýmsum, einkum millitekju-
mönnum, sem einkum bera
skattana, nú orðið þröngt fyr-
ir dyrum.
Hafi almenningur talað lítið
um stríðið síðastliðinn mánuð,
þá hefir hann notað sjer því
meira þá atburði er standa
hjarta hans nær. Þar á meðal
má nefna fæðingu nýrrar prins
essu og kappsundið yfir Erm-
arsund. Konungsfjölskyldan og
íþróttirnar eru ætíð eftirlætis-
umræðuefni. Islendingar, sem
eru manna tómlátastir um kon-
unga, þurfa venjulega nokkurn
tíma til þess að gera sjer grein
fyrir í hverju sú ánægja er fólg
in, sem Bretar hafa af því að
sjá sem snöggvast framan í
konung sinn eða fjölskyldu
Sir Harold Hartley.
hans Svarið er einfaldlega það
að fólkið lítur á konunginn sem
persónulega etgn sína og
heimilislíf hans og atvik öll sem
hluta af eigin heimilislífi eins
og það ætti best að vera. Hjer
af leiðir að ærið er vandlifað
fyrir konungsfjölskylduna og
kemur það greinilega í Ijós ef
útaf ber að þjóðin telur sig hafa
fullan rjett til þess að segja til
syndanna. Vikuna áður en Eliza
beth prinsessa fæddi dóttur
sína mátti sjá tugi og jafnvel
hundruð manna og kvenna á
vákki, nótt og dag, í kring um
hús prinsessunnar, sem beið í
þeirri von að geta orðið fyrst
að heyra frjettirnar og e. t. v.
sjeð eitthvað af tilheyrandi um-
stangi.
Ermasunds-keppni
Kappsund það cr blaðið Daily
Mail efndi til yíir Ermarsund,
vakti athygli margra, sem ann-
árs láta sjer fátt um iþróttir
finnast Allir snndkappar Breta
og margir fleiri láta sig dreyma
um það að synda yfir álinn ein-
hverntíman á æfinni. Þegar
staðið er á hæði.num hjá Dover,
virðist hverjum sundmanni
þetta í lófa lagið. En straumar
og vindar eru tíðir í sundinu,
og jfyrir þeim hefir cnargur
sundkappinn lot;ð í lægra haldi.
Að þessu sinni hjet blaðið Daily
Mail 1000 sterlingspundum
hverjum þeim karlmanni og
konu er fyrst yrðu yfir. Valdir
voru 24 keppendur úr miklum
fjölda umsækjanda, 18 karlar
og 6 konur. Lagt var af stað
frá Frakklandsströnd kl. 2.30 að
morgni þess 22. ágúst.— Veður
var hið besta. Brátt dreifðist
úr hópnum og eftir tvo klukku-
tíma gáfust tveir keppendur
upp. Er á daginn leið heltust
fleiri úr lestinni, fengu sina-
drátt, höfuðverk, sjóveiki eða
hræddust nákar1a Eftir 10 klst.
50 mín staulaðist sigurvegar-
inn, Egyptinn, Hassan Abd E1
Rehim á land Englandsmegin,
þar sem þúsundir manna biðu í
fjörunni til þess að fagna hon-
um. Næsti þátttakandi kom 12
mínútum seinna Kven-sigur-
vegarinn, Eileen Fenton, bresk,
var 15 klst. 31 mín. og 5 klst.
af þeim tíma synti hún hliðar-
1 sund með annari hendi aðeins,
vegna tognunar í handlegg.
Alls komust 9 keppendur yfir,
7 karlmenn og 2 konur. Frjett-
um af sundinu var útvarpað
jafnóðum og úrslita beðið með
eftirvæntingu
Lömunarveiki í Wight-eyju
Síðustu dagana í ágúst bár-
ust aðrar fregnir, af lakara tæi
neðan af suðurströndinni. Wight
eyjan — Isle of Wight — sem
liggur rjett utan við Ports-
mouth er einhver vinsælasti
sumardvalarstaður landsins,
vegna náttúrufegurðar og veð-
urblíðu. Sumargestir eyjarinn-
ar skipta venjulega hundruð-
um þúsunda. Seint í ágúst varð
lömunarveiki vart á eyjunni og
eftir fáeina daga voru 38 manns
veikir. Sumargestir flýðu þús-
undum saman burtu og enn
fleiri þúsundir sögðu upp fyr-
irfram pöntuðum hótelherbergj
um. Fjörurnar. sem venjulega
iða af lífi á þessum tíma árs
eru nú næstum mannlausar.
Fjöldi smærri hótela gerir ráð
fyrir gjaldþroti ef veikin held-
ur áfram. En hún virðist nú
aftur í rjenun Hinsvegar hefir
hennar orðið vart víða annars-
staðar í landinu, enda er hún
ætíð algengust hjer seinni part
sumars. í Norður-London, á
Mill Hill rannsóknastofunni er
unnið sleitulaust að lömunar-
veikisrannsóknum og þekking
manna á veikinni vex stöðugt,
en lækning hennár er ófundin
enn.
Þing breskra vísindamanna
Norður í Birmingham stend-
ur yfir 112. þing Breska fjelags
ins — The British Association
—. Fjelag þetta, sem var stofn-
að 1831 er nokkurs konar al-
þing breskra vísindamanna, þar
sem þeir koma saman til skrafs
og ráðagerða einkum í því
augnamiði að bollaleggja
hvernig megi hagnýta vísindi
í þágu manna og kynna þau
meðal almennigns. Um 3500
manns sitja þing þetta og þar
af 130 vísindamenn frá háskól-
unum, 50 frá rannsóknastofn-
unum ríkisins og 30 frá vísinda
stofnunum er starfa á vegum
iðnfyrirtækja AAalviðfangsefni
þingsins eru umræður um „orku
í þágu mannkynsir.s“.
Breska fjelagið er eiginlegsf
arftaki annars f jelags, sem starf
aði í Birmingham snemma á
18. öld. Fjelag það nefnist The
Lunar Society — Mánafjelag-
ið, — það hjelt fundi sína á
þeim degi mánaðarins er tungl-
ið var fullt, af þeirri einföldu
ástæðu að venjulega var liðið
á nótt er fjelagsmenn hjeldu
heim til sín og þá kom tungls-
ljósið í góðar þarfir. Vitanlega
voru þeir nefndir ,.the lunatics“
brjáluðu mennirnir, og ekki að
ástæðulausu, þv: ýmsir kyndug
ir karlar tóku þátt i þessum
fielagsskap. Þar var James
Watt er fann upp gufuvjelina,
Joseph Priestley er fann súr-
efnið, Withering læknir er fyrst
ur notaði digitalis til hjarta-
lækninga, Murdoch, sem hag-
Qrkuþörf heimsins
Orkuþörf heimsins alls, fæði
manna og dýra, hiti, ljós og
aflvjelar er nú sem samsvarar
orku úr 4000 millj. smálesta
kola. Af þessari orku kemur
21% frá jarðrækt, 41% frá kol-
um og skvldu eldsneyti, 6%
frá timbri, 24,5%. frá olíu. 6,4%
frá gastegundum úr jörðu og
1 % frá vatnsafli Þau lönd, sem
liggja norðan við 20 breiddar-
gráðu géyma 94% af kolamagni
veraldar. Árið 1900 var olíu-
framleiðsla heimsins 20 millj.
smálesta en nú “r hún 500 millj.
Sir Harold benti á ýmsar
fleiri staðreyndir því máli til'
sönnunar að aldrei hefði mann-
kynið verið ríkara nie haft
meiri möguleika en nú til vel-
megunar. Að lokum komst hann
svo að orði.
. ,Framtíðarmöei il eikar manns
ins liggja í skilningi hans á
breytingum náttú^unnar, aukn-
um og bættum nýtingaraðferð-
um og auknum skilningi á sam-
vinnuþörf þjóðanna“.
________________K. S:
Sfefna sfjórnarinnar
verður að vernda friðinn
AÞENA, 6. sept.: — Sophocles
Venizelos, kynnti nýju stjórn-
ina sína fyrir þinginu í dag, en
í henni eiga sæti frjálslyndir og
lýðræðisjafnaðarmenn. — Hann
sagði, að stefna stjórnarinnar
yrði „að varðveita friðinn“. Ef
nauðsyn krefði, yrðu gerðar
viðhlítandi ráðstafanir til að
búa þjóðina undir hvað eina,
sem að höndum bæri. — Reuter.