Morgunblaðið - 08.11.1952, Page 1
16 szður
39. árgangur
256. tbl. — Langardagur 8. nóvember 1952.
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Raunhæf Sónastarfssm! veðdeildar
Landsbankans verði endurvakin
áSmensimgur fái aðgang að'
hæfilegum fasfeignalánum
Ráðgjafi Mossadeks
W
Tillaga Sjálfstæðismanna
I.AGT var fram á Alþingi í gær mjög athyglisvert frumvarp, sem
Sjálfstæðismenn ílytja, um öflun lánsfjár til íbúðabygginga og
eflingu veðdeildar Landsbanka íslands. — Flutningsmenri eru þing-
rnennirnir: Jóhann Hafstein ,Jónas Rafnar, Magnús Jónsson, Ing-
ólfur Jónsson og Sigurður Bjarrason. — Megintilgangur málsins
er að opna veðdeild Landsbankans að nýju, þannig að hún geti á
raunhæfan hátt sinnt hlutverki sínu. Ríkisstjórnin beiti sér fyiir
kaupum á veðdeildarbréfum allt að 30 milljónum króna, sem veð-
deildin geti þá lánað í reiðufé ti! íbúðabygginga. Mundi þannig
leyst úr mjög aðkallandi þörf þess mikla fjölda, sem nú berst í
bökkum með íbúðabyggingar, en á livergi aðgang að eðlilegum
fásteignalánum. — Frumvarpið, ásamt greinargerð, fer hér á eftir:
LÁNSUPPIIÆÐ 30 MIl.L.I.
1. gr. — Ríkisstjórninni er
heimilt að taka að láni allt að
3Ö milljónir króna eða jafnvirði
þeirrar fjárhæðar í erlendri
mynt.
2. gr. — Lánsfénu skal verja
til þess að kaupa bankavaxta-
bréf af veðdeild Landsbarika ís'-
lands. Vaxtabréf þau, er ríkis-
stjórnin kaupir samkvæmt þessu,
skulu vera flokkur út af fyrir
si'g', og skal haga vöxtum bréf-
anna, verði þeirra og tímalengd
útlána úr flokknum eftir láns-
kjörum þeim, er ríkissjóður fær,
svo að hann verði skaðlaus af.
3. gr. — Andvirði bankavaxta-
hréfanna, sem ríkisstjórnin kaup-
ir samkvæmt 2 gr., skal veð-
deildin lána til íbúðabygginga í
kaupstöðum og kauptúnum.
4. gr. — Heimilt er að lána
gegn 1. veðrétti allt að 200.00 kr.
á hvern rúmmetra byggingar.
Einnig má veita lán gegn 2. eða
3. veðrétti til að ljúka byggingu
eða greiða eftirstöðvar bygging-
arkostnaðar, hafi 1. veðréttar lán
úr veðdeildinni ekki verið veitt.
Gegn 2. veðrétti má þá lána allt
að 100.00 kr. á hvern rúmmetra,
en gegn 3. veðrétti allt að 50.00
kr.. á hvern rúmmetra.
5. gr. — Að öðru leyti en því,
sem tekið er fram sérstaklega í
lögum þessum, gilda ákvæði 1.
nr. 55 1945 um lánveitingarnar
samkvæmt 3. gr.
GREINARGERÐ
Lánsfjárskorturinn hefur ver-
ið einn af tilfinnanlegustu örðug-
leikunum við að ráða bót á hús-
næðisskortinum í kaupstöðum og
kauptúnum hin síðari árin, og er
með frumvarpi þessu að því
stefnt að fá nokkuð úr þessu
bætt.
Veðdeild Landsbanka íslands
sem stofnuð var með lögum nr.
1 árið 1900, var ætlað það hlut-
Verk að vera almenn fasteigna-
lánsstofnun landsmanna, og
Framnaid á bls. 12
I er af-
I Kenía
* LUNDUNUM í gærkvöldi. —
Oliver Lyttleton nýlendu-
málaráðherra Breta er kom-
inn til Lundúna úr Keníaför.
Við heimkomuna sagði hann
að búast mætti við óróa í
Austur-Afríku enn um nokk-
urra mánaða skeið.
-£• Hann kvað Mau Mau félags-
skapinn ekki eimingis hund-
elta hvíta menn, heldur og
innfædda og beittu félags-
menn hinum verstu glæpa-
aðferðum sem þekktust.
Hann neitaði því að félags-
skapurinn væri til orðinn
vegna efr ahagskreppu í Kenía
cn viðurkenndi þó að margt
þyrfti að lagfæra íbúunum til
hagsbóta. — Reuter-NTB.
Trieniasi og
Eisenhower
17. ixóv.
LUNDÚNUM í gærkvöldi. —
Eden utanríkisráðherra Breta
hélt frá Lundúnum í kvöld á-
leiðis til New York, en þar mun
hann taka við formennsku sendi-
sveitar Bréta á þingi Saméinuðu
þjóðanna, en á dagskrá þings-
ins eru nú m. a. umræður um
Kóreumálin og mun Eden taka
þátt í þeim. — NTB-Reuter.
WASHINGTON í gærkvöldi. —
Truman forseti og Eisenhower
eftirmaður hans hafa ákveðið
fund með sér hinn 17. nóvember,
þar sem þeir munu ræða nánar
um forsetaskiptin hinn 20. jan.
næstk.
Þá hefur Truman beðið Eisen-
hower að senda fulltrúa sinn til
að vera viðstaddan undirbúning
fjárlagaírumvarpsins, auk fuil-
trúa til að kynna sér starfið í
utanríkis- og landvarnaráðuneyt-
inu áður en yfirmannaskiptin
fara fram.
Loks hefur Truman sent Eisen-
hower orðsendingu, sem enn
hefur ekki verið birt. Þó er talið
fullvíst, að þar sé getið hernað-
arlegra málefna, er Bandaríkin
varða. — NTB-Reuter.
Dæmd fyrir njósnir
VÍNARBORG — Bandarískur
herréttur í Salsborg hefur nýlega
dæmt austurríska konu í 18
mánaða fangelsi fyrir að láta
tékknesku stjórninni í té hern-
aðarleyndarmál, sem hún hafði
komist yfir.
Fárviðri vefldur
stórtjóni í
Hér á myndinni sést hinn nýi
utanríkisráðherra írans, Ilussein i
__________Fatemi._____ I
Bandarískar her-
sföðvar brál! á Spáni
NEW YORK. — Eft-.r sjö
mánaða viðstöðulausar um-
ræður bandarísku hernaðar-
sendinefndarinnar á Spáni við
þarlend yfirvöld mun nú sú
stund nálgast óðfluga að
Spánn opni Iandamæri sín
bandarískum vígvélum og
stríðsmönnum. — Svo segir í
frétt sem fregnritari stór-
blaðsins New York Times
sendir blaðinu frá Madrid.
Hann segir einnig að spánski
uíanríkisráðherrann Atjao
hafi lagt skýrslu um málið
fyrir ríkisstjórn sína í s.l.
viku. Bandaríkin hafa þegar
boðið Spáni efnahagsaðstoð,
sem aðeíns skal nota til þess
að verja skagann og vígbúa
hann. — Reuter.
brenna, símalánur
brotna, skip rekur á land
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
LUNDÚNUM i gærkvöldi. — Mesta stormviðri sem gengið hefur
yfir Evrópu um ma,-gra ára skeið hefur valdið geysitjóni um gjör-
valla Evrópu, frá Skotlandi lil Alpafjalla, síðast liðinn sólarhring.
Þúsundir sím.astaura brotnuðu, féllu yfir vegi og járnbrautarlínur
svo allar samgöngur hafa teppst um lengri eða skemmri tíma. —
Mörg skip leituðu í neyð til hafnar en önnur stóðu af sér veðrið
í rúmsjó, og í Ölpunum tepptust öll skörð af völdum rriikillar srijó-
komu.
6 manns haSa látið líiið
Kunnugt er um sex menn er látið hafa lífið af völdum
stormsins. — Fjórir menn drukknuðu í mynni Weser-fljóts-
ins, er þeir gerðu tilraun til að komast til lands og tvær
konur létu lífið í Berlín er snörp vindkviða feykti um koll
húsveggjarúst.
Rroihnrl *------------------------------'
jer gengur yfir Ermarsund varð
Mestur mældist vindhraðinn að snúa við og tokst að skila
170 km á klukkustund, en í Bret- ,farþegum sínum, 107 að tölu, til
landi komst hann mest upp í 150 Dover. — Stormurinn orsakaði
km á klst. ^grjótfok í Bretlandi og brotnuðu
Um 100 skip leituðu neyðar- viga rúður og aðrar smáskemmd-
, hafnar í brezkum höfnum. Mörg ir Llrgu.
’skip slitnuðu frá legufærum í
!mynni Thamesár og sendu sum CralíLlawil
út neyðarköll og fóru björgunar- rrBKKldliU
bátar þeim til hjálpar. Ferja ein j Dunkerque í Frakklandi gekk
stórsjór á land og skolaði burt
hafnarvitum og siglingamerkjum.
Flotkví slitnaði upp og rak til
lands. — í annarri franskri borg
kom upp eldur í pappírsverk-
smiðju og stormsins vegna breidd
ist eldurinn ört út, og brann
verksmiðjan til kaldra kola.
árásarferóir
SEOUL í gærkvöldi. — Flugvél-
ar flughers*-' S. Þ. í Kóreu fóru
s. 1. nótt í 1105 árásaríerðir til
hernaðarmikilvægra staða í N.-
Kóreu.
Rússland er
— segja júgóslafneskir
kommar
ZAGREB 7. nóv. — Þingi
kcmmúnistaflokksins í Júgó-
slavíu lauk í dag með því að
samþykkt var ályktun um
stefnu flokksins í framtíð-
inni. Var stefnuyfirlýsingin í
10 liðum og í henni var Sov-
étríkjunum m. a. lýst sem
árásar- og heimsveldissinnuðu
ríki, og er hvatt til samvinnu
við önnur ríki til þess að
treysta öryggi Júgóslavíu.
Flokksþingið ákvað einnig
að breyta nafni flokksins.
NTB-Reuter.
Belyía
voru nofuð við
atomfilraunina á Monte Bello
LUNDÚNUM — Dr. William
Penney, mesti atomvísindamað-
ur Breta, flutti erindi í brezka
útvarpið í gærkveldi og kvað það
hafa verið hræðilega sjón að sjá
atomsprengjuna springa yfir
Monte Bello eyju úti fyrir
ströndum Ástralíu. — Hann
minnti á þau orð Churchills að
tilgangurinn með atomrannsókn-
um Breta væri efling alheims-
öryggis. Kvaðst Penney sem vís-
indamaður vilja styðja þessa
yfirlýsingu. „Áhugi allra á þess-
ari tilraun, jafnt vísindamanna
sem almennings, byggist á þeirri
von að sprengjan færi oss nær
þeim degi þegar styrjöld er ó-
hugsanleg'."
Um sjálfa Sprenginguna
sagði Penney: Stórt, grásvart
reykjarský steig þúsundir
feta í loft upp og breiddist
út með undraverðum hraða.
Sandsíormur gekk með ógn-
armætti yfir eyna. Við mæl-
ingar á sprengingunni voru
notuð meira en 300 rafeindar-
mælitæki. Atomvísindamenn-
irnir höfðu einnig byggt ljós-
myndavél sem tók um 100 þús.
myndir á sekúndu liverri með-
an á sprengingunni stóð.
—.____
I Belgíu olli veðrið tjóni víðs
vegar um landið. Eldur kom víða
upp af völdum slitinna háspennu
lína, fljót flæddu yfir bakka sína
og lögðu heilar jarðir í eyði og
fylltu kjallara í þorpum. í Zee-
bruegge sukku 70 bátar, önnur
skip slitnuðu upp, rákust á
bryggjur og stórskemmdust.
HoHand
i
í Hollandi rak mörg skip á
land bæði við skipaskurði og við
ströndina. Voru dráttarbátar að
reyna að aðstoða þau eftir mætti
síðari hluta dags í dag með mis-
jöt'num árangri.
24 j>ús. kommar í
Bandarikiunum
YFIRMAÐUR bandarísku örygg-
islögreglunnar F. B. I. (Federal
Bureau og Investigation) Edgar
Hoover hefur fyrir skömmu lýst
því yfir að nú séu 24.850 flokks-
bundnir ' og skipulagðir komm-
únistar í Bandaríkjunum. Hefur
þeim því fækkaridi farið, sem
reyndar er ekki nema að von-
um, því í byrjun s.l. árs voru
þeir 40 þús. Það hefur sýnt sig
við rannsóknir er lögreglan hef-
ur gert meðal þúsund kommún-
istaforsprákka í iandinu, að mcnn
af útlendu þergi .hrotnir eru,
miklum mun móttækilegri fyrir -
kommúnismann en bornir og,
barnfæddir Bandarikjamenn.
— Reuter.