Morgunblaðið - 03.01.1953, Síða 7

Morgunblaðið - 03.01.1953, Síða 7
í Laugardagur 3. janúar 1953 MORG UIS BLAÐIÐ dlið auðgast að nýjum orðum meðan gömul orð týnast af vörum þíóðarinnar TUNGAN, sem við tölmn, ís- | lenzkan, er á sífelldri hreyf- ingu. Vi® tiikum upp á hverju ári mikinn fjölda nýyrða og gildir bað ekki hvað sízt á þessum síðustu áratugum þeg- ar aiit þjóðlíf okkar hefur tek íð g-erbreytingum. Samtímis þessu er hætt við að með tím- anum falli gömul orð niður og gleymist alnienningi. Fólk hef-1 ur ekki börf fyrir hciíi á verk-! færum, sem það er hætt að nota eða heiti á vinnuaðferð, sem fyrir löngu er orðin úrelt. En því skulum við ekki gleyma, að stofn tungunnar helzt óbreyttur þrátt fyrir t þetta. Hin nýju orð, hvaðan sem hau koma og hvernig sem þau myndast, verða að beygja sig undir lögmál tungunnar, ' verða að taka íslenzkum orð-| beygingum og falla undir hin ókönnuðu lögmál, sem við nefnum málsmekkur. Þannig komst dr. Sveinn Berg- ' sveinsson að orði, er ég hitti hann J um daginn. En hann hefur flest-j um öðrum mönnum betur kynnt sér nýmyndarnir íslenzkrar1 tungu, er hann hefur unnið að samningu hinnar svokölluðu ný- | yrðabókar. Hann sagði mér áður | en við tókum að rabba frekar' um myndun nýyrða í tungunni, hvernig orðabók sú er hann vinn- ur að er til komin. FYRSTA HEFTI NÍVRÐA- BÓKAR VÆNTANLEGT — Upptökin að nýyrðabókinni sagði dr. Sveinn, eru hjá Birni Ólafssyni menntamálaráðherra, er kom fjárveitingu til söfnun- ar nýyrða inn á síðustu fjárlög. Var stjórn Orðabókar Háskólans falið að annast framkvæmdir, en hún fól mér aftur að safna ný- yrðum og sjá um útkomu bók- arinnar. Hóf ég verkið í febrúar- mánuði s. 1. og mun nú ekki líða á löngu þar til fyrsta hefti henn- ar kemur út. Kemur það vænt- anlega út alveg á næstunni. — Hvernig er nú efnið í þess- ari nýyrðabók? — Hún verður í fyrsta lagi fræðiorðabók, þar sem teknir eru saman kaflar með flestum orð- um og orðatiltækjum, sem nöt- uð eru í einni fræðigrein eða iðn- grein. Um leið verður hún sam- heitaorðabók, þar sem Undir hverju uppsláttarorði verður upptalning á öðrum orðum sömu merkingar. Og í þriðja lagi er ætlunin að láta hvérjum kafla fylgja lista yfir útlend orð, svo að þeir sem þau þekkja géti fljótlega fundið íslenzka orðið. ORÐ I HEILUM FRÆÐIG REINUM — Hvernig er ætlunin að skipta verkinu niður í kafla eftir fræði- greinum? — í þessu fyrsta hefti, sem er væntanlegt á næstunni, eru nokkr j ir kaflar. Sá fyrsti fjallar um' eðlisfræði, raftækni, efnafræði og kjarneðlisfræði. Annar kafl- inn fjallar um bifvélafræði, en það er fræðigrein, geysilega orð- mörg, sem ekki var til fyrir nokkrum árum. Þriðji kaflinn fjallar um heimspeki, sálfræði, rökfræði o. s. frv. Fjórði kafl- inn fjallar um lífeðlisfræði, erfðafræöi o. s. frv. Siðast verð- ur svo kafli yfir almenn orð. En alls eru uppsláttarorðin í þessu( fyrsta bindi nýyrðabókarinnar yfir 0000. ORÐMYNDUN SÍOASTA ALDARFJÓRÐUNGS — En hvað er eiginlega átt við með nýyrði. Hvað mega orðin1 vera elzt til þess að komast í ný- yrðabókina. — Mér hefur þótt rétt að tak- marka heitið yfirleitt við þau orð Im'ðu þarf áht&gcmn á Almenningur skcspar Hugleiðingar yfir söfnun nýyrða. ogra man ssn nýyrði sem eru ekki í íslenzk-dönsku orðabók Sigfúsar Blöndals. — Blöndals-orðabókin er tvímæla- laust stærsta og mérkasta orða- bók, sem hingað til hefur kómið út um íslenzkt mál. Hún kom út á árunum 1920—’24. Eftir það hafa verið í íslenzku þjóðlífi þeir stór- kostlegustu umbrotatímar, sem um getur í sögu landsins. Alge: bylting og nýsköp.un hefur orðið í atvinnulífi þjóðarinnar, véla- menning hefur hafið innreið sína hér á öllum sviðum og jafnt hér sem erlendis hefur á saina tlma verið umrót í listum og vísind- um. Ég hef því haft að aðalreglu að taka þau orð, sem ekki finn- ast í orðabók Sigfúsar Blöndals óg eru þau orðin feyki mörg. Að vísu hef ég ekki talið rétt að framfylgja þeirri reglu' strangt. Þar sem ég reyni að hafa kafla hverrar fræðigreinar sem fyllstan, sþá hefur mér oft þótt rétt að taka með orð, þótt þau stæðu í Blöndals-orðabók. I Útfrá þessu snerist talið brátt út urn heima og geima, er ég; spurði dr. Svein, hver nýyrði síðustu ára væru helzt: STOFN TUNGUNNAR STENDUR ÓHAGGAÐUR — Finnst yður að miklar breyt- ingar hafi orðið á íslenzku máli þessa síðustu áratugi örrar þró- unar? — Stofn tungunnar stendur að sjálfsögðu að mestu óhaggaður, þrátt fyrir það, þótt ný orð séu tekin upp. Nýyrðin verða að beygja sig undir lögmál tung- unnar. Innri bygging íslenzkunn- ar á að vera óhaggaður, þótt þessi síðustu ár hafi hlaðizt utan á stofn hennar mikill fjöldi nýýrða. Breyttir þjóðfélagshættir leiða um leið til þess að ýmis eldri orð yfir tæki og vinnuaðferðir falla niður úr málinu og gleymast al- menningi. En það er allt eðlilegt og sakar ekki. BURT MEÐ SLANGURYRÐIN — En hvað segið þér þá um öll þessi útlendu aðskotaorð, sem ekki hvað sízt hafa slæðst hingað á síðustu árum. Geta þau ekki gert tungunni tjón. — Jú, allir góðir íslendingar ættu að taka höndum sarrian gegn bölvuðu hrognamálinu. Þessi svonefndu slanguryrði hafa vei;ið mjög aðgangsfrek á síðari árum. Ef útlendu orðin gætu alveg sam- lagast tungunni, þá sakar e.tiv. ekki þótt þau séu tekin upp og þá mætti kalla þau tökuorð. En þegar það eru útlendar slettur, bjagaðar og ósmekklegar, þá er miður farið ef þau ná að festa rótum í tungunni. KOMA FLEST UPP í REYKJAVÍK EN DREIFAST ÚT — Haldið þér að það sé mikið um slanguryrði hér á landi? — Áreiðanlega of mikið. Ég vildi benda fólki á það, að eittn maður hér hefur safnað ótölu- legum grúa af slanguryrðum í skáldsögu. Það er E'.ías Mar í bókinni Vögguvísa. ! Annars virðist megnið af þess- j um slanguryrðum koma upp i1 Reykjavík. En ungc fólk, sem kemur í heimsókn til borgarinn-1 ar utan af landi er fljótt að læra þau, svo að þau breiðast ört út um landið og mér virðist því nokkuð líkt á komið með þau í öllum landsfjórðungum. ! Dr. Sveinn Bergsveinsson. DANSKAN ER LYMSKULEG Dönsk slanguryrði haía mörg verið lengi lanalæg hér svo sem smekklás, knekkbrauð, marme- lade, pulsa, kúnni, strausvkur, straujárn. Mörg þessara dönsku orða eru orðin svo föst í málinu, að það er erfitt að útrýma þeim. Enda tel ég ef satt skal segja, að danskan sé hættulegri íslenzk- unni að þessu leyti en enskan, vegna þess að hún er okkar tungu skyldári. Og danskan verð ur okkur : þeim mun hættulegri, þar sem það hefur sýnt sig að dönsk orðaskipún og sétningar hafa víða skotið upp höfðinu, enda þótt þau fari ilia í íslenzku tali. En á því vara hienn sig ekki, taka þetta sem góða og gilda íslenzku, ef þeir ékki að- gæta betur. Þannig er danskan lævísari gagnvart máli okkar. ENSK SLANGURYRÐI LÍTT ÞEKKT FYRIR STRÍÐ — Mér virðist nú samt mjög mikið um ensk slanguryrði. Eða finnst yður það ekki líka? — Jú, þau eru á hveriu strái. Ég man, að er ég fór út til Þýzka- lahds til náms fyrir stríð, þá var lítið um ensk slanguryrði. En er ég kom heim eftir 9 ára veru úti 1945, þá var ég furðu lostinn hve mjög þau óðu uppi. En ensk og arnerísk slangur- yrði, held ég að séu það mikið ólíkari íslenzkunni en þau dönsku, að ég álit þáu ekki eins hættuleg. Þau geta þó skemmt málsmekk unga fóiksins. KOMU MED HERNÁM ST .IDÍNU — Hvernig haldið þér nú, að þessi slanguryrði berizt hingað helzt? — Ég er ekki í vafa um, að það sem opnaði þeím fyrst og fremst leið inn í landið var dvöl ensks og amerísks herliðs í landinu á stríðsárunum. Þar að' auki voru amerísk tímarit þá í hverri bóka- verzlun, sáródýr, svo að hver gat kevpt þau stöðugt. Sambandið við meginlandið var slitið svo að viðskipti okkar við enskumæl- andi þjóðir voru algerlega rikj- andi. Kvikmyndir hafa og gert sitt til. Amerískar og enskar kvikmyndir voru að vísu sýndar hér líka fyrir stxíð, en þá oftast með dönskum skýringum. ÍSLENZK ORÐ VANTAR Þá er að athuga eitt, að vöntun okkar á íslenzkum orðum yfir tæki, verknaði og hugtök getur orðið til þess, ef ekkert er að gert, að fólk sjái sér ekki aðra leið færa en að taka upp útlend orð. Ef langur tími líður svo, þá ér hætt við að slanguryrðið fest- ist í málinu, jafnvel" þótt þoð fari ekki vel og getur þá orðið erfitt að bæla það niður aftur. AUGLÝSINGAMÁLIÐ VARHUGAVERT I þessu tilliti hafa auglýsingar í dagblöðunum verið sérstaklega varhugaverðar. — Auglýsendur ýmissa áhalda nota útlenda orðið og þeir virðast ekki þora að taka upp innlend orð af hræðslu við rð það yrði e.t.v. haft að háði, aða að það verði fráhrindandi. Síðan koma viðskiptamennirnir og þora ekki heldur að nota ís- lenzk heiti. Upp kemur gagn- kvæmur ótti kaupenda og selj- enda, sem erfitt er að sigrast á. Ég held að dagblöðin ættu sjálf í þessum tilvikum að láta til sín taka, miklu meira en verið hefur og kyrkja hrognamálið í fæðing- unni. ÞJÓDIN SJÁLF SKAPAR NÝYRÐI — Hvað væri annars fleira hægt að gera til að forðast út- lendu orðin og skapa þá íslenzk orð, sem standast árásir þeirra útlendu? j — Ég vil taka það fram í byrjun, að ég hef ekki trú á stofuorðmyndun, sem tíðkaðist svo mjög hér ekki alls fyrir löngu. Að vísu hafa fáein stofu- orðanna lifað, en þau eru þó miklu fleiri, sem hafa átt sér skamma lífdaga og hafa þá lítið gagn gert. Ég er eindregið þeirr- ar skoðunar, að alménningur Sjálfur eigi að mynda orðin yfir þau áhöld, sem hann notar og þau vihnubrögð sem hann beitir. En ég held, að það mætti hafa samtök um að hjálpa til við orð- myndunina og forða frá mistök- um. GLÆDA ÞARF ÁHUGA UNGLINGA Á FÖGRU MÁLI Annars má bæta málið á marg- an hátt og þá vinna að því alvég frá rótum. T.d. með því að gláeða áhuga ungu kynslóðarinnar fyrir fallegu og kjarnyi'tu íslenzku máli og aldrei slaka á að benda á hve mikill þroski og menntun það er í sjálfu sér að afla sér orðaforða og ná góðu valdi á móðurmálinu. Því að það er eins með ræktun málsins og konan segir, að það er ekki nóg að vinna ást mannsins í upphafi einu sinni, heldur á hverjum degi í hjónabandinu. MARGIR IIAFA ÁHUGA Á NÝYRÐASÖFNUN Nú vill það svo til, að í öllum hinum stærri fræði og atvinnu- greinum eru fíeiri og færri menn, sem áhuga hafa á orð- myndun, eða menn sem finna til þess að þeir skúli ekki hafa heiti á ýmsum tækjum og vinnu- brögðum. Þessir menn geta gert tungunni mikið gagn með því að hefja samstarf um ræktun máls- ins. Fyrst þurfum við að fá orðm fram, þau þurfa að myndast * samtölum manna á milli og ýmis; félagasamtök þyrftu síðan a5 kjósa málhaga menn til a?í vinna að orðmyndun og orða- söfnun í sinni grein. i SAIMSETNING VERDUR AÐ VERA STUTT Algengasta aðferð við orð'- myndun er samsetningaraðferð-- in. Hún er að vísu leiðigjörn„ þegar of langt er gengið, en hún hlýtur þó alltaf að vera notuðf öðrum þræði. En þá ráðlegg- ingu vil ég gefa, að samsettu orð- in séu stutt. Það er frumskilyrði fyirr að þau lifi. i MÉRKÍNG ELDRI ORÐA VÍKKUD Þá er það útfærslu-aðferðin. Hún er fólgin í því að merking gamals orðs er látin víkka og ná yfir svið nýs hugtaks. Þetta er ekki hið sama og „að vekja upp drauga", þ.e. að taka fornaldar- orð, nú útdauð og glæða þau til lífsins. Nei, hér er um að ræða„ orð, sem til er og notað í dag- legu tali, en svið þess þröngt. T.d. að það sem í raffræðmni heitir á dönsku „batteri" er kall- að á íslenzku hlaða eða rafhlaða Þessi orðmyndun er vandasönv en yfirleitt er þetta bezta áð- ferðin. Þegar málsnjallir menn finna einhverja líkingu milli þess gamla og þess nýja, þá verða beztu orðin til. A ENDINGAR EUU ^ MÍSGÓÐAK Þegar nýyrði eru ekki samsett. ættu rnenn að gæta að því að orðin eru misjafnlega lífvænleg: eftir því hvaða ending er höf® , við þau. Ef um er að ræða ger- andheiti í karlkyni er lífvæn- legra að nota endinguna ir en gömlu endingarnar all, ill og till. Mörg hvorugkyns orð, sem enda á i eru góð. Það hefur stundum gefizt sæmilega að nóta útlenda stofna með íslenzkum endingum, t.d. berkill í flt. berklar og orðið víra og víru-sjúkdómur svo nokkuð sé nefnt. En hér er betra að hafa hóf á öllu. i- | Nýmyndun orða þarf að ef)a til þess að vinna sigur á útlendu slanguryrðunum. Til þess þurfa ! forráðamenn félaga, fyrirtækja, skóla og annarra menningar- stofnana að vera samhentir og slaka hvergi á kröfunni óm hreint íslenzkt mál. 1 i ékólarnxr — MIDSTÖ&VAR TUNGUNNÁR Það hefur tíðkazt of mikið i skólum hér á landi, að jafnvel útlendar kennslubækur séu not- aðar í ýmsúm iræðigreinum. — Þetta er algérlega ófært, því að skólarnir eiga öllum öðrum stofnunum fremur að vera mið- stöð íslenzkrar tungu. Kennar- arnir eiga að leggja áherzlu á.að rita kennslubækur á íslenzku og þeim ber þjóðleg skylda til að taka upp í hverjum tíma ög hverja stund markvissa baráttu til að hreinsa tur.guna af útlend- um slar.guryrðum. i >- Th. Símanúmer vort verður framvegis Hárgreiðslustofa Vesturbæjar, Guðfinna Ingvarsdóttir, Grenimel 9. (Vinsamlegast géymið auglýsinguna).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.