Morgunblaðið - 31.07.1952, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.07.1952, Blaðsíða 2
f 2 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. júlí 1952 j n .1 * WASHINGTON — Það þyk- ^ir m. a. sýna hversu mikla áherzlu Bandaríkjamenn leggja á utanríkismálín. að bæði forseta og varaforsetaeínin sem stóru flokkarnir hafa valið sér eru menn sem allir eru kunnir að reynzlu og þekkingu í þeim efn- um. ir Eisenhower.-t,. forsetaefni republikana er áð sjálfsögðu gagn kunnugur máléfnúm Evrópu sið- an hann gengdi hershöfðingja- störfum A-bandalagsins í París og frá þvi- hann stjórnaði innrás- inni á meginlandið í heimsstyrj- öldinni. En Eisenhower hefur oinnig á -fyrri árum gengt her- þjónustu í her' Bándaríkjanna á Kyrrahafi og kynnti sér þá á ýmsan hátt málefni Austur-Asíu. ★ Adlái' Stevenson forsetaefni demókrata öðlaðist staðgóða jþekkingu; á alþjóðamálum er hann vann fyrir hönd lands síns að stofnun samtáká Sameinuðu þjóðanna. Hánn 'hefur auk þess margsinnis annast'etindisrekstur stjprnar slrínar í Evrópu m. a. í Brfetlandi'óg Ítalíu. Á stríðsárun- um var hann 'ráðúnautur flota- málaráðh’érrans í Asíu- og Kyrra- hafsmálum. - • ir Nixon, varafórsetaefni re- publikana, ‘gengdi herþjónustu í flota Bandaríkjanna í Kyrrahafi á stríðsárunum' og v' aflaði sér haldgóðrar þekkingar á málefn- um Austurlanda. Hann hefur einnig veríð sendur í opinberum erindagerðum um Evrópulönd. ffe Sparkman varaforsetaefni demókrata hefur margsinnis heim ÆÓtt Evrópu og kynnt sér mál- efni hennar,-en sérgrein hans eru þó Asíumál. Hann var einn af -aðalráðunautum Bandaríkjaþings við unditbuning japönsku frið- Æirsamninganna og var fulltrúi á ráðstefnunni í San Fransiskó þar sem samningarnir. voru undirrit- aðir í sept. s..l. ir AHir hafa menn þessir marg lýst yfir, að þcjr telji heimsveldis stefnu kommúnismans hina geig- væniegiistu ógnun vid heimsfrið- inn, og jafnframt að þessari ógn- un sé unnt að bæja frá með sam- stiiltum viðbúnaði hins frjáisa heims. fimffl ski RUFARHOFN, .30. júlí. — Hing- að komu í dag fimm skip með síld til bræðslu. — Var Helgi Helgasoti með 357 mál, Kári Söl- imundarson 237, Smári, Húsavík 318 .Reynir, Akranesi 108 og Mímie, Akranesi 215 mál. — Síld- veiði hefur engih verið að því er frétzt hefur. —' E. (hurchifi Framh. af bls. 1 ondurbóta og fullktíranunar. her- .gagnaiðnaðarins í landinu. TIL BUÁÐABIRGÐ V Churchill upplýsti að innflutn- ingshömlur þser og sparpáðaíráð- stafanir, sem Bptler hafði boðað í umræðunum daginn áð,u,r væfu aðeins til bráðabirgða og mundu xnál þessi verða tekin til ræki- legri meðferðar á fundum forsæt isráðherra Samveldisins í nóv-i cmbermánuði n.k. Kvaðst Churc- hili mundu samkvæmt venju verða í forsæti á ráðstefnunm en Eden annaðist sem varaforsætis- ráðherra allan undirbúning. ATTLEE — BEVAN -Attlee, fyrrum forsætisráð- li^rra, tók til máls að lokinni ráeðu Churchills og gagnrýndi úr ráeði stjórnarinnar, sem hann s^gði að væru með öllu ófull- nægjandi. Þvínæst tók Bevan til njáls og þuldi venjulega þulu sína gegn Bandaríkjunum og stefnu þeirra í utanríkismálum. Frá Ólfmpíuleikunum — effir Afla Sleinarsson, fréffaritara Mergunblaisins Bandaríkjamenn fengu Ólympíumeislan á sarna HELSINGFORS, 21. júlí. — Dag- inn í dag áttu Bandaríkjamenn. Fjórum sinnum stigu þeir á efsta þrep verðlaunapallsins og þjóð- söngur þeirra var leikinn. Fyrst- ur til að sigra í dag varð O’Brien í kúiuvarpi og á pallinum stóðu einnig landar hans tveir, Hopper og Fuchs, sín hvoru megin. Næst- ur á pailinn var Moore, 400 m grindahlauparinn, með Rússa og Nýsjálending við hlið sér. Rem- ingio tók þá við gullinu fyrir sig- ur í 100 m hlaupi og loks Biffle fyrir langstökk. Fimmta og síðasta verðlauna- afhendingin V'ar fyrir 50 km göngu, en þar bar sigur úr být- um ítalinn Giuseppe Dozdoni. En afrek hans er nýtt Ólympíumet og heimsmet. IJNOANKEPPNI f STANGARSTÖKKl íþróttakeppni dagsins hófst mcð undankeppni í stangarstökki, kúluvarpi og langstökki. Meðrl garpanna á vellinum v'ar Torfi í bláum buxum og hvítri peysu með ÍSLAND yfir brjóstið. Hann kunni sýnilega við sig á þessum stað. Rabbaði við keppinauta sína og mýkti sig upp með ýms- um æfingum þess á milli. Öðru hvoru gaut hann auga til lang- stökkvaranna, sem voru að und- ankeppni sinni á sama stað. Ef til vill hefur Evrópumeistarann langað til að vera með. Byrjunarhæðin var 3,60 og allir flugu yfir nema Egyptinn Sherbiny, sem felldi tvisvar, Á næstu hæð, 3,80 m, datt hann úr keppninni ásamt Buch da Silva, Bfazilíu. 3,90 komust allir yfir sem eftir voru, en þó mismun- andi auðveldlega og á fjórum metrum fór fyrst nokkuð að fækka í keppninni (4 m voru lágmarkið í aðalkeppnina) þó fleiri færu yfir en ýmsir bjugg- ust við. 19 keppa því í úrslita- kepninni á morgun. Torfi var sýnilega í essinu sínu, og er ekki óvarlegt að ætla að hann sé nú í þann veginn að komast í sitt gamla form. Hverja hæðina af ann- arri fór hann yfír í fyrsta stökki, nema 4 m í öðru, og með sínum kyngikrafti og f jað nrmagni vakti hann athygli allra er horfðu á. Svissneskur blaðamaður sagði: Þessi mað- ur stekkur svo gaman er að, hinir læðast yfir. BANDARÍKJAMENN BÁRF AE í undankeppni langstökksins náðu aðeins 7 menn tilskildum árangri til þátttöku i aðalkeppni siðar um daginn. Voru það Banaa ríkjamennirnir allir, Hollending- urinn Visser, Brazilíumaðurinn Facanha, Ungverjinn Földesi og Price frá S.-Afríku. Var því bætt við sex næstu mönnum. Stökk- lengdin í undankeppninni var frá 5,31 upþ í 7,40 m. Aðalkeppnin hófst klukkan 3 og var ekki lokið fyrr en að ganga sjö. Á þeim tíma urðu lang stökkvararnir, eins og hástökkv- ararnir í gær, fyrir ótal truflun- um, sem áreiðanlega hafa átt sinn þátt í þeim lélega árangri sem náðist. Ameríkumennirnir báru af. Þeir hafa langa og góða hraðatrennu og fljúga sjaldnast styttra en 7,20. Brazilíumaðurinn Facanha vakti athygli fyrir ná- kvæmni á plankann og fallegan stíl. En yfirleitt hreif langstökkið áhorfendur ekki, hvort sem það er vegna þess, hversu langan tíma það tók eða fyrir lélegan! árangur. SÁ BEZTI MISSTI AF STRÆTISVAGNINUM Langstökkið var sorgarleik- Úrslitin í 100 m. hlaupinu. — Á fyrstu braut er Soukharev, sera varð 5., á anrari braut er McKenley, sem varð annar, á þriðju braut er sigurvegarinn Remigino, á 4. braut Smith, sem varð 4., á 5. braut Bailey, sem varð 3. og á 6. braut Treloar, sem var 6. ur að einu leyti. Maðurinn, sem sýnt hafði mestu tilþrif- in og lengsiu stökkin komst ekki á pallinn, því í öll skiptin þrjú markaði hann með tánni fram fyrir plankann, stund- um þó svo lítið a.ð kalla þurfti þrjá tlómara til að dæma. — Maður þessi var Ameríkumað urinn Brown, konungur lang- stökkvarai na. Um morguninn tryggði hann sár sæti í aðal- kcppninni með einus tökki. Uni tlaginn átti hann 3 stökk öíl 7,60—7,80 — en ógild. Eftir þriðja stökkið var hann bug- aður, lá með andlitið byrgt í sandgryfjunni nokkra stund, en reis síðan á fætur og ósk- aði löndum sínum lil ham- ingju mcð tvö fyrstu sætin. Alheimsmót geyma því miður oft sögu eða sögur um svipuð tilfelli. Ól.m.: Jeremo C. Biffle, USA, 7,57 m, 2. Gourdine, USA, 7,53 m, 3. Földesi, Ungverjal., 7,30 m, 4. Facanha de Silva, Brazilíu, 7,23 m, 5. Valtonen, Finnl., 7,16 m og 6. Griforjev, Rússl., 7,14 m. ÞREFALDUR SIGUR Það voru engin óvænt úrslit að tríó Ameríkumanna skyldi skipa fyrstu 3 sætin og að tveir beirra skyldu vera yfir gamla Ólym- píumetinu í kúluvarpi. Þó háðu O’Brien og Hopper sentimetra- stríð þó þeim fyrrnefnda tækist að ná sigurkastinu, 17,41 m, í fyrstu umferð, en Hopper ekki fyrr en í síðustu. Aðdáunarverð var hins vegar harka heimsmet- haíans Fuchs. Hann var eins og áður hefur verið getið með slit- ínn vöðva í hægri hendi. Auk þess hafði hann meitt sig á fæti. Samt sem áður haltraði hann í hringinn og kastaði með veikri hendi og tryggði að aðeins Ameríkumenn voru á pallinum við sigurvegarahyllinguna og verðlaunaafhendinguna. Sú saga mun einnig minnisstæð eins og sorgarleikurinn i langstökkinu. Friðrik Guðmundsson, sem skráður var til kúluvarpskeppn- innar tók ekki þátt í henni. — Ástæðan er sú, að undankeppni í kringlukasti er í fyrramálið, en hans aðalgrein er kringlukast. Úrslit í kúluvarpi: Ól.m.: O.Brien, USA, 17,41 m, 2. Hopper, USA, 17,39 m, 3. Fuchs, USA, 17,06 m, 4. Grigalka, Rúss. landi, 16.78 m, 5. Nilson, Svíþj., 16,55 m fsænskt met), 6. Savid- ge, Bretl., 16,19 m, 7. Federev, Rússl., 16,06 m, 8. Stavem, Nor- egi, 16,02 m (norskt met), 9. Skobla, Tékkóslóvakíu, 15,92 m, 10. Krzyzanöwski, Póll., 15,08 m. Alls mættu 20 menn til kúlu- varpskeppninnar. 13 þeirra náðu 14,60 og komust í aðalkeppnina. Styzta kast keppninnar var 13,00 EIN kunnasti maður í bændastétt landsins, Jón H. Þorbergsson. bóndi á Laxamýri, er sjötugur í dag. Ungur að árum fór Jón til Noregs til að kynna sér sauðfjár- rækt og dvaldi hann þá á hinu kunna sauðfjárræktarbúi Hodria og stundaði hann nárn í búnaðar- deild í lýðháskóla. Síðan fór han til Danmerkur og til Hjaltlands til að kynnast búnaðarháttum þar. í þeirri for kynnti hann sér mjög; rækilega sauðfjárrækt Skota. I Starfsmaður Búnaðarfélags ís- lands var hann í 10 ár og íerð- aðist þá mjög víða um landiS ' og lagði mikla áherzlu á að kenna bændum að velja hrúta til und- anledis, svo og að bæta meðferíS íjársins m. a. með því að koma á reglubundnum böðunum sauðt fjár. Um 11 ára skeið var hann sjálfs eignarbóndi að Bessastöðum á Álftanesi. Tók hann þar mikinn þátt í búnaðarmálum í Kjalarnes- þingi. — Að þessum tíma liðnum leitaði hann aítur heim í átthag- ana í Þingeyjarsýslu og kaupie þá hið kunna höfuðból Laxamýri og hefur hann búið þar rausnar- búi æ síðan. “ Hann var strax framamaöur I sveitinni og stofnaði þegar sama árið Búnaðarsamband S.-Þing- eyjarsýslu. Þá hefur Jón á Laxa- mýri ritað fjölda greina bæði í blöð og tímarit um búnaðarmál og gefið bækur út um þau cfm. Þessum ágæta bónda, sem um tuga ára skeið hefur unnið aði velferðarmálum íslenzks land- búnaðar, mun seint verða full- þakkað fyrir sín merku og mikil- vægu störf. i MJÖG JAFNT 100 M IILAUP Síðustu tvær umferðir 100 m hlaupsins fóru fram í dag. — I undanúrslitum náðust hrein úr- slit og 10,7 hrukku ekki til í hvorugum riðlinum. Bandaríkja- mennirnir Remigio og Smith, Bailey, McKenley, Treloar og Soukharev komust í úrslitin. En hér varð einnig sorgarleikur. — Einhver þessara manna hefði án nokkurs efa orðið að víkja fyrir Bandaríkjamanninum Bragg, sem af mörgum vár talinn viss með sigur. Hann gekk til leiks með reifað læri og varð síðastur í fyrri riðri undanúrslita á 10,9. ■ Úrslitariðillinn var gífurlega harður. Eini riðill 100 m hlaups- ins, sem ekki var þjófstart í. — Þessir sex hlauparar hlupu hlið við hlið efl i markinu var lág- vaxni Bandaríkjamaðurinn snarpi, Remigino, tommu á und- an McKenley og myndavélin varð að leysa mannsaugað af hólmi við það að ákveða úrslitin. Og hvílík úrslit. Fjórir fyrstu menn á 10,4 sek. og tveir síðustu á 10,5. Aldrei fyrr hefur úrslitariðill verið svo harður á Ólympíuleikum. — Hvítur maður hefur heldur ekki unnið síðan 1928 og langt er síðan hvítir menn voru í meirihluta í úrslitum 100 m hlaupsins. Ól.m.: Remigino, USA, 10,4 sek., 2. McKenley, Jamaica, 10,4 sek., 3. Bailey. Bretl., 10,4 sek., 4. Smith. USA, 10,4 sek., 5. Souk- harev, Rússl., 10,5 sek. og 6. Tre- loar, Ástralíu, 10,5 sek. ÖRUGGUR SIGURVEGARI En af sigurvegurunum frá i dag bar Bandaríkjamanninn Moore hæst. Hann var fyrir þessa Ólympíuleika talinn einn öruggasti sigurvegarinn. Aldrei komst hann í beina hættu, og bætti tíma sinn alltaf í seinni tilraun báða dagana. Og í úr- slitunum í dag jafnaði hann sitt sólarhringsgamla Ólympíumet þrátt fyrir regnskúr og að hann fengi sjöttu braut, sem fram til Sýningar íslenzku glímumannanna hafa fekizt vel HELSINGFORS, 23. júlí—GJímU flokkur Ármanns hefur nú sýnt þrisvar íslenzka glímu hér í Helsingfors. Sýningar þessar erut liður í Ólyrnpíuleikjunum ers Finnar fóru fram á það við ýms- ar þjóðir að sýna þjóðlegar íþrótfc ir. . Glímusýningarnar hafa far- ið frarn í Sibeliusargarðinurri eins og aðrar slíkar sýningar- greinar. Þær hafa tekizt mjög vel, vakið hrifningu mikils fjölda gesta. Sérstaklega hefup glíma þeirra Rúnars Guð- mundssonar og GuðmundaÞ Ágústssonar vakið mikla ánægju. < Glímusýningarnar eru með þvl sniði að fyrst er sýningarglíma ' en síðan bændaglíma og hafæ þeir Rúnar og Guðmundur verifS ’ bændur. Þorgeir Guðmundssoh íþróttakennari er þjálfari, far- arstjóri og stjórnandi glímu- mannanná, en Yrjö Nora, íþrótta- kennari, sem um skeið var þjálf- I ari Ármanns í Reykjavík, kynnip atriðin og skýrir glímuna, gang , hennar og markmið. —Atli. u ---------------- 3 Byrjad á jarðgöngunf undir Monf Blanc Framhald á bls. 3, 1 stundum, PARÍSARBORG — Framkvæmd- ir eru nú hafnar við jarðgöngirl miklu undir Mt. Blanc, og standai að þeim þrjú ríki: Ítalía, Frakk- land og Sviss. í göngunum, serni verða 7 mílur að lengd og 2S feta víð, verður þjóðvegur, ev ! tengir borgirnar La Dalmaz 2 Frakklandi og Entreves í Ítalíu. I Tímasparnaður á ferðum milli j Ítalíu og Vestur-Evrópu nýju leiðina skiptir mörgum klukku-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.