Morgunblaðið - 09.02.1951, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.02.1951, Blaðsíða 7
Föstudagur 9. febrúar 1951 ■» tt ft • ! • A • rr l 7 Ludvig Möller útgerðar- | þn|| yjjj maður — Minningarorð HART NÆR hálfáttræður kvaddi hann þennan heim í einu því húsi, þar sem „dauðinn og lækn- arnir búa“. Þegar jeg sá hann síð asta sinni, stóð in hugum kæra fósturdóttir hans við rúmstokk- inn og hjelt í hönd honum. Nú, þegar hann er allur, rifjast upp minningarnar um þennan sam- ferðamann og samherja, sem jeg átti nokkur mök við áratugum Saman. Fyrsta sinni sá jeg Ludvig Möllcr vestur á ísafirði voric 1913 á stórstúkuþingi. Hann var fulltrúi stúkunnar „Fram“ ni 49 á Hjalteyri. Jeg fylgdist ve jneð öllu, því að jeg var þá . fyrsta skipti fulltrúi á Stórstúku- þingi, en hann var þá 15 árt gamail templar og hafði áður ve ið á Stórstúkuþingum. Var hanr jnjög áhugasamur um bindindi og bann. Jeg hafði lesið eftir ham greinar í „Templar" á ritstjórn- arárum Pjeturs Zophóníassonar er var hershöfðingi templara í bannbaráttunni 1908. Sagði Pjet Ur mjer, að Ludvig hefði verit einn af bestu undirforingjum síi um í baráttunni fyrir banninu Ferðaðist hann þá um Eyjafjarð- arsýslu og var allur í starfinu og Stríðinu. Það var hann ætið, ef hann á annað borð lagði hönd á plóginn. — Ludvig ritaði grein í Minningarrit templara 1909. — Kemst hann þar svo að orði: „Enga hugsjón veit jeg fegurri en þá að bindast traustum fje- lagsböndum til þess að hjálpa þeim mönnum, sem liggja særðir við veginn, og að halda fram þeim sannleika, að þeir sterku eigi að styðja þá veiku í samein- Uðu bræðralagi, sem er gagn- Stætt máltækinu: „Sjálfur leið þú sjálfan þig“ (en það var kjör- orð andbanninganna). — L. M. var hrifinn af bræðralagshugsjón Góðtemplarareglunnar til ævi- loka. Christian Ludvig Möller, en svo hjet hann fullu nafni, enda danskur í föðurkyn, var fæddur að Stóra-Bergi í Höfðakaupstað 29. júní 1876. Voru foreldrar hans Ole P. Chr. Möller, verslunar- stjóri þar, síðar kaupmaður á Hjalteyri, og kona hans, Ingi- björg Gísladóttir, hreppstjóra á Neðri-Mýrum Jónssonar. — Var hún af merkum bændaættum í Húnaþingi. Ljest hún háöldruð hjer í bæ fyrir rúmum 8 árum. Ole P. Möller var fæddur í Graf- arósi, en þar var faðir hans, Chr. L. Möller þá verslunarstjóri, en kona hans var Sigríður Magnús- dóttir Norðfjörð beykis í Reykja vík. Faðir Chr. L. Möller var P. Chr. Möller, kaupm. í Reykja- vík, sonur Chr. L. Möller, sem kom frá Danmörku til Ólafsvík- ur um miðja 18. öld og var versl- Unarstjóri þar. Ludvig Möller ólst upp með foreldrum sínum á Stóra-Bergi, fór í Möðruvallaskóla og útskrif- aðist þaðan vorið 1895. Eftir það var hann verslunarmaður hjá föðurbróður sínum, Jóh. G. Möll- er, á Blönduósi, til ársins 1897, að hann fluttist með foreldrum sinum og systkinum norður á Hjalteyri við Eyjafjörð. Vann hann þar við verslun og útgerð föður síns og í fielagi við hann til vorsins 1913, að hann tók sjálf ur við versluninni og rak hana, ésamt útgerð, þar á staðnum og síðan í Hrísey til vorsins 1944. — Árið 1931 stofnaði L. M. síidar- söltunarstöð í Hrísey í fjelagi við Jón Arnesen á Akureyri, og ráku þeir hana saman, þangað til Arnesen dó árið 1937. Keypti L. M. þá hlut hans í stöðinni og rak hana síðan einn, ásamt verslun til vorsins 1944, að hann hætti at- vinnurekstri við Eyjafjörð og j seldi stöð og skip. — Möller ljet jafnan vel vanda verkun á síld 1 og öðrum sjávarafurðum. — Var hann kröfuharður við verkafólk sitt, að það ynni verk sitt vel, en þrátt fyrir það þótti gott að vera hjá honum, því að hann var mjög áreiðanlegur i viðskiptum við verkafólk sitt. L. M. var póstafgreiðslúmaður á Hjalteyri 1897—1933 og sim- stöðvarstjóri þar 1906—1933. — Hann var tvíkvæntur. í fyrra sinn kvæntist hann 4. sept. 1904 Máríu, f. Rasmussen, fósturdótt- ur Helga Guðmundssonar, hjer- aðslæknis á Siglufirði. Hún and- aðist 10. desember 1925. Var hún fríðleiks- og myndarkona, og var að koma fallegt heimili þeii’ra. — Þótti gestum þar gott að koma. í ann- að sinn kvæntist Möller 1931 Þór- dísi Sigfúsdóttur frá Hólmlátri, einnig gervilegri konu, en þau skildu samvistir eftir nokkur ár. Einn son barna átti Ludvig, Víg- lund, bókara í Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, myndar- og greind- armann, en tvær eru fósturdætur L. M.: Dröfn, dóttir Ólafs Sig- urðarsonar, skipstjóra á Siglu- firði, nú gift kaupmanni í Brönderslev á Jótlandi, og Helga stúdent, dóttir Jakobs Möller, sendiherra, og er hún nú gift Richard Thors, yngri, hjer í bæ. Reyndist Ludvig þessum fóstur- dætrum sínum báðum sem sann- ur faðir. — Síðustu 6 árin dvald- ist hann ýmist hjer í Reykjavík eða í Danmörku og þá ýmist í Brönderslev hjá fósturdóttur sinni eða i Kaupmannahöfn. Að sumrinu var hann stundum nyrðra, heimsótti fornar stöðvar við Evjafjörð og dvaldist um hríð í Höfðakaupstað og síðast í sum- ar, sem leið. Unni hann átthög- um sínum og þótti þar gott að vera. Áhugasamur var L. M. um þjóð mál og studdi fast flokk sinn, en bindindis- og bannmálið var j fyrir, að frú Ibsen fór frá leik- „MARGRA ára von mín og ósk, sem nú hefir rættst, að fá tæki- færi til að starfa með íslenskum leikurum og leika fyrir íslenska áhorfendur í Þjóðleikhúsi Is- lands, er ekki sprottin af skyldu rækni heldur fyrst og fremst af löngun og þrá“, sagði frú Anna Borg Reumert, er hún ræddi við blaðamenn í skrifstofu þjóðlei1 hússstjóra í gærdag, en frúir kom hingað með „Gullfaxa" fyrrakvöld til að leika hlutverí heilagrar Jóhönnu í samnefndr 'eikriti Bernards Shaw. Einnif hefir komið til orða að hún Ijek' ■ leikriti síðar í vetur, „Dröm- '■pil“ eftir Strindberg. DÁSAMLEGT AÐ VERA KOMIN HEIM Guðlaugur Rósinkranz þjóð- leikhússtjóri sagði, að það værj sjerstaklega ánægjulegt fyri leikhúsið að hafa fengið frr Önnu til að taka að sjer þetta hlutverk og sagði, að leikhúsið væri þakklátt Konunglega leik hú’sinu fyrir, að hafa gefið Önnu frí frá störfum og kvaðst vonast til að hún gæti dvalið hjer það sem eftir væri vetrar. „Það er dásamtlegt að vera komin heim og sjá ísland í vetrarríki eins og það er nú. — íslenskan snjó hefi jeg ekki sjeð i rúmlega 20 ár, nema tilsýnd- ar á fjöllunum í apríl í fyrra. Og nú vonast jeg eftir að norð- urljósin komi fram eitthvert næsta kvöldið. Það verður mjer stórkostleg sjón“, sagði Anna. LITLU MUNAÐI AÐ EKKERT YRÐI ÚR ÍSLANDSFÖR „Það er eins og allt hafi geng ið mjer i haginn til þess, að úr Íslandsferð yrði að þessu sinni. Það leit þó ekki svo út fyr í vet- ur, að úr því gæti orðið, síður en svo“, sagði frú Anna. Þannig stóð á, að aðalleikrit Konunglega leikhússins á þessu leikári átti að vera „María Stuart“ og hafði jeg fengið hlut verk Maríu drotningar, en frú Bodil Ibsen átti að leika Eliza- beth drotningu. En svo kom það þrn, en ekki skyldn heim ó ný til starfa r Islenskan er mjúkr en slerk Frú Anna Borg Reumerf segir frá. f ÍÉ ff samt mesta áhugamál hans um ævina. Bæði hann, foreldrar hans og systkini voru stofnendur stúk- unnar „Fram“ nr. 49 á Hjalteyri árið 1898. Var L. M. einn af aðal- forvígismönnum hennar allt til þess að hún lagðist niður árið i 1919. Mátti stúkan teljast fyrir- mynd um margt. Eftir það var | Möller um skeið utan Reglunnar, en kom aftur, og sjaldan hef jeg hitt glaðari mann en hann, þeg- ar hann hafði aftur tekið öll stig Reglunnar. Þá fannst honum sem hann væri kominn heim á ný. Mörg in síðari árin var hann fje- lagi st. ,.Verðandi“ nr. 9, og rækti hann fjelagaskyldur sinar þar ið besta. Heilsan bilaði ekki verulega fyrr en siðustu mánuðina. Hann andaðist í Landsspítalanum 30. janúar. Reglubræður hans sakna vinar i stað. Astvinir hans eru harmi lostnir. — Guð blessi hann og varðveiti á lífsins landi! B. T. _________________t Giftlnoarhömlur MADRID: — Til skamms tíma hafa spænskir stjórnarerindrek ar ekki mátt kvænast nema spænskum konum eða a. m. k. frá spænsku mælandi löndum. Nú hefir þessu verið breytt þannig, að þeir mega líka gift- ast konum frá Brazilíu og Portúgal. — NAB húsinu skyndilega og voru þá aRar ráðagerðir um sýningar á „Maríu Stuart“ úr sögunni, þar sem enein var til að taka hlut- verk frú Ibsen. Þetta varð til þess, að til mála kom, að jeg fenof levfi til íslandsferðar. Anna Borg. sinni. Sem dæmi um langan starfsdag hans gat Anna þess, að i gær hafi hann átt að vera á æfingum í útvarpinu kl. 9—11 f. h. Þar næst að vera á æfing- 1 um í Konunelega leikhúsinu frá klukkan 11.30—4. — í útvarp- inu átti hann að vera frá klukk- | an 4—6 og leika lim kvöldið í Konunglega leikhúsinu. Þegar leiksýningu lauk í gærkveldi, fór hann með einkaflugvjel til Malmö og ók í nótt til Stokk- hólms, þar sem hann les upp „Don Juan“ í „Dramaten“, síðan lá fyrir að aka næstu nótt áleið is til Kaupm.hafnar og byrja álíka langan starfsdag og þar sem frá var horfið. ; Ekki eru heldur horfur á að Poul Reumert geti komið hingað til lands næsta vetur, því þá á hann 50 ára leikaraafmæli og verður bað hátíðlegt haldið við Konungleea leikhúsið með sýn- ingum og öðrum hátíðahöldum, | sem taka allan hans tíma þann veturinn. MATTI EKKI TALA ÍSLFNSKU ÁRUM SAMAN Frú Anna lætur í ljós kvíða fyrir því, að hún hafi eftir rúm leea 20 ára fjarveru tapað ís- lenskukunnáttu sinni og þá fyrst og fremst framburði og á- Ef að boð Þjóðleikhússins (herslum málsins. Þótt enginn hefði komið tveimur dögum sið- ar en raun varð á, hefði jeg held ur ekki getað komið að þessu sinni, því þá var jeg beðinn að leika i kvikmynd, sem á að fara, að taka. Hefði jeg vafalaust þekkst það boð, ef ekki hefði væri henni sammála á þessum fundi, að svo væri, var rætt um það um stund. Kom sú skoðun fram, að henni myndi varla veit ast erfiðara að leika á íslensku en henni hefði reynst að leika svo vel á dönsku, að hún hlaut verið komin tilmælin frá Þjóð- j sjerstaka heiðursviðurkenningu leikhúsinu. Þetta kalla jeg, að! fyrir fallegt mál í Konunglega allt hafi snúist mjer í hag. Á leikhúsinu. Er það útaf fyrir sig hinn bóginn verð jeg að segja.! nærri einstætt um erlenda að st.iórn Konunglega leikhúss- leikara, að þeir hljóti slíka við- ins tók sjerstaklega vel í að gefa ( urkenningu. mjer fríið og er jeg þakklát fyr- 1 ir það. Hversu lengi jeg get verið að þessu sinni er ekki gott að segja, en jeg vona að það verði frameftir vetri, því hinar j stuttu heimsóknir okkar hjón- anna til Islands hafa ekki gefið tækifæri til að vinna neitt að ráði hjer heima. LANGUR STARFSDAGUR LEIKARA Frú Anna ber sjerstakar kveðjur manns síns, Poul Reu- merts til íslands. Því miður er hann svo önnum kafinn, að hann getur ekki komið að þessu KOM EKKI TIL IIUGAR AÐ HÚN YRÐI DÖNSK LEIKKONA „Þegar jeg fór til náms í Dan mörku kom mjer ekki til hug- ar, að jeg yrði nokkurntíma dönsk leikkona. Sú hugsun var svo f jarri mjer, að jeg varð undr andi er jeg var kölluð á fund forstjóra Konunglega leikhúss- ins að leiknámi loknu og boðin staða við leikhúsið. Jeg hafði farið út til að læra leiklist í þeirri von, að jeg gæti ef til vill orðið leikkona á íslandi. urn fannst það heldur jafn frá- leitt og Poul Reumert, sem síð- ar varð eiginmaður minn, að . kona. sem ekki kynni málið yrði ráðin til leikhússins. En enginn hefir heldur hjálp að mjer eins og hann til að læra dönskuna og þótti mjer hann meira að segja fullstrangur á stundum, er hann bannaði mjer að tala íslensku á heimili okk- ar, einnig eftir að bróðir minn og s'^tir komu til okkar. Helst mátti jeg ekki umgangast íslend inea á meðan jeg var að læra dönskuna. „Þetta var það, sem jeg varð að gjalda fyrir dönskunámið og með öðru móti hefði það ekkl tekist. Og nú mun jeg gera mitt besta til að tala móðurmálið mitt lýtalaust“. „ÍSLENSKAN ER STERK. EN MJÚK ‘ Er hjer var komið varpaði frú Anna fram staðhæfingu, sem kom flestum viðstöddurn á óvart. Hún sagði eitthvað á þessa leið: „Er ekki almennt álitið, að íslenskan sje hart mál, en dansk an mjúk? — Að mínum dómi er þetta ekki rjett. Íslenska tungan er sterk, en mjúk og mun mýkri en danskan, sem er hart mál. Nefndi Anna nokkur dæmi, máli sínu til stuðnings og var rökum hennar ekki mótmælt, enda erfitt. „Margir Islending- ar eiga erfitt með að læra dönsku, af því að þeir halda, að málið sje mjúkt, en það fellur eins og hamarshögg í saman- burði við íslenskuna, sem renn ur mjúk og ljúf af vörum ís- lendinga". MIKILL LEIKLISTARVIÐBURÐUR Það er mikill leiklistarvvið- burður hjer í bæ, er Anna Borg frægasta leikkona Islands, kem ur fram í Þióðleikhúsinu. Hún hefir ekki leikið hjer á íslensku frá því að hún fór með hlutverk Höllu í Fialía-Eyvind Albingis hátíðarárið. Enn muna menn og pæða snilldarleik hennar í því hlutverki. I S.iálf vill Anna Borg ekki gefa leikhúseestum of miklar vonir ir og segir: I „Jeg fiekk handritið að hlut- verki minu þremur dögum áður en jeg fór að heiman. — Þetta hlutvei'k hefi jeg aldrei leikið áður. Getur verið að bað sje gott, að jee hefi ekki leikið bað á dönsku. En maður veit aldrei , hvernig hlutverk henpnast, sem l maður tekur að sier fyr en kom- ið er langt á æfin«ar. En jeg mun gera mitt besta“. í. G. Kosningar í V-Afríku LON.DON, 8. febr. — í dag hóf- ust kosningar til hins nýja þings Vestur-Afríku. Fá íbú- arnir þarna nú meira sjálfsfor- ræði en í nokkurri annarri áfríkanskri nýlendu. 84 fulltrúar taka sæti á þing- Englinu, þar af 75 innfæddir. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.