Morgunblaðið - 08.11.1952, Blaðsíða 6
MORGUTSBLAÐIÐ
Laugardagur 8. nóv. 1952
1 6
Umboðsmenn
O. Johnson & Kaaber h.l.
T
T
T
❖
t
t
t
t
t
t
t
t
t
v
t
t
♦;♦
♦♦♦
t
t
♦;♦
t
♦;♦
♦;♦
t
♦;♦
t
♦;♦
t
t
t
t
SPÁNARVIÐSKIPTI
Allskonar ullarefni getum við boðið frá
I.E.L.S.A: (Importaciones y Exportaciones
de Lana S/A, sem er söluhrin^ur margra
beztu verksmiðja á Soáni.
T. d. fataefni, kambgarn, cheviot, drengja-
fataefni, káputau, kjólaefni, ullarjersey og
ullargarn, bæði fyrir iðnað og handprión.
Ný sýnishorn í fjölbreyttu úrvali fyrirliggjandi.
Einkaumboðsmenn fyrir I.E.L.S.A.
Heildverzlunin HÓLMUÍI ¥1,
Bergstaoastræti 11B — Símar 81418 og 5418
t
t
t
T
t
t
t
t
♦;♦
♦;♦
t
t
t
t
♦;♦
♦;♦
♦!♦
t
t
t
♦;♦
t
t
T
t
t
t
t
t
t
♦;♦
t
+z*
♦♦♦♦♦;♦♦;♦♦;♦♦♦♦♦♦♦
Bezt að anglýsa í Morgunblaðinu
iiíbbai við frú GuSrúny Benonýsdóffyr áttræða
„MÉR hefir aldrei liðið eins vel
og þessi fjögur ár, síðan ég kom
hingað á elliheimilið“,' segir frú
Guðrún Benónýsdóttir, sem í dag
á áttræðisafmæli. Mbl. átti við
hana í gær stutt rabb um, hvernig
það væri að vera áttræður? Hún
sat og þeytti rokkinn sinn, þegar
mig bar að garði og á rúminu
hjá henni lágu fjórir vænir band-
hnyklar, sem hún hafði nýlokið
við að spinna. Einnig sé ég á
borðinu hjá henni haglega gerða
bastkörfu og perluborðhlíf, sem
hún kvaðst hafa búið til ísumar.
í stuttu máli — það er engan
bilbug á hinni áttræðu konu að
finna, hún er létt í máli og kem-
ur haglega orðum að því marga,
sem hún hefir að segja frá liðn-
um dögum.
HÚNVETNINGUR AD ÆTT
— Hvað viljið þér segja mér
um uppruna yðar?
— Ég er Húnvetningur að ætt,
ólst upp á bænum Finnsstaða-
nesi á Skagaströnd fram íil árs-
ins 1888, að ég missti föður minn.
Fórst hann í fiskiróðri í mann-
skaðaveðri þ. 3. janúar. Þann
sama dag fórust fjórir aðrir bát-
ar, með samtals 24 mönnum. Ég
var frammi í Hyammi í Vatns-
dal, þegar þetta var og ekki
frétti ég um föðurmissinn fyrr
en komið var fram á Þorra. í
þá daga var ekki síminn til að
bera fréttir af því sem gerðist
samdægurs á milli landshluta.
Tíðarfar var stirt þennan vetur
og menn voru ekki á ferð frammi
í Vatnsdal, nema þegar vel viðr-
aði. Frá því er ég fór frá
Hvammi þá um vorið, hefi ég
unnið fyrir mér, þangað til nú
fyrir fjórum árum, að ég kom
hingað á Elliheimilið.
EIN KRÓNA í KAUP!
— En hvenær komuð þér til
Reykjavíkur?
— Ég kom hingað fyrst árið
1908 og fékk þá hér atvinnu sem
vökukona á Landakotsspítalan-
um. Var ég við það starf í 0 ár,
þangað til ég gifti mig eigin-
manni mínum sáluga, Guðmundi
Guðmundssyni. í tíu ár vorum
við búsett hér, eða þangað til
maðurinn minn dó, arið 1926. Á
meðan ég vakti á Landakoti fékk
ég í kaup eina krónu fyrir nótt-
ina og af því þurfti ég að borga
leigu á herbergi úti í bæ. Þótti
mér það þó vel borgað í saman-
burði við vinnukonukaupið, sem
ég hafði haft í sveitinni, 30 krón-
ur yfir árið.
A einum bæ var ég í þrjú ár
og hafði með mér barn, sem ég
vann þar fyrir. Að þessum þrem-
ur árum loknum fékk ég að ríða
í kaupstaðinn og taka út á tvær
krónur. Húsbændur mínir, sem
hér áttu í hlut voru þó á meðal
efnaðasta fólksins í sveitinni.
— Eigið þér engin börn?
— Jú, ég eignaðist þrjú börn,
tvær dætur og einn son. Eitt
þeirra Bryndís dóttir mín, sem
gift var Emil heitnum Thorodd-
sen, tónskáldi, er látin. Hin dótt-
ir mín er gift úti í Kaliforníu,
en sonur minn er hér í Reykja-
vík.
HEFIR ALDREI LANGAÐ
TIL AMERÍKU
— Hafið þér nokkurn tíma
heimsótt dóttur yðar í Kalífor-
níu?
— Nei, mig hefir aldrei langað
til Ameríku, þó að mikill væri
þangað fólksstraumurinn héðan
frá íslandi um eitt skeið, og helzt
vildi ég getað borið beinin í ís-
lenzkri mold.
1— Ellin virðist ekki leggjast
þungt á yður?
Guðrún Benónýsdóttir fyrir
framan Elliheimilið s. 1.
sumar. ^
— Heilsan er ágæt, nema helzt
sjónin, sem nokkuð er tekin að
bila. Þá sjón, sem ég enn hefi á
ég Kristjáni Sveinssyni augn-
lækni, næst guði, að þakka. Ilann
skar upp í mér bæði augun og
fékk ég við það svo góða bót,
að ég get nú bæði skrifað og
lesið. Ég hefi líka mikla ánægju
af að hlusta á útvarpið.
{
HYGGUR GOTT TIL
ÆVIKVÖLDSINS
— Svo þér lítið björtum augum
á framtíðina?
— Ég hefi ekki ástæðu til ann-
ars. Aðbúðin hér er ágæt í alla
staði og ég á það að þakka góð-
vild forstjórans hér á Ellihcimil-
inu og tengdamóður hans, að ég
hefi eignazt gott heimili, þar sem
ég hygg hið bezta til að eyða
ævikvöldinu. Ég vildi lika nota
hér tækifærið til að flytja öllu
starfsfólki Ellihcimilisins ein-
lægustu þakkir mínar fyrir það,
hve sérstaklega vel það hefir
reynzt :nér.
Frú Guðrún hefir gert tölu-
vert að því að yrkja vísur sér
til gamans og dægrastyttingaij.
Eftirfarandi vísur gerði hún í til-
efni þess, er Elliheimilið Grund
átti 30 ára afmæli nú fyrir
skömmu. Nefnir hún það: Frá
mínum bæjardyrum 29. október
1952:
Þrjátíu ára gamla Grund
gegnir skyldu sinni.
Margir hafa menn og sprund
mátt hér búa inni.
Undir traustum verndar væng,
valda þökk ég segi.
Að góðum mat og góðri sæng
geng á hverjum degi.
Áfram líður ellistund
ei þó skíni sólin.
Geng hér um með glaða lund
gleð mig senn við jólin.
Allt hér gleðji alla stund i
allir styrk hér finni.
Drottinn blessi gömlu Grund
með góðri návist sinni.
15.000 kr.
fær sá í fyrirframgreiðslu,
sem getux leigt 2ja herb.
íbúð sem fyrst. Upplýsingar
í síma 1358 kl. 5-—. e.h. í
dag. —