Morgunblaðið - 03.01.1953, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 3. janúar 1953
Rafmagnstakmörkun
Álagslakmörkun clagana 4. jan.—11. jan.
frá kl. 10,45—12,30
Sunnudag 4. jan. 5. hverfi
Mánudag 5. jan. 1. og 3. hverfi
Þriðjudag 6. jan. 2. og 4. hverfi
Miðvikudag 7. jan. 3. og 5. hverfi
Fimrntudag 8. jan. 4. og 1. hverfi
Föstudag 9. jan. 5. og 2. hverfi
Laugardag 10. jan. 1. og 3. hverfi
Álagstakmörkun að kvö'ldi frá kl. 18,15—1
Sunnudag 4. jan. Engin
Mánudag 5. jan. 4. hverfi
Þriðjudag 6. jan. 5. hverfi
Miðvikudag 7. jan. 1. hverfi
Fimmtudag 8. jan. 2. hverfi
Föstudag 9. jan. 3. hverfi
Laugardag 10. jan. 4. hverfi
Síraumurinn verður hofinn skv. þessu þegar og að svo
miklu leyti sem þörf krefur.
SOGSVIKKJUNIN
Happiirætti Haskóla íslands
Sala happdrættismiða er hafin.
Vinningar eru 10.000, samtals 5.040.000 kr.
Vinningar eru 70% af andvirði seldra miða.
Þriðja hvert númer hlýtur vinning á árinu.
Vinningar eru tekjuskatts- og
tekjuútsvarsfrjálsir.
Dregið verður í 1. flokki 15. janúar.
Ath.: Viðskiptamenn hafa forgángsrétt að númerum sín-
um til 10. janúar. Eftir þani' tíma er heimilt að
selja þá öðrum.
Umboðsmenn í Reykjavík:
Arndís Þorvaldsdóttir kauplc., Vesturgötu 10, sími 82030.
Bókav. Guðm. Gamalíelssonar, Lækjarg. 8B, sími 3263
Bækur og ritföng, Austurstræti 1, sími 1336.
Bækur og ritföng (Kristján Jónss.), Laugav. 39, sími 2946.
Elis Jónsson, Kirkjuteigi 5, sími 4970.
Helgi Sívertsen, Austurstræti 12, sími 3582.
Maren Pétursdóttir, frú, Laugaveg 66 (Verzlunin Happó),
sími 4010.
Pálína Ármann, frú, Varð.irhúsinu, sími 3244.
Umboðin í Langholtshverfi og Kópavogshreppi hafa verið
lögð niður. Númerin þaðan verða afgreidd á Lauga-
veg 39 (Bækur og ritföng).
Umboðsmenn í Hafnarfirði:
Valdemar Long, Strandgötu 39, sími 9288.
Verzl. Þorvalas Bjamasonar, Strandg. 41, sími 9310.
Kínversku
RfOTTiJRNAR
og
TEPPSM
kGITEtfSB
aftur
til
B8ERIIMG
UnglirLg
vantar til að bera út Morg-
unblaðið til kaupenda í
Sörlaskjóli.
Sörlaskjcl
Við scnduin biöðin beim til
barnanna. — Talið strax við
afgreiðsiuna. — Sími 1600.
Bifreiðaeigendur
athugið!
5 manna bifreið óskast til
leigu í vetur eða lengur. —
Verður að vera í góðu lagi.
Kaup koma einnig til greina
ef greiðsluskilmálar eru
góðir. Lysthafendur leggi
nöfn sín inn á afgr. Mbl.
fyrir hádegi á mánudag, —
merkt; „Áreiðanlegir —
587“. —
hllur kassi
á kvöfdi
om t>»HTi -M=>m
auglýsa í
Morgunblaðmu
Eldhúsvaskar
Nýkómnir tvöfaldir sænskir stálvaskar, 3 stærðir.
J/óliannóóon mi tk U-
Bergstaðastræti 52 — Sími 4616
5KARTGRIPAVERZLUN
'rf * »tí K A 0 S T 0 Æ T I *
. ............■■■ ■ /________________
Cuðjón Jónsson bóndi, Kaldbak
Fæddur 1. október 1864.
Dáinn 7. desember 1952.
Minning
KÖLD gola skammdegisnætur-
innar blæs af hafi. Tigin og ris-
mikil fjöll standa vörð um vík-
ina og teygja tindana mót dimm-
bláum himni.
Öldungurinn stendur á bæjar-
hlaðinu og horfir út í rökkrið.
Þannig hefur hann árum saman
litið yfir umhverfið og lofað guð
sinn að loknu verki hins liðna
starfsdags. í kvöld, sem endra-
nær heldur hann háttum sínum.
Æðaberar vinnulúnar hendurnar
ganga kunnuglega frá öllu. Öld-
ungurinn gengur til hvílu og
felur önd sína drottni. Að morgni
næsta dags er hann allur.
Guðjón í Kaldbak er dáinn.
Helfregn hans barst mér á öldum
ljósvakans eins og hljótt and-
varp frá heimahögum. Hinir
sterku stofnar hverfa þaðan hver
af öðrum. Hví drúpir nú byggð-
in. — Hvort munu hinir ungu
sprotar, sem upp vaxa, öðlast
sama styrkleik til starfa og þeir,
sem ólust upp í ljósaskiptum 19.
aldarinnar, þegar rofa fór myrk-
ur miðaldanna.
í lítilli vík milli hárra fjalla
stóð býli Guðjóns. Þar leit hann
fyrst ljós dagsins. Þar dvaldi j
hann langa og starfsama æfi og
þar hneig hann að hinsta beði.
Þegar mér nú verður hugsað til
Guðjóns, stendur hann í vitund
minni sem meitlað svipmót þess
umhverfis er ól hann. Brúnimar
mikilar og svipmiklar eins og
hamrarnir. Röddin ákveðin og
sterk eins og brimið, sem knýr
flúðir og sker. Svipbrigði augn-
anna blítt eða strítt eins og blá-
fjallablær eða Norðurhafsnépjan.
Og nú, þegar hann er horfinn,
þá er sem í hinni sérstæðu nátt-
úru Strandanna hafi eitthvað
brostið. Hann gaf umhverfi sínu
líf og fyllingu.
Heimalandsmótið var rikt í
svip hans og eðli. Hvern dag frá
því Guðjón _gat lagt hönd að
verki, vann hann með atorku
hins ósérhlífna manns. Jafnframt
því að vera verkmaður mikill,
var hann mjög bókhenigður og
mun sá þáttur í eðli hans hafa
auðveldað baráttuna við ein-
angrun og illt árferði. í skugga
skammdegisins, við bjarman frá
lýsislampanum, naut hann þess
að lesa rit hinna árvöku íslend-
inga. Hugurinn fylltist hrifningu
og baráttukjarkurinn óx. En það
voru einmitt hann og aðrir siíkir,
sem sköpuðu þann straumþunga
fjöldans, er var bakhjallur fram-
varðanna og færði sigur að lok-
um.
Starfsdagur Guðjóns í Kald-
bak varð langur, enda lífsstarf
hans mikið. Hann var giftur góðrij
kónu, Sigþrúði S'gúrðardóttur. ’
Þau eignuðust 13 börn og eru 9
þeirra enn á lífi. Þarf ekki mörg
orð um það að hafa, hve mikla
orku þurfti á þeirri tíð að sjá
fyrir svo stórum barnahóp.
Það þurfti kjark og
karlmannslund
að klífa hamar þann.
Þegar ég kynntist Guðjóni, var
hann orðinn bjargálna maður,
börnin vaxin og erfiðleikaárin að
baki. Það vildi svo til, að um
nokkurt árabil lá leið mín oft
um garð í Kaldbak. Þegar dag-
leiðinni var lokið um grýttar og
torsóttar strandir var þar gott
þreyttum að koma og náttstaðar
áð leita.
Ileimilið var hlýtt og aðlaðandi
og þar ekkert til sparað að veg-
farandinn nyti þess bezta, sem
hægt var að bjóða. í svip bónd-
ans fann gesturinn styrk og ör-
yggi fjallanna, sem risu að; bæj-
arbaki. í handtökum húsmóður-
innar nákværtni og velvild. Að
moí-gni næsta dags, þegar ferðin
var hafin á ný, þá kvaddi mað-
ur heimilið með eftirsjá,' hlýj-
um minningum og tilhlökkun að
koma þar aftur. Er það trú mín,
að þó byggð strjálist á Ströndum
noiður, þá muni enginn kvíða
þurfi að leggja þar leið sína með-
an byggð stendur í Kaldbak og
andi Guðjóns og konu hans vakir
þar í heimilisháttum.
Um starf Guðjóns mætti margt
segja og langt má skrifa, en það
er ekki ætlun mín. Þetta er að-
eins fáorð minning. Lítið lauf-
blað, sem fýkur úr fjarlægð á
fornar slóðir.
Ef til vill verður starf Kald-
baksbóndans ekki stór metið af
sumum, frekar en margra ann-
arra, sem velta grjóti af grýttum
leiðum komandi kynslóða.
En þú, sem kant að leggja leið
þína um Strandir norður. Þegar
þú ferð um skriðuna undir Kald-
bakshorni, sem nú er þér greið-
fær og auðveld umferðar, þá
staldraðu ögn við og littu norður
um víkina. Þar blasir við býli
Guðjóns undir bröttu fjalli, en
gatan, sem þú gengur svo greið-
færa hefur Guðjón rutt.
Hann var brautryðjandi, til
láns þeim, sem eftir lifa.
— ,,í svip hins seintekna bóndans
oq saenfáa verkamanns
og sjómannsins svarakalda
taýr saga og framtíð þíns lands.“.
Þorst. Matthíasson.
• Söfnin •
LandsliókasafniS er opið kl. 10
—12, 13.00—19.00 og 20.00—22.00
alla virka dága nema laugardága
kl. 10—12 og 13.00—19.00.
ÞjóðminjasafniS er opið kl.
13.00—16.00 á sunnudögum og kl.
13.00—15.00 á þriðjudögum og
fimmtudögum.
Listasafn Einars Jónssonar lokað
vetrarmánuðina. —
NáttúrugripasafniS er opið
sunnudaga kl. 13.30—15.00 og á
þriðjudögum og fimmtudögum kl.
14.00—15.00.
VaxniymlasafniS er opið á
sama tíma og Þjóðminjasafnið.
Listasafn ríkisins er opið, þriðju
daga og fimmtudaga frá kl. 1—3
e.h. og á sunnudögum frá kl. 1—4
e.h. — Aðgangur er ókeypis.
Hús éskast
Barnauppeldissjóður Thorvaldsensfélagsins
vill kaupa húseign í góðu ástandi (heLH millíliðalaust)
í Austurbænum. Tilboð, er greini verð, aldur og stærð
hússins og lóðar, sendist fyrir 16. janúar n. k. til Mar-
grctar Rasmus, Snorrabraut 73, eða Svanfríðar Hjartar-
dóttur, Víðimel 44.
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu