Morgunblaðið - 15.08.1952, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 15.08.1952, Qupperneq 6
MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 15. ágúst 1952 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. 4uglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Kosningar til Alþýðu- sambandsþin gs INNAN skamms hefjast kosning- ar fulltrúa á Aiþýðusambands- þing. Ef að líkum lætur, verður hörð barátta innán flestra stétt- arfélaganna um fulitrúavalið, því að flokkspólitík hefur verið inn- leidd í þessi samtök sem svo mörg önnur, sem ópólitísk eiga að vera. Þess vegna komast með- iimir þessara samtaka naumast hjá því að gera upp við sig, hverra störf og stefna sé liklegust til að leiða til hagsældar fyrir hin einstöku félög, Alþýðusam- bandið og þjóðina alla. Sósíalisku flokkarnir hafa lengst af hvor um sig talið, að verkalýðsfélögin ættu að vera sín einkaeign, sem þeir stjórnuðu og notuðu til framgangs flokkum sínum. Þeir hafa nefnt stjórn- málabaráttu flokka sinna verk- lýðsbaráttu eða stéttabaráttu og talið fylgjendum sínum trú um, að barátta fyrir bættum kjörum ætti að vera pólitísk og sam- tvinnuð þjóðnýtingarbrölti. Lengi tókst Alþýðuflokknum að halda Alþýðusambandinu inn- an flokksviðja, og engir voru þar kjörgengir nema Alþýðuflokks- menn, en þó hlaut svo að fara, að hagsmunasamtök almennings yrðu leyst úr þeim tengslum og störfuðu sem sjálfstæður aðili. — Kommúnistum tókst síðar að ná vfirhöndinni og beittu samtökun- um þá hlífðarlaust í flokksþágu, en hagsmuni meðlimanna létu þeir sig engu skipta. Við sticrn komr-únista varð að sjálfsögðu ekki unað, heldur farið hlna eir u eðlilegu leið, að lýðræðisöflin öll tækju forystuna með samvinnu við kosningar íil þingsins og sam- stjórn Alþýðusambandsins að þeim afstöðnum. Skiptir þar ekki öllu máli, þó að hlutfallið milli lcjörinna Al- þýðuflokksmanna og Framsókn- armanna annars vegar og Sjálf- stæðismanna hins vegar sé í engu samræmi við fylgi þsð, sem flokkarnir annars njóta meðal verkalýðsins. Hitt varðar mestu, að áhrif Sjálfstæðismanna eru nægilega rík til þess, að sam- tökunum verði ekki beitt í þágu ákveðinna stjórnmálaflokka, heldur aðeins til baráttu fyrir bættum kjörum meðlimanna. ★ Á stjórnarárum sósíalisku flokkanna í Alþýðusambandinu hafa tvær megin rökvillur ráðið ríkjum. Annars vegar er sú, sem áður var getið, að kjarabaráttan ætti að vera pólitísk og samtök verkalýðsins ætti að nota til fram dráttar pólitískum flokkum, enda þótt óhugsandi væri, að meðlimirnir gætu þá staðið sam- einaðir um hagsmunamál sín. Var nánast álitið, að á annan hátt gæti ekki verið um neina hags- munabaráttu að ræða. Skoðun þessi á nú æ færri formælendur og verður ekki á ný ríkjandi í samtökunum, enda er það mála sanhast, að launþega- ssrntök eru ekki síður voldug meðal þeirra þjóða, þar sem slík- ur hugsunarháttur hefur aldrei ríkt. Hitt er svo oíur augljóst, að þeir verkamenn, sem t. d. fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum, en auðvitað æskja sér og t félögum sínum sem beztra kjara, mundu ekki liðtækir í bar- áttunni fyrir afnámi þess þjóð- skipulags, sem þsir réítilega eru sannfærðir um að færi þeim betri kjör en sósíalisk skipan mála. Grundvallarskilyrði hárra tekna eSa góðra lífskjara er auðvitað framleiðsla mikilla auðæfa. Þetta gera þeir laun- þegar, sem Sjálfstæðisflokkn- um fylgja að málum, sér fyllilega Ijóst, og þeir eru sannfærðir um, að framleiðsl- an og þjóðartekjurnar verði meiri, ef séreignarskipulagið fær að dafna. Lífskjörin verði þar af Ieiðandi almcnnt betri. Samtökum þeirra verði þá beitt til þess eins að tryggja, að hlutdeild þeirra í afrakstrin um verði réttlát. Um þá kröfu geti meðlimirnir allir fylkt sér án tillits til annarra skoðana. Hin villan er sú, að hægt sé í það óendanlega að bæta lífskjör almennings með almennum launa hækkunum til handa öllum laun- þegum. Sannleikurinn er hins vegar sá, að kjörin verða engu betri eftir en áður. Þetta er ofur einfalt mál. Meginþorri lands- manna eru launþegar í einni mynd eða annarri. Launin, sem þeir fá fyrir vinnu sina, eru ávís- anir á gæði þjóðfélagsins. Þegar laun þeirra allra hækka í sama hlutfalli eru þau ennþá ávísanir á þessi sömu gæði í sama mæli og áður. Þessu er þannig varið, þegar meginatvinnuvegirnir bera sig naumast, því að launahækk- unin verður þá ekki tekin úr vös- um atvinnurekenda, • Mergurinn máisins er sá, að öll kjarabarátta er í rauninni bar- átta milli stéttanna um skiptingu afrakstursins. Ein stétt eða ein- staklingur geta bætt kjör sín með hækkuðum launum, ef laun annarra hækka ekki að sama skapi. Ef við hugsum okkur, að einstaklingur hafi 2 þúsund krón- ur í laun fyrir að vinna ákveoið verk, en síðan séu launin hækkuð í 4 þúsund, en hann vinni áfram sama verkið, þá er augljóst, að vinna hans skilar sömu verðmæt- um í þjóðarbúið og áður, en hann fær tvöfaldaðar ávísanir á gæði þess. Þau gæði hlýtur hann að taka frá einhverjum öðrum. Ef svo heil stétt fengi kjarabæt- ur á sama hátt, án þess að ann- arra laun hækkuðu, þá batna kjör hennar að sjálfsögðu, en á ann- arra kostnað, og þá venjulega að litlu eða engu leyti á kostnað at- vinnurekenda heldur alls al-. mennings. Þegar við því segjum t.d., að sjómenn eigi að fá hækkuð laun, þá segjum við um leið að þeir eigi að fá meiri hlutdeild í þjóð- artekjunum á kostnað allra ann- arra, þ.á.m. lægst launuðustu verkamanna. Þennan beiska sann leika verða leiðtogar launþega ætið að hafa í huga og haga að- gerðum sínum í samræmi við hann. Þeir verða að finna hið rétt- asta hlatfall milli tekna hinna einstöku síétta, og þá ber þeim fyrst og fremst að taka tillit til þeirra, sem við verst kjör búa, en síilla kröfum hinna betur settu I hóf. | Þess vegna er tilgangslaust að kjósa til trúnaðarstarfa fyrir launþega menn, sem staurblind- aðir eru af pólitísku ofstæki og neita að virða nokkur rök eða staðreyndir, heldur keppa að því einu að grafa undan máttarstólp- um þjóðfélagsins, m.a. með auk- inni verðbólgu. IrefSaiHl ©g mecfiiilasidið s reynum u fúimunum ui einirgu Evró Á SEINASTA fundi ráðgjafar- nefndar Evrópuráðsins í Strass- borg sannfærðist ég um, að menn ættu á hættu að verða sakaðir um Bretahatur, ef þeir sýndu brezku tillögunum ekki tilhlýði- legan stuðning og áhuga. TÁLVONIR SPAAKS Ég hefi þó síður en svo andúð á Bretum. Ég hefi dvalizt í Bret- landi fjögur ógleymanleg ár. — 1940—1944 hlaut ég í þessu landi dásamlegustu sönnun, sem hægt er að hugsa sér um föðurlandsást og bróðurhug. Eífir Paul-Henri k-aak herjanna. Það er fyrst að þakka þessum stjórnmálamönnum, að Evrópuráðið kom saman. En upp úr því hcfust mistök- in. Margir Evrópumenn fylgdu þeirri hugmynd um sameining álfunnar, að Bretar ættu ekki að- eins að leggja fram tillögurnar, heldur bæri þeim einnig að hafa forgöngu um framkvæmd þeirra. Þeir töldu að Bretar ættu að ihafa á hendi forustuna eða að minnsta kosti taka sinn hluta ábyrgðarinnar og gerast virkur og veigamikill aðili hinnar nýju Evrópu. | Það voru mönnum því mikil vonbrigði, þegar á daginn kom, að Bretar beitíu áhrifum sínum í Evrópuráðinu gegn hugmynd- inni um endurskipan á stjórn álfunnar. ADEINS SAMSTARF Fyrir þremur árum reyndu ýmsir að finna málamiðlun, svo að tekizt gæti samvinna við Bret- land og Norðurlönd. Þeir gáfu upp á bátinn hugmyndina um stjórnarfarslegt samstarí Evrój'u- ríkjanna, sem þeir þó töldu rök- rænasta og beinasta veg að ein- ingu Evrópu. Þeir leituðust við að leysa við- fangsefnin hvert fyrir sig, til nð mynda stál- og kolamálin, stofn- un Evrópuhers o. s. frv. Þeir voru staðráðnir í að skapa nýja Ev- rópu skref fyrir skref í þsirri /on, að Bretar gætu fallizt á þessa aðferð að taka eitt vanda- mál til úrlausnar í senn. En þetta fór á annan veg. Bretarnir skirr- uðust við að gerast aðilar að Schu man-áætluninni, þeir skirru.ðust iíka við að taka þátt í Evrópu- hernum, en urðu sífellt hug- fangnari af þeirri ófullkomnu og röngu hugmynd, að í einingu álf- Framh. á bls. 11 Velvakandi skrifar: ÚR DAGLEGA LÍFINV Paul Henri Spaak. í stríðslokin sneri ég til ætt- lands míns, fuilur þakklætis og aðdáunar á brezku þjóðinni og þrautseigju leiðtoga hennar. Mér þótti sem ég hefði lært listina að lifa eins og að mínu viti var eft- i irsóknarvert fyrir allar lýðræðis- þjóðir og frjálsa menn. Það kom á daginn, að ég fór heim með tál- vonir. ) Ég trúði því og vonaði, að Bret- land, sem sigrað hafði í styrjöld- inni, mund.i taka upp hina æva- gömlu jafnvægisstefnu sína og verða sjálft í fylkingarbrjósti evrópskra þjóða. Ég vonaði, að Bretland mundi vegna álits síns og kænsku ná því marki, sem Hitler reyndi að vinna með valdi, að sameina Norðurálfuna. 1 VÍLBU EKKI STYGGJA ,RÚSSA En fyrstu árin eftir stríðið fórnuðu Vesturveldin hugmynd- inni um eining Evrópu fyrir bandalag við Rússland. Stefna þeirra hneig í þá átt að styggja ekki Rússana á nokkurn hátt né gefa þeim tilefni íil efasemda. Ekkert skref var stigið, sem Rúss- um gat þótt hættulegt eða vakti ' vanþóknun þeirra. Og tækifærið gekk mönnum úr greipum. i Á meðan þessu fór fram, skipu- lögðu Rússar málefni sín í Austur Evrópu og á Balkanskaga, en Vesturveldin reyndu fyrir sitt leyti að leysa vandamál sín með I káki. Áreiðanlega hefðu þau íar- , ið í hundana fjárhagslega, ef | Marshall-hjálpin hefði ekki kom- | ið úl. IIAFA KÚVENT Byltingin í Prag opnaði fyrst i augu manna. Ef menn hugleiða , það, sem síðan hefur gerzt, kann í þeim að koma spánskt fyrir sjón- ir, að það skyldu vera Bretar, | sem fyrstir töluðu um eining álf- I unnar. Formælendur þeirra voru , Churchill, sem reifaði málið í Zíirich, og Ernest Bevin, sem bar hugmyndina upp í neðri málstof- unni. Hinn fyrrnefndi mælti með sáttum Þýzkalands og Frakk- lands og Bevin hélt á loít hug- myndinni um sameining EvrópU' Hnífar, sem Ieka. ÞAÐ er sagt, að gestirnir í Gildaskálanum séu þvalir í lófunum. Ekki eru þeir þó heit- fengari né svitagjarnari, en geng- ur og gerist um fóik. Sannleikur- inn er sá, að hnífarnir leka. Þegar hnífar eru lekir, þá er það af því að sprungur hafa tek- ið sér bóifestu í bolum sköftun- um. Og svo smokrar skólpið sér laumulega inn í sköftin, þegar þvegið er upp. En þetta skólp hef- ir gaman að óknyttum og gaman af að gera mönnum smáglennur. Hvað haldið þið svo að það geri nema seytla inn í lófa manna undir borðum? Og helzt vildi það senda dropa og dropa niður í kjötdiskinn, svona er illkvitnin :nikil. Húsið snurfusað. AÐ fylgir sumri og só!, að menn vilja ganga léttklæddir í ljósum skrúða. Og menn arka á milli búðanna og kaupa sumarleg föt. En þetta er ekkert óvanalegt á þessum tima árs. Öllu athyglisverðara er, hve menn virðast vera farnir að leggja mikla rækt við húsin sín seinustu sumur, og þó aldrei eir.s og nú. Hvert husið af öðru er málað og surfusað utan, svo að þau gerbreyta um svip eins o* þegar þungbúinn maður verður allt í einu léttbrýnn og brosandi, Málarinn á staurnum. MEIRA að segja hafa mörg sfór- hýsi verið dubbuð upp í sum- ar. Múr Eimskipafélagshússins, sem aldrei hefir fyrr komizt í snertingu við málningu, fær nú sinn skammt og endurvarpar Ijósum geislum út í bláinn. Það hefir rnörgum forvitnum orðið göngult niður að Eimskipa- félagshúsi seinustu dagana. Firnalangur gaur hefir verið reistur upp með hlið hússins, en á honum er dálítil kista eða stúka, sem færa má upp og niður staur- inn. Þarna hefst málarinn við með pensla sina og liti. Og þegar hverri færu lýkur, verður hann að stíga niður til jarðarinnar og hnika staurnum um set. Komnir að norðan. WjIÐ hafið tekið eftir því, að ^ seinustu daga hefir óvenju-1 mörgum ungum mönnum með al- skegg brugðið fyrir í höfuðborg- inni. Þetta eru hásetar af síld- Skeggrætt yfir kaffi. arskipunum,. sem voru fyrir norð- an í sumar. Þau eru að koma heim. Þeir eru hreyknir af skegginu eins og eðlilegt er, en varla er þeim þó neitt trúaratriði að bera skegg. Ilér á landi hefir líka lög- gjafinn látið sér í léttu rúmi liggja, hvort menn skáru skegg sitt eður eigi. En þess eru mörg dæmi úti í veröldinni okkar, að skegg hafi verið bönnuð með lög- um, og hafa menn jafnvel látið lífið fyrir skegg sitt. Úrskurður hæstaréttar um skeggið. HÚN er hér um bil ný sagan um skegg egypzka lögregluþións- ins. Farúk, sem þá var kóngur, fékk pata af, að maðurinn þætti iíkur Fuad heitnum, hann hafði alveg eins skegg og hinn Iátni kóngur. Kólfunum kastaði þó fyrst, þegar brezkt tímarit bírti myndir af þeim Fuad og laganna verði hlið við hlið. I bræði sinni kallaði Farúk fvrir sig blaðafulltrúa sinn og lífvarðarforingjann og lagði fyrir þá, að yfirskegg lögreglumanns- ins skyldi klippt. Að vörmu spori var lífvarðarsveit komin á vett- vang og sópaði burt eftirlæti lög- reglumannsins. Hann fékk þó sárabætur seinna, því að hann fór í mál. Hæstiréttur úrskurðaði, að geng- ið hefði verið á persónufrelsi mannsins og honum heimiluð skeggrækt á ný. Þetta var fyrir rúmum 2 árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.