Morgunblaðið - 25.05.1952, Síða 16
Murútli! í dag:
SV og V gola. Skúrr.
116. tbl. — Sunnudagur 25. maí 1952.
Reykjavíkurbréf
er á bls. >.
[ Kvennafundur um forsefakosningarnar.
j Sjáifstæéiskvennafélagið Hvöf og aðrir stuönings-
menn séra Bjarna Jónssonar boöa fil hans
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉLAGIÐ HVÖT og aðrir stuðn-
ingsmenn séra Bjarna Jónssonar vígslubiskups við forseta-
kjörið hafa boðað ti'i kvennafundar í Sjálfstæðishúsinu kl. 8,30
á mánudagskvöld.
Málshefjandi á fundinum verður Bjarni Benediktsson utan-
xíkisráðherra.
Allar konur, sem hyggjast styðja framboð séra Bjarna Jóns-
sonar eru velkomnar á fundinn meðan húsrúm leyfir.
Meiri þátttaka í Iðnsýn-
inííu nn i en búizt var við
300 iðnaðarmenn og iðnrekendur munu sýna
S.L. miðvikudagskvöld rann
út frestur til þess að sækja um
rúm á Iðnsýningunni, og höfðu
þá hátt á þriðja hundrað iðn-
aðarmenn og iðnrekendur
óskað að taka þátt í henni.
! l»að er mun meiri þátttaka en
! jafnvel þeir bjartsýnustu
i höfðu gert sér vonir um.
Rúm það, sem sýningin hef-
f ur yfir að ráða er því næstum
! fullskipað, en séu enn ein-
! hver jir, sem vilja vera með, en
i hafa ekki tilkynnt þátttöku
sína, verður þó enn um sinn
' reynt að rýma fyrir þeim.
Þessi mikla þátttaka er
gleðilegur vottur þess, að fram
leiðendur hafa skilið að nú ríð
ur á að sýna það og sanna, að
íslendingar eru orðnir iðnað-
arþjóð, sem framleiðir fjöl-
breyttari og glæsilegri vörur
en flestir gera sér Ijóst.
Þessa dagana hefur Iðnsýn-
ingin auglýsingarglugga Mál-
arans í Bankastræti til um-
ráða. í glugganum eru Ijós-
myndir úr iðnaðinum eftir
Hjálmar Bárðarson og Guðna
Þórðarson, og hafa þær vakið
óskipta athygli vegfarcnda.
Shógrœhtarfólkið frá
Noregi hemur á morgun
f Hópur Norðmanna ferðast um landið.
Á MÁNUDAGINN kemur hingað mikill fjöldi ferðamanna frá
Noregi með skipinu Brand V. — Meðal þeirra eru 60 skógræktar-
menn, sem hér verða við skógrækt í rúma viku. — Héðan fer
svo til Noregs, í skiptum, rúmlega 60 manna hópur skógræktar-
áhugamanna.
ÞRIGGJA DAGA FERÐALAG
Skipið er væntanlegt hingað til
Reykjavíkur um hádegi á mánu-
daginn. Með því verða alls um
100 manns. Ferðaskrifstofa rikís-
ins mun sjá um móttöku allra
nerna skógræktarmannanna, og
hefur hún skipulagt 3ja daga
ferðalag um landið fyrir hið
norska ferðafólk.
FJÓRIR HÓPAR SKÓG-
RÆKTARMANNA
Skógræktarfólkið, sem fer til
starfa út á land, mun fara frá
bænum þegar á þriðjudaginn.
Munu 45 þeirra fara norður í
land og austur í Árnessýslu og
Rangárvallasýslu. Mun fólkið
starfa daglega að skógrækt fram
til 5. júní. Að þeim tíma liðnum
og til Jiess 8., verður því boðið
í ferðalög. Heim fer fólkið með
Heklu.
KYNNA SÉR SKÓGRÆKT
í NOREGI
Þegar Brand V siglir héðan á
föstudag, fara rúmlega 60 skóg-
ræktaráhugamenn víðsvegar að
af landinu, til Noregs, til að
starfa við skógrækt þar og kynn-
ast starfinu. Mun fólkið dvelja
á Mæri og á Hörðalandi.
Engin róðrarkeppni
verður á Tiörninni
ti
FÉLAG ísl. náttárufræðmga, sem
'bæjaryfirvöldin leituðu til, um það,
’bvort ráðlegt sé að leyfa kappróður
á Tjörninni í samhandí við Sjó-
mannadaginn, er þeirrar skoðunar,
að sl’íkt gæti haft slæmar afleiðing
ar í för með sér fyrir fuglalífið á
Tjörninni. Með hliðsjón af þvi hefur
bæjarráð ekki talið unnt að leyfa
róðrakeppnina þar á sjómannadag-
Söfnunarnefnd handrilahússins.
Hlutverk þessara manna er að gangast fyrir söfnun 1 millj. króna
til byggingar húss, sem handritin fornu verða varðveitt í, þegar
þau eru endurheimt frá Khöfn. — Hlutverk ísl. þjóðarinnar er að
leggja skjótlega fram þessa einu milljón króna og sýna með því
hug sinn í verki.
Heisum öil hús yf-
ir handritin fomu
ÞJÓÐMETNAÐARMÁL
SANNRA ÍSLENDINGA
Á FÖSTUDAGINN boðaði nefnd sú blaðamenn á fund sinn, er
Stúdentafélag Reykjavíkur gekkst fyrir að skipuð yrði til fjár-
söfnunar og undirbúnings byggingu húss hér heima er geymdi
Árnasafnshandritin fornu, er Danir halda enn í Kaupmannahöfn.
Cand. júr. Páll Ásgeir Tryggvason, formaður félagsins, skýrði
frá því að framkvæmdir væru þegar hafnar í málinu, undirtektir
manna hefðu verið hinar prýðilegustu, sem vænta hefði mátt um
slíkt þjóðarmetnaðarmál íslendinga og halda yrði söfnuninni á-
fram af fullum krafti þar til markinu væri náð eða ein milljón
króna komin í sjóðinn.
Veitti hann blaðinu eftirfarandi®-
upplýsingar um málið:
STJÓRN Stúdentafélags Reykja-
víkur ritaði í byrjun þessa mán-
aðar nokkrum helztu félagasam-
tökum í landinu og bað þau að
tilnefna fulltrúa af sinni hálfu
í nefnd, sem hefði forgöngu í fjár-
söfnun og undirbúningi að bygg-
ingu safns yfir íslenzku handritin.
Þessum tilmælum var strax vel
tekið og tilnefndu félagssamtökin
hvert af öðru fulltrúa í nefndina,
þannig að hún er nú fullskipuð
og eiga eftirfarandi samtök full-
trúa í nefndinni:
Stúdentafélag Reykjavíkur
Vinnuveitendasamband Islands
Aiþýðusamband Islands
Stéttarsamband bænda
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga
Verzlunarráð Islands
Landssamband íslenzkra útvegs-
manna
Féiag íslenzkra iðnrekenda
Landssamband iðnaðarnema
Kvenfélagasamband íslands
Ungmennafélag Islands
Flugvélsn Hekla kom í gær
HIN nýja Skymasterflugvél Loftleiða, sem hlotið hefur nafnið
Hekla, kom hingað til Reykjavíkur í fyrsta skipti í gærkvöldi.
Óðinsfélagar
FARIÐ verður í Heiðmörk næst-
komandi þriðjudagskvöld kl. 6.30
frá Garðastrætf 5, UI gróðursetn-
ingar í landi félagsins. Fólagar,
mætið sem flestir.
Var margt manna á Reykja-
víkurflugvelli við komu flug-
vélarinnar. Flugvélin kom frá
New York og voru þeir flug-
stjórar fyrstu flugmenn félags-
ins, Alfreð Elíasson og Kristinn
Olsen.
FYRSTA ÁÆTLUNAR-
FLUGIÐ
Hin nýja Hekla getur flutt 65
farþega og fer hún í fyrsta áætl-
unarflug sitt á þriðjudagirin. Þá
flýgur hún til Kaupmannahafn-
ár, Osló og Stavangen
Árdegis í dag fer flugvélin til
írlands, en þangað flytur hún
flugvélahreyfla vestan frá
Bandaríkjunum. Hingað kom
hún með vörur._________ -
Verksfjórar
í Kefðmörk
VERKST JÓRAFÉLAGIÐ, sem
verið hefur afkastamest við gróð-
ursetningastarfið í Heiðmörk, fer
þangað í dag. Það mun vera eina
félaglð sem fer þangað þennan
sunnudag.
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja
Farmanna- og fiskimannasam-
band Isiands
Samband íslenzkra sveitarfélaga
Félac islenzkra stórkaupmanna
Nefndin hefur komið saman
nokkrum sinnum og rætt hvernig
f,jársöfnunin verði bezt fyrir kom-
ið. Hefir verið skipuð fimm manna
framkvæmdanefnd og eiga þessir
sæti í henni:
Páli Ásgeir Tryggvason
Barði Friðrikssson
Guðrún Pétursdóttir
Ólafur Pálsson og
Sæmundur Friðriksson.
Er ætlunin að framkvæmda-
nefndin hafi með höndum umsjón
söfnunarinnar og hefur henni til
aðstoðar verið ráðinn sérstakur
framkvæmdastjóri Magnús Guð-
jónsson stud. jur., og hefur hann
fast aðsetur í herbergi Stúdenta-
ráðs í Háskólanum og hefur þar
fastan viðtalstíma milli kl. 5—7
alal virka daga nema laugardaga.
Sími: 5959.
Takmark nefndarinnar er, að
safnað verði alls 1 millj. kr., og
að söfnuninni verði lokið í haust.
Ekki er enn fullráðið hvenær í
haust söfnuninni muni ljúka, en
sennilega mun það verða i októ-
ber mánuði og líkur henni með
almennum fjársöfnunardegi. Sér-
stök nefnd mun hafa með höndum
fjársöfnunina þennan dag og eiga
sæti í henni Arngrímur Kristjáns-
son, Jón Árnason og Stefán Ól-
afur Jónsson.
Nefndin hefúr komið sér sam-
an um meðfylgjandi ávarp til Is-
lendinga, þar sem skorað er á alla
Jandsmenn að leggja sinn skerf
til söfnunarinnar. Munu fulltrú-
ar þeir, sem sæti eign í lands-
nefndinni skrifa félögum þeim,
sem innan vébanda félagssamtaka
þeirra eru og óska cftir framlagi
úr félagssjóðum þeirra, cjn frek-
ari aðgerða af hálfu félaganna er
ekki óskað að svo komnu máli.
Síðari hluti
ÍR-mótsins
SÉÐARI hluti ÍR-mótsins fer
fram á íþróttavellinum í dag og
hefst kl. 2 e. h.
Þá verður keppt í 200 m hlaupi,
kringlukasti, hástökki, 1000 rrn
boðhlaupi, 80 m hlaupi kvenna
og 100 m hlaupi drengja.
Ennfremur íer fram víðavangs
hlaup meistaramótsins, sem byrj-
ar og endar á íþróttavellinum.
ú eru 13 fogarar á
fjariægim míðum i
UM þe9sar mundir eru 13 íslenzkir
togarar á saltfiskveiðum á fjarlæg-
um miði»m. Eru átta við Bjarnareyj
ar, en fimm við Grænland.
Það eru togarar Bæjarútgerðar
Reykjavíkur og Jón Forseti sem eru
norður x höfum. Afli hefur verið í
tregara lagi, en í fyrrinótt hafði
oflinn giæðzt.
Við Grænlandsstrendur mun hafa
verið allgóður afli, en þar eru syst-
urskipin Marx og Neptúnus, Júni,
Ólafur Jóhannesson og Keflvíkingur.
Togararnir sem eru á veiðum hér
við land eru ýmist á saltfiskveiðuirx
eða á ísfiskveiðum fyrir frystihúsin.
Engin er á veiðum fyrir erlendan
markað. Vestur á Halamiðum hefur
verið dógóður afli undanfarið.
Fyrsfi skriðbíllinn !
á leiðinni 1
1 SAMBANDI við leitina að björgr
unarflugvélómi á Eyjafjallajökli,
kom visiisnjóbillmn mjög við sögu.
Nú er fyrsti Vísilbíllinn sem Islend-
ingar eignast sjálfir, á leið til lands-
ins. Það er hill Jöklaraimsóknarfé-
lagsins er það keypti í Svíþjóð, en
bíllinn er amerisk framleiðsla.
Brussel-myndir 1
í Listvinasalnum
í LISTVINASALNITM vi®
Freyjngötn hafa nú veriffi
hengdar upp allmargar mynd-
ir íslenzkra listamanna sem
voru á Brusselsýningunni á
dögunum. Verður sýning þessá
opnuð almenningi ltlukkan 16
í dag og er aðgangur ókeypis.
Allar myndirnar sem flestar
eru eftir yngri listamenn okk-
ar, eru til sölu. Sýnd verður
m. a. járnmynd eftir Gerðá
Helgadóttur myndhöggvara og
ný höggmynd eftir Ásmund
Sveinssou. Sýningin verðar
opin frá kl. 2 til 7 alla næstia
viku.