Morgunblaðið - 06.11.1952, Page 10
10
MORCUNBLAfílfí
Fimmtudagur 6. nóv. 1952
i
Síðara bindi skáldsögunnar
ÞOK AN
0 A
eftir Kristmann Guðmundsson
Þokon rouðo
er aílt í senn skemmtileg, list-
ræn og áhrifarík skáldsaga —
glæsiíegt listaverk og spegill ís-
lenzkrar og evrópskrar menn-
ingar í deiglu sögunnar.
er fyrsti liókmeniitaviðbiirður haustsins
B OJZ CMR BTGÆFMN
er komið í bókaverzlanir
Sagan um höfund Völuspár sameinar megineinkenni
Helgafells, Gyðjunnar og uxans og Góugróðurs, sem gert
hafa Kristmann Guðmundsson víðlesnasta núlifandi rit-
höfund Islendinga. Lesandanum opnast undralönd forn-
aldarinnar í sögunni um kappann og skáldið ísarr Dags-
son, leitina að viskunni, fegurð ástarinnar, og stórfeng-
leik örlaganna.
Fyrirliggjandi:
2 gerðir, mjög henfugir
fyrir verksmiðjur og
vinnusali. i
= HÉÐINN =
Kr. 1775
Winchesíer haglabyssa (tví-
hleypay raodel 24, cal. 12, til
sölti. Byssan er sem ný væri,
enda svo að segja ónotuð.
Burðarband (þykkt canvas)
ásamt hreinsitækjum og skot
um fylgja. — Sími 1133.
stærð 52, til sölu. Tækifæris
vcrð.
Cuðm. Benjamínsson
Snorrabraut 42.
*
Get leigt viðlegupláss næstkomandi vetrarvertíð fyrir
einn mótorbát. Get selt sama bát fyrsta flokks beitusíld.
Upplýsingar hjá Lofti Loftssyni, sími 28, Keflavík, eða *
Reykjavik, sími 2343.
Stúlka óskar eftir
ráðskonu-
stöðu
Uppi. frá kl. 2 í síma 80439.
Auki.il
syimuiff mi!
anna er megin-
FéBagið efnir fil 30 ára
afmæBishófs á laugardaginn
NÆSTKOMANDI laugardag cfn-
ir Norræna félagið til afmælis-
hófs í tilefni af því að 30 á?
vöru liðin frá stofnun félagsins
'29. sept. s. 1.
Afmælishófið hefst með borð-
haldi en meðal gesta liófsins
verða forseti íslands Ásgeir Ás-
geirsson og frú, forsætisraðherra
Steingrímur Steinþórsson, borg-
arstjóri Gunnar Thoroddsen,
fyrrveranai formenn félagsins,
Matthías Þórðarson fyrv. þjóð-
minjavörður og Stefán Jóh.
Stefánsson, sendiherrar Norður-
landaríkjanna hér á landi að ó-
gleymdum óperusöngvaranum
Jussi Björling, sem hér dvelst á
vegum xélagsins. Mun hann
skemmta með söng í afmælis-
hófinu.
Stjórn Norræna félagsins
skýrði blaðamönnum frá hófinu
í gærdag og rakti þá um leið sögu
félagsins í stórum dráttum.
FÉLAGSSTOFNUNIN OG
FYRSTU ÁRIN
Norræna íélagið var stofnað
29. sept. 1922 fyrir forgöngu
Sveins Björnssonar, þáverandi
sendiherra, prófessors F. Paasche
og Matthíasar Þórðarsonar þjóð-
minjavarðar. Var Matthías kjör-
inn ifyrsti formaður félagsins.
Var starfið í upphafi ýmsum
erfiðleikum bundið og 1926 má
heita að það hafi lagst niður.
Árið 1931 var aftur blásið lífi
í félagsskapinn. Voru það þeir
Guðlaugur Rosinkranz og Sig-
urður Nordal prófessor er það
gerðu en þeir voru þá nýkomnir
að utan. Frá þeim tíma hefur
starfsemi Norræna félagsins far-
ið vaxandi með hverju árinu.
Fyrst undir formannsstjórn
Matthíasar Þórðarsonar og síðar
Klemensar Jónssonar, landritara,
Sigurðar Nordal prófessors,
Stefáns Jóh. Stefánssonar og nú
síðásx Guðlaugs Rosinkranz þjóð-
leikhússtjóra.
KYNNINGARSTARFSEMI
Meginhugsjón félagsins og íil-
gangur er að vinna að gagn-
kvæmri þekkingu meðal Norður-
landaþjóðanna og aukinni kynn-
ingu þeirra á milli. í þeim til-
gangi hefur verið stofnað til fjöl-
margra kynningarmóta ýmissa
stétta sem haldin hafa verið til
skiptis á Norðurlöndunum fimm.
Efnt hefur verið til svonefndra
lista og bókmenntavikna, greitt
hefur veri'ð fyrir skiptum á náms-
fólki o. :cl.
Svíþjóð hefur að vonum lagt
drýgstan skerf til kynningar
Svía og annarra Norðurlanda-
þjóða. Hafa þeir veitt árlega 100
nemendum ókeypis skólavist í
Svíþjóð. Finnar og Norðmenn
hafa veitt skólavist 10—20 nem-
endum árlega. Það eru þing land-
anna sem veita fé til þessarar
starfsemi og hefur íslandsdeild
Norrænafélagsins ekki getað boð
ið heim fólki frá frændþjóðun-
um, en félagið nýtur hinsvegar
5000 króna styrks árlega frá
ríki.
ÍSLENDINGAR TIL NÁMS 4
NORDURLÖNDUM
Frá íslandi hafa árlega frá
1945 farið nemendur til ókeypis
skólavistar á hinum Norðurlönd-
unum, 7—8 árlega, en á yfir-
standandi ári 22. Námsdvöl þessa
fólks kostar samtals hátt á 3.
hundrað þúsund krónur, en er
námsfólkinu kostnaðarlaus eins
og áður segir. — Hafa þessar
námsferðir reynzt mjög góður
grundvöllur fyrir samvinnu og
kynningu milli Norðurlandaþjóð-
anna.
íslandsdeild Norræna félagsins
hefur hins vegar beitt s.ér fyrir
norrænunámskeiðum fyrir stúd-
enta frá hinum Norðurlöndun-
um, en nú hefur Háskólinn tekið
þessi námskeið á sína arma.
Norrænafélagið hér á landi
hefur og gengist fyrir mótum
norrænna kennara * og norræns
verkalýðs. Sænsk vika var hald-
in hér 1936, þar sem sænskir
vísinda- og listamenn voru
kynntir. Var vika þessi í fram-
haldi af íslenzkri viku i Stokk-
hólmi 1932, en þá fóru héðan
40 rnanns til að kynna íslenzkt
menningarlíf.
. Hingað hafa og komið á vegum
íslandsdeildar Norrænafélagsins
ýmsir kunnir norrænir menn m.
a. Arnulf Överland og á s. I.
vori lásu H. Gabrielsen leikstjóri
og norska leikkonan Tore Seg-
elcke upp á kynningarkvöldum
Norrænafélagsins.
Er þá aðeins fátt eitt talið af
starfsemi Norrænafélagsins til að
efla nörræna kynningu. Á stríðs-
árunum var starfsemi félagsins
mjög mikil og þá meðal annars
unnið að söfnun til aðstoðar
Finnum, Noregssöfnun og Dan-
merkursöfnun.
. .» A:i
ENÐURSKOÐUN j
KENNSLUBÓKA
Fyrir tilstilli norrænu samtak-
anna hafa kennslubækur í sögu
og landafræði á öllum Norður-
löndunum verið endurskoðaðar.
Fulltrúi íslands í nefnd þeirri
er endurskoðaði sögukennslu-
bækur var Barði Guðmundsson,
en Guðmundur Þorláksson
magister sat í nefnd þeirri er
endurskoðað hefur landafræði-
kennslubækur. — Þá hafa nor-
rænu samtökin gefið út bók um
fj'árhags- og efnahagsmál Norð-
urlandanna og var Viihjálmur
Finsen fulltrúi íslands í útgáfu-
nefnd þeirrar bókar.
...A 'I
FJÖLMENNUR
FÉLAGSSKAPUR
Slæmur fjárhagur hefur mjög
háð allri starfsemi íslandsdeild-
ar norrænu samtakanna. Félag-
arnir voru í upphafi fáir en nú
teiur félagið um 1200 félaga. Ár-
gjaldið er 30 krónur en félagið
lætur félagsmönnum sínum í té
ókeypis tímaritið „Norræn jóT*
sem um næstu jól kemur út í 12
sinn. Þar verður rakin 30 ára
saga félagsins. — Samtals eru í
samnorrænu félagssamtökunum
á Norðurlöndum um 100 þúsund
manns. — Hefur þeim enn aukist
gengi með því að Færeyjar hafa
tekið þátt í starfinu.
Ýmsar nýjungar til auginnar
kynningar hafa verið á döfinni
Framhald á bls 12
3«* 1
so
jr
Mappdrœita Méskáía Ésiands
e*