Morgunblaðið - 19.07.1952, Qupperneq 4
f, 4
MORGI'IVBLAÐIÐ
Laugardagur 19. júlí 1952
203. dajuir f,rs!ns.
& : Árdegisflæði kl. 04.40.
k Síðdegisflæði kl. 17.00.
' Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
IVæturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni, sími 7911.
bók
Á MOIHJUN:
Dónikirkjan. Messað kl. 11 f.h.
sr. Jón Auðuns.
ílallgrímskirkja. Messað kl. 11
f.h. Sr. Sigurjón Þ. Árnason.
Nesprestakall. Messa í kapellu
Ilúskólans kl. 11 árd. — Séra Jón
Thorarensen.
Hafnarfjarðarkirkja. Messað kl.
10 f.h. Séra Garðar Þorsteinsson.
Bessastaðír. Messað kl. 2 e.h.
Séra Garðar Þorsteinsson.
Reynivallaprestakall. Messa að
Reynivöllum kl. 2 e.h. — Safnað-
arfundur. -— Sóknarprestur.
1 dag verða gefin saman í hjóna
hand Guðlaug Ottósdóttir, Tún-
götu 36A, og Guðjón Eyjólfsson,
Hverfisgötu 57A. Heimili þeirra
verður á Grettisgötu 86.
í dag verða gefin saman í hjóna
band Gerða Mektens og Gissur
Karl Guðmundsson, Bræðraborgai
stíg 5.
Nýlega voru gefin saman í
!hjónaband í Laugarneskirkju af
sr. Garðari Svavarssyni ungfrú
Hólmfríður Bergey Gestsdóttir og
'Guðjón Finnbdgi Einarsson, verka
maður. Heimili þeirra verður í
Herskála'kamp 24.
fcnaefal
S.l. fimmtudag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Steinunn Sig-
urðardóttir, kennari og Jón
Hjaltason, lögfræðingur, Vest-
mannaeyjum.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Sigríður Ágústsdóttir
Sundlaugaveg 26 og Andrés Jó-
hannesson, Sturlu-Reykjum í
Borgarfirði.
S.l. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Steinunn Þor-
steinsdóttir, Grenimel 35 og Óli J.
Ólason, Laugarásvegi 24, Rvík.
SiIfurbrúCkaup
Á morgun, sunnudag, eiga 25
ára hjúskaparafmæli frú Júlía
Mognúsdóttir og Sigurjón Pálsson
Scgabletti 12.
ST ipafréttir
Eimskip
Brúarfoss fór frá Grimsby 17.
júli til London, Rotterdam, Belfast
og Reykjavíkur. Dettifoss fer frá
Ncw York 19. júlí til Reykjavíkur.
Gcðafoss kom til Hamborgar 18,
jú’J, fer þaðan til Hull, Leith og
Rcykjavíkur. Gullfoss fer frá
Reykjavík í dag kl. 16,00 til Akur
eyrar, Kristianssand og Kaup
mcinnahafnar. Lagarfoss fer frá
Reykjavík í dag til Keflavíkur.
Fjórfallt, svart
til sölu. Uppl. Brávallagötu
46 uppi, sími 7604.
j Lækjartorg Sími
i Reykjavík 1ÁRN1 8 EJÖRKSSDN || .3545
ÚRA 06 SK«RT&RlPBV€RSLUNÍ
Hefur alltaf á boðstólum allskonar íslenzka
handunna muni úr gulli og silfri.
Allt silfur til þjóðbúningsins, margar gerðir.
Alls konar verðlaunagripi.
Minjagripi.
Trúlofunarhringi í ýmsum gerðum.
Leturgröftur.
Teikningar, ef óskað er. Sendum gegn póstkröfu.
Söluhafar sokkaframleiðslu í Evrópu óska eftir —
einkum vegna mikillar framleiðslu í Þýzkalandi á
Vönduðum, édýffum
100% PERLOIM
KVENSOKKIJM
*
— sambandi við þekkt innflutningsfyrirtæki eða einstak-
ling, sem hefir góð sambönd við sérverzlanir, heildsala,
smásala o.fl. svo og góð bankasambönd og vill taka að
sér aðalumboð fyrir ísland. Vinsaml. sendið svarbréf
í Box 8091, William Wilkens Werburg, Frankfurt/M.,
Alte Gasse 16, Germany.
Kappreiðor
Hestamannafélagsins Smára
verða að Sandlæk á morgun kl. 2 síðdegis.
-JJeótamannajélacpJ JJmán
iteykjafoss fór frá Hull 15. júlí,
væntanlegur til Reykjavíkur í
j Jag. Selfoss fer væntanlega frá
Antwerpen í dag til Reykjavíkur.
I TröIIafoss fór frá Reykjavík kl.
14,00 í gær til Húsavíkur, Akur-
eyrar og Siglufjarðar.
i
Rckisskip
Hekla fer frá Glasgow síðdegis
í dag áleiðis til Reykjavíkur. Esja
fer frá Reykjavík kl. 13 í dag vest
ur um land í hringferð. Herðu-
breið fer frá Reykjavík kl. 12 í
dag austur um land í hringferð.
Skjaldbreið er í Reykjavík, fer
þaí-an á þriðjudaginn til Húnaflóa
hafna. Þyrill er væntanlegur til
Reykjavíkur í dag. Skaftfeilingur
fðr frá Reykjavík síðdegis í gær
til Vestmannaeyja.
SkipadeiJd SfS
Hvassafcll losar tunnur á Siglu
firði. Arnarfell losar kol á Húsa-
vík. Jökulfell er í Providence.
Flugfélag íslands h.f.
Innanlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Vest-
’mannaeyja, Blönduóss, Sauðár-
króks, Isafjarðar, Siglufjaiðar og
Egilsstaða. Frá Vestmannaeyjum
verður flogið til Skógarsands. Á
norgun. eru ráðgerðar flugferðir
til Akureyrar og Vestmannaeyja.
Millilandaflug: Gullfaxi fór til
Kaupmannahafnar í morgun og er
væntanlegur aftur til Reykjavík-
ur kl. 17.45 á morgun.
Blöð og tímarit:
Sveitarstjórnarmál 12. árg. 1,—-
2. hefti. Efni m. a. Minningarorð
um Guðmund Ásbjörnsson. Grein
um almannatryggingar árin 1947
—1950. Grein um framkvæmdar-
stjóm sveitarfélaga eftir Eirík
Jónssón frá Vorsabæ. Alþíngi og
örýrkjahælið. Fjárhagsáætlanir
kaupstaðanna o. m. fl.
•
Mólftrinn, 1. tbl. 2. árgangs,
júníheftið 1952 er nýkomið út.
Efni er m. a. grein um þmg nor-
□-----—-------------------□
Spyrjið ávallt fyrst um
innlenda framleiðslu og
kaupið hana að öðru
jöfnu. —
-□
fimm miiiðtnð kroisgáta
b
SKYRINGAR
Lárétt: — 1 hæðina — 6 skel —
8 gripdeild — 10 lauflétt — 12
loganna — 14 fangamark — 15
óþekktur — 16 ílát — 18 ríkra.
LóSrétt: — 2 smákorn — 3
greinir — 4 heiti — 5 brotna —
7 logna — 9 sunda — 11 atvo. —
13 sáru — 16 hvílt — 17 fanga.
mark.
Lausn síSustu króssgátn.
Lárétt — 1 óskar — 6 kál — 8
oka — 10 lin — 12 lyktina — 14
DN — 15. n.k. — 16 agn — 18
notaðra.
LóSrétt: — 2 skak — 3 KA —
4 alli — 5 foldin — 7 hnakka —
9 kyn — 11 inn 13 toga — 16
at — 17 NÐ.
rænna málarameistara í Reykja-
vík, grein um liti o. fl., grein frá
Danmörku, bréf, fréttir o fl.
Bílslysið í Kræklingahlíð
Eftirfarandi athugasemd hefir
blaðinu horizt frá Samvinnutrygg-
ingum:
í frétt, sem birtist í Mjrgun-
blaðinu hinn 17. þ.m. af bifreiðar
slysi, sem varð skammt frá Akur-
eyri, er bifreið, eign Samvmnu-
trygginga, fór út af veginum og
valt, er ranglega tilgreint að 3
farþegar hafi verið í bifreiðinni
og 2 af þeim hafi verið trygging-
arfræðingar.
Hið rétta er, að 2 farþegar voru
í bifreiðinni og meiddist annar
þeirra, Iljörtur Eiríksson iðnnemi
hjá ullarverksmiðjunni Gefjunni,
Akureyri, eitthvað, en hinn mjög
lítið eða ekkert. Hvorugur þessara
manna hafa nokkurn tíman num-
ið tryggingarfræði, og ekki svo
vitað sé, unnið við tryggingar.
Maður sá er ók bifreiðinni í
umrætt skipti vinnur hins vegar
sem skrifstofumaður hjá Sam-
vinnutryggingum.
Gengisskráning:
(Sölugengi):
1 bandarískur dollar .. kr. 16.32
1 kanadiskur dollar .. — 16.79
100 danskar krónur .. — 236.30
100 norskar krónur .. — 228.50
100 sænskar krónur .. — 315.50
100 finnsk mörk.......— 7.00
100 belg. frankar .... — 32.67
1000 franskir frankar — 46.63
100 svissn. fankar .... — 373.70
100 tékkn. Kcs..........— 32.64
100 gyllini ........... — 429.90
1000 lírur ........... — 26.8
1 £ ................... — 45.70
Söfnin:
Landsbókasafnið er opið kl. 10
—12, 1-—7 og 8—10 alla virka
daga nema laugardaga klukkan
10—12 og lesstofa safnsins opin
frá kl. 10—12 yfir sumarmánuð-
ina kl. 10—12.
ÞjóSminjasafniS er opið kl. 1—4
á sunnudögum og kl. 1—3 á þriðju
dögum og fimmtudögum.
Listasafn Einars Jónssonar verð
ur opið daglega kl. 13.30—15.30.
Listasafnið er opið á þriðjudög-
um og fimmtudögum kl. 1—3, á
sunnudögum kl. 1—4. Aðgangur
ókeypis.
VaxmyndasafniS í Þjóðminja-
safnsbyggingunni er opið á sama
tíma og Þjóðminjasafnið.
Náttúrugripasafnið er opið
sunnudaga kl. 1.30—3 og á þriðju
dögum og fimmtudögum kl. 2—3
eftir hád.
8.00—9.00 Morgunútvarp —
10.10 Veðurfregnir. 12.10 Hádegis
útvarp. 12.50—13.35 Óskalög sjúkl
inga (Ingibjörg Þorbergs). 15.30
Miðdegisútvarp. — 16.30 Veður-
fregnir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30
Tónleikar: Samsöngur (plötur).
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.30 Tónleikar: André Koste-
lanetz og hljómsveit hans leika
(plötur). 20.45 Upplestur og tón-
leikar: a) Steindór Hjörieifsson,
leikari les smásögu eftir Arnulf
Överland: „Systurnar sáhigu“. b)
Tónleikar (plötur): Forster Ric-
hardsen syngur indversk ástarlög
eftir Woodforde-Finden. c) Stein-
gerður Guðmundsdóttir leikkona
les kvæði. d) Tónleikar (plötur):
„Boðið upp í dans“ eftir Weber
(Ignaz Friedman leikur). e) Hauk
ur Óskarsson leikari les smásögu
eftir Mikhail Sjólókoff: „Þegar
Nastaja lagðist í reyfaralestur“.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög (plötur). 24.00 Dag-
skrárlok.
Erlendar útvarpsstöðvar
Noregur: — Bylgjulengdir 202,2
m„ 48.50, 31.22, 19.78.
Danmörk: — Bylgjulengdir:
1224 m, 283, 41.32, 31.51.
M. a. Kl. 16.50 Arthur Schnahel
leikur. kl. 18.10 frá Olympiuleik-
unum, kl. 20.00 skemmtiþáttur, kl.
21.30 danslög.
Svíþjóð: — Bylgjulengdir 25.47
m., 27.83 m.
M.a. kl. 17.10 síðdegishljómleik-
ar, kl. 18.30 gömul danslög, kl.
20.25 leikrit, kl. 20.45 hljómleik-
ar, Felix Mendelsson og hljóm-
sveit leika, kl. 21.30 danslög.
England: — Bylgjulengdir 25
m„ 40.31.
10 þús. Júdasardatir
STOKKHÓLMI, 17. júlí—Sænski
njósnarinn Enbom var enn fyrir
réttinum í dag. Hann svaraði þá
spurningu dómarans um það
hvað hann hefði fengið í laun
fyrir að njósna í þágu Rússa og
senda þeim sænsk leyndarmál.
Það voru 10 þús. krónur og hafði
hánn éytt þeim á skömmum
tíma.
Við húsrannsókn heima hjá
Enbom farinst skamrhbýssa, Ijós-
myndavél og útvarpsséndir. Loka
þáttur réttarhaldanna hefst hér
í borg á miðvikudaginn. Þá hitt-
ast njósnararnir í _ fyrsta sinn í
réttarsalnum en hingað til hafa
þeir verið yfirheyrðir hvor í sínu
lagi. Síðustu yfirheyrslumar
munu taka allmarga daga.
sfrlJs rnmjunkaffinn
— Þarna geturðu bar séð —
einn tveggjamanna!!
★
— Mamma, sagði miðsonurinn
af þremur. — Þá segir alltaf þið
tveir stóru drengirnir mínir gerið
þetta og þið tveir litlu drengirnir
mínir gerið hitt. Og ég verð allt
af að gera allt!
— Það var yndislegt kvöld og
Sigríður frænka hafði farið út á
tröppurnar fyrir framan húsið
til þess að bíða eftir bílnum, sem
hún hgfði pantað til þess að aka
með sig á hljómleikana.
Hún var dásamlega falleg í
hvítsíða kjólnum sínum, með
litla, hvíta skinnjakkann. Hvíta
hárið hennar var vandlega og
smekklega uppsett.
Allt í einu ók gamall bíll fram-
hjá, og hann var þétt setinn af
skólanemendum. Einn þeirra
bevgði sig út um gluggann og
kallaði: — Ég vildi óska að við
værum 40 árum eldri, frú mín!!
(Úr Reader’s Digest).
★
Maður nokkur, sem átti son
sinn í Varsjá, var hræddur um
að bréf, sem hann skrifaði hon-
um yrðu opnuð og lesin af yfir-
völdunum. Þess vegna skrifaði
hann í bréfinu að hann hefði Iagt
hár inn í bréfið, og það mundi
falla út, þegar ritskoðunin opnaði
það. Sonurinn skrifaði til baka
að allt hefði verið í lagi, hárið
hefði verið á sínum stað.
Það var allt sem faðirinn vildi
fá að vit.a. Hann hafði nefnilega
alls ekki látið neitt hár inn í
bréfið.