Morgunblaðið - 12.10.1950, Page 6

Morgunblaðið - 12.10.1950, Page 6
6 MORGVTS BLAÐIÐ Fimmtudagur 12. okt. 1950 BARNAVAGni | til sölu. Uppl. í síma 6351 ; f s 5 j til sölu. Uppl. i síma 31065. ! z DRAFNARBORG 1 Leikskólinn í Drafnarborg tek- | ur til starfa föstudaginn 13. þ.m. | kl. 1 e.h. Forstöðukonan. | Gólfteppi | j til sölu. Uppl. í síma 6566. | Ibúð 2—3 herbergi og eldhús óskast l nú þegar. 3 í heimili. hyrir- | framgreiðsla. Tilboð merkt: : ..íbúð — 748“ sendist blaðinu | fyrir k'völdið. | | Koihogaljós 1 j til sölu. Nokkur stykki af vara- \ | kolum fylgja. Uppl. í sima jj | 7457. í i | Z inilHMMIIHIMIIIHItMIIMIMIOMtHiMIIIIHMMMIIItllll - | Frammistöðu- | stúlka j óskast á veitingahús úti á landi. j j Uppl. í Úthlíð 9 miðliæð t.h. j s eftir kl. 1 i dag. ! I Samlagningavjel j og ritvjelaborð óskast til kaups. : Þeir sem vilja selja annað hvort = eða bæði, Ieggi r.öfn sin inn á | afgr. Mbl. fyrir 14. þ.m. merkt: i „100 — 742“. Bílstjórar — Hreyfill | Dökkgrænn sjálfblekungur tap- = aðist i leigubil frá Hreyfli kl. | 9.30—10 í ga>ruiorgun. Finn- f andi vinsamlega skili honum á • \ afgr. Hreyfils. Steypu- timbur 2 = - óskast til kaups. Simi 3283. ? • 'IMMIIIIMMMIIMIMMMIMIIMIMMMItfMMMIItllMIMIII* ” 1 Gulrófur | | Góðar gulrófur kr. 1.50 kg. sent j j heim Pantanir í síma 4228. GarSyrkjan BóIstaS við Laufasveg. E : | MIG VANTAR [ I—2 herbergi og eldhús. Get | tekið að mjer að mála íbúðina | og litilsháttar fríðindi geta kom | ið til greina. Tilboð sendist afgr. | Mbl. fyrir laugardag merkt: | „Húsnæðislaus — 743“. j Wilton ( Gólfteppi | til sölu. | h FORN VER SLUNIN 1 I.angaveg 57 Simi 5691. | Munið daglega afskorin blóm og pottaplöntur j Blómabúðin, ílaldursgötu 9 l Sími 6464. (IVIatreiðslukonai | óskar eftir atvinnu. Tilboð send | | ist afgr. Mbl. rr.erkt: „Atvinna | | _ 744“. 1 Til sölu | j stoppuð húsgögn innlagt sauma j j borð, flísalagt i’dhúsborð, sjúkra | j rúm, bókahilla o. fl. í Aðalstræti j j 11 i dag kl. 5—6. c : 1 Rafvirki j c t 5 1 óskast til staðar i nagrenm j | Reykjavikur. Umsóknir sendist j I afgr. Mbl. fyrir 15. okt. merkt- | | ar: „Rnfvirki — 747“. | Girðiuga- i staurar j til sölu. Uppl. í síma 4534 eða | j Laugaveg 67. j Þvottaviel ) EASY-THOR | § Vil kaupa Easy eða Thor þvotta j | vjel. Hátt verð. Tilboð sendist j § afgr Mbl. fyrir L.ugardag, merkt | j „Easy—Thor — 746“. I HERRAVETRAR- í FRAKKAR j mjög ódýrir, aðeins nokkur j \ stykki. Versluni*, Grótta Laugaveg 19. = IMMMMiillllllllMMIMMMMMIIIMIIIIIMMMMMIIIIIMI|MI Z íbúð j Vantar 1—2 herbergi með eld- j j unarplássi strix. Tvennt full- 1 jj orðið í heimili. Tilboð sendist j j afgr. Mbl. fyrir kl. 6 á fimmtu- I J j dag. merkt: „íbúð — 752“. j | | Gélflgppi i = Axminster gójfteppli 3x4 til 5 S sölu Eiríksgötu 13 eftir kl. 6. \ : IIMmillfllMtlIIIII'IMMIflllltnilllAllMMIMIiailHIIIH • i Svartu. | nýr kjóll ( 1 s j no. 42 til sölu. Uppl. í síma ! f 80193 5 s Jeppi | | til sölu. Til sýnis við Leifsstytt | \ una frá kl. 6—8 é.h. Tilboð j ! óskast á staðnum. | i Bókin um Símon Dalaskáld er nær fullprenfuð ÚRVAL það, er síra Þorvaldur Jakobsson hefur gej-t úr ritum Símonar Dalaskálds, og Rímna fjelagið gefur út, er nú nær fullprentað og kemur væntan- lega út í lok októbermánaðar. Bókin verður talsvert stærri en áætlað var, eða nokkuð á sjötta hundrað síður, og skömmu eftir að vinna við hana hófst, hækkaði prent- kostnaður að miklum mun. — Verð hennar til áskrifenda, 56 kr. fyrir óbundið eintak, safði fjelagið sett svo langt sem það treysti sjer. Þrátt fyrir þau tvö meginatriði, sem greind j hafa verið, telur það sj?r skylt i að standa við þetta loforð sitt. En ákveðið hefur verið að bók in verði einnig höfð til sölu handa almenningi — óumflýj- anlega við allmiklu hærra verði. Hún verður hin prýði- legasta að öllum frágangi, og mun mörgum þykja eiguleg. Er óhætt að segja, að með henni muni nafn þessa síðasta farandsskálds íslendinga hefj- ast til nýrrar virðingar. Hefur og síra Þorvaldur, eins og vænta mátti, unnið verk sitt með miklum ágætum. | Allir áskrifendur og áskrifta safnarar þurfa að hafa gefið sig fram við bókavörð Rímna- fjelagsins, Friðgeir Björnsson, stjórnarráðsfulltrúa, fyrir til- greindan tíma, októberlok, því frá útkomudegi bókarinnar gildir hið nýja verð, sem ekki hefur enn verið unnt að á- kveða. Landsbókasafnið á tvennar óprentaðar rímur eftir Símon Dalaskáld: Bjeringsborgarrím- ur og Þorsteinsrímur, hinar fyri'i þó ekki alveg heilar. En hann kvað nokkra aðra rímna- flokka, sem ekki hafa prentað- ir verið og ekki er vitað hvort geymst hafa. — Rímnafjelagið vill nú eindregið skora á hvern þann, er eitthvað slíkt kynni að eiga, og þá ekki síður Ijóða- brjef eftir Símon (en af þeim orti hann hinn mesta sæg) að hafa samband við Landsbóka- vörð, svo að hann fái að vita um handritin, sem vitanlega væri æskilegast að kæmust á Landsbókásafnið til varð- veiðslu. (Frá stjórn Rímna- fjelagsins). Sexfugur: Bjarni Jénsson, beykir Naufgripum fækkað r I AKUREYRI, 11. okt. — Versta ótíð hefir verið 1 jei um slóðir í marga daga. Undanfarið hef- ir verið norð-austan átt og kyngt niður snjó hjer í Eyja- firði. Liggja mikil hey ennþá úti hjá mörgum bændum, og eru að vonum orðin ónýt með öllu til skepnufóðurs. Er enginn vafi á því að naut- gripum verður fækkað hjá mörgum vegna fóðurskorts, og uni þessar mundir munu vera nokkur brögð að_ þvi, að kýr gangi kaupum og sölum manna á meðal. Þó að spretta garðávaxta hafi verið með betra móti í sumar dregur pað úr, að vegna ótíðar hefir gengið erfiðlega að ná uppskerunm, og eru ennþá víða kartöflur niðri í görðum. Er talið að í hinni miklu kart- öflusveit Svalbarðsströnd hafi verið fyrir tveim dögum um 100Q. tunnur úti),; eða um 20% uppskerunnar. —H. Vald. EIN er sú iðn hjer í bæ, sem segja má með sanni að ekki berist mikið á. Er það beykis- iðnin. Ekkert beykisiðnaðarfje- lag hefir nokkuru sinni verið hjer til og hefir af þeim sök- um lítið borið á kröfugerðum frá þeirri stjett manna, og al- drei hefir hún gert verkfall. Varnarlaus hefir hún og verið öðrum stjettum fremur gegn hvers konar gervimennsku, því það er tiltölulega auðvelt að opna síldar- og kjöttunnur og loka þeim og eru þeir ófáir, sem við það hafa fengist og þá tekið sjer beykisnafn, a. m. k. um stundar sakir. Ástæðan fyrir því, að hag þessarar iðnar er svona varið er ekki torskilin þeim, er til þekkja. Hún er einfaldlega sú, að vegna breyttra atvinnu- hátta og breytts mataræðis má segja að iðnin sje gjörsamlega út dauð, að undanteknu nokk- uru síldartunnusmíði í verk- smiðjum ríkisins á Akureyri og Síglufirði á vetrum. Hvort þar vinna faglærðir beykjar er svo annað mál og línum þessum óviðkomandi. Þótt nú þannig sje komið hag iðnar skáldanna Sigurðar Breiðfjörðs og Jóns Magnússon- ar og þótt flestir þeir, sem gáfu sig að henni áður, sjeu nú orðn- ir annaðhvort brunaverðir, lög- regluþjónar, húsa- eða hús- gagnasmiðir eða eitthvað ann- að, þá er það nú einu sinni svo, að þrátt fyrir allt geta komið þau tilfelli á vorri teknisku öld að ekki sje gott að komast af án beykis — raunverulegs beyk is. Er óþarfi að nefna þess nokk ur dæmi. Vita þeir það gjörst, sem á hafa þurft að halda og þurfa enn þá — stöku sinn- um. Og sjá! Reykjavík er enn þá svo heppin að eiga beyki á að skipa, en aðeins einum. Fleiri gefa sig ekki að þeirri iðn að staðaldri nú orðið í hinum því nær 60 þúsunda höfuðstað vor- um. En þetta er líka ósvikinn beykir, sannkallaður töframað- ur í iðninni, bæði hvað kunn- áttu og afköst snertir. Nafn hans er Bjarni Jónsson og á hann heima að Háaleitisvegi, Sogamýrarbletti 40 og er sextug ur í dag. Bjarna beyki kannast svo margir bæjarbúar við, að óþarfi er að eyða á hann löngu máli, þótt það hins vegar væri næsta freistandi, því maðurinn er sjer kennilegur persónuleiki í lát- leysi sínu og hversdagsleika. — Skaphöfn hans er afburða traust og örugg og fley hans berst ekki fyrir hverjum vind- blæ sem blása kann úr austri eða vestri þá og þá stundina, en heldur sig eingöngu á ís- lenskum siglingaleiðum færandi sjer í nyt þau leiðarmerki, sem íslensk þjóð hefir í gegn um aldirnar, verið megnug að skapa börnum sínum. Þrátt fyr- ir það, að hann hefir aldrei hraustur verið síðan á unglings- árum, þótt hann með iðkunn í- þrótta næði sjer vel á strik um langt skeið, þá hefir hann á- vallt verið afburða starfsmað- ur að hverju sem hann hefir gengið. en það er nær ein- göngu beykisiðnin sem fengið hefir að njóta krafta hans, þótt margt annað fari honum vel úr höndum, enda var hann t. d. langt kominn með að nema trje smíði áður en hann hóf beykis- nám hjá Jóni heitnum Jóns- syni beyki fyrir um það bil 40 árum. Bygði hann og fyr- ir nokkrum árum, að mestu Ieyti einsamall, núverandi hús sitt þar sem er bæði heimili hans og atvinnustöð. Þjóð vor væri vissulega bet- ur á vegi stödd heldur en hún nú er, ætti hún mörgum mönn- um á að skipa með starfsfýsi og óeigingirni Bjarna, því hami hefir aldrei hlíft sjer og ekki kvartað, þótt vinnan hafi verið erfið, starfsdagurinn langur og launin lág. Heimsstyrjaldir og hernám hafa engin deyfandi á- hrif á starfs- og viðskifta ,,mór- al“ hans, og í kapphlaupinu milli vinnu og verðlags hefir hið síðarnefnda viljað dragast ónotalega aftur úr hjé honum, svo nær er mjer að halda að hanrp hefði aldrei sextugur orð ið, hefði ekki undirritaður og aðrir kunningjar hans verið að brýna það fyrir honum, að hon um væri nauðugur einn kostur að taka að nokkru leyti þátt í „dansinum“, vildi hann lífi halda. Bjarni Jónsson er greindur vel og marg fróður um ýmsa hluti óskylda fagi sínu, enda ágætlega lesinn þó guð megi vita hvenær hann hefir haft tíma til þess svo mjög sem hann hefir að sjer lagt í starf- inu. Sá hann sem einbirni prýði lega fyrir foreldrum sínum sem bæði urðu há öldruð og hjálpar þurfar um langt skeið, en tryggingar engar í þá daga. Einn er sá eiginleiki í farí Bjarna, sem lýsir honum e. t. v. betur en nokkuð annað. Er það grandvarleiki hans til orðs jOg æðis gagnvart náunganum. Hefi jeg engum manni kynnst jafn umtals góðum um meðbræð ur sína og er það segin saga, að hafi hann ekki eitthvað gott um Pjetur og Pál að segja, þá veit hann ekkert um þá — al- drei. Hann er og óhnýsinn um annara hagi, þeirra, er honum eru óviðkomandi. Má því óef- að telja hann gæfumann svo mjög sem hann ann samferða- fólkinu og starfinu — fram- vindu lífsins. Margur útgerð- armaðurinn, iðnrekandinn og almúgamaðurinn á honum mik- ið upp að unna vegna skjótrar og öruggrar fyrirgreiðslu þegar á hefir þurft að halda á þeim vettvangi, sem hann hefir starf að á og mun ennþá eigi afrækja um nokkurt skeið, þótt hann — eini beykirinn í bænum — hafi hvergi nærri nóg að gjöra í iðninni nú orðið. Óska jeg honum svo og konu hans frú Sigurbjörgu Kristins- dóttur. til hamingju með öll ó- liðnu árin og vona að þau verði jafn giftudrjúg þeim sem á und an eru gengin. S. S. Hugheilar þakkir sendi jeg öllu minu samferðafólki á lífsleiðinni, sem minntist mín með hlýjum hug á ýmsan hátt á 75 ára afmæli mínu 8. okt. s. 1. Baldvin Einarsson, aktj jasmiður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.