Morgunblaðið - 26.10.1950, Page 4
4
MORGUftBLAÐlÐ
Fimtuáagur 26. okt. 1950.
299. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 5,20.
.Síðdegisfiæði kl. 17,38.
Nætiirlæknir er í la^knavarðstof-
linni, sími 5020.
IVæturvörður er í Laugafegs
ifti lóteki. sími 1616.
IOOF = 13210263% =
C EDD.V 595010277 — 151 — 2
Hallgrímskirkja
Biblíulestur í kvöld kl. 8.30 — Sr.
Sigurjón Árnason.
Aímæli
Sigurhans Hannesson jámsmiður,
JLaugavegi 93, er 65 ára í dag.
Ragnhildur Jensdóttir, Rauðarár-
*it’g 34. á áttræðisafmæli í dag.
Dagbó k
Brúðkiup
I
S. 1. sunnudag voru gefin saman
í hjónaband af jjera Pjetri Sigurgeirs
«yni ungfrú Anna Aðalheiður Ólafs-
«lóttir, Akureyri og Ámi Stefán
H-lgi Hermannsson. sjómaður. Heim-
ili þeirra er í Norðurgötu 47, Akur-
•eyri. —
1 gær voru gefin í heilagt hjóna-
tband Esther Laxdal og Boldvin
Ágústsson bryti. — Heimili ungu
tj inanna er að Ásulundi 7, Vestur-
iandsveg.
S. 1 laugardag voru gefin saman
í hjónaband af sjera Friðrik J. Rafn-
er vigslúbiskup ungfrú Hermína
Jakobseri og Einar Guðbjömsson,
Eiciarssonar bifreiðastjóri. Heimili
jþeiira er í Laekjargötu 18, Akureyri.
HJéwaefni
Nýlega hafa opinterað trúlofun
eina ungfrú Kolbrún Kristjánsdóttir.
verslunarmær, Þingvallastræti 1, Ak-
lireyri og Þorvaldur Nikulásson,
simalagningamaður frá Reykjavik,
Einnig ungfvú Guðlijörg Malm-
<|uist símamær, Einarssonar fyrv.
TÚ.gerðarmanns. og Svtiim Ólafsson,
fcilstjóri, Akuresri.
Dagskrá
sameinaðs Alþingis finimtud. 26.
•október 1950, Ul. 13,20 niiðclegis;
1. Till. til þál. run byggingu þurr-
'kviar á Patreksfirði, 39. mál. Sþ. —
2. Till. til þál. um vjelræna upp-
töku á þingræðum. — 3. Till.. til
þá!.. um rjettarrannsókn á slysum,
sem orðið hafa á 'slenskum togur-
tim. — 4. Till. til þál um hina al-
■tnennu fiskideild hlutatrygguigasjóðs
þátaútvegsins.
íliugfjelag íslaiitís
Innanlandsflug: — í dag er ráð-
gert að fljúga til Ákureyrar, Vest-
tnannaeyja, Reyðarfjarðgr, Fáskrúðs-
/jarðar og Sauðárkróks. —Milli-
landaflug: — „Gullfoxi14 kom frá
New York í fýrradag. Flugvjelm fór
til Prestvíkur og Kaupmannahafnar
í gærmorgun og er væntanleg það-
«n kl. 18.00 í dag.
Crengisskráning
Sölugengi erlends gjaldeyris i ís-
lenskum krónum: 1£ * kr. 45.70
1 USA dollar ... .. 16.32
100 danskar kr. .... — 236.30
100 norskar kr. _— — 228.50
100 sænskar kr 315.50
100 finnsk mörk — 7.00
1000 fr. frankar .— 46.63
100 belg. frankar 32.67
100 svissn. kr. .. — 373.70
32.64
100 gyllini — 429.90
Stefnir
Söfnin ,
Landsbókusafnið er opið kl. 10—)
12, 1—7 og 8—10 alla virka daga j
nema laugardaga klukkan 10—12 og
1—7. — X>jó8skjalasafnið kl. 10—12
og 2—7 alla virka daga nema laugar-
daga yfir sumarmánuðina kl. 10—12.
— Þjóðminjasafnið kl. 1—3 þriðju-
daga, fimmaudaga og sunnudaga. —
Listasafn Einars Jónssonar kl. 1,30
—3,30 á sunnudögum. — Bæjarbóka
safnið kl. 10—10 alla virka daga
nema iaugardaga kl. 1—4. — INátt-
úrugripasafnið opið sunnudaga kl.
1,30—3 og þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 2—3.
Kvenfjel. Hallgrímskirkju
heldur hinn órlega merkjasöludag
sinn ó morgun. Mevki eru afgreidd á
Eiríksgötu 29, hjá Guðrúnu Fr.
Rvdén,
i;
Áheit á Strandarkirkju
Sirá Bjarna var sent trjef mdð á-
heit á Strandarkirkju. Á brjefspjaldi
' var skrifað: Áheit fró N. N., kr.
25,00. En í umslaginu voru kr.
60,00. — Hefir sú upphæð verið af-
hent Strandarkirkjusjöðnum,
i f 5 k S p a f r j e I f
Eiuiskipafjelag íslands:
,,Brúarfoss“ fór frá Pireaus i Grikk
landi 21 þ.m. til Islands. ..Dettifoss
kemur til Reykjavíkur kl. 1800 í dag,
25. þ.m. frá Leith. ,.Fjallfoss“ er í
Reykjavík. ,,Goðafoss“ kemur til
Bergen í dag. 25. þ.m. frá Álahorg.
..Gullfoss" er í Kaupmannahöfn. ---
„Lagarfoss“ fór frá Egersuhd 23 þ.m.
til Faxaflóahafna. ..SeHoss“ fór frá
Stokkhólmi 21. þ.m. til Ulea í Finn-
landi. „Tröllafoss fór frá Reykjavík
18 þ.m. til New-Foundland og New
York. —
Einiskipafjel. Rvíkur:
j M.s. Katla er í Vestmannaeyjum.
Ríkisskip:
Hékla er á Austfjörðum á suður-
leið. Esja er í Reykjavik. Skjaldbreið
fer frá Reykjavik næstkomandi mánu
dag til Húnaflóahaína. Herðubreið er
í Reykjavík. Þyrill er væntanlegur
til Reykjavíkur í lag að vestan og
! norðan. Þorsteinn fór frá Reykjavík
’í gærkveldi til Vestmarinaeyja. —
St-raumey er á Auslfjörðum á Norð-
urleið.
S. Þ. hátíð í Mary Sand
háskóla
1 útvarpsfrjettum frá Washington
var sagt frá því í fyrradag, að ung-
frú Margrjet Thors, dóttir Thor
Thors sendiherra, liefði stjórnað þjóð
dansasýningu. sem haldin var í há-
skólanum í Maryland 1 tilefni af 5
ára afmæli Sameinuðu þjóðanna.
Höfnin
Togarinn ,.Oranus“ :fór í slipp í
gær. —
Tískan
Úfvarpið
Htefnir er fjölbreyttasta og vand-
ísta tímarit seai gefið er út á
jr.di um þjóðfjelagsmál.
Nýjum áskrifendum er veitt mót
;a í skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
i Rvik og á Akureyri og enn-
mur hjá umboSsmönniim ritsins
i land allt. KaupiS og úlbrei'öíS
Sjúldingar
á Kópavogshæli biðja blaðið að
færa Slysavamafjelaginu kæiar þakk
ir fyrir þá hugulsemi að lóta sýna
þeim myndina „Björgunarafrekið við
Látrabjarg“.
8.30 Morgunútvarp. — 9.10 Veður-
fregnir. 1240—13.15 Hádegisútvarp.
15.30—16.30 Miðdegisútvarp. —
(15.55 Frjettir og veðurfregnir. 18.25
Veðurfregnir. 18.30 Dönskukennsla;
I. fl. — 19.00 Enskukennsla; II. fl.
19.25 Þingfrjettir. — Tónleikar. 19.45
Frjettir. 20.30 Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar; dr. Victor Ur-
bantschitsch stjórnjr (tekið á segul-
band á tónleikum i Þjóðleikhúsinu
22. okt.): a) Sinfonía nr. 39 í E6-
dúr eftir Mozart. b) „Pjetur og úlf-
urinn“, bamasaga með tónleikum eft
ir Prokofieff. Bjöm Franzson íslensk
aði textan. Þulur: Lárus Pálsson,
leikari. 21.45 Frá útlöndum (Axel
Thorsteilisson). 22.00 Frjettir og veð
urfregnir. 22.10 Tónleikar: Slavnesk
ir dansar eftir Dvorák (plötur). 22.30
Dagskrárlok.
stan biskup talar. Kl. 16.05 Grammó-
fónlög. Kl. 17.15 Forseti Evrópuráðs-
ins Paul Henri Spaak telar. Kl. 18,30
Hljómleikar. Kl. 19.30 Bókmennta-
fyrirlestur. Kl. 20,30 Frönsk leiksvið.
Auk þess m. a.: Kl. 17.15 Aase
Danmörk: Bylgjulengdir: 1224 og
41.32 m. — Frjettir kl. 16.40 og kl
20.00.
Ziegler syngur. Kl. 18.00 8. fimmtu-
dagshljómleikarnir: Symfóníuhljóm-
sveit, Einar Kristjánsson, óperu-
söngvari, Drengjakór útvarpsins og
Útvarpskórinn. Kl. 19.50 Fyrirlestur.
Kl. 20.15 Jazzklúbburinn. Kl. 20.45
. Danslög.
England. (Gen. Overs. Sei-v.). —
Bylgjulengdir: 19.76 — 25.53 —
31.55 og 60,86. — Frjéttir kl. 02 —
03 — 05 — 07 — 08 — 10 — 12
_ 15 _ 17 — 19 — 22 og 24.
Auk þess m. a.: Kl. 9.30 Hljómleiks
ar, Kl. 10.30 Georg Bretakonunguí
opnar hina nýju Efri málstofu bresksi
Jiingsins. Kl. 12.15 Kommúnisminn 5
framkvæmd, Kl. 12.30 BBC-hljóm-
sveit leikur ljett lög. Kl, 15.18 Öska-
lög. Kl. 17.30 BBC-óperulög. KL
20,00. Óskalög. Kl.j 20.30 Ljett lögi
Kl. 21.00 John Cameion (’baritone)j
Nokkrar aðrar stöðvar:
Finnland. Frjettir ó ensku kL
23.25 á 15.85 m. og kl. 11.15 á 31.40
— 19.75 — 16.85 og 49.02 m. —<
Belgía. Frjettir á frönsku kl. 17.45
— 20.00 og 20.55 á 16.85 og 13.89 m„
— Frakkland. Frjettir á ensku mánu
daga, miðvikudaga og föstudaga kl4
15.15 og alla Aaga kl. 22.45 á 25.64
og 31.41 m. — Sviss Stuttbylgju-
út.arp á ensku kl. 21.30 —- 22.50 á
31.45 — 25.39 og 19.58 m. — USA
Frjettir m. a.: kl. 13.00 á 25 — 31 og
49 m. bandinu, kl. 16.30 á 13 — 14
og 19 m. b., kl. 18.00 á 13 — 16 —<
19 og 25 m. b., kl. 21.15 á 15 — 19.
— 25 og 31 m. b., kl. 22.00 á 13 —<
16 og 19 m. b.
Fulltrúaþing samvinnu-
nefndar bindindismanna
Þetta eru falleg blýrapils og blúss-
ur, eins fyrir móður og dóttur. —
Pilsin eru sólpliseruð eða felld.
Erlendar útvarpsstöðvar
(Islenskur tinii). ,
INoregur. Bylgjulengdir: 41.51 —
25,50 — 31.22 og 19.79 m. — Frjettir
kl. 11.00 — 17.05 og 21.10
Auk þess m. a.: Kl. 15.10 Síðdegis-
hljómleikar. Kl. 16.20 Alf Sjöen leik-
ur á fiðlu. Kl. 17.35 Hljómsveit leik-
ur. Kl. 18.35 Konsert fyrir píanó og
hljómsveit nr. 26 eftir Mozart og
Symfónía nr. 3 í f-dúr, verk 90, eftir
Brahms. Kl. 19.40 Ljett lög. Kl. 20.30
Danslög.
Svíþjóð. Bylgjulengdir: 27.83 og
19.80 m. — Frjettir kl. 17.00 og 20.
Auk þess m. a.: Kl. 14.40 Elsa
Herou syngur. Kl. 15.00 Arvid Rune
Fimm mínútna krossgáta
%
SKÝRINGAR
Láijett: — 1 band — 6 fugl — 8
kassi — 10 veiðarfæri — 12 vitlaust
— 14 óskyldir — 15 frumefni — 16
elska — 18 ungviði.
Lóðrjett: — 2 snuð — 3 húsdýr —
4 hljóp — 5 eyja við Island -— 7
stefnuna — 9 sunda — 11 skelfing —
13 beitu — 16 forsetning — 17 tveir
eins.
Lausn síðustu krossgátn:
Lárjett: — 1 æsist — 6 kæn — 8
skó — 10 óra — 12 hafskip — 14 al
— 15 fa — 16 lán — 18 sætindi.
LóSrjett: — 2 skóf — 3 IÆ — 4
sriák — 5 íshafs — 7 tapaði — 9 kal
— 11 rif — 13 sjái — 16 LT — 17
NN.
SAMVINNUNEFND bindindis-
manna hjelt fulltrúaþing sitt í
Reykjavík s. 1. sunnudag, 15.
október. Á þinginu mættu 30
fulltrúar frá þessum 8 fjelaga-
samböndum innan samvinnu-
nefndarinnar:
Stórstúka íslands IOGT.
íþróttasamband Islands.
Samband ísl. barnakennara.
Ungmennafjelagi Islands.
Samb. bindindindisfjel. í
skólum.
Áfengisvai’nan. kvénna.
Prestafjelagi íslands.
Alþýðusambandí íslands,
Formaður samvinnunefndar-
innar, Pietur Sigurðsson erind
reki, stjórnaði fundi, en fundar
ritari var Jens E. Níelsson
kennari.
Löeð var fram fjölrituð
skýrsla yfir helstu störf og
framkvæmdir samvinnunefnd-
arinnar undanfarin ár.
Þessar tillögur voru ræddar
og sambvkktar ábinginu:
„Fundurinn telur mjög að-
kallandi, að Stórstúka ísiands
og önnur bau fjelagasamtök. er
sjerstaklesa leggja bindindis-
málinu lið, fái því framgengt
við ríkisstjórn og Alþingi, að
til viðbótar þeim starfskröft-
um, sem fyrir eru, verði laun-
aðir 3—5 menn, er geti verið
í förum um landið til þess
að efla bindindisstarfsemi, f jel-
agsleg samtök um hana og
fræðslu bæði í skólum lands-1
ins og á meðal almenings. Menn
þessir verði fræðslu-r eða náms-
stjórar bindindisstarfsins í
landinu“.
„Fundurinn skorar á hið háa
Alþingi að afnema án frekari
dráttar öll sjerrjettindi eip-
stakra manna og stofnana úm
áfengiskaun og tóbakskaup“.
„Fundurinn skorar á öll
fjelagakerfin, sem fulltrúa eiga
í Samvinnunefnd bindindis-
manna að vera vel á verði gegn
hverri tilraun, sem gerð kann
að verða til bess að fá bruggað
sterkt öl í landinu, og gegn j
allri aukningu á áfengissölu og
áfengisveitingum, en efla sem
best samtakamáttinn til sókn-
ar og markvissrar baráttu gegn
áfen<úsbölinu“. j
„Fundurinn telur nauðsyn-
legt, að skerpt verði miög eft-
irlit með akstri bifreiða, og
þyngd að verulegu leyti refs-
ing fyrir ölvun við akstur. Enn
fremur að viðhaft sje hið strang
asta eftirlit með öðrum farar-
tækjum, hvort sem er á landi,
sjó eða í lofti, svo að tryggt
sje,.að þeim sje ekki stjóxnafS
af mönnum undir áhrifum á-
fengis“.
„Fundurinn skorar á dóms-
málaráðuneytið að koma með
ströngu eftirliti í veg fyrir hina
umtöluðu áfengissölu í bílum,
bæði í kaupstöðum og á sam-
komum út um sveitir landsins.
Ennfremur skorar fundurinn á
stjettarsamtök atvinnubílstjóra
að vinna að því með oddi og
egg, að þvo af stjettinni þann
smánarblett, sem leynivínsal-
arnir hafa á hana sett“.
„Fundurinn harmar mjög, að
ríkisstjórnin hefur elcki enn
gert ráðstafanir til þess, að lög
um breytingu á áfengislögun-
um nr. 33 frá 9. jan. 1935 (hjer-
aðsbönn) taki gildi, og skorar
á núverandi ríkisstjórn að gera
það nú án frekari tafar“.
„Fundurinn skorar á bæjar-
stjórn Reykiavíkur að hlutast
til um, að komið verði upp hið
bráðasta hjálparstöð í bænum,
þar sem tekið verði á móti of-
drykkjumönnum til rannsókn-
ar og meðferðar".
A þinginu ríkti mikill áhugl
fyrir eflingu bindindisstarfsins.
Lánsheimild tii log-
arafcanpa orðin a9
lögum
í GÆR, á fundi Nd., var sam-
þykkt sem lög frá Alþingi frv.
um viðauka við lög um tógara-
kaup ríkisins.
Fela lög þessi í sjer, til við-
bótar við þá 'lánsheimild, sera
veitt var í maí s.l., heimild fyr-
ir ríkisstjórnina til að taka allt
að 16 millj króna lán eða jafn-
virði þess í erlendum gjaldeyri,
til þess tíma og með þeim kjör-
um er um semst. Veðsetja má
togarana með 2. veðrjetti til
tryggingar láninu.
í athugasemd við frv. segir:
Ganga má út frá að heild-
arverð togaranna # verði £
1.723.790 að viðbættum vöxt-
um. Upp í þetta hefur verið
samið um lán í Bretlandi, sem
nemur um £ 1.250.000, þannig
að enn vantar um £ 473.000.
Ekki hefur enn verið greitt neitt
upp í andvirði þeirra af kaup-
endum. Hinsvegar gengur smíði
togaranna greiðlega og er fyr-
irsjáanlegt, að ekki verður hjá
því komist að taka lán, til að
geta staðið við samningana um
smíði togaranna.