Morgunblaðið - 26.10.1950, Side 6

Morgunblaðið - 26.10.1950, Side 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Fimtudagur 26. okt. 1950. PéMkanínn ÞY™itósa StigvcladÍ kötfurinn Kórtgssonurinn • í froskhamnum : £dc)ah Pélri Pcsxi Þetta eru einkar snotrar útgáfur af hin- um vinsælu ævintýrum. Hvert hefti er bundið inn í þykk spjöld og því heppileg fyrir unga krakka, sem handleika bæk- urnar misjafnlega. Þá er það annar kost- ur að lesmálið er prentað með stóru og gleiðu letri, þriðji kosturinn er sá, að ævin- týrin eru mátulega löng og loks eru þau öll prýdd mörgum skemmtilegum mynd- um, flestum í litum. Jobibl og batutngrasið Þessi fallegu æfintfri kosta aðeins kr. 7,50 Minningarorð: Tómas Císlason Sauðárkróki FALLEG FERMINGARGJÖF Passíusálmarnir í rauðu skrautbandi. Fegursta útgáfan, sem komið hefur út af þessari sígildu bók. lar 'tókaverólan ^9áajoíclc Get bætt nokkrum nemendum í ballet og akrobatik STEPP-KENNSLA hefst 1. nóvember. Upplýsingar í síma 4283, daglega kl. 12—2. ELLÝ ÞORLÁKSSON. Skemmtifundur F.Í.L. Fjelag ísl. loftskeytamanna heldur kvöldskemmtun með skemmtiatriðum að Þórskaffi í kvöld, 26. þ. m. kl. 21. — Fjelagsmenn mega taka með sjer gesti. — Aðgöngumiðar afhentir í skrifstofu sjómannablaðsins Víkingur milli kl. 16—18 í dag. M.s. Dronning Alexandrine fer frá Kaupmannahöfn 7. nóvem- her til Færeyja og Re.ykjavíkur. Flutningur óskast tilkynntur skrif- stofu Sameinaða í Kaupmannaliöfn, hið fyrsta. Frá Reykjavík fer skipið til Græn- lands og þaðan beint til Kaupmanna hafnar. Frá Kaupmannahöfn til Færeyja og Reykjav'íkur 5. desember. Frá Reykjavík til Fæieyja og Kaup mannahafnar 14. deseniber. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen. Erlendnr Pjetursson. imiiiiiiiimiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiiiii immmmmii Atkvæðagreiðsía um tillögu sáttanefndar í yfirstandandi togaradeilu, fer fram meðal f jelagsbundinna togarasjómanna í Sjómanna- fjelagi Rej'kjavíkur í dag. Atkvæðagreiðslan fer fram í skrifstofu fjelagsins og stendur hún ýfir frá kl. 10—22. Stjórn Sjómannafjelags Reykjavíkur. Kærustupar með 7 mánaða barn, óskar eft- ir stofu og eldhúsi oða eld- unarplássi. Lítilsháttar hús- hjáíp eða sitja hjá börnum 2— 3 kvöld í viku. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. laugar- dag merkt „IFR — 971“. inoiuiiiniiuiiiMiiiiiiitihiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiN Kolakyntur I {ívottapottiir : til sölu. Uppl. í síma 9633. Morgunblaðið með morgunkaffinu - Á FYRSTA VETRARDAG siðastlið- inn var jarðsunginn hjer á Sauðár- króki Tómas Gislason, einn af fram- skvæmdarstjórum Sparisjóðs Sa'uðár- króks, en fyrrum verslunarstjóri og kaupmaður hjer á Sauðárkróki. Var fjölmenni við jarðarför hans, sem vænta mátti, því að traustari mann og vinsælli en hann mun vandfund- inn. Mjer ft'rir mitt leyti finnst, að k' rirn mín við Tómas hafi skýrt fyr- ir mjer, hvað átt er við með orðinu heiðursmaður. Hann andaðist á heímili sínu þann 12. þ.m. úr hjartaslagi, enda hafði | hann kennt hjartabilunar nokkur und anfarin ár, þótt hann eigi að siður I stundaði störf sín ailt til hins síðasta. Tómas Gíslason var fæddur i Reykja- vík þann 21. október 1876 og ólst þar upp hjá foreldrum sinum, þeim Gisla Tómassyni, er um fjölda ára var verslunarmaður hjé Geir Zoega, og konu hans, Hólmfríði Eyjólfsdótt- ur. Eru þrjú systkini Tómasar enn á lífi og búsett i Reykjavík, Þóra, ekkja Sigurðar Pálssonar læknis, Eyjólfur skipasmiður og Gísii, er lengi hefur verið verslunarmaður við Geirsversl- un. Miðað við það, sem nú er talið, mun Tómas ekki verða kallaður skóla genginn maður. Hann lauk námi í bamaskóla Reykjavikur, en eftir ferm ingu fór hann að vinna fyiir sjer, eins og þá var siður. Þó stuudaði hann jafnframt nám kvöldskóla versl unarmanna í Reykjavík veturinn 1890—91 og löngu seinna var hann einn vetur við versiunarnám í Kaup mannahöfn. Hann hafði sýnilega haft mikið gagn af þessum stuttu nám- skeiðum, enda var hann vel gefinn maður. Enn annars má segja, að störf hans og lífið sjálft hafi verið sá skóli, er hann stundaði í nám sitt og gerði hann vel menntaðan og þrosltaðan mann. Enda hlýtur sá maður að verða mikilhæfur í starfi sínu, sem hvort- tveggja í senn er góðum gáfum gædd ur og ávallt bæði í smáu og stóru leggur alla stund á að gera hvert verk eins vel og auðið er, leggur sig allan fram i trúmennsku og skyldu- rækni, svo að afköst hans verði sem mest og sem best af hendi leyst. Tómas var glöggskygn maður, athug- ull og gætinn, en þó einkeudi hann ekkert meir en hin óbrigðula skyldu- rækni hans og heiðarleiki, sem hvergi þoldi á blett nje misfellu í orði nje verki. Tómas Gíslason var ungur að aldri er hann hóf verslunerstörf í Reykja- vík, en 1898—1902 var hann bók- haldari á Stokkseyn. hjá Ásgeiri Sig- ^ urðssyni, er gaf honum þann vitnis- ; hurð að hann væri „duglegur, áreið- ! anlegur og reglusemur“. Síðan var I hann eitt ár við Gramsverslun í | Stykkishólmi, en árið 1904 fluttist , hann hingað til Sauðárkróks og átti I hjer heima síðan. Ilann var hjer ! fyrstu árin bókhaldari við Popps- j verslun, en þá er Popp seldi verslun Nína érið 1911 og Hoephner keypti, varð Tónjas forstjóri þeirrar verslun- ar og var það síðan, ungs verslunin hætti, sem mun hafa verið 1928. Síð- an verslaði hann sjálfur um skeið en var þó hættur því fyrir nokkrum árum. Árið 1933 var hann kosinn í stjóm Sparisjóðs Sauðárkróks og var ‘siðan til dauðadags einn af fram- kvæmdastjórum Lans. Engum, sem þekkti Tómas Gísla- ' son, mun hafa komið á óvart, að hon- * um var falin verslunarstjórn og rekst- ’ ur fjármála. Vissu það allir jafnt, þeir sem trúðu honum fyrir störf- um, viðskiptavinir hans og samstarfs- menn, að þeir máttu treýsta honum. Heg kynntist vel störfum Tómasar við , sparisjóðinn og get ekki hugsað mjer, ! að unnt sje að rækja slík störf með meiri alúð en hann sýndi þeim. Hags annarra gætti hann þannig, sem (nokkur maður gæti þest gætt síns eigin. | Jeg skal hreinskilnislega játa það, ! að jeg undraðist í fyrstu, að Tómas ; skyldi ekki vera efnaður maður, er ; jeg komst að því, að hann hafði verið verslunarstjóri allstórrar verslunar, en slík störf gefa mönnum oft skilyrði til að efnast, vegna þess, hve þau eru vel launuð. Hinsvegar vissi jeg, að á heimili hans var engin óþarfaeyðsla, þrátt fyrir höfðingsbrag þess og rausn. En jeg skyldi betur, hvernig þessu var farið, eftir að jeg kynntist honum nánar. Hann hafði ávallt gætt þess að láta hag þeirra, sem trúðu honum fyrir störfum, sitja fyrir sín- um eigin hag. Mjer finnst því ekki aðeins gott að hafa kynnst Tómasi Gíslasyni í starfi hans, það var blátt áfram lærdómsríkt. Árið 1907 kvæntist Tóinas Elin- borgu Jónsdóttur hreppstjóra frá Brennigerði, Guðmundssonar, hinni 'mestu ágætiskonu. Þau eignuðust 5 höra. Var elst þeirra Gísli, er andaðist 19 ára gamall og var þá í 3. bekk menntaskóla, en 4 eru enn á lífi: Guðný, Sigurður, skipstjóri i Reykja- , vik. Jón, sem lokið hefur stúdents- [menntun og er nú forstjóri i Reykja- ,vík og Gísli, sem stundar háskóla- nám í Reykjavik. Hefur hið fallega heimili þeirra Tómasar og frá Elín- borgar verið mörgum kært og þeim sjálfum indæll staður. Tómas var þannig skapi farinn, að hann undi sjer hvergi betur en heima hjá konu sinn og börnum. Hann hliðraði sjer hjá afskiptum af opinberum málum og held jég að hann hafi kunnað illa við sig í margmenni. Hann var mað- ur mjög hógvær og látlaus og hlje- drægur. Þó sameinaði hann það tvennt, sem annars fer oft ekki sam- an, að hann var fáskiptinn og þó alúðlegur; ekki íhlutunarsamur um annarra hagi, en fylgdist þó flestum öðrum betur með því, sem gerðist. Það var næstum því undarlegt, hve jafn hljedrægur maður og heimakær var fróður um menn og málefni. Það var því gott að ræða við þennan glaða og góða og gáfaða mann heinia á heimili hans. Hann var auðugur að þessari ljettu, græskulausu kímni, sem samtalið kryddar og gerir við- kynninguna hugljúfa. En um leið var hann alvöruinaður, trúmaður og draumspakur og hugsuður. Mjer fínnst nú, er jeg hugsa um Tómas Gíslason, að um hann megi segja það sama og sagt var um Arn- kel goða. En Eyrbyggja lýsir honum þannig: „Hann var fcrvitri, vel skapi farinn. hjartaprúður og vel stilltur". En við hann var þetta sagt: „Því að við treystum þjer vel um drengskap- inn“. Það mundi liver, sem kynntist Tómasi Gíslasyni, vilja við hann sagt hafa. Sauðárkróki 23. okt. 1950 Helgi Konráðsson. Kosnlngar (ara fram fyrsf BONN, 24. okt. — Schumacher, foringi þýskra jafnaðarmanna, lýsti þeirri stefnu sinni í dag, að ekki kæmi til mála að láta koma til vígbúnaðar Þýska- lands nema kosningar hefði áð- ur farið fram. Sagði hann, að nauðsyn bæri til að setja á- kvæði um afstöðu þýsks hers og herja hernámsveldanna, ef til kæmi. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.