Morgunblaðið - 03.01.1953, Síða 11

Morgunblaðið - 03.01.1953, Síða 11
Laugardagur 3. janúar 1353 MORGUNBLABEÐ 11 lliir iig Jóböimti $. Eiríksdóttur Brf. Fædd 21. júlí 1875. Dáin 25. nóv. 1352. MIG furðar það eklcí, að i húmi og friði næturinnar skuli ég minnast þín í þakklæti kæra vin- . kona. í dag var ég við einfalda og látlausa jarðarför, allmíkill hóp- ur vina og ættingja kveðja full- ©rðna konu í hinzta sinn. En Hver var hún þessi yfirlætislausa kona, sem um langa ævi óskaði aldrei að láta mikið á sér bera? Hún var ein þeirra göí'uðu mann- eskja, sem gefur manni ætíð trú á hið fagra og göfuga í inann- lifinu. Þessi sí-miðlandi og géf- andi hcnd, hið auðuga móður- hjarta til allra skyldra sem vanda lausra. í erindi sínu, er Grétar Fells rithöfundur hélt í útvarpi eigi alls fyrir löngu, taldi hann sig sjá hinar fullkornnustu og æðstu sálir í fullorðinni og reyndri konu, ásjóna þeirra Ijóm- aði af tign og fegurð sálarinnar. Þá var Jóhanna, vinkona mín á lífi, og mér fannst þá, að þar fyndi ég hina sönnustu lýsingu á þessari einstæðu kona. Mönn- um geta verið gefin inikil völd, veraldlegur auður og líkamleg fegurð, en hversu mörg okkar- eignumst gullhjarta. Ef til vill varst þú ekki auðug á veraldleg- an mælikvarða, en samt þekkti ég sjaldan neinn ríkari að auði hjartans. Alls staðar hoðin og búin, að gefa og láta í té hjálp- arhönd. Sem húsmóður minnist ég þá þinnar elskulegu nærgætni við mig, unga og he.lsulausa, hver var ekki sá hlutur, sem þú vildir fyrir mig gera, og léíta undir við mig. Engan skyldi undra, þó þá þegar tækist með okkur einlæg vinátta, þrátt fyrir nærri fimmtíu ára aldursmun. Hversu gleði þín og lífsfjör örf- aði mig þá og þín góða og göf- uga sál auðgaði anda minn. Hversu margir voru það, sem þakkað geta þér. Ég minnist svo margs, stórbrotin í gjöfurn, ein- læg og skilningsgóð í hjúkrun og’ gestrisni. Já, þú varst alltaf auð- ug af göfgi mannkærleikans. Hér verður ekkí rakin ævi- saga Jóhönpu Eiríksdóttur, þar sem ég mun ekki þekkja haha svo sem skyldi, enda kynntist ég Jóhönnu ekki fyrr en hún var þegar roskin kona. Mér var að eins kunnugt um, að hún varð ung ekkja eftir fyrrí mann sinn Guttorm Magnússon, er hún átti tvo sonu með, Magnús og Sigurð, er báðir létust uppkomnir, með mjög snögglegum hætti, annar af slysförum. Síðari mann sinn Þórð Jóhannsson, missti hún fyrir um hálfu öðru ári. Með honum átti hún þrjú börn, Jóhönnu og Sig- rúnu, er einar lifa foreldra sína og Jóhann, er lézt uppkominn erlendis, þar sem hann dvaldi til náms náms víðs f jarri foreldr- um sínum, þá öldruðum. Er mað- ur hugleiðir, hversu sorgin heim- sótti oft þessa góðu konu, undr- aðist ég oft, að aldrei skyldi mað- ur finna til beiskju í fari henn- ar. Nei, aldrei sást bilbugur á henni og með aðdáun minnist ég þín, fara um teinrétt -og léttstíg, þessi hæverska og hljóðláta kven hetja, prýdd hvítu hári, aðals- merki þinnar erfiðu lífsreynslu, sem þú ávaxtaðir með meira og meira þroskaðri sál, við hverja þína raun. En ekki var æfi henn- ar öll þyrnum stráð, hún átti yndislegan mann, aldrei styggð- aryrði milli þessara elskulegu hjóna, sem aldrei urðu of gömul, til að sýna hvort öðru blíðuhót, er þau kvöddust og heílsuðust. Friður fylgi ykkur alltaf bless- uð hjón. Vinkona. TiSkyíí-siiitg írá Ábrlaiverksmiijunni h.f. Höfum flutt skrifstofu vora í Borgartún 7 (hús Almenna byggingarfélagsins) Símanúmer vor eru 81797 og 82385 Starfsmenn sem eiga hjá oss orlofsfé gjöri svo vel og framvísi orlofsbókuns næstu daga. Áburðarvcrksmiðjan h.f. Fyrirliggjandi 10 ha. Diesel-bátavél og 10 ha. Ðiesel- Ijósavél. — Ervnfremur 2 ha. benzínvél sambygg, við loftþjöppu. — Utvegum einnig allar stærðir af bátavél- um ásamt vélum tíl iðnaðar. ’éSaar & Skip hJ. Hafnarhvoli — Sími 81140 jó&öljinn og E1 Camposlno Ilr. ritstjóri! ÞJÓÐVILJINN BIRTIR f vin- samle^^giéin um bókaútgáfuna ,,Stuðlaberg“ og bókina „E1 Campesino“, enda þótt blaðið láti hvorugs beiniínis getið fyrir hæversku sakir. Það er rang- hermi hjá b’aðinu,. að þpliidni hafi fylgt* Úrít«?fiW?*íS!Þöði*9leal*',í- ykkur, heivítin ykkar, ókeypis ef þið viljið ekki kaupa". Orð- seuding sú, er fylgdi eintaki því, er Þjóðviljanum var sent, var miklu kurteislegri og stuttorðari. En innræti mannsins, sem úr hinu skrifaða !es, er auðvitað dá- lítill þáttur í siíku kerfi, eins og góður marxisti hefur einu sinni sagt. Af svipuðum ástæðum virð- ist ritstiórn Þjóðviljans komast að þeirri niðurstöðu að „Satans útsendarar eigi heima í Sovét- ríkjunum“. Þetta stendur hvergi í bóklnni. Hún er mestmegnis um þá, sem ráða ríkjum í Sovétríkj- ' unum, að svo miklu leyti sem : hún er ekki skemmtileg sjálfs- | ævisaga manns, sem einu sinni átti sína barnatrú. Þjóðviljinn ætti að fagna því, að E1 Campesino fékk að lifa, í stað þess að ergja sig yfir að hann var ekki „gerður höfðinu styttrí“. Það er staðreynd, hvað sem Þjóðvi1 jinn segir, að margir sleppa lifandi á brott úr Sovét- rikjunum. meira að segja þeir, sem hafa gert þeim ríkjum miklu verri skráveifur og ógagn en E1 Campesino. Hvað segir Þjóðvilj- inn til dæmis um íslenzka línu- veiðarann ,.Brynjólf“ K.O.I., sem sem var tekinn í rússneskri land- helgi nýlega og slapp lifandi? En Þjóðviljinn ætti að reyna að hafa dálítinn hemil á hinum gengdarlausu ofsóknum sínum gegn Sovétríkjunum. Það er raun ar góðs viti, að háðritið Stjórnar- skrá Spvétríkjanna, sem forlag Þjóðviljamanna sendi frá sér á árunum, heíur nú verið tekið úr umferð, efiaust fyrir milligöngu MÍR Reykjavík 30. cDsember 1952 Stuðlaberg h.f. ' y ' * ---------------------- . .■ V. W. Ilótel Atlantic í Stafangri. Aðalveiíingastaðurir-n er í útbygging- unni til hægri. Taft i íorustvsæti WASHINGTON, 2. jan. — Robert Taft, öldungadeildarþingmaður, var í dag kjörinn forustumaður republikanaflokksins á þingi. í HINNI skemmtilegu frásögn Þorvaidar Ara Arasonar í Morg- unblaðinu 18. des., um hátíða- hald nokkurra íslendinga á Só!a 1. desember er smáatriði, sem á- stæða er til að leiðrétta og auka um leið dálitlu við. Þar segir frá því að þénnan dag var verið að kvikmynda Sóla Strandhótel „og þjónaskóla, sem þar hefir staríað“, og urðu hin- ir veðurtepptu íslendingar mik- ið atriði kvikmyndatökunnar. Það er meira í efni um Sóla Strandhótel, en að þar hafi starf- að þjónaskóli. Þar eru að gerast hlutir, sem íslenzkir gestgjafar og hótelfólk mætti gefa gaum að. Um fjöldamörg ár hefir ver- ið búsettur í Stafangri danskur hótelmaður Lund að nafni. Hann átti lengi Sóla Strandhótel, starf- rækti það og hóf til mikils álits. Samhliða því átti hann, og á enn og starfrækir, Victoria hótel í Stafangri, en í ieiguhúsnæði, því að byggingin er eign Bjelllands- bræðra. Fyrir fáum árum gaf Lund Sóla Strandhótel og miklar eignir með því, til þess að þar yrði komið á fót og starf- ræktur Hótelskóli. Af blaðaum- mælum um þennan skóla má sjá, e.ð hann er talinn einstæður á Norðurlöndum og er beinlínis að því stefnt, að menn frá Norður- löndunum öllum stundi þar nám og að skólinn vinni þann- ig jafnframt kennslunni að því að auka kynni og samstarf milli Norðurlandaþjóðanna á javí sviði, er snertir starfsemi gistihúsa og Sr. Jóhansi Kr. Briem sjöiiígyr HVAMMSTANGA, 4. des. — 3. þ. m. var séra Jóhann Kristján Briem, sóknarprestur að Melstað í Miðfirði 70 ára, fæddur 3. des. 1882 í Hruna í Hrunamanna- hreppi, Árnessýslu. Sonur hjón- anna séra Steindórs Briem prests í Hruna, Jóhannssonar Krist- jáns Briem prófasts í Ilruna (f. 27. júní 1817, d. 18. april 1894) Gunnlaugssonar Briem sýslu- manfls á Grund í Eyjafirði (f. 31. janúar 1773, d. 17. febrúar 1834) Guðbrandssonar og konu hans Kamillu Sigríðar, dóttur Rasmusar Peters Hall verzlun- armanns í Reykjavík. Séra Jó- hann lauk stúdentsprófi í Reykja vílc 30. júní 1903 og embættis- prófi í guðfræði við prestaskól- ann 17. júní 1907. Síðan fékkst hann við kennslustörf um skeið. Fyrst sem heimiliskennari í Kaldaðarnesi og síðan kennari við barna og unglingaskólann á Eyrarbakka árin 1907 til 1912. Þar, á Eyrarbakka, kynntist hann konu sinni, Ingibjörgu Jónu (f. 3. sept. 1889) ísaksdóttur verzl- unarmanns í Garðbæ á Eyrar- bakka (f. 7. nóv. 1852, d. 9. júní 1912) Jónssonar. Hínni mestu ágætis og glæsikonu, sem verið hefur manni sínum öruggur sam- starfsmaður og ágætur félagi æ síðan, enda sameinar frú Ingi- björg þá sjaldgæfu eigir.leika að vera í senn stórbrotinn skörung- ur og milt og hógvært valkvendi.! Þann 27. júní 1912 fékk séra Jóhann veitingu fyrir Melstað í Miðfirði, vígður 28. sama mán- aðar og hefur gegnt því embætti síðan, við stöðugt vaxandi virð-' ingu og vinsældir sóknarbarna ginna. Melstaður í Miðfirði, eða Mel- ur í Miðfirði, eins og hann heitir ( að fornu, er eitt af þekktustu ( höfuðbólum islenzkrar kristni.; Þar sátu á liðnum tímum sumir | þeir kirkjuhöfðingjar, er hæst ber í sögunni, svo sem: Björn1 Jónsson Arasonar byskups, 1534 ( —1550 og Arngrímur Jónsson lærði, sem hélt staðinn 1591— 1611, sem hélt staðinn 1591— margra annarra. Það var því ekki heiglum hent að setjast þar að, en þeim hjónum, séra Jóhanni og frú Ingibjörgu hefur tekist það með þeim. ágætum, að hvergi hefur slaknað á um rausn, höfð- ingsskap og kennimannleg störf. Þau hafa til skamms tíma búið rausnarbúi á höfuðbólinu er er gestrisni þeirra og glæsibrag við- brugðið. Þau eiga fjögur upp- komin börn. í starfi sínu er séra Jóhann „hinn góði hirðir“, mildur og Framh. á bls. 12 þjónustu við ferðafólk. Er senni- lega fuil ástæða til þess fyrir ís- • lenzka aðila, er að þessum mál- um starfa að veita Hótelskólan- um á Sóía athygli og koma mönn- um þangað til náms. Um Lund gestgjaía eru sagðar margar scgur, um dugnað hans. í starfi sínu. Ein er sú, að eitt sinn var hann kynntur Hákoni Noregskoifungi, er hann var á ferð í Stafangri og um Jaðar. Var konungi tjáð að Lund væri danskur og hefði staðið sig vel í starfi í Noregi cg komist þar vel áfram. Konungur lé-t orð falla um þetta við Lund og komst þannig að orði, að það gleddi sig mjög að heyra, að Lund hefði — sem landi sinn — „gert það gott“ í Noregi. „Þökk, sömuleiðis — það finnst mér að yðar hátign hafi líka gert“, svaraði Lund. Er sagt að konungi hafi þótt svarið gott. Það er ef til vill ekki ástæðu- laust að nefna, að það er fleira varðandi hótelmál, heldur en Hótelskólinn á Sóla, sem svo er ástatt um í Staíangri, að það væri ástæða til fyrir þá, sem hafa áhuga fyrir ferðamálum á3 kynna sér það. Stafangur er sem kunnugt er álíka bær, um fólksfjölda, eins og Reykjavík. Lengi vel þreifst hótelbúskapur illa í Stafangri. Voru þar aðallega tvö hótel Victoria hótel og Grand hóteL Hið síðarnefnda brenndu Þjóð- verjar að skilnaði 1945. Var þá hótelmálum borgarinnar komið í mesta óefni, því að nú bar það til að járnbrauin frá Osló — Suðurlandsbrautin — var full- gerð, og að á Só!a, örskammt frá Stafangri, var orðin roikil flug- stöð og miklu meiri en fyrir stríðið. í nágrénni Stáfangurs voru að sönnu góð hótei, svo sem Sóia Strandhótel og Vista hótsl, en Stafangurbúar töldu að mikiíla umbóta væri þörf innanbæjar. Var því hafin bygging nýs hótels. í miðri borginni, við Breiðavatn- ið örskammt frá járnbrautar- stöðinni. Hið nýja hótel tók til starfa í sumar sem leið og hlaut nafr.ið Hótel Atíantic. Hótel Atlantic er talið vera eitt meðal hinna bezt búnu hótela í Noregi. Væri sennilega nokkurs vert fyrir þá, sem bera hótelmólin hér í Reykjavík mest fyrir 'brjósti að kvnna sér að- gerðir Stafangursbúa í slíkura málum. Það er um fleiia en fólksfjölda, sem segja má,- nð nokkuð sé líkt ákomið um þess- ar tvær borgir, Stafangur og Reykjavík. Það er enginn vansi að því að líta í kringum sig til athugunar og eftirbreytni, ef því er að skipta. Það er ekki - eingöngu s;m bygging, að Hótel Atlantis irun vera athugunarvert. Það er einn- ig fróðlegt að kynnast hvaða stcðir haía runnið undir að koiTía því upp, því að hótelið mun hpfa orðið nokkuð dýrt á norsKan mælikvarða, og hlutaðeigandi að- ilar hafa víst horfst í augu yi3 að leggja fram fé og afskrifa þsð eftir þörfuín til að tryggja fyrirtækið til frambúðar. Á, G. E.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.