Morgunblaðið - 12.05.1953, Page 7
Þriðjudagur 12. maí 1953
MORGUNBLAÐIÐ
7
l
Heimsóknin til Islands
leyasti atburðurinn í
undursam-
lífi okkar
EITT DÆM! AF OTAL
UM ÓSANNINDI
Stutt samtal við f innska óperustjórann
Sulo Raikkönen
í KVÖLD, um miðnættið, heldur finnski óperuflokkurinn heim-
leiðis, eftir tseprar viku dvöl hér á landi. Hefir hann haft alls
fimm sýningar í Þjóðleikhúsinu á hinni vinsælu finnsku óperu,
„Österbottningar“, sem hefir vakið mikla hrifningu leikhúsgesta.
Er óhætt að segja, að koma hins finnska listafólks er meðal merk-
ari listaviðburða höfuðborgarinnar um langt skeið og að heim-
sóknin öll hefir verið eins ánægjuleg og vel heppnuð og á verð-
ur kosið.
Mbl. kom í gærdag að máli við finnska óperustjórann, hr. Sulo
Ra'ikkönen, á skrifstofu þjóðleikhússtjóra og átti við hann stutt
samtal um komu Finnanna hingað.
ÞVÍ MIÐUR AÐ FARA
— Því miður erum við að fara
á morgun — segir hr. Raikkonen,
jþar eð við verðum að leika í
Helsingfors á fimmtudaginn. Und
anfarin vika var ballett-vika í
Helsingfors — hlé á óperunum —
en nú verðum við að taka til á
ný, þar sem við hættum — við
sýningu á óperettunni „Wiener-
folut“ eftir Strauss.
— Hver hafa verið helztu við-
fangsefni finnsku óperunnar í
vetur?
— Við höfum haft margar
óperur í takinu, ítalskar, þýzkar,
rússneskar og franskar. T. d. sýn-
um ’fið um þessar mundir auk
„Wienerblut“, óperurnar Carmen,
Rakarinn frá Sevillia, La Travi-
ata. Innan skamms rhunu svo hefj
ast sýningar á nýja finnska ballett
inum „Pessi and Illusia" við
músik eftir Ahti Sonninen. Hann
var frumsýndur í Helsingfors
fyrr í vetur og vakti mjög mikla
athygli, var sýndur 40 sinnum
fyrir fullu húsi.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ —
LJÓMANDI GOTT
— Hvað finnst yður um þjóð-
leikhúsið okkar?
— Það er ljómandi, hlýlegt og
viðkunnanlegt og framúrskarandi
gott fyrir hljóminn í söng og
músik. Okkur hefir fundizt til
am, hve ágætir áheyrendur ís-,
lendingar eru. Auðvitað hafa þeir j
átt erfiðara með að njóta til fulls
hinnar finnsku óperu, vegna þess
að hún var flutt á móðurmáli
okkar, sem þeir ekki skilja orð
í, en okkur finnst við samt hafa
getað fundið, að áheyrendur okk-
ar hér hafi skilið í henni mein- {
inguna, hina djúpu tilfinningu,1
sem þetta finnska þjóðlega verk
felur í sér.
ÍSLAND MÁ EKKI GLEYMAST
— Þekkið þið Finnar nokkuð til
íslenzkrar tón- og leiklistar?
— Því miður hefir það verið
allt of lítið til þessa. En við von-
um, að þessi heimsókn okkar
megi verða upphafið að auknum 1
menningarlegum kynnum milli
Islands og Finnlands. Þjóðleik-
hússtjóri ykkar, Guðlaugur Rós-
inskranz, hefir gert mikið til að
stuðla að þess konar kynnum og
vildi ég þakka honum sérstaklega
fyrir prýðilega samvinnu og á-
huga þann og dugnað, sem hann
hefir sýnt í framkvæmd þessarar
heimsóknar okkar til Islands.
Hún var ýmsum erfiðleikum
bundin vegna þess hve fsland er
fjarlægt okkur. Það voru margir,
sem sögðu við okkur eitthvað á
þá leið, að það tæki því varla að
fara með finnskan óperuflokk til
íslands —- það væri of kostnaðar-
samt, of erfitt — í of mikið ráð-
izt. En ég sat við minn keip. Við
förum árlega í heimsókn til hinna
Norðurlandanna, sérstaklegá höf-
um við haft náið samband við
Svíþjóð, þ. e. hún er næst okkur,
svo að við eigum þar auðvelt um
vik. En ísland er langt í burtu og
íslendingar eru lítil þjóð — en
það er éinmitt þessvegna m. a„
að hún er „merk þjóð og hefir
mikilvægu hlutverki að gegna í
norfænni samvinnu. Island má
ekki gleymast — og því verður
ekki gleymt.
EINS OG HEIMA HJÁ OKKUR
— Hafði nokkur meðal finnska
listafólksins komið hingað áður?
— Enginn, nema ég, sem kom
Sulo Ra’ikkönen
hingað s. 1. nóVember til samn-
inga við Þjóðleikhúsið um komu
óperuflokksins hingað. Þá var
skammdegi yfir íslandi, og dag-
arnir sem ég dvaldi hér voru
dimmir og drungalegir. Mér lá þá
stundum við að örvænta um, að
orðið gæti af þessari íslandsför
finnsku óperunnar — en síðan
birti til og hingað erum við kom-
in og það verður með klökkum
hug, sem við syngjum í síðasta
skipti ,,Österbottningar“ í Þjóð-
leikhúsinu í kvöld. Hver og oinn
meðal finnska listafólksins hefir
átt þess kost að búa á íslenzku
heimili. — Við höfum verið hér
eins og heima hjá okkur og alls
staðar mætt hlýju og vináttu —
vináttu, sem við höfum fundið,
að ekki er tilgerð.
MEÐAL ÞESS UNDUR-
SAMLEGASTA
— Og hvað finnst yður um ís-
lénzka vorið?
— Eg veit, að við höfum ekki
séð ísland í sínu fegursta vor-
skrúði. Það hefði verið ennþá
skemmtilegra að geta komið hing-
að í júní- eða júlímánuði, en það
var því miður rtieð öllu ómögu-
legt. En ég held samt, að við
höfum séð eina dásamlegustu hlið
ina af íslandi, en það voru Þing-
vellir, eins og þeir voru í gær er
við Finnarnir komum þangað. —
íslendsferðin, segir hr. Ra'ikkönen
að lokum, verður í hugum okkar
meðal þess undursamlegasta, sem
við höfum lifað — Þingvellir hið
undursamlegasta í Islandsferð-
inni.
sib.
*
BEZT iÐ AICLYSA
í MORGUNBLAÐINU
VÍÐA í sveitum landsins þykir
hálf Ijótt að nefna lygina bóta-
laust. Hún hefir lengi borið nafn-
ið ,,Tímasannleikur“. Sýnir það
hið almenna álit,.að Tíminn, blað
Framsóknarflokksins sé blaða
gjarnast í því að breyta sann-
leikanum og segja frá á öfuga
leið.
Mér kom þetta í hug, þegar ég
sá frásögn Tímans af kosningu
í Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
á nýafstöðnum landsfundi.
Hann segir svo frá, að fundar-
mönnum hafi verið það eitt leyft,
að klappa fyrix- mönnum, sem
áður voru og þar með hafi kosn-
ingunni verið lokið.
Þetta er gagnstætt sannleikan-
um eins og flest annað í Tíman-
um. Þessi kosning fór fram eins
og nú skal sagt: Á fundi voru
mikið á 5. hundrað manns og því
auðsætt að kosning tæki langan
tíma, en komið að lokum þess
tíma, er fundur gat staðið. Þeir
fimm menn, sem úr miðstjórninni
áttu að ganga, njóta almennra
vinsælda í flokknum og vissu
allir, að þeir yrðu tvímælalaust
endurkosnir. Því var það, að einn
fundarmaður, Jón Pálmason
alþm. flutti munnlega tillögu um
það, að þeir væru allir endur-
kosnir með opinberri atkvæða-
greiðslu. Hann tók fram, að hann
neitaði lófaklappi og væri ekki
ánægður með samþykkt sinnar
tillögu ef nokkur mótatkvæði
kæmu fram.
Fundarstjórinn, Pétur Ottesen
alþm. bar síðan tillöguna upp og
komu þá fram örfá mótatkvæði.
Taldi fundarstjóri þá rétt, að
fram færi skrifleg' kosning. En
margar raddir töldu hana með
öllu óþarfa.
Kvaðst Pétur Ottesen þá leita
atkvæða að nýju. En ef einhver
mótatkvæði kæmu fram gegn
þessari kosningaaðferð, þá myndi
hann láta fara fram skriflega
kosningu.
Var nú tillaga Jóns Pálmasonar
borin upp og atkvæði talin. •—
Reyndust 427 vera með tillögunni
en enginn á móti.
Hvað mundi nú Tímanum
ganga til að flytja ásannandi um
þeta einfalda mál?
Ekki er það af misskilningi, því
áreiðanlega hafa mennirnir vitað
hið rétta. Málið var ekkert leynd-
armál Sjálfstæðismanna. Mörg
hundruð fundarmenn vissu og
tóku þátt í því, sem gerðist.
Varla dettur Tímanum í hug,
að þeir auki álit sitt með slúðri
sínu hjá því fólki, sem veit hið
réttá. Nei, það var annað, sem
að baki liggur. Annars vegar vilj-
inn til að segja heldur rangt frá
en rétt og hinsvegar einkum það,
að villa um fyrir fáfróðu fólki
og trúgjörnu, sem er svo illa sett,
að sjá aldrei önnur blöð en Tím-
ann. Því miður er undra margt
af slíku fólki víðsvegar í okkar
strjálbýla landi. Það er þetta fólk,
sem „Tímasannleikurinn“ er ætl-
aður og það er þetta aumingja
fólk, sem veit ekki betur og tekur
allt slúðrið gott og gilt.
En þeir, sem efast eitthvað um
það, hvílík ógrynni er af „Tíma-
sannleik", sem flutt er út um
landið á kostnað þeirra, sem~eiga
S. í. S. og undirdeildir þess, þeir
geta af þessu einfalda dæmi, þar
sem 4—500 vitni erti til staðar,
gert sér grein fyrir því, að eigi
er furða þó rangt sé flutt af því,
sem fáir menn vita um.
Landsfundarmaður.
Einar Ásmundísson
K Mtttréttarl ðgm tðuí
Tjamoigata 10. Sími 5407.
Allskonar lögfræðistörf.
Sala fasteigna og aldpo.
ViðtaUtfmt út at fastelgna*8lta
•ðallege U. ÍO - 12 ih.
, .Knternationar kæliskáparnir
Eru komnir — Tvær stærðir.
Stærð 8,2 kúbikfet á kr. 7184.00
Stærð 10.3 kúbikfet á — 8134.00
,,International“ kæliskáparnir rjúfa strauminn sjálf-
krafa ef spennufall verður. — 5 ára ábyrgð er tekin á
kælikerfinu. „International“ kæliskáparnir fást einnig á
afborgunarskilmálum.
Berið saman útlit, verð og stærð ,,International“ kæli-
skápanna við aðra kæliskápa, sem á boðstólum eru.
Véfa- og raftæk|averz3imin
BANKASTRÆTI 10. --- SÍMI 2852.
Hótel Helgafell, Stykkishólmi
tekur á móti ferðamannahópum.
Borðið og búið á Hótel Helgafell
Afvinna
Röskur maður getur fengið framtíðaratvinnu. Ákvæð-
isvinna gæti komið til greina. Fagkunnátta ekki nauðsyn-
leg. Aðeins reglumaður kemur til greina. Tiilboð, er greini
fyrri störf, og meðmæli ef til eru, sendist afgr. Morgun-
blaðsins merkt: ,,H. H.“—99, fyrir fimmtudagskvöld.
Stálka óskast
Starfssúlka óskast í eldhús Kópavogshæiis, 15. maí
eða næstkomandi mánaðamót.
Uppiýsingaf hjá ráðskonunni.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
I
í s
B
I
i
t 3 ela 4 hurbergja íbúð j
I 1
óskast. — Há leiga í boði. Uppl. í síma 4Ó03 og 80384. ; *.
***>■■*■« ■juv.B.iLUOui •
■ ■'»«a>JtMI» JU*