Morgunblaðið - 04.12.1952, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.12.1952, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 4. des. 1952 Ánægjulegt afmælishóf Geysis á Afeureyri AKUREYRI, 3. des. — S. 1. sunnu dagskvöld minntist karlakórinn Geysir þrítugsafmælis síns með veglegu hófi að Hótel KEA. Var þar saman kominn mikill fjöldi gesta auk kórfélaga. Söngstjór- anum Ingimundi Árnasyni og kórnum bárust íjöldi heillaskeyta og gjafa. Margar ræður voru fluttar og var mikil gleði, söngur og hljóðfærasláttur í hófi þessu. Formaður kórsins, Hermann Stefánsson setti hófið og stjórn- aði því. Hófst það með söng Geysismanna. Þá talaði ritari kórsins, Gísli Konráðsson. Rakti hann þætti úr sögu hans frá upp- hafi. Þá söng ungfrú Ingibjörg Steingrímsdoítir með undirleik fþú Þórunnar- Ingimunáardóttur. ték þá skólameistarafrú, Mar- grét Eiríksdóttír, einleik á píanó. ^íðan fluttu ávörp fulltrúar kóra, fyrstur Þormóður Eyjólfs- ston söngstjóri Vísis á Siglufirði, þá Daníel Kristinsson, formaður 4----------—— --------------- — Noregsbréf Framhald af bls. 9 ^YRSTA STJÓUNARSKRÁR- RREYTINGIN SÍÐAN 1919 Urslit þessa máls eru aðalum- feðuefnið þessa dagana, og una éestir vel við. Stjórnarandstæð- ingar telja aðalávinninginn í því falinn, að nú verð.i haggra um vik ^n áður að koma frarh meiri end- Örbótum á kjördæmaskipuninni en áður, því að nú þurfi ekki stjórnarskrárbreytingu til þess lengur. Það er hinn tilskildi %- meirihluti, senr málið hefir jafn- an strandað á. Nú er það sker úr siglingaleiðinni. Síðan 1919 hefir engin breyting verið gerð á stjórnarskrá Noregs fyrr en nú. Stórþingið mun á komandi vori ganga frá hinum nýju kosn- ingalögum á þeim grundvelli, sem stjórnarflokkurinn og hægrimenn komu sér saman um núha í vik- unni. Rétt er að geta eins atriðis í því sambandi: að framVegis get ur maður boðið sig fram í kjör- dæmi þó hann sé ekki búsettur þar, en hingað til hefir búsetan verið skilyrði fyrir kjörgengi. Og í október næstkomandi ýerða hin nýju kosningalög ,,'vígð“. Baráttan verður hörð, því ajð stjórnarandstaðan lætur vafa- láust einskis ófreistað til að svifta yerkamannaflokkinn þeirri valda aðstöðu sem hann hefir haft ufld- ánfarin ár. Skúli Skúlason. Fallegar hendur þurfa sér- lega góða hirðingu. — Séu hendumar blá-rauðar, gróf ar og þurrar, er bezta ráð ið, í hvert sinn þegar hend- urnar eru þvegnar, að nota RósóI-GIycerin. Núið því Vel inn í hörundið. Rósól-Glyce- rin hefur þann eiginleika, að húðin drekkur það í sig og við það mýkist hún. Rós- -ól-Glycerin fitar ekki og er því þægilegt í notkun. Mikil- vægt er að nota það eftir hvem handþvott, við það verða hendurnar hvítar, húð in mjúk og falleg. Er einnig gott eftir rakstur. Rósól-Clycerin. T Karlakórs Akureyrar og Jón Þor- ] steinsson formaður Kantötukórs Akureyrar, sem jafnframt flutti j kveðju söngstjórans, Björgvins j Guðmundssonar, sem ekki gat rna_tt í hófi þessu. Milli atriða var snæddur mikill og góður matur og drykkur. Geysi barst forkunnarfögur blómakarfa með 30 kertum frá Karlakór Reykjavíkur og bikar frá „Fóstbræðrum". Ennfremur urmull skeyta. Þá var hlýtt á söngkveðju frá Fóstbræðrum í útvarpi. Formaður Geysis þakkaði gjaf- ir, sæmd og heiður allan, kórn- um sýndan á þessum degi, og að lokum söng kórinn nokkur lög. Við það tækifæri var söngstjór anum, Ingimundi Árnasyni, fært forkunnarfagurt málverk gert af ÁSgrími Jónssyni og var það frá kórfélögum. Þakkaði Ingimund- ur það og ennfremur öllum þeim mörgu er starfað hefðu með kórn um, og stutt hann í 30 ára stríði hans. Tilkynnti hann í lok ræðu sinn- ar, að kórinn hefði ákveðið að gefa hinu nýja sjúkrahúsi 10 þús. kr. er ráðstafað yrði í samráði við yfirlækni. Vill kórinn með þessu sýna 1 bæjarbúum þakklætisvott fyrir ^ hið mikla liðsinni, er honum veitt ist fyrir Norðurlandaförina í vor sem leið. Að lokum var stiginn dans fram eftir nóttu. •—Vignir. Góðar gæftir og sæmilegur afli ísa- fjarðarbála ÍSAFIRÐI, 2. des. — Einmuna tíð var hér alla síðustu viku og var róið upp á hvern dag. Var aflinn hjá vélbátunum nokkuð misjafn, frá 2—6 tonn í róðri, Var yfirleitt róið nprð-vestur af Deild og fékkst þar ágætur fiskúr, stór þorskur og talsvert af ýsu. Beztur var aflinn um miðja vikuna. Fengust þá upp í 8 tonn í róðri, en þá var róið austur á Strandagrunn. En það er um 9—10 tíma sigling frá fsa- firði. Nokkrar trillur róa ennþá héð- an en afli hefur verið frekar tregur hjá þeim. 'Togarinn Fylkir frá Reykja- vík landaði hér s. 1. föstudag um 200 tonnum af borski, seni fór til frystingar og söltunar i Bol- ungarvík, Hnífsdal og ísafirði. — Einnig kom togarinn Surprise hér inn og tók salt. Einn batur hefur stundað rækjuveiðar að ^undanförnu. Fékk hann ágætan jafla fyrripartinn i nóvember, en t síðustu daga hefur verið tregur j rækjuafli. —j.________ j TEL-AVIV — Utanríkisráðu- neyti ísraels hefur kallað sendi- herra sinn heim frá Tékkóslóvak- íu til viðræðna. Er talið að þetta standi í sambandi við Gyðinga- ofsóknir kommúnista. II pra pmla sjúkrahúsið á Akureyri ú EliiheimiSi AKUREYRI, 3. des. — Kven- félagið Framtíðin hér á Ak- ureyri hefur beint þeirri fyr- irspurn til bæjarráðs, hvort bærinn myníli'fáanlegur til þess að aflienda gömlu hús- eignir Akureyrarspítala, eða hluta af þeim, undir elli- heimilin. e;- Ekki mun bæjarráð hafa svarað þessari fyrirspurn, en hefur hana til athugunar. NIÐ URJÖFNUNAR- NEFND Á síðasta bæjarstjórnar- fundi Akureyrar var kosið í niðurjöfnunarnefnd og hlutu kosningu; Tómas Björnsson, dr. Kristinn Guðmúndsson, Avarp til bæjarbúa Góðir Reykvíkingar! JÓLIN nálgast. Hugurinn kyrr- ist og flestir fara að hugsa urn að gleðja samferðafólkið. í því sambandi beinum við Rebekkusystur í st. nr. 1 Berg- þóru I.O.O.F. til ykkar þeim til- mælum, að þið nú um þessi jól eins og oftar kaupið blxnúiakerti Sv. kurnar. Andvnði peirra not- i’in •• .6 tii þess ?.ð s -nda bliixdu folkx joiaglaðnmg. Látið blindra- kertin skreyta jólaborð yðar og ég veit, að gleðin margfaldast hjá ykkur, þegar þau kertaljós skreyta heimili ykkar, því þá vitið þið að um leið hafið þið orðið svo hamingjusöm að vera með í því að kveikja bros á vör þeirra, sem sitja í myrkri og lifa marga langa, dimma- og erf iða daga. Kaupið blindrakertin, þau eru hvít með rauðri rós og grænum blöðum. Þau fást í fjölda verzl- unum hér í bæ. Reykvíkingar, kveikíð ljós gleðinnar í hjörtum blinda fólks- ins. Gleðileg jól. Guðrún Guðlaugsdóttir. Halldór Friðjónsson og Björn Jónsson. Varamenn, Gunnar H. Kristjánsson, Tómas Árna- son, Sigurður M. Helgason og Áskell Snorrason. Bæjarstjóri er sjálíkjörinn formaður nefndarinnar. H. Vald. Félagsheimili í bún- ingskiefum fþrótta- vallarins í vetur í VETUR verður starfrækt nokk- urs konar félagsheimili í búnings- klefum íþróttavallatins á Melun- um, en eins og kunnugt er, fóru fram á s.l. sumri gagngerar breyt ingar á húsakynnum vallarins, þannig að þau eru nú öll hin vist- íegustu. Það er sérstök nefnd, skipuð fulltrúum frá íþróttabandalági Reykjavíkur, stjórn íþróttavall- arins og Skautafélagi Reykjavík- ur, er hefur forgöngu um starf- semi þessa. Hefur verið ákveðið, að fyrst úfh sinn verði heimilið opið þrisvar í viku, mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 5—10 síðdegis. Gefst mönnum þá kost- ur á að leika borðtennis, fara í .gúfúböð, tefla, spila á spil, lesa bæði innlend og erlend íþrótta- blöð svo og fræðandi tímarit og bækur um íþróttir. Ennfremur verður svo starfrækt skautasvell á íþróttavellinum í vetur þegar veðurfar leyfir. Þess skal getið, að starfsemi þessi er ekki eingöngu ætluð með limum íþróttafélaganna, heldur er hvei-jum þeim, er þess óskar, heimill aðgangur og afnot af heim ilinu. • Ætti þetta því að vera kær- komið tækifæri öllum þeim, er vilja eyða einhverju af tómstund- úm sínum á ódýran og hollan hátt. „Þrír skálkar" sýnd- ira HÚSAVÍK, 3. des. — íþrottafé- lagið Völsungur, Húsavík, frum- sýndi s.l. laugardag gamanleik- inn „Þrír skálkar“ eftir Gandrup fyrir fullu húsi og við hinar beztu undirtektir leikhúsgesta. Leikendur og leikstjóri, frú Úngibjörg Steinsdóttir, voru ákaft hyllt að leikslokum. Þetta er söngleikur og fer Jör- undur Ármann Guðlaugsson með aðalhlutverkið, Kurt söngvara og þykir hann gera það vel. Þetta er í fyrsta skipti sem hann kem- ur fram opinberlega síðan hann var tólf ára, en þá söng hann oft á skemmtunum í Húsavík og einnig söng í barnatíma útvarps- ins og útvarpið mun eiga söng hans á plötum. Bertel umferðarsala leikur Þor- grímur Sigurjónsson, Diðrik skottulækni Aðalsteinn Karls- son, Óla málara Bjarni Sigurjóns- son, Mettu, Dagný Guðlaugsdótt- ir, Núrí, Sigríður M. Arnórsdótt- ir, Marten Tippenrup, Helgi Bjarnason. Aðrir leikendur eru Halldór Ingólfsson, Guðbjartur D. Guðlaugsson, Hreiðar Bjarna- son, Ingimundur Jónsson, Stein- unn Valdemarsdóttir, Eysteinn Sigurjónsson og Haraldur Jó- hannesson. Auk þess dans- og veizlufólk. Undirleik annaðist Steingrímur Birgisson. Þetta er þriðji veturinn, sem Húsvíkingum gefst kostur á að sjá sjónleik, undir leikstjórn frú Tngibjargar Steingrímsdóttur. — Fyrsta veturinn dvaldist frúin hjá Leikfélagi Húsavíkur, en í vetur og fyrravetur hefur hún verið á vegum héraðssambands Þingey- inga og leiðbeint ungmennafélög- um við að setja upp sjónleiki og hefur það orðið mikil lyftistöng leiklist og félagslífi í sveitunum. í flestum ungmennafélögunum á svæði því, sem Ingibjörg hefur starfað á, hefur verið eða verður sýndur a.m.k. einn sjónleikur. í kvöld er fjórða sýningin á „Þrem- skálkum" og seldust allir aðgöngumiðar að þeirri sýningu á svipstundu, eins og að hinum fyrri. — Fréttaritari. Reykvikingar takið eftir Amerískar REGNKAPUR Aðalstræti Þú sem ætlar að Eyrja að baka Blessuð láttu fyrir þér vaka Bezt er kaka Bezt er kaka með LILLU LYFTIDUFTI 1 MARKtJS Eftir Ed Dodd V OH. PLEASB PUT ME DOWMf. IVE GOT TO PEACN MAPK TfíAfL' J'~' i 1) Sirrí ætlar að hlaupa þvert ^yfir leiksviðið. 2) — Nú vildi ég biðja eirt- hverja fallega stúlku að koma hingað upp og hjálpa mér. 3) — Já, Sirrí! Ö 4) — Sleptu mér. Ég verð að fj komast áfram til að hitta Markús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.