Morgunblaðið - 24.06.1952, Blaðsíða 14
14
MORGVNBLAÐtB
Þriðjudagur 24. júní 1952. I
R AKE L
Skaldsaga eítir Daphne de Mauriei
P A
Framhaldssagan 47
Ég stóð úti. á túninu þegar sól-
in kom upp. Þjónustufólkið var
komið á fætur. Hlerarnir höfðu
verið teknir frá gluggunum og
dagsljósinu hleypt inn. Ég velti
því fyrir mér hvort nokkur mað-
ur hefði verið tekinn inn í hjóna
band á svona einfaldan hátt. Það
mundi spara mörgum langt og
þreytandi tilhugalíf ef svo væri
almennt. Ég hafði aldrei hugsað
verulega um ástina og allar henn
ar krókaleiðir. Fólk gat haft það
eins og það vildi fyrir mér. Ég
hafði verið blindur og heyrnar-
laus og sofandi. Nú var ég það
ekki lengur.
Það sem skeði þessa fyrstu
stundir á afmælisdegi mínum
mun ég varðveita í huga mér
ævinlega. Astríðunni ef hún var
til hef ég gleymt, en ljúfleikinn er
enn innra með mér. Og ég furða
mig á því ennþá, að kona sem
meðtekur ást, er ævinlega varn-
arlaus. Ef til vill er það leynd-
ardómurinn, sem þær geyma til
að binda okkur þeim. Ég veit,
það ekki, þar sem ég hef ekkert
til samanburðar. Hún var sú
fyrsta.
Ég horfði á það hvernig sólir.
varpaði fyrstu geislum sínum á
húsið þar sem hún gægðist upp
yfir trén. Grasði var döggvött
eins og það væri hélað.
Gullni veðurhaninn á turnspír
unni lýsti í sólskininu, snerist í
norð-austur og staðnæmdist
þannig. — Gráir steinveggirnir
fengu á sig hlýlegri blæ.
Ég fór inn og upp til herbergis
míns. Ég dró stól fram að opn-
um glugganum, settist niður og
horfði út á sjóinn.
Það var eins og hugur minn
hefði stöðvazt, og kyrrð og ró
gagntók mig. Hvergi eygði ég
erfiðleika. Mér fannst öll vanda
mál lífsins hefðu leystst og veg-
urinn inn í frsmtíðina lægi beinn
framundan. Framtíðina áttum
við. Rachel og ég, maðurinn og
konan hans, sem lifðu og hrærð-
ust hvort með öðru í húsi sínu.
Umheimurinn snerti okkur ekki.
Dag eftir dag, og r.ótt eftir nótt.
Svo lengi sem við bæði lifðum.
Svo mikið mundi ég úr sálma-
bókinni.
Ég lokaði augunum. Mér fannst
hún vera ennþá hjá mér. Ég hlýt
að hafa soínað, því þegar ég
opnaði augun aftur skein sólin
inn um opinn gluggann. John
hafði komið inn og laet fram
fötin mín og fært mér heitt vatn.
* j —o—
Ég rakaði mig og klæddist og
fór svo niður til morgunverðar.
Þegar ég hafði sr.ætt, b’ístraði
ég í hundana og fór út í garð-
inn. Þar tvndi ég öll útsprungnu
kamelíublómin, sem ég kom auga
á, í körfuna, þá sömu sem ég
hafði geymt skartgripina í. Svo
bar ég hana inn og beint upp
til hennar.
Hún sat uppi í rúminu og var
að borða morpunverðinn. Aður
en henni hafði unnizt tími tll
að mótmæla, hvolfdi ég b’óm-
unum úr körfunni yfir hana.
„Góðan daginn aftur,“ sagði
ég. „Ég leyfi mér að minna big
á að það er ennþá afmælisd.ag-
ur'inn minn.“
,.Þ»ð er siður ?ð berja að dyr-
um áður en maður gengur inn,
hvort sem það er afmælisdagur
eða ekki,“ sagði hún. „Farðu út.“
Það var erfitt að setja upp
vandlætingarsvip þegar hún sat
þarna með bárið fuUt af kame-
líublómum. Kamelíublóm lágu
líka á öxlunum á henni og eitt
í tebollanum, en mér tókst að
bæla hláturinn og gekk út að
glugganum. „Fyrirgefðu," sagði
ég. „En eftir að ég hef vanizt að
koma inn um glugga, skipta dyr
« H tí tft!! fl f ffl t| f H. | p í
mig ekki máli. Satt að segja
held ég að ég hafi gleymt öllurh
mannasiðum."
„Þú ættir að koma þér út áður
en Seecombe kemur til að taka
bakkann,“ sagði hún. „Ég .held,
að honum brigði við ef hann sæi
þig hér, jafnvel þótt það sé af-
mælisdagurinn þinn.“
Rödd hennar var kuldaleg og
mér hvarf allur gázki. Það varj
sennilega rétt sem hún sagði. Ég
átti ekki að ryðjast þannig inn
til hennar á meðan hún var rð
borða morgunverð, jafnvel þótt
hún ætti eftir að verða konan J
mín. Seecombe vissi heldur ekk-
ert um það enn.
„És skal fara,“ sagði ég. „Fyr-
irgefðu. Mig langar bara til að
seeía þér að ég elska þig.“
Ég sneri mér til dyranna og
fór út. Ég man að ég tók um
leið eftir því að hún hafði ekki
perlufestina um háisinn. .. . Hún
hlaut að hafa tekið hana af sér
þegar ég fór frá henni snemma
um morguninn. Og skartgrjpirnir
lá°u ekki á gólfiou. AHt hafði
verið tínt upp. En á bakkanum
fyrir framan hana já skialið, sem
ég hafði skrifað undir daginn
áður.
Seecombe beið mín niðri með
pakka sem hann rétti mér. —
„Herra Philip,“ sagði hann. „Það
er merkisdagur í dag. Ég leyfi
mér að óska yður innilega til
haming.iu.“
„Ég þakka, Seecombe."
„Þetta á að vera smá-giöf. F<-
vona að þér gerið mér þá ánægju
að taka við henni.“
Ég tók bréfið utan af pakk-
anum, og i liós kom mynd af
Seecombe sjálfum.
„Þetta er mjög góð mynd,“
sagði ég alvarlegur í bragði.
„Svo góð, að ég verð að -velja
henni samboðin stað hérna í
anddyrinu. En nú vantar mig
hamar og nagla.“
Hann dró í bjöllustrenginn
með hátíðasvip. John kom og
sótti fyrir okkur hamar og nagla
Svo hengdum við myndina á
vegginn við borðstofudyrnar.
„Finnst yður myndin vera lík
mér?“ spurði Seecombe, „Eða.;
hefur hann gert mig hörkulegri
á svipinn en ég er. Ég er ekki j
fyllilega .ánægður með hana.“ I
„Það er ómögulegt að ná
svipnum alveg á roálverki, See-
combe," sagði ég. „En þéssi mvnd
er eins góð og hún getur orðið.
Sjálfum þykir mér hún ágæt.“ ,
„Það er aðalatriðið."
Mig langaði til að segja hon-
um að við Rachel hefðum ákveðr
ið að giftast. Mér fannst ég varla
geta rúmað alla þessa hamingju
einn, en ég sagði þó ekkert. —
Þetta var of hátíð'egt og við-
kvæmt til þess að hæst væn nð
segja honum þsð undirbúnings-
laust. Ef til vill var líka bp-‘
að við segðum honum það bæði.
Ep fór inn á skrifsthfuna o"
þóttist vinna, en ég sat bara við
borðið og starði í gaupnir mé
Ég sá hana fvrir mér, þar sem
hún sat unpi í rúminu með
morgunmatinn á bakkanum og
krmelíublómin allt í kringum
hana.
Klukkan sló tíu og ée heyrði
umferð í húsavarðinum fvrir ut-
an skrifstofugluggana. Ég tók
fram reikninga, sem voru óaf-
greiddir, blaðaði í gegnum þá
og lagði þá svo aftur til hliðar.
Svo settist ég ’úð bréfaskriftir,
en gafst upp. Ég gat ekki ein-
u & „
: Nýkomið:
| Fræsijárn 1/2” — 1 1/2“
■ Kíljárn margar teg.
• Tappajárn
; IZ-járn 8—10 :mm
• Skájárn 35—40mm
■ Nótjárn 4—10 mm
; Kúttera-hausar
■
: Kútteraboltar
• Hjólsagarblöð 6”—30”
■ Smergilskífur 4”—14”
: Hefiljárn 30—-60 cm.
Heiðarlegi Jón
Eftir GRIMMSBRÆÐUR
11.
Þá fór steinninn að tala og sagði: „Etþú vilt fórna því,
sém þér er kærast' hér í heimi, mundi ég fá líf aftur.“ „Ekk-
ert er það til, sem ég vildi ekki tórna þín vegna,“ sagði
kóngurinn.
I „Ef þú vilt með eigin hendi særa syni þína banvænum
sárum og dieifa heitu blóði þeirra yfir mig,“ sagði stein-
gervingurinn, „þá mun ég fá lííið aftur.“
| Kóngurinn varð vissulega mjög óttasleginn þegar Jón
haíði þetta mælt, en hann minntist þó þess, að Jón haíði
iátið lífið til þess að frelsa hann sjálfan.
i Hann tók nú sverðið sitt og særði drengina stórum sárum.
Og um leið og hann fór að bera blóðið á steininn, lifnaði
Jón við.
„Ég skal launa þér trúfestu .þína,“ sagði Jón Þessu næst
snerti hann lítillega á drengjunum, og urn leið gréru sár
þeirra, og þeir tóku að leika sér að nýju, eins og ekkert
hefði komið fyrir.
I Kóngurinn varð nú frá sér numinn af gleði. Og þegar
hann sá drottninguna koma álengdar, faldi hann heiðarlega
Jón og drengina í stórum skáp.
I „Hefirðu verið að biðjast fyrir í kirkjunni?“ spurði hann
drottninguna.
i „Já“, svaraði hún. „En ég hefi alltaf verið að hugsa um
hann Jón okkar og hversu illa fór fyrir honum.“
j „Elskan mín,“ sagði þá kóngurinn-. „Það er okkur í sjálfs
vald sett hvort hann liínar aítur við, en til þess að svo
megi verða, verðum við að fórna báðum drengjunum
okkai.“
l Drottningin varð mjög döpur og fylltist djúpri hryggð,
en sagði þó: „Að vísu á hann það skilið af okkur fyrir trú-
iesti og heiðarleik sinn.“
i Kóngurinn varð yíir sig gíiíiux við þessi orð drottningar
— að hún skyldi hugsa alveg eins og hann.
Því næst sótti hann heiðarlega Jón og drengina og sagði
síðan drottningunni hvað gerzt hefði.
Það varð nú mikil gleði yfir þessum atburði. Og þau
liíðu öll haming.iusömu lífi til dauðadags.
SÖGULOK
Tff Hí M H If'I fí ii í tít%
H j ólsagaróxlar
Spennihringir m/ legum
Gratpinolar i
Runn-kutterar
Grattappar
Fræsipinólar
Slingsagarblöð
Vélborar 6—20 mm
Bandsagarblöð 1/4”—2
Smergilafréttarar
:
‘í Li-LjjJiíÍ
LUÐVIG STORR & CO-
Laugavegi 15 — Sími 3333.
Hótel Garður
býðúr yður vistleg herbergi.
kynnhog ágætar veitingar.
Hringið í síma 5918.
HÓTEL GARÐUR
Skemznlileg salar-
Piltur 16 — 16 ára,
óskast til verzlunarstarfa. Laun samkv. launa-
samningi Verzlunarmannafél. Reykjavíkur.
Umsóknir ásamt meðmælum sendist blaðinu merkt-
ar: „Áreiðanlegur” —426.
; HOFUM FYRIRLIGGJANDI
rfl|olbar
í efiirtöldum stæiðum:
60« x 16
650 x 16
670 x 15
760 x 15
Stefnir h.f.
LAUGAVEG 170. :
■
■
■
■
. .........
Síldarstúlkur \
m
m
Nokkrar vanar síldarstúlkur vantar við síldar- S
m
söltun um borð í togara. < ■
Upplýsingar gefur
■
Ingibjartur Jónsson í síma 6965. S
Sníð, jþræði, máta
kvenkjóla
ANNA SÆBJÖRNSDÓTTIR
tizkuteiknari. Simí 6264.
•■■■■■■■■■•■■•■■■■■«■••■■■■■■■«■■■■•■■»■»■■■•■•■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■