Morgunblaðið - 24.06.1952, Síða 1
Sl. árgangut
139. tbl. — Þriðjudagur 24. júní 1952.
Prentsmiðja Mergunblaðsin*.
oiitiskt
ALÞÝSUFLOKKSMENN segja
að framboð Ásgeirs Ásgeirs-
sonar til forsetaembættis sé
„ópólitískt“ og hann sjálfur
„ópólitískur“!!!
Af mörgum staðhæfingum
AB-manna í þessari kosninga-
baráttu er þessi einna ósvífn-
ust og fjarlægust raunveru-
leikanum. Þessi frambjóðandi
hefur verið þingmaður í 29
ár, s. 1. 18 ár iyrir Alþýðu-
flokkinn. Hann er enn þann
dag í dag þingmaður hans.
ííonurn dettur ekki í hug að
segja af sér þingmennsku þótt
hann hafi fcoðið sig fram til
forsetastöð'u.
Þrátt fyrir allt þetta iætur
hann málgögn Alþýðufiokks-
ins þrástagast á þeirri firru
að framboð hans é gjörsam-
lega „ópólitískt“ og sízt af
öllu i nokkru sambandi við
flokk þann, sem hann ennþá
er þingmaður fyrifc! Á þessu
er hamrað enda þótt vitað sé,
að miðstjórn Alþýðuflokksins
samþykkti framboð Ásgeirs
Ásgeirssonar meðan ennþá
stóðu yfir tilraunir til allsherj-
arsamkomuíags um forseta-
framboð.
SLlK ÓHEILINÐI í málafylgju
af hálfu frambjóðanda til
æðsta embættis þjóðarinnar
stýra engri gæfu. Þau eru
eins greinileg vísbending um
það og frekast verður á kos-
ið, að um slíkan mann gæti
aldrei skapast þjóðareining.
Hann gæti aldrei laðað and-
stæð öfl til samstarfs. í kring
um hann gæti aldrei ríkt frið-
ur. Xortryggni og ófriður hlyti
að skapast um sæti hans.
Það má aldrei henda að til
slíkrar ógæfu dragi. Um for-
setaembættið eiga ekki að
leika ófriðareldar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
!agt liöfuð áherzlu á, að halda
þessu eina sameiningartákni
íslenzku þjóðarinnar utan og
ofan við flokkadeilur og dæg-
urþras. Þessvegna tók hann
höndum saman við Framsókn-
arflokkinn um framboð
manns, sem öll þjóðin þekkir
að hæfileikum til þess að vera
mannasættir. Fylgi hans á
djúpar rætur í öllum stéttum
og stjórnmálaflokkum. Hann
þarf hvergi að villa á sér
heimildir. Honum er auðvelt
að koma til dyranna eins og
hann er klæddur, hreinn og
beinrs, án tilrauna til póli-
tískra sjónhverfinga.
ÍSLENDINGAR HAFA NU að-
eins 5 daga umhugsunarfrest
þar til þeir ganga að kjörborði
Og velja sér þjóðhöfðingja í
almennum kosningum. Þetta
er í fyrsta skipti, sem siík
kosning fer fram. Á miklu
vellur, hvernig þar tekst til.
Þar eru þrír frambjóðendur
í kjöri. Einn (þeirra, séra
Bjarni Jónsson vígslubiskup
hefur gefið kost á sér vegna
þess að víðtæk samtök þjóðar
•hans kvöddu hann til þess, í
því skyni að leysa mikinn
vanda.
Ilinir tveir eru fyrst og
fremst í kjöri fyrir sjálfa sig.
Á eðli þessara framboða er
því mikill munur. Þessvegna
mun þjóðin fylkja sér um
framboð séra Bjarna Jónsson-
ar. —
Svikalæknir uppgötvaður
í aeðveikrahæli í Danmörku
\
Éinkaskeyti lil Mhl. frá Keuter-I\T!i
KAUPMANNAHÖFN, 23. júní. — Uppvíst er nú orðið í Danmörku
læknahneyksli eitt, sem geysimikla athygli og umtal hefur hvar-
vetna vakið og menn eru alláhyggjufullir yfir að geti endurtekið
sig, án þess að auðvelt sé að koma lögum yfir afbrotamanninn.
EIMSKU ISIJOSIMAR4RETT■
ARHÖLDIIM HEFJAST
AÐ
UNGUR MAÐUR
SKEMMXA SÉR
Á geðveikrahæli Middelfart-
bæjar höfðu læknarnir fyrir
skömmu hendur í hári ungs
manns, sem hafði sagzt v.era
læknastúdent og unnið hafði á
sjúkrahúsinu í þrjár vikur. Það
var skrifstofa læknasambands-
ins danska, sem hafði látið
blekkjast og mælt með hinum
unga manni til starfsins og hefur
því mál þetta vakið svo mikla
athygli, sem raun ber vitni, að
sú mikilsvirta stofnun _skyldi
óbeint auðvelda svikin.
HLUPU í SKARÐIÐ
Byrir nokkrum vikum lentu
þrír læknar sjúkrahússins í bíl-
slysi. YfirJæknirinn snéri sér þá
til læknasambandsskrifstoíunnar
og bað um læknishjálp á meðan
þeir væru ófærir til vinnu. Tveir
læknanemar voru þá sendir á
vettvang og hófu þeir lækning-
ar og sjúkrarannsóknir árla1
næsta morgun. |
En svo bar við þremur vikum
síðar, að E. Viþek Jensen, yfir-
læknir geðveikrahælisins, fékk
boð frá Kaupmannahöfn um að
óþekktur maður hefði hringt til
læknaskrifstofunnar og tilkynnt,
að annar stúdentinn hefði aldrei
næbri læknisfræði né sjúklingum
komið.
BARA XÓNLISXARMAÐUR! |
Rannsókn leiddi í ljós, að sagt
var rétt frá og stúdentinn hafði
heldur ekki meðmæli frá lækna-
félagi borgarinnar né Háskólan-
um, sem hann hafði sagt.
Hann hafði aldrei lesið
læknisfræði, en verið við nám
í París, ekki læknisfræðinám
— heldur hljómlistarnám! !
Nú þegar allt er komið upp,
virðist að svikin hafi verið
augljós.
„ÉG VISSI ÞAÐ ALLXAF!“
Yfirhjúkrunarkonan segir: „Ég
vissi alltaf, að hann var ekki
læknir. Hann var svo voðalega
heimskur." Yfirlæknirinn hefur
einnig skýrt svo frá, að skýrslur
þær, sem „læknirinn“ hafi skrif-
að, hafi verið mjög heimskuleg-
ar og ekki borið vott um mikla
þekkingu á greininni.
En hvað um það, ef málið
hefði ekki endað á þann hátt, að
ókunnur maður kom öllu saman
upp. Þá væri ungi stúdentinn
vafalaust ennþá gð lækna geð-
veika, — þrátt fyrir allan mennt-
unarskort sinn.
«>-
Schlusnus látinn
Berlín 23.
iúní. — Hinn
!ieimsfrægi
þýzki óperu-
söngvari Hein-
rich ocnlusnus
er látinn, <A
ára að aldri.
Um 30 ára
skeið var hann
einn heizti
nöngvari Híkis
óperunnar :
Berlín, en þar lét hann af störf-
um árið 1945. Síðan hefur hann
aðallega ferðazt um landið og
haldið hIjcþnleika. Schlusnus var
velþekktur víðs vegar um heim,
frá hljómleikaferðum sínum, en
ennþá betur þó af söng sínum
á plötur, er mjög eru leiknar.
Hann hafði ljóðræna barytón-
rödd og naut sín einkum við að
syngja lög eftir Schubert,
Brahms og Loewe.
Þó að óperan væri heimkynni
Schlusnus, var hann þó einn
mesti ljóösöngvari (Lieden) Þjóð
verja og það var hann, sem fyrst
gerði mörg lög þeirra Schu-
manns og Hugó Wolfs fræg.
•—Reuter.
liinknskeyti til Mhl. frá Router-ISTR
LUNDÍINUM, 23. júní. — Rannsókn hefur nú aS nokkru farið
fram í máli hins 24 ára gamla loftskeytamanns í brezka utanríkis-
láðuneytinu, Martins Marshalls að nafni. Réttarhöldin hófust í
l.ondon á laugardag. Hann var ákærður fyrir njósnir, har.dtekinn
i skemmtigarði einum í Lundúnum, þar sem liann var að afhenda
ritara rússneska sendiherrans, Pavel Kuznetzov, leyndarskjöl
hin mestu.
- Gg sprengjumar
falla
TÓKÍÓ, 23. júní: — Mesta Íofí
árás, seni fram heínr farið í
Kóreustríöinu var í aótl. 500
flugvélar S.þ. gerðu loftárás á
orkuverin við Jalúána, en þau
veita allri Norður-Kóreu raf-
inagn og miklum hlut.i þunga-
iðnaoart'miðianna í Mansjúríu
að auki. Arásin stóð yfir í
einn og hálfan ííma 'm afláts.
Fimm stærstu stúðvarnar
voru hæfðar og ein þeiira júfn
uð að fullu við jörðu. Engin
sprengjuflugvélin laskaðist,
þrátt fyrir að 200 ruísneskra
orrustuvéla stóðu á ilugvöllum
í grennd, tilbúnar til flugs.
Fimrnta flugsveitin ameríska
tilkynnir, að Suridoorkuverið,
sem veitir vopnasmiðjanum í
Mukden orku, hafi vcrið eyði-
lagt, svo og einnig fjórar minni
aflsiöðvar í Norður-Kóieu.
Júðum bætlur
JERÚSALEM, 23. júní: — Utan-
í-íkismálanefnd ísraelsþings hefur
gert skaðabótakröfu a hendur
þýzka lýðveldinu á grundvelli
þýzkra tillagna. Á 12 arum skal
Þýzkaland scnda ísra nsruönnum
vörur fyrir 5 miijarða kióna. —
Vörurnar eru bætur fyrir með-
höndlun Hitlers á Júðunum og
mönnum júðskrar ættar. — Öfga-
í'lokkar til liægri og vinstri í Isrá-
elsþingi eru þó á annarri skoðun
pg vilja ekki semja á þessum
grundvelli. — Reuter.
Undirbmiingsnefndir Siálf
<u
stæðismanna í forseta-
kosningunum um land allt
Veifa hvers konar upplýsingar eg fyrirgreiðslu
SJÁLFSXÆÐISMENN hafa nú kosninganefndir í hverju héraði
landsins, sem hafa forgöngu um undirbúning forsetakjörsins.
Þessar nefndir annast fyrirgreiðslu og undirbúning í hverju
liéraði og er m. a. ætlað að hafa samband við trúnaðarmenn og
nefndir í hverjum hreppi, sem beita sér fyrir kosningunum á
kjördegi og hafa á hverjum stað samvinnu við aðrar héraðsnefndir
og trúnaðarmenn, sem vinna að kosningu séra Bjarna Jónssonar.
Kosninganefndir og forstöðumenn Sjálfstæðisflokksins í hverju
liéraði eru eftirtaldir aðilar:
REYKJAVÍK: «
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna.'
HAFNARFJÖRÐUR:
Bjarni Snæbjörnsson
Jóhann Petersen
Karl Auðunsson
Frú Ragnheiður Magnúsdóttir
Frú Soffía Sigurðardóttir.
GULIiBRINGUSÝSLA:
Guðm. Guðmundsson, Keflavík
Alfreð Gíslason, Keflavík
Karvel Ögmundsson, Njarðvíkum
KJÓSARSÝSLA:
Ólafur-Bjarnason, Brautarholti
Jónas Magnússon, Stardal
Gísli Andrésson, Hálsi
Ásbjörn Sigurjónsson, Álafossi.
Frh. á bls. 2. I
Norðmenn á Græn-
AALESUND, 23. júní: — Sunn-
mærispósturinn skýrir svo frá að
góður þorskafli hafi fangizt við
Vestur-Grænland undam’ai ið.----
Eftir þeim upplýsingum, sem út-
gerðarfyrirtækin hér haf i fengið
af Grænlandsmiðum, þá er áætlað
að hver bátur hafi aflað r.m 60—
70 lestir af saltfisk. Margir bát-
arnir munu landa fyrsta aflanum
í Færeyingahöfn í þessa.i viku.
Norskt flutningaskip er á leið
til Grænlands til þess að taka fisk
og’ færa bátunum olíu og -alt.
— NTB.
ÞJÓNN RÚSSA
Saksóknari ríkisins hélt fyrst-
ur ræðu sína og ásakaði Marshall
um njósnir í
þágu Rússa. —
Viðstaddir yfir
heyrsluna' í
dómsalnum var
hinn aldraði
faðir Marshalls
sem er strætis-
vagnstjóri að
atvinnu, móðir
hans og ung
stúlka sem sagt
er, að loft-
skeytamaður-
inn sé heitbundinn.
Ákæran segir, að sannanir séu
til fyrir því að hann hafi haft
samband við Kuzenetzow þann
25. apríl í Kingston og 19. maí í
Wimbeldon, og auk þess síðast
13. júní.
í öll þrjú skiptin afhenti hann
Rússanum mikilsverðar upplýs-
ingar, sem mikill fengur var fyrir
þá að hljóta.
ÞEIM FJÖLGANDI FER
Martin Marshall er fjórði sov-
étnjósnarinn í Bretlandi, sem upp
hefur komizt um. Hinir þrír voru
atomnjósnarinn dr. Fuchs, Donn-
ald MacLean og Guy Burgess,
starfsmenn utanríkisráðuneylfis-
ins og loks atomfræðingurinn dr.
Bruno Walther, sem hvarf með
undarlegum hætti inn fyrir járn-
tjaldið hér á dögunum.
Dómarinn þaulspurði Marshall
um það, hve há laun hann hefði
hlotið í utanríkisráðuneytinu og
kom þá í ljós, að ríkið hafði greitt
honurtt um 1500 krónur á mánuði
og í banka átti hann 15 pund,
hvað ekki er mikið fyrir mann á
biðilsbuxunum. Gæti því fjár-
þröng hafa rekið Marshall út í
njósnir.
BÁGAR HEIMILISÁSTÆÐUR
Lögfræðingur Marshalls sagði
að faðir hans væri sjúkur, for-
eldrar hans væru fátækir og hann
sjálfur miður sín af áhyggjum.
Bað hann um að loftskeytamað-
urinn fengi að ganga laus þar til
dómur félli, en ekki var það veitt.
Yfirvöldin safna nú í gríð og erg
sönnunum gegn Marshall, en
hann heldur því statt og stöðugt
fram að hann sé sárasaklaus og
neitar að viðurkenna eitt eða
neitt.
Baðstaður í ógöngum
HÖFN — Heldur er dauft útlit-
ið fyrir baðrekstur eigenda Bell-
evue baðstaðarins í Kaupmanna-
höfn. Þangað eru vanir að koma
1500 gestir daglega, en í mánuð
hafa komið þangað 1500 gestir,
aðeins. Danir tóku eina ráðið í
sjónmáli og lokuðu staðnum til
þess að forða gjaldþroti.