Morgunblaðið - 10.12.1950, Page 3
>Sunnudagur 10. des. 1950.
MORGUISBLAÐIÐ
3
Trúnaðarmenn Búnaðarfjelags íslands
Éslendingamót í IMew York
XRUNAÐARMENN Búnaðarfjelags íslands er tóku l'átt í námskeiði í Reykjavík 27. nóv.—7. des.
'50, — Fremri röð, talið frá vinstri: Grímur Jónsson, Klifshaga, Norður-Þing., Hjálmar Jónsson,
Hvanneyri, Borgarf., Benedikt Grímsson, Kirkjubóli, Strandas., Magnús Símonarson, Grímsey,
Pjetur Guðjónsson, Vestmannaeyjum, Elías Melsted, Grund, V-Barð. — Aftari röð, talið frá
vinstri: Jóhannes Davíðsson, Hjarðardal, V-ísafj., Jón Eiríksson, Volaseli, A-Skaft., Páll Páls-
»on, Þúfum, N-ísafj., Hjörtur Sturlaugsson, ísafirði, Kristófer Grimsson, Rvík, Egill Bjarnason,
Uppsölum, Skagaf., Gunnar Jónatansson, Stykkishólmi, Guðmundur Jósafatsson, Austurhlíð,
Hún., Árni Pjetursson, Egilsstöðum, S-Múl, Emil Nic. Bjarnason, Selfossi, Ólafur Jónsson, Ak-
wreyri., Ljósm.: V. Sigurgeirsson.
Vöruflutningar með flug-
vjelum aukast til muna
í NÓVEMBER mánuði fluttu flugvjelar Flugfjelags íslands
1286 farþega, þar af 1012 i innanlandsflugi og 274 á milli landa.
Ei'u þetta nokkuð fleiri farþegar en fluttir voru á sama tíma
i fyrra, en þá var farþegatalan 1109. Veður var mjög hag-
Stætt til flugs í mánuðinum, enda var flogið alla daga nema
tvo. Má þetta teljast fremur sjaldgæft á þessum tíma árs.
VORUFLUTNINGAR
AUKAST
Vöruflutningar Flugfjelags
íslands í s. 1. mánuði námu sam
tals 15.235 kg., og er þar um
rösklega 60% aukningu að
ræða miðað við sama tíma í
fyrrg. „Gullfaxi“ flutti 5178
kg. af vörum á milli landa í
mánuðinum, og hefir hann
aldrei fyrr flutt svo mikla
fragt á einum mánuði. Vöru-
flutningar með flugvjelum fje-
lagsins, bæði hjer innanlands
og á milli landa, fara sífellt
vaxandi. Hefir þannig t. d. ver-
ið flutt helmingi meira magn
af vörum með „Gullfaxa“ það
sem af er þessu ári heldur en
flutt var allt s. 1. ár.
JÓLAPÓSTUR MEÐ
FLUGVJELUM
Þá voru flutt alls 7541 kg.
af pósti í nóvember, en í sama
mánuði í fyrra námu þessir
flutningar 7155 kg. í desember
má búast við miklum póstflutn
ingum með flugvjelum Flug-
fjelags íslands, ef að venju læt-
ur.
í jólamánuðinum í fyrra
voru t. d. flutt liðlega 10.000
kg. af pósti innanlands og hátt
á aðra smálest milli landa.
Stefnir
Stefnir er f jölbreyttasta og vand-
aðasta tímarit sem gefiS er út á
Islandi um þjóðfjelagsmál.
Nýjum áskrifcndum er veitt mót-
laka t skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
Þaraverksmiðja
að Reykhólum!
EFTIR að mælingar og athug-
anir á þaragróðri fóru fram í
sumar í Breiðafirði á vegum
Rannsóknarráðs ríkisins, hefir
Hallgrími Björnssyni verkfræð
ingi verið falið að gera kostn-
aðaráætlun um byggingu og
rekstur þaraverksmiðju að
Reykhólum og er hann farinn
til Noregs til þess að kynna sér
þaravinnslu þar í landi.
Áður hefur verið skýrt frá
rannsóknum Rannsóknarráðs
ríkisins á þaragróðrinum í
Breiðafirði í sumar, en þær
voru áður einkum framkvæmd
ar af dr. Jóni E. Vestdal. En í
sumar gerði Marteinn Björns-
son mælingar og athuganir við
Breiðafjörð og kom í ljós, að á
60 ferkílómetra svæði reyndust
25 ferkílómetrar heppilegir til
þaravinnslu.
Lpiddu rannsóknirnar í ljós,
að hægt er að framleiða ýms
efni úr þara, sem gætu skilað
nokkrum miljóna króna að út-
flutningsverðmæti árlega.
Gengisskráning
1 £................
1 USA dollar ______
100 danskar kr.____
100 norskar kr. ___
100 sænskar kr. ___
100 finnsk mörk____
1000 fr. frankar___
ins í Rvík og á Akureyri og “nn- 1100 belg. frankar
fremur hjá umboðsmönnum ritsins 100 svissn. frankar
um lund ullt. Kaupið og útbreiðiíi 100 tiekkn. kr._
Ste/ni. 100 gyllini ______
.. kr. 45.70
_ — 16.32
_ — 236.30
_ — 228.50
_ — 315.50
_ — 7.00
_ — 46.63
_ — 32.67
_ — 373.70
_ — 32.64
— 429.90
Þingi S.B.S. lokið
LAUGARDAGINN 2. des. var
19. þing Sambands bindindis
fjelaga í skólum haldið í Sam-
vinnuskólanum. Mættir voru 41
fultrúi frá 8 skólum.
Fyrrverandi formaður, Guð-
bjartur Gunnarsson, setti þing-
ið með ræðu.
Formaður sambandsstjórnar
flutti skýrslu stjórnarinnar um
störf sambandsins seinasta ár.
Sambandið stóð m.a. fyrir
ræðuhöldum og skemmtunum
1. febr., hjelt málfundi um
bindindismál og íþróttamót inn
an skólanna. Gaf einnig út blað
ið Hyöt.
Þingið ræddi um starfsemi
sambandsins og eflingu þess m.
a. það, að gera starfsemina víð-
tækari og meiri út um land, en
til þess þyrfti helst að hafa sjer
stakan erindreka. Var þess
vegna samþykkt að stofna er-
indrekasjóð, úr honum skal síð
ar verja fje til þess að kosta
erindreka til starfa fyrir sam-
bandið.
Fyrir þinginu lá tilboð frá
hinu nýstofnaða íþróttabanda-
lagi framhaldsskóla um sam-
eiginlega útgáfu Hvatar, blaði
Sambands bindindisfjelaga í
skólum. Samþykkt var að taka
því tilboði og ríkti mikill a-
hugi fyrir því á þinginu, að
samvinna milli þessara sam-
banda verði sem best og nán-
ust. Var stjórninni falið að
semja við íþróttabandalagið um
þau mál.
Stjórn sambandsins er nú
skipuð þessum mönnum:
Formaður: Óli Kr. Jónsson,
Kennaraskólanum, varaformað-
ur: Jón Böðvarsson, Mennta-
skólanum, fjehirðir: Guðmund-
ur Georgsson, Menntaskólan-
um, ritari: Elísabet Gunnlaugs-
dóttir, Kvennaskólanum, með-
stjórnandi: Valdemar Örnólfs-
son, Menntaskólanum.
Að lokum ávarpaði hinn ný-
kjörni formaður þingið og sleit
því.
(Frá SBS).
I F LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI
ÞÁ UVERr
New York í desember.
ÍSLENDINGAFJELAGIÐ í New
lifnar alltaf við í kringum 1. des.
og þá verður landamót. Annan
desember síðastliðinn komu fast
að hundrað íslendingar saman á
Gramarcy Park hótelinu hjer í
bænum og varð mannfagnaður
góður. Thor Thors sendiherra og
lónatan Hallvarðsson, sem nú er
í sendinefnd íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum, voru heiðursgest-
ir íslendingafjelagsins á mótinu,
en önnur og óvænt gestkoma varð
mönnum fagnaðarauki, því að
biskup íslands, Sigurgeir Sig-
urðsson, og kona hans voru ný-
komin að heiman og þekktust
boð fjelagsins og sátu veisluna
einnig sem heiðursgestir.
Ólafur J. Ólafsson setti hófið;
hann hefur verið forseti fjelags-
ins fjögur undanfarin ár, en yfir
borðum vakti Hannes Kjartans-
son, aðalræðismaður, máls á því,
að ljett yi-ði farginu af Ólafi og
kom fram með þá uppástungu að
frú Guðrún Camp tæki við em-
bættinu. Var það samþykkt með
almennu lófataki. Með frú Guð-
rúnu í stjórninni verða frú Mar-
grjet Magnússon, Guðmundur
Einarsson verkfræðingur og að-
alræðismaðurinn sjálfur, en verk
in munu þó enn lenda nokkuð á
Ólafi J. Ólafssyni, því að hann
verður áfram í stjórninni og lof-
aði að verða til aðstoðar eftir
megni.
RÆÐUHÖLD
Borðhaldið hófst með því, að
þjóðsöngurinn var leikinn. —
Sendiherrann flutti ræðu yfir
borðum og beindi máli sínu fyrst
til erlendra gesta, bauð þá vel
komna og talaði á ensku. Þarna
voru afgreiðslumenn íslensku
skipanna mættir að vanda og
menn í fylgd með konum sínum
íslenskum. Bauð sendiherra bisk-
upinn velkominn í hóp landarma
og óskaði þess, að för hans gengi
eins vel að þessu sinni og síðast,
er biskupinn ferðaðist um Banda
ríkin, þó að hann væri nú í öðr-
um erindum. Var gerður að því
góður rómur. Dettifoss var eina
íslenska skipið í höfninni og var
þetta fyrsta ferð þess hingað. Á-
höfnin var þó fámenn í hófinu,
‘ en skipstjóri var þar fyrir henn-
ar hönd og bauð sendiherra hann
velkominn. Kvað hann það líka
, sjerstaka ánægju, að Guðmund-
ur Vilhjálmsson framkvæmda-
stjóri Eimskipafj elagsins og frú
hans væru viðstödd. íslenskir
sjómenn sigldu nú fögrum skip-
um um höfin og hingað væri
Dettifoss kominn á ný. Það
sýndi að fjelagið, sem ætíð tengdi
landið við umheiminn, starfaði
í þeim anda, að: „eigi skal gráta
Björn bónda, heldur safna liði“.
Tígulegasta og fegursta 'skip
flotans, nýi Gullfoss, hefði þó
1 ekki enn komið til Vesturheims,
en ekki væri örvænt um, að þetta
vel búna skip kynni að koma
hjer við land og væri vel til fall-
ið, að Vestur-íslendingar tækju
sjer einhverntíma far með því
heim til ættlandsins.
Sendiherrann mælti nokkur
fleiri tækifærisorð til gesta, en
minnti þá líka á alvöru heims-
málanna, og var honum raunar
ekki hugrótt. Bað hann alla að
gera sjer ljóst, hver hætta land-
inu væri búin, ef í odda skær-
ist, en kvaðst þó ekki vilja hugsa
þá hugsun til enda. Vonaði hann,
að tími ynnist til sátta með þjóð-
unum. Margt fleira sagði Thor
Thors í röggsamlegri ræðu, og
var hún með þeim brag, sem
honum er laginn, að vera hrók-
ur alls fagnaðar.
RÆÐA BISKUPS
Biskupinn talaði næstur og
lýsti ánægju sinni yfir þessum
samfundum; hann væri manna
síðastur að heiman kominn og
færði löndum kveðjur þaðan. —
Hann sagði frjettir og kvað öll
tíðindi góð, landið væri alltaf
jafn fallegt, og hvað væru okk-
ar erfiðleikar samanborið við
þær þjóðir, sem í blóðbaðinu
liggja. „Þessi svokallaða fátækt
okkar“, sagði biskupinn, og vitn-
aði í ræðu sendiherrans, „er ekki
umtalsverð, því að auðurinn er
ekki peningar og ísland á nóg
af hinu“. Hann gaf þeim, er
vildu flytja úr landinu, þau ráð
sjómannsins, að sigla milli landa
í nokkur ár, þá lærðist þeim að
meta ísland. Biskup benti á gæfu
mun okkar og þeirra, er yrðu
að sjá af sínum nánustu fara I
herþjónustu út í heim, og koma
kannski aldrei aftur; hann talaði
um hina heitu ást íslendinga á.
ættjörðinni. — Ræðá biskups
var hjartnæn og innileg.
Borðhaldinu lauk með því, að
María Markan söng nokkur lög.
Snjólaug Sigurðsson, vestur-ís-
lenskur píanósnillingur ljek und-
ir. Frúin hreif veislufólkið með
söng sínum, og var henni óspart
klappað lof í lófa. Hún söng með-
al annars Bergmál eftir Sveinbj.
Sveinbjörnsson og Vögguvísuí
Kiljans með nýju lagi eftir Jó»
Þórarinsson; sjerstök beiðni kom
fram um mörg lög, þar á meðal
Draumalandið eftir Sigfús Ein-
arsson.
TVEGGJA MANNA
„LANDAMÓT"
Er söngnum var lokið voru
borð upp tekin og stiginn dans
fram yfir miðnætti, því margt
var þarna af ungu fölki og ekki
landamót á hverjum degi. Stúlk-
ur voru í meiri hluta, og þó að-
eins fátt þeirra, er um þessar
mimdir starfa á heimilum New
Yorkbúa. Nokkrar íslenskar kon-
ur voru þarna með mönnum sín-
um, er voru í herþjónustu á ís-
landi á hernámsárunum, en
hætta er á að við missum sjónar
á þeim löndum vorum. Það er
þó víst, að þar sem tvær eða
fleiri íslenskar konur búa í sömu
borg, eins og víða er í Banda-
ríkjunum, eru alltaf „landamót**
öðru hverju, og fyrsta desember
var því víða minnst með hlýjum
hugrenningum fólksins heima.
Hinsvegar hafa landamótin hjer
í New York breytt um svip, því
að hjer stunda nú fáir og næst-
um engir stúdentar nám.
Daði Hjörvar.
ikill slarfsáhugi í
Óháða Fríkirkju-
söfnuðinum
ÓHÁÐI fríkirkjusöfnuðurinn
hjer í bæ hjelt nýlega fyrsta að
alfund sinn í Listamannaskál-
anum, og var fundurinn fjöl-
sóttur. Ríkti þar eindreginn á-
hugi á að efla safnaðarstarfið
á allan hátt og koma upp
kirkjubyggingu hið allra fyrsta
og var skipuð kirkjubyggingar
nefnd og fjáröflunarnefnd.
Fundurinn hófst með safnað-
arsöng, þá minntist prestur
safnaðarins, sjera Emil Björna-
son, látinna safnaðarmeðlima
og flutti hugleiðingu. Safnaðar-
formaður, Andrjes Andrjesson,
flutti skýrslu safnaðarstjórnar
um starfsemina frá stofnun safn
aðarins í byrjun þessa. árs, sem
aukist hefur jafnt og þjett þrátt
fyrir byrjunarörðugleika.
Andrjes Andrjesson var ein-
róma endurkjörinn safnaðarfor
maður, en aðrir í safnaðar-
stjóm eru þessir: Einar Einars-
son, trjesmíðameistari' frú Ingi
björg ísaksdóttir, ísleifur Þor-
steinsson, söðlasmiður, Jóhann .
Ármann Jónagson, úrsmíða-
meistari, frú Rannveig Einars-
dóttir, Sigurjón Guðmundsson,
forstjóri, Stefán Árnason, for-
stjóri og Tryggvi Gíslason, iðn-
aðarmaður.
Safnaðarráð skipa: Sjera
Emil Björnsson, formaður, Ás-
mundur Gestsson og Filipus
Ámundason, en varamenn eru:
Baldvin Einarsson og Ragnar
Edvaldsson.