Morgunblaðið - 19.06.1953, Síða 1
16 síður
40. árgangui
134. tbl. — Föstudagur 19. júní 1953.
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Júnibylting þýzkrn verkomanno vnr vægðnrlnust
bæld niður uf rússneskum skriðdrekusveitum
Kommúnislastjórnin hrópuð
niður af þýzkri aiþýðu
Syngman erfiðuir:
Hleypti út úr fernum
fangabúðum í fyrrinótt
Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter-NTB.
SEOLfL, 18. júní — Embættis-
menn S. Þ. hafa látið svo um
mælt, að tiltæki Syngmanns
Rhees, að sleppa lausum 25 þús-
undum stríðsfanga frá Norður-
Kórcu, geti orðið til að sigla
vopnahlésviðræðunum í strand,
en aðfaranótt fimmtudags lét
forsetinn opna fernar fangabúð-
ir, þar sem geymdir voru and-
kommúniskir fangar, er neita að
hverfa heim til Norður-Kóreu.
AÐEINS ÞÚSUND
HANDTEKNIR
Um hádegi hafði hersveitum
S. Þ. tekizt að hafa hendur
í hári nálega 1000 fanga að
nýju. í þessum fangaveiðum
höfðu þá níu fanganna verið
drepnir, en 16 særzt, þar eð
þeir neituðu skipun hermanna
S. Þ. um að gefast upp.
GERA BÖLVUN
Enda þótt hermenn S. Þ. hæf-
ust þegar handa, ,er kunnugt
varð um tiltæki Syngmans, er
ekki líklegt, að þeim takizt að
Um 25 þúsund fanga leifea lausum hala og
engar líkur til aS þeir náisl
handtaka nema lítinn hluta þess
aragrúa, sem slsppt var lausum.
Yfirhershöfðingi Suður-Kóreu
hefir líka tilkynnt, að hann muni
beita valdi til að koma í veg fyr-
ir allar tilraunir til að hand-
taka fangana að nýju.
Þetta furðulega tiltæki Syng-
mans kom eins og reiðarslag yf-
ir herstjórn S. Þ. í Kóreu. Enda
þótt bandarískir hermenn reyndu
að koma í veg fyrir, að fangarn-
ir kæmust undan, máttu þeir sín
lítils vegna vopnaskorts og liðs-
fæðar.
SKOÐUN EISENHOWERS
OG CHURCHILLS
Eisenhower, forseti, hefir í dag
setið fundi með ýmsum þing-
mönnum vegna þessara atburða
Lítur hann þá alvarlegum aug-
um. Að fundi loknum lýsti Dulles
utanrikisráðherra því yfir, að
bandaríska herstjórnin ætti ekki
sök á þessum atburðum.
Churehill vék líka að málinu
í þingi í dag. Kvaðst hann bæði
forviða og hryggur, en vildi ekki
ræða málið rækilega, meðan
frekari gögn lægju ekki fyrir.
ORÐSENDING S. Þ.
Herstjórn S. Þ. sendi samn-
ingamönnum norðanmanna í
Panmunjom bréf í kvöld. Þar
var því lýst yfir, að allt yrði
gert, sem unnt væri, til að fang-
arnir yrðu handteknir.
VILL EKKI VARNASAMNING
Embættismaður í Suður-
Kóreu skýrði svo frá í kvöld,
að forsetinn hefði ritað Eisen-
hower bréf, þar sem tilkynnt
væri, að Suður-Kórea gæti
ekki tekið tilboði um varna-
sáttmála.
BERLÍN, 18. júní — Vopnlaus verkalýður Austur-
Berlínar gerði dagana 16. og 17. júní uppreisnar-
tilraun gegn ofbeldisstjórn kommúnista í Austur-
Þýzkalandi. Rússneskar stormsveitir, sem fluttar
voru í skyndi til borgarinnar úr nágrenninu og
búnar voru þungum skriðdrekum, bældu uppreisn-
ina vægðarlaust niður. Rússneska hernámsstjórn-
in hefur lýst yfir herlögum í borginni og hand-
tökur þeirra, sem þátt tóku í uppreisninni erU
hafnar. Eru hinir handteknu leiddir fyrir herrétt
og er talið að fyrstu aftökurnar hafi þegar farið
fram. Mótmælaaldan hefur breiðst út til annarra
borga Austur-Þýzkalands. — Atburður þessi er
einstæður. Sú staðreynd að vopnlausir verkamenn
Berlínar skuli voga að sýna mótþróa sinn gegn
lögregluríki kommúnista sýnir ljósar en nokkur
annar atburður örvílnan þeirra yfir versnandi
lífskjörum og kúgun undir handarjaðri kommún-
ismans.
*
Nýtt farmgjaldshneyksli S.I.S.
Hvað hefur orðið af stórgróða
af leigu skipsins Perryville?
S.I.S. mun ekki ætla að endurgreiða í þetta skipti!
að SIS hafi orðið að sæta lakari
leigukjörum vegna þess.
MIKIÐ UM SKIP TIL LEIGU
Til eru ýtarlegar, erlendar
skýrslur um framboð olíuskipa
og skipaleigur á þeim tíma, sem
Perryville var tekið á leigu og
benda þær allar í þá átt að þá
hafi einmitt verið mikið um
skip á lausum kili.
Frh. á bls. 2.
ÞAÐ er upplýst að SÍS hefur í
s. 1. marz-mánuði útvegað Olíu-
féiaginu h. f. skip til olíuflutn-
inga fyrir mjög hátt verð miðað
við það sem skipsleigur gerðust
á þeim tíma. Bendir allt til að
mismunurinn nemi allt að einni
milljón íslenzkra króna og hefur
SÍS cngu skilað af því fé ennþá.
SIS SKYRIR FRA LEIGU
E.S. PERRYVILLE
SIS skýrir svo frá í skýrslu
sinni til Fjárhagsráðs dags. 13.
maí, að olíuskipið „Baltimore
Trader“, sem flytja átti olíu til
Olíufélagsins h. f., hafi lent í
árekstri, sem mun hafa verið 2.
marz, og hafi orðið að fá annað
skip í þess stað. Um þetta segir í
skýrslu SÍS:
„Skip til fiutninga á hreinum
olíum voru fá á lausum kili á
þessum tíma. Umboðsmaðurinn
komst þá í samband við Panama-
félagið Union Gulf Line og tók
á leigu hjá því skipið „Perry-
ville“, sem hlóð fullfermi þ. 19.
marz og losaði hér í apríl-byrj-
un og bjargaði þannig illu á-
standi. Fyrir þetta skip var kraf-
izt farmgjalds skv. London
Award Rate, $8.25 pr. long ton,
og var gengið að því eins og á
stóð. Er því ekki um neinn arð
af því skipi að ræða, a. m. k.
ekki til íslenzkra aðilja (sic)“.
Það er auðséð á þessum um-
mælum að SÍS telur raunveru-
lega að farmgjaldið fyrir Perry-
ville sé óeðlilega hátt og kemur
því með afsakanir, sem eru í
því fólgnar að Olíufélagið h. f.
hafi verið að verða oliulaust og
að skip til flutninga á „hreinum"
olíum hafi verið fá á lausum
kili á þsssum tíma. Það er að vísu
rétt að lítið mun hafa verið um
olíu hjá Olíufélaginu h. f. í byrj-
un marz, en það má telja full-
komlega upplýst að það er al-
rangt að lítið hafi verið um skip
til slíkra flutninga á þessum
Rósturnar hófust á þriðjudag-1
inn, þegar verkamenn sem vinna
að byggingu „Potempkin" hús- j
anna við Stalin-stræti lögðu nið-
ur vinnu og gengu í fylkingu til
stjórnarráðsbygginganna. )
Upphafleg krafa verkamanna
þessara var að afnumin væri til-
skipun þess efnis að menn ykju •
afköst sín um 10% án aukinna
launa. En fregnin um kröfugöngu
byggingarverkamanna barst einst
og eldur í sinu um álla Austur-
Berlín og þúsundir annarra
verkamanna og starfsmanna við
ríkisfyrirtæki lögðu niður vinnu
og fylktu sér í gönguna.
„LÖGREGLAN
ER MEÐ YKKUR“
Mannfjöldinn, sem þátt tók i
kröfugöngu þessari varð svo gíf-
urlegur að lögreglulið borgarinn-
ar gat við ekkert ráðið. Mörg
dæmi þess sáust og að alþýðu-
lögreglumenn gengu í lið með
verkalýðnum og hrópuðu: „Lög-
reglan er með ykkur“. Þegár
fólkið sá að lögregluliðið var
magnlaust gegn því, þá óx því
kjarkur og kröfur voru bornar
fram um að frjálsar kosningar
færu fram og kommúnistastjórn-
in færi frá völdum.
KOMMÚNISTAR
LÁTA UNDAN
Þegar mannfjöldinn safnaðist
í kringum stjórnarráðsbygging-
arnar og ekki var annað sýnt en
að hann ætlaði að beitá valdi og
ráðast inn í þær, þá glúpnaði
kommúnistastjórnin og lét út-
varpa tilkynningu um að tilskip-
un sú sem var tilefni róstanna
væri afnumin. Við þessa tilkynn-
ingu hægðist nokkuð um í borg-
Frh. á bls. 2.
tíma og fær það því ekki staðist;
Lýðveldi er stofn-
að í Egyptalandi
Naguib fyrsli forseli þess
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
CAIRÓ, 18. júní. — í kvöld var Egyptaland lýst lýðveldi og
Naguib, sem stóð fyrir stjórnlagarofinu í júlí í fyrra, verður fyrsti
forseti þess og jafnframt forsætisráðherra.
Gefin var út tilkynning um þetta, er Naguib hafði boðað endur-
skipan ríkisstjórnarinnar, með því að í henni fengu 3 nýir ráð-
herrar sæti. Voru þeir áður í byltingarráðinu svokallaða, sem sett
var á laggirnar í fyrrasumar, er Farúk hafði verið velt úr sessi.
Þannig verður Hakim Amer hermálaráðherra og tekur við því
embætti af Naguib. Abdel NasseV verður innanríkisráðherra og
Salah Salin verður trúmálaráðherra.
FYRSTA AFIMAN
BERLÍN, 18. júní. — Aust-
ur þýzka útvarpið las í dag
upp tilkynningu frá rúss-
nesku hernámnstjórninni
þess efnis, að nokkru eftir
hádegi hefði Willi Göttling,
búsettur í Vestur Berlín,
verið skotinn af rússneskri
aftökusveit. Göttling var
handtekinn snemma í morg-
un, leiddur fyrir herrétt,
dæmdur og skotinn allt á
sama degi.
Eftir að vestur-þýzkar
útvarpsstöðvar höfðu skýrt
frá frétt þessari-, var þýzki
fáninn dregin hvarvetna í
hálfa stöng í Vestur Ber-
lín og Vestur Þýzkalandi.
í tilkynningu Rússa var
sagt að Willi hefði verið
fundinn sekur um áróðurs-
starfsemi og að hafa tekið
þátt í uppreisnartilraun
gegn austur-þýzku stjórn-
inni.