Morgunblaðið - 04.12.1952, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.12.1952, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 4. des. 1952 Saar-héraðið KÖIrv B-vítamín rannsóknir , .. íc Kolnil v á fiskafurðum MATARGERÐ er vandaverk. miklu meira en fólk almennt grunar, valið á matvælunum og meðferð þeirra, allt þangað til þau eru komin á matborðið, eru grundvallaratriði fyrir heil- brigði og líðan fólks. Þar má ekkert hinna fjölmörgu nauð- synlegu efna vanta, frekar en þegar settur er saman næringar- vökvi handa gerlum. Vanti eitt eða fleiri slík efni í fæðuna til lengdar, þá þrífst maður ekki, frekar en gerlarnir, enda þótt öll önnur efni séu fyrir hendi í fæðunni í ríkum mæli. Maður verður kvellisjúkur og kvefaður og hafnar í ein- hverri lyfjabúð með ávísun á eitthvert efni, sem læknirinn tel- ur, að útlit sé fyrir, að líkam- ann vanti. Vel má vera að þetta efni hafi farið einhvers staðar forgörðum við matreiðsluna, svo að sjúklingurinn hefur misst af því úr fæðunni. Ef til vill hefur það verið í soðinu, sem hellt var niður. Það eru nokkur ár síðan byrj- að var að mæla magn ýmissa vítámína með gerlum, í stað til- raunadýra. Hafa gerlarnir tals- verða kosti til þessara nota fratnyfir tilraunadýr, eins og kjúklinga og rottur. Eru helztu kostirnir þeir, hversu gerlarnir eru smávaxnir og hversu fljótt þeir vaxa. Vegna þessa mikla vaxtarhraða gerlanna, tekur hver tilráun með þeim aðeins nokkr- ar klukkustundir eða daga, þar sem dýratilraun tekur margar vikúr eða mánuði. Fóðrun og hirðing dýranna kostar auk þess margfalt meiri fyrirhöfn og fé, en fæktun gerlanna. Ennþá eru það aðeins vítamín af B-flokki, sem mæld eru með hjálp gerla, en B-vítamínin eru, sem kunnugt er, orðin mörg, tal- in áð minnsta kosti 12 eða 14. Þau, sem einna oftast þarf að mæla eru: thíamín, öðru nafni aneurín eða vitamín Bl, ríbófla- vín, nikótínsýra, bíótín, vítamín B6 og vítamín B12. FLJÓTLEGRA EN EFNA- FRÆÐILEG ÁKVÖRÐUN Flest B-vítamínanna má einn- ig ákveða á efnafræðilegan hátt, en það er oft miklu erfiðara og seiiílegra og gefur ekki alltaf eins. nákvæmar niðurstöður og ákvorðun með gerlum. Thíamín muh þó oftast hentugra að á- kveða efnafræðilega. Venjulega er hægt að ákvarða miklu minna magn af vitamíninu, þegar not- aðir eru gerlar, heldur en með efnafræðilegum aðferðum, og er slíkt kostur, þar sem magn víta- mínanna í sýnishornunum er oft mjög lítið. Þannig má t. d. með viðeigandi gerlum mæla vitamín B12 í 1 grammi af fiskimjöli, þó i að ekki séu þar af vítamíninu ■ nema nokkrir tugir miljónustu hluta úr milligrammi. VÍTAð’ÍN MÆLD MEÐ GERLUM Aðferðin við mælingu á B- vítamínum með gerlum byggist á því alkunna fyrirbrigði við alla ræktun, að vanti eitt ein- astaO af hinum fjölmörgu efnum, sem, lífverunni eru nauðsynleg, þá þrífst hún ekki, enda þótt öll hin efnin séu fyrir hendi í rík- um mæli og öllum öðrum lífs- skilyrðum sé fullnægt. Er því farið þanrig að, að gerður er næringarvökvi, sem í eru öll þau efni, sem viðkomandi gerla- tegund þarfnast, nema það víta- mínj sem mæla skal. 4 slíkum næringarvökva vaxa gerlarnir alls^ekki neitt. En sé örlitlu af hmu vantandi vítamíni bætt í vökyann, taka gerlarnir að vaxa, og þeir vaxa því meira, sem meiru er bætt í af vitamíninu, þó auðvitað aðeins að ákveðnu marki. Vöxt gerlanna má mæla á ýmsan hátt og er þar fenginn mælikvarði á magn vítaminsins, semrbætt var í vökvann. hvErnig fara VÍTAMÍNMÆLINGAR FRAM? Næringarvökvar þeir, sem not- /<m - Merkiieg nýjimg, sem kemin er hér á rekspöl /"**' K0BLEN7 i jrPrvm V • CoCJzem. MarbOrg aðir eru við vítamínmælingar sem þessar, eru settir saman úr mjög mörgum efnum. Er aðal- vinnan við mælinguna fólgin i því að setja saman slíkan vökva. Verður að vega og mæla hvert efni nákvæmlega, og engu þeirra má gleyma, því að þá er allt ónýtt. Með svona löguðum vökva og viðeigandi gerlum má líka ákveða einstakar amínósýr- ur, en þær eru, sem kunnugt er uppistaðan í eggjahvítuefnun- um. Er þá sleppt úr næringar- vökvanum þeirri amínósýru, sem mæla skal, en allar aðrar nauð- synlegar amínósýrur, sölt, vlta- mín og önnur efni iátin vera fyr- ir hendi. ÍSLENZKAR VÍTAMÍNRANNSÓKNIR Sigurður Pétursson gerlafræð- ingur fór til Bandaríkjanna 1950 —1951 og var aðalerindi hans að kynna sér vítamínmælingar með gerlum. Vann hann þar að slík- um mælingum í 5 mánuði. Eftir að Sigurður kom heim var þegar hafinn undirbúningur að því að framkvæma þessar mælingar hér. Var sótt um fjárveitingu af Marshall-fé til kaupa á nokkru af áhöldum, og þegar hún hafði verið veitt, voru áhöldin pöntuð. Koma þau í lok þessa árs, og verða sett í hina nýju rann- sóknastofu, sem verið er að byggja við Skúlagötu og ætluð er fyrir fiskiðnaðinn. Annars eru áhöld til svona lagaðra víta- mínákvarðana að mestu þau sömu og þau, sem notuð eru við almennar gerlarannsóknir. Öll efni til rannsóknanna hafa verið keypt, og eru þau komin til landsins, m. a. fáein milligröm af hreinu vítamíni B12, sem kostar 10 dollara hvert milli- gramm. FYRSTU MÆLINGAR Á ÍSLENZKUM FISKAFURÐUM í sumar hafa þegar verið gerðar hér fáeinar gerlafræðileg- ar mælingar á vítamín B12 í nokkrum fiskafurðum. Verður þess nú vonandi skammt að bíða, að hægt verði að gera hér sams konar mælingar á öðrum B-víta- mínum. B-vítamín koma víða fyrir, en mest er af þeim í geri og lifur. Þau eru í fjölda mörgum mat- vælum, bæði úr jurta- og dýra- ríkinu. Eru B-vítamínin, sem kunnugt er, mjög þýðingarmikil fyrir heilbrigði manna og dýra, svo að algengt er, að mæla þurfi ^ magn þeirra baéði í matvælum j og fóðurvörum. Einkum þarf að fylgjast vel með því, að þessi1 dýrmætu efni séu ekki eyðilögð við framleiðslu varanna, hreins- uð úr þeim eða skoluð í burtu. Slík sóun á B-vítamínunum er því miður alltof algeng, og skulu nefnd hér tvö dæmi þess. NAUÐSYNLEGT Á MÖRGUM SVIÐUM Þegar korn er malað og mjölið hreinsað, er sigtað frá því meira eða minna af hýði þess, en B- vítamínin eru einmitt í fræ- hýðinu, en alls ekki í fræhvít- unni eða mjölvanum. Hýðið er jafnan gefið skepnum, og þykir það ágætur og ómissandi fóður- bætir, en hvíta hveitið eða mjölvinn, sem er snauður af vítamínum, er hafður til mann- eldis. Þetta er mjög óheppifegt. fyrir fólkið, er hveitisins neyt- ir, því að líkaminn þarf að fá \ B vítamínin úr fræhýðinu með mjölvanum, svo að af þessarri fæðu geti orðið full not. Úr þessu bæta Bandaríkjamenn á þann hátt, að þeir setja nokkur ' B-vitamín aftur í hveitið, eftir að það hefur verið hreinsað. Er j látið í það thíamín, ríbóflavín og j nikótínsýra, og auk þess ofur- I lítið af járni. Væri fróðlegt að t fá upplýst, hvort hvíta hveitið, ' sem keypt er hingað til landsins, I er bætt á þennan hátt eða ekki. Annars notum vér íslendingar nú orðið mikið af heilhveiti, og er það vel farið. í heilhveiti er mikið eftir af fræhýðinu, þó að ekki sé það þar allt sam- an, eins og þó mætti halda eftir nafninu að dæma. VÍTAMÍNUM FLEYGT í SODI Hitt dæmið, sem ég vildi benda á, snertir ekki þá, sem vörurnar framleiða eða selja, heldur þá, sem matreiða þaer, nefnilega húsmæður og matreiðslumenn. Það er sérkennilegt fyrir B- vítamínin, að þau levsast auð- veldlega upp í vatni. Þegar mat- væli eru soðin í vatni, fer því mikið af þessum dýrmætu efn- um út í soðið, einkum ef mat- vælin eru smátt skorin. Það er nú því miður alltof algengt, að soði, t. d. af grænmeti, fiski, kjöti og slátri, sé fleygt, og þar með öllu því af B-vítamínum, sem tekizt hefur að leysa burtu úr matvælunum, ásamt ýmsum söltum, sem auðvitað fara sömu leiðina. Á þetta mun nú orðið bent í hverri íslenzkri matreiðslu bók. En það er oft löng og tor- fær leið, frá þeim fræðilegu leið- beiningum, sem í blöðum og bókum standa, og inn í meðvit- und þeirra, sem leiðbeiningarnar eru ætlaðar. m \Umburq FRANKFURT 'rfytburg N2^ # \\ *0armta<tt\ Ýurzbvn IfT RockenhausJk 5AArR. lodieígshiffh\Monnhem [M& T y s >;k l a n o \Landio f %// : i- f S&rret,»Uf9 farl$ ruh'Q • Haaenau Á uppdrættinum sést aístaða Saar til Þýzkalands og Frakklands, en héraðið hefur löngum verið þrætuepli milli þessara tveggja Ianda. SKAK Eftir ARNA SNÆVARR og BALDUR MÖLLER TEFLD 26. OKT. 1952 Á HAUSTMÓTI TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR Hvítt: Haukur Sveinsson. Svart: Lárus Johnsen 1. d2—(14 2. Rgl—f3 3. e2—e3 4. Rbl—d2 5. c2—c4 d7—d5 Rg8—f6 Be8—g4 e7—e6 d5xc4 Með þessu er komið út í móttekið drottningarbragð (Aljechins-af- brigði), en meðferð svarts er ekki ógölluð. 6. Bflxc4 7. a2—a4 a7—a6 Rb8—c6 32. Df4+ Rf5 33. Bxc7 Hc8 34. BdG Kg7 35. Hacl Hd8 36. h5 Hd7 37. h6+ Kg8 38. b4 Hf7 39. Dg5 Bxa4 40. Dd8+ Be8 41. Db8 Hd7 42. He4 Rxh6 43. Hc8 Kf7 44. HxB! DxH 45. 46. e6t HxD(?) DxeG Varlegra mundi vera að leika c5 og síðan Rc6. Bf8—d6 o—o 8. 9. Hfl—el Til greina kom Dd7 og síðan 10. Ddl—c2 e6—e5 Sófasett Nýtízku lag með póleruðum örmum, klætt með silki- damaski og góðu ullaráklæði. — Mjög fjölbreytt úrval. Verð við allra hæfi. — Komið og skoðið meðan úrvalið er mest. — Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar. HÚSGAGNAVERZLUN GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR Laugaveg 166 Svartur missir tök á miðborðinu. Til greina kom Bb4. 11. d4xe5 12. Rf3xe5 13. h2—h3 Rc6xe5 Bd6xRe5 Bg4—d7 Bh5 er ekki mögulegt vegna f4, g4 og f5. 14. Rd2—f3 15. e3—e4 Be5—d6 Bd6—b4 Svartur er í ótrúlega mikilli klípu og á hvergi örugga reiti fyrir biskupana og riddarann. 16. Hel—dl 17. Bcl—f4 Dd8—c8 Bd7—c6? Slæmur leikur! Be6! var nauð- synlegt, þótt svartur eigi erfiða stöðu einnig þá. Hvítur hefur haldið vel og örugg- lega á sínum (góðu) spilum, en nú var óneitanlega einfaldast að máta með Df8!, en svartur gafst upp í þess stað, svo það mátti einu gilda! TAFLLOK F. J. Prokop 1923 fl 18. Rf3—g5 Rf6—h5 Svartur gat ekki séð við tvöfaldri hótun hvíts (á f7 og h7). Dósfar verða afgreiddar meðan birgðir endast í verksmiðju vorri kl. 10—12 og 2—4 daglega meðan á verkfallinu stendur. DÓSAVERKSMIÐJAN H.F. Sími 2085. Borgartúni 1. 19. e4—e5! 20. Rg5xf7! 21. Bc4xHf7t 22. Dc2—c4+ 23. Dc4xBb4 g7—g6 Hf8xRf7 Kg8xBf7 Dc8—e6 Kf7—g7 Hvítur hefur unnið skiptamun og peð, og skákin er honum því unnin. Um áframhaldið þarf ekki mörg orð! - AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDI - 24. Bg5 25. Hel 26. f3 27. Dd2 28. Bf6+ 29. Dg5 30. h4 31. Bd8 He8 Dd5 Rg3 DeG Kg8 Rf5 Kf7 Rd4 Hvítur leikur og nær jafntefli. LAUSN Á SKÁKÞRAUT 23. nóvember 1. h2—h3, Ha7—a4 (ekki Hg7 vegna DxH og síðan er mát á g4), 2. h3—h4! og mátar því næst með D á g6 (ef Hxh4) á h8 (ef H fer á g4), en á g5 ef sv. leikur öðru. 1. h4 dugði ekki vegna Hg7. ___________________ Hausimófinu lokið HAUSTMÓTI Taflfélags Reykja- víkur er nú lokið. Síðasta umterð í meistaraflokki var tefld s. 1. miðvikudag, en biðskákir á föstu- dag. Leikar fóru þannig í bið- skákunum að Steingrímur Guð- mundsson vann Lárus Johnsen og Jón Pálsson vann Birgi Sig- urðsson. Úrslitin í meistaraflokki urðu þar með þau, að Guðjón M. Sigurðsson varð sigurvegari með 8V2 vinning. Röð annarra kepp- enda varð þessi: 2. Sveinn Krist- insson 7 v., 3.—4. Arinbjörn Guð- mundsson og Steingrímur Guð- mundsson 6%, 5. Jón Pálsson 6, 6.—8. Jón Einarsson, Lárus John- sen og Þórir Ólafsson 5%, 9. Þórður Þórðarson 5, 10.—11. Birgir Sigurðsson og Haukur Sveinsson 3%, 12. Kári Sól- mundarson 3.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.