Morgunblaðið - 24.06.1952, Page 6
6
MORGVNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 24. júní 1952.
Helgi Skúlason augnlæknir
varð sextugur s.l. sunnudag
Akureyringar fagna mjög „Brúí tíheisiiifi ‘ Ibsens
HELGI augnlæknir hefur í ald-
arfjórðung verið borgari þessa
bæjar. Ég þekki hann ekkert
sem lækni, því að mér er mjög
ósýnt um ailt, er lýtur að lækn-
isfræði, og ef hann gæti ekki
talað um neitt annað en þá fræði
grein, hefði ég vísast aldrei
kynnst honum. En Helgi er mað-
ur fjölfróður, og meðal annars
er 'hann mjög vel að sér í ýms-
um þeim fræðum, sem eru í tals-
verðri fjarlægð við læknisfræð-
ina, og ég er hneigður fyrir. Á
þeim vegum kynntumst við, og
síðan hefur mér verið ánægja
að hitta hann að máli, og er ég
honum þakklátur fyrir margar
góðar samverustundir. Hann er
allra manna minnugastur, kann
kvnstrin öll utanbókar. nu finn-
ur manna bezt, hvað „feitt er á
stykkinu".
Það þótti nú einu sinnf »vki
ónýtt að vera alinn upp og fædd-
ur í Odda á Rangárvöllum. Oddi
þarf heldur ekki að skammast
sín fyrir Helga, því að hann er
klassiskt menntaður maður. bó
að hann sé útskrifaður úr skóla
eftir 1909.Hann ltunni líka vel við
Kvenfélag
Laugarnessóknar
fer í skemmtiferð á Suður-
nes, miðvikudaginn 25. júní
kl. 1. Nánari upplýsingar í
sfma 4296 og 4498.
Nefndin.
Ilafnarfjörður
4ra herbergja steinsteypt
einbýlishús til sölu. Útborg-
un kr. 50 þús og eftirstöðv-
arnar með mjög hagkvsém-
um greiðslukjörum.
Guðjón Síeingrímsson
lögfræðingur. Strandgötu
31. Hafnarfirði. Sími 9960.
Eldri maður óskar eftir
konu á aldrinum 40—50 ára
til að stofna með sér arð- j
bæran atvinnurekstur. Þarf j
að hafa nokkurt handbært j
fé. Tilb. með uppl. leggist .
inn á afgr. Mbl. fyrir 28. þ.
m. merkt: „Félagsskapur —
425“. — —
16 ha. Gray-
Bátamöfor |
með öllu tilheyrandi til sölu.
Selst fyrir hálf virði, ef
samið er strax. Til sýnis
Karfavog 34 (Hraunborg). !
Hafnfirðingar
Húsnæði, vantar 1—3 her-
bergi og eldhús nú þegar
eða í haust. Upplýsingar í
síma 9559.
sig í Stúdentafélaginu okkar
hérna á Akureyri, meðan hann
sótti þar fundi. Einkum eru ?nér
ógleymanlegar íundargerðir fé-
lagsins, meðan hann var ritari
þess. Það vrar mikið fjör, óvið-
jafnanlegt hugarflug, fyndni og
gaman, græskulaust þó, í þessum
fundaplöggum. Upp úr þessu
urðum við Helgi reyndar mestu
nótar, þó að skiptar kunni að
vera skoðanir okkar á ýmsum
málum. Ég fordæmdi skoðanir
hans sumar hverjar og hann mín-
ar, en við getum samt talast við,
ekki af umburðarlyndi, því það
er okkur báðum í vissum skiln-
ingi móti skapi, heldur áf ein-
hvers konar löngun til andlegra
skvlminga. Nóg með það, því að
Pétur og Pál varðar bókstaflega
ekkert um það, hvernig á kunn-
ingsskap okkar Helga Skúlasonar
stendur. Trölltryggur er sá góði
maður. Ég þekki það. — Hann
á ekki marga vini, en leggur rækt
við þá, sem hann á annað borð
vill vera með. Lýsir það mannin-
um vel.
Okkur góðvinum hans þykir
miður, að hann skuli ekki geta
verið heima á sextugsafmælinu,
en um það tjáir ekki að sakast.
Hann er í fjarlægu landi að leita
konu sinni lækninga. Guð gefi
hans góðu konu bata! — Helgi
Skúlason er vel kvæntur og á
efnileg börn. Konan er Kara Sig-
urðardóttir Briem. — Ég bið
henni allrar blessunar og þeim
hjónum báðum á þessum tíma-
mótum í ævi Helga og á þessum
reynslustundum þeirra beggja.
í þessari afmælisgrein er öll
mærð útilokuð og smjaðurkennt
hól. Það á aldrei við og allra sízt
við afmælisbarn það, er ég nú
minnist. |
Helgi Skúlason er Aristókrat. ^
Það á svona og svona við tíð-
arandann núna, en Helgi lagar
sig ekkert eftir honum. Hann
er í samræmi við sitt upphaf og
kemur til dyranna, eins og hann
er klæddur. Hann er ekki einn
þeirra, sem leikum Demókrat í
kjallaraíbúðinni og Aristókrat á
fyrstu hæ<5 hússins. Helgi er
ekkert hneigður fyrir að láta
bera á sér. Hann er svo laus við
það sem mest getur verið að vera
Parvenu. Þar kemur fram hin
andlega fyrirmennska hans. Hann
er sterkur á svellinu að þessu
leyti. Fyrir þetta er hann virð-
ingarverður af öllum menntuðum ,
mönnum. — Hann er líka fæddur
og uppalinn og fræddur í
hinum „hæsta höfuðstað", sem
einu sinni var kallaður svo, þ. e.
í Odda.
B. T. Akureyri. |
AKUREYRI, 23. júní: — Eins
og ákveðið hafði verið fór fram
frumsýning á Brúðuheimilinu hér
á Akureyri s.l. laugardagskvöld í
leikhúsi bæjarins. Var húsið þétt-
skipað áhorfendum, svo sem
vænta mátti.
Tókst sýningin fralriúrskarandi
vel og hef ég sjaldan vitað leik-
húsgesti fylgjast af jafn miklum
áhuga með því, sem er að gerast
á leiksviðinu, sem að þessu sinni.
Ekki virðist ástæða til þcss að
.birta nöfn leikendanna þvi að þau
munu öllum þorra manna kunn.
Fulikomin listtúlkun
Aðalleikandans, frú Tore Seg-
elcke, sem er gestur Þjóðleikhúss
ins, vil ég þó sérstaklega geta að
nokkru. Svo fáguð og í aila staði
fullkomin listtúlkun á leiksvið'
hefur ekki sézt hér áður, sem me<.
ferð hennar á hlutverki Nóru
jafn stórbrotið og vandasamt ser.
það þó er. Er það vissulega ó-
gleymanlegur viðburður að hafa
átt þess kost að sjá og heyre
þessa frábæru leikkonu ,á leik
sviði Akureyrar.
í leikslok voru leikendur hyllti
hvað eftir annað með dynjand'
lófataki og svo aðalleikkonan frú
Tore ein sér. Bárust ieikendurr:
blóm.
Þjóðleikhúsinu þalekað
Þá ávarpaði formaður Leikfé-
lags Akureyrar, Guðmundur Gunn
rrsson, leikarana með nokkrum
trðum. Kvað hann þessa fyrstu
leimsókn frá Þjóðleikhúsinu liafa
<akið hina mestu eftirtekt í bæiT-
im og myndi hennar lengi minnzt
sem eins hins mesta leiklistavið-
burðar hér. Fór hann lofsamleg-
um orðum um sýninguna í þeild,
einkum leik frú Tore Segelcke,
sem túlkaði hlutverk Noru af frá-
bærri snilld. Að lokum afhenti
bann þjóðleikhússtjóra fagran
blómvönd og flutti kv%ðjur frá
Leikfélagi Akureyrar.
LeikferSir út á land
Þá kvaddi þjóðleikhússtjóri sér
bljóðs. Sagði hann m.a.: að það
væri svo til ætlast, að Þjóðleikhús,
ið sendi öðru hvoru leikflokka útj
um landið í framtíðinni,-en slíkarj
leikfarir væru oft ýmsum vand-
kvæðum bundnar, þar sem leik-j
svið úti á landi eru alls staðar
lítil og þess vegna erfitt í möig-
um tilfellum að koma þar fyrir
sýningum þjóðleikhússins. — Nú
hefði samt svo ráðist að tekið
hefði verið til meðferðar leikrit,;
sem þægilegt væri í meðförum, i
fáir leikendur og lítill sviðsútbún-
aður.
Þegar rætt hefði verið um hvert
fara skyldi, hefði Akureyri orðið
fyrir valinu. Hér væri menningar-
setur Norðurlands. Hér hefðu höf-
uðleikrita- og ljóðskáld þjóðarinn-
ar dvalið. Það hefði því pótt sjálf-
sagt að Akureyri yrði sa bær,
sem fyrstur yrði fyrir valinu til
heimsóknar af Þjóðleikhússins
hál|u. —
Að lokum þakkaði þjóðleikhús-
stjóri ágætar viðtökur loikhúss-.
gesta. Enn fremur þakkaði hann'
formanni Leikfélags Akureyrar
fyrir ómetanlega aðstoð, er hann
á ýmsan hátt veitti við undirbún-
ing leiksýningarinnar.
Var ræðumaður að síðustu
hylltur, með lófataki. i
Önnur sýning „Brúðuheimilis-
ins“ var í gærkveldi fyrir fullu
húsi áhorfenda og sú .-dðasta í
kvöld, og er einnig uppselt á hana.
— FI. Yald.
Tore Segelcke og Arndís Björndóttir í „Brúðuheimili“ Ibsens.
AKUREYRI, 23. júní: — Bæjar-
stjórn Akureyrar hafði hádegis-
verðarboð inni að Hótel KEA í
dag fyrir þjóðleikhússtjóra, leik-
'rra Þjóðleikhússins og aðra starfs
menn þess, sem eru mcð i leikför-
inni, stjórn Leikfélags Akureyrar
og nokkra aðra.
Bæjarstjóri, Steinn Steinssen,
bauð gesti velkomna, en til máls
tóku auk hans, Þorsteinn M. Jóns
son, forseti bæjarstjórnr.r, Guð-
laugur Rósinkranz, þjóðleikhús-
stjóri og leikararnir: Valur Gfsla-
son, Haraldur Bjömsson og frú
Tore Segelcke. — Var' alllengi
setið að borðum, og fór samsæti
þetta hið bezta fram. — II. Vald.
155 kirkjukórar á landinu
a snnu.
AÐALFUNDUR Kirkjukórasam-
bands íslands var haldinn laug-
ardaginn 21. júrií á heimili söng-
málastjóra Þjóðkirkjunnar, Sig-
urðar Birkis, Barmahlíð 45.
Mættir voru eftirtaldir full-
trúar frá kírkjukórasamböndum
prófastsdæmanna: I
Frá Kirkjukórasamb. Reykja-
víkur: Baldur Pálmason, full-
trúi. — Frá Kirkjukórasamandi
Gullbringusýslu: Páll Kr. Páls-
son, organleikari. Frá Kirkju-
kórasamb. Borgarfjarðarprófasts
dæmi: Friðrik Hjartar, skólastj.
Frá Kirkjukórasambandi Mýra-
prófastsdæmi: Páll Halldórsson,
organleikari. Frá Kirkjukóra-
samb. Snæfellsnessprófastsdæmi:
Séra Þorgrímur Sigurðsson. Frá
Kirkjukórasamb. Dala-prófasts-
dæmi: Séra Pétur T. Oddsson,
prófastur. Frá Kirkjukórasamb.
Húnavatnsprófastdæmi: Jón Is-
leifsson, organleikari. Frá Kirkju
kórasambandi Skagafjarðarpró-
fastsdæmi: Séra Gunnar Gísla-
son. Frá Kirkjukórasambandi
Eyjafjarðarprófastsdæmi: Séra
Sigurður Stefánsson. Frá Kirkju-'
kórasamb. S.-Þingeyjarprófasts-
dæmi: Páll Halldórsson, organ-
leikari. Frá Kirkjukórasamb. N,-
Þingeyjarprófastsdæmi: Frú Hall
dóra Gunnlaugsdóttir. Frá Sam-
bandi austfirzkra kirkjukóra:
Séra Jakob Einarsson, prófastur.
Frá Kirkjukórasamb. A.-Skafta-
fellsprófastsdæmi: Jón Isleifsson,
organleikari. — Frá Kirkjukóra-
sambandi V.-Skaftafellsprófasts-
dæmi: Séra Jón Þorvarðsson,
prófastur. Frá Kirkjukórasamb.
Árnesprófastsdæmi: Frú Anna
Eiríksdóttir.
í upphafi fundarins ávarpaði
söngmálastjóri fundarmenn og
bauð þá velkomna. Fundarstjóri
var kosinn séra Jón Þorvarðsson,
prófastur, og fundarritárar, Frið-
rik Hjartar, skólastjóri og Baldur
Pálmason fulltrúi.
Söngmálastjóri flutti ítarlegt
erindi um söngmál íslendinga
fvrr og nú. Síðan flutti hann
starfsskýrslu Kirkjukórasamb.
Islands á s.l. ári og gat þess að
19 kirkjukórar hefðu notið
kennslu, samtals 15% mánuð, og
að 5 kirkjukórasambönd hefðu
haldið söngmót, svo að nú væri
búið að haldá 25 kirkjukörasöng-
mót á s.l. 11 árum. — 155 kirkju-
kórar væru nú starfandi á land-
inu. Kórarnir hefðu, auk þess að
annast söng. við kirkjulegar at-
hafnir, sungið opinberlega 73
sinnum á árinu, og s.l. 11 ár alls
853 sinnum, samkv. skýrslum.
Þá voru lagðir fram endurskoð-
aðir reikningar Kirkjukórasam-
bands Islands og gerði gjaldker-
inn Páll Kr. Pálsson skýra grein
fyrir þeim.
Svo flutti söngmálásíjóri drög
að fjárhagsáætlun Kirkjukóra-
sambands íslands fyrir næsta ár.
Umsóknir höfðu borizt frá 35
kirkjukórum, og var það tillaga
söngmálastjóra að allir þeir kór-
ar fengju sem svaraði 8—9 mán-
aða kennslu fyrir næstu áramót.
Hefðu þá 54 kórar fengið nokkra
kennslu á reikningsárinu, sam-
tals í 14 mánuði.
Tóku flestir fulltrúarnir til
máls, um söngkennslu, sem vaf
aðalmál fundarins, og lýstu
ánægju sinni yfir- fengnum op-
inberum styrk til þeirra mála,
og þökkuðu formanni og stjórn-
Frh. á bls. 12.
Fóikið kýs forsetann — séra Bfarna Jónsson